Dagblaðið - 08.04.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980.
M/sEsja
fer frá Reykjavik fimmtudaginn 10.
þ.m. austur um land til Seyðis-
fjarðar og tekur vörur á eftirtaldar
hafnir: Vestmannaeyjar, Horna-
fjörð, Djúpavog, Breiðdalsvfk,
Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Reyðarfjörð, Eskifjörð, Neskaup-
stað og Seyöisfjörð.
Vörumöttaka alla virka daga til
9. þ.m.
M/s Hekla
fer frá Reykjavfk föstudaginn 11.
þ.m. vestur um land f hringferð og
tekur vörur á eftirtaldar hafnir:
Patreksfjörð (Tálknafjörð og
Bfldudal um Patreksfjörð), Þing-
eyri, lsafjörð (Flatcyri, Súganda-
fjörð og Bolungarvfk um Ísafjörð),
Norðurfjörð, Siglufjörð, Ólafs-
fjörð, Akureyri, Húsavfk, Raufar-
höfn, Þórshöfn, Bakkafjörð,
Vopnafjörð og Borgarfjörð eystri.
Vörumóttaka alia virka daga til
10. þ.m.
General
Eigum á lager, Gen-
eral borvólar með og
án sjátfvirkrar
niðurfærs/u.
Sériega hagstætt verð
.irfl injflæflsí
Armúla 22. Sími 34060.
Dagblaö
án ríkisstyrks
\
Rotterdam
alla miðvikudaga
800 manns hafa látið lífið og yfir 2000 særzt í bardögum:
Samið um vopnahlé
i Chad-stríðinu
— samt ólíklegt að varanlegur f riður komist á
Vopnahlé i borgarastyrjöldinni i
Chad átti að taka gildi kl. 10 i niorg-
un að ísl. tíma. En báðir hinir stríð-
andi aðilar efuðust stórlega um að
vopnahléið yrði áfangi i átt að varan-
legum friði i landinu.Goukouni
Oueiddei forseti skrifaði undir
vopnahléssamning á sunnudaginn
ásamt höfuðandstæðingi sínum,
Bissene Habre varnarmálaráðherra
eftir að Gnassingbe Eyademan, for-
seti Togo, hafði í tvo daga borið sátt-
arorð á milli þeirra.
Goukouni forseti kvaðst svartsýnn
á að vopnahléssamningurinn yrði til
mikils; ,,þvi ég þekki andstæðing-
inn”. Habre varnarmálaráðherra
.treysti fjandmönnum sinum lika var-
lega en sagðist virða vopnahlé á
meðan forsetinn og menn hans gerðu
slíkt hið sama.
Fullyrt er að yfir 800 manns hafi
látið lifið og meira en 2000 manns
særzt í hörðunt bardögum undan-
farna 16 daga i höfuðborginni Ndja-
mena, sem nú er nánasl rústir einar.
Meir en 70000 manns hafa flúið
höfuðborgina til Kamerún og sýna
engin merki þess að vilja snúa heim.
Vopnahléið er hið fimmta í röðinni
VACVAttÐ
Kjarnorka
ímótbyr
Þúsundir baráttumanna gegn
kjarnorku í Bandarikjunum
efndu til friðsamlegra mótmæla-
aógeröa á dögunum I Harrisburg
um 10 mílur frá kjamorkuverinu
á Three Miles Island sem bilaöi
alvarlega í marz 1979. Meöal
mótmælenda voru popptónlistar-
mennirnir Stephen Stills og I.inda
Ronstadt.
UtÍtSEFfm JAFAN
Útvarp með 12 watta magnara og 4 bylgjum, MW FM LW SW.
Kassettusegulband fyrir Normal og Cr O: kassettur.
Innbyggðir mikrafónar. 2 hátalarar 5 14 tommur hver.
Tækið er bæði fyrir straumog rafhlöðurog
vegur aðeins 5,1 kg. með
rafhlöðum.
ÖTRÚLEG
HLJÓMGÆÐI
STEREO
Ferðakassettuútvarp
með 12 watta magnara og 4 bylgjum
siðan bardagar hófust að nýju i
Chad. Fulltrúar fjögurra ríkja,
Kamerún, Nigeriu, Liberiu og Togo,
fylgjast með að stríðsaðilar virði það.
Þeim til aðstoðar verða friðargæzlu-
sveitir Einingarsamtaka Afrikuríkja.
Borgarastrið hefur geisað i Chad af
og til allt frá þvi rikið varð sjálfstætt
árið 1960. Áður var Chad frönsk ný-
lenda.
Erlendar
fréttir
REUTER
Mexíkó:
32 f órust
íbílslysi
Að minnsta kosti 32 fórust og 25
slösuðust þegar langferðabifreið var
ckið á sleinvegg nálægt Culican, 850
km norðvestur af Mexikóborg í gær.
Bandaríkin:
Vopnaflutn-
ingar til Asíu
Bandarikjastjórn áformar að scnda
sjö skip lestuð hergögnum til hersveita
sinna i Asíu til að jafna metin i valda-
talli risaveldanna i kjölfar innrásar
Sovétrikjanna í Afganistan.
Havana:
Flóttafólkið
hangir
í trjánum
Stjórnvöld i Havana á Kúbu
hafa nú hafið að gefa út sérstök
vegabréf til hinna tiu þúsund
flóttamanna, sem leitað hafa
hælis i sendiráði Perú i borginni.
Liggur við neyðarástandi á sendi-
ráðslóðinni, svo er troðningurinn
mikill. Verða sumir flóttamann-
anna jafnvel að hafast við uppi i
trjánum á lóðinni.
Tildrög málsins voru þau, að
nokkrir Kúbumenn sem vildu
komast úr landi óku inn á lóð
sendiráðs Perú fyrir helgi á stórri
bifreið. Komust þeir inn en við
atganginn særðist einn kúbanski
vörðurinn við sendiráðið. Var þá
hætt að hafa verði þar að skipan
kúbanskra stjórnvalda.
Skipti þá engum togum að fólk
flykktist að sendiráðinu og baðsl
hælis sem pólitískir flóttamenn
og vildi fá aðstoð við að komast
úr landi. Eftir rúman sólarhring
voru kúbönsku sendiráðsverðirn-
ir aftur komnir á sinn stað og lóð-
inni lokað. Þá voru komnir eitt-
hvað um tíu þúsund manns inn á
lóðina.
Perú sagðist ekki hafa bolmagn
til að taka við svo mörgum flótta-
mönnum og bað um alþjóðlega
aðstoð. Kúbustjórn sakaði stjórn
Perú og aðra um að hafa hvatt
Kúbumenn til að leita hælis í
sendiráðinu. Lá við öngþveiti en
nú virðist vera ætlunin að leyfa
fólkinu að hverfa af landi brott.