Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 28
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980.
' ' “\
28
Roman Dzindzichashvili...
Ovæntur sigurvegari í Lone Pine
Bandaríski auðjöfurinn Luis D.
Statham hefur reynst skáklífi i Kali-
forniu ómetanleg lyftistöng á undan-
förnum árum. Árlega hefur hann
fjármagnað opna skákmótið I Lone
Pine, sem nú var haldið í 10. sinn.
Hin háu verðlaun hafa gert það að
verkum að fremstu skákmeistarar
heims fjölmenna á mótið og koma
sumir ár eftir ár, enda aðstæður allar
hinar ágætustu.
Aðsókn skákmanna á mótið var
orðin meiri en góðu hófi gegndi, því
samkomuhúsið sem Statham gaf
l.one Pine bænum bjó yfir takmörk-
uðu rými. Því var gripið til þess ráðs
að herða inntökuskilyrði verulega og
var mótið nú einungis opið stórmeist-
urum svo og skákmönnum með 2450
Eló-stig eða meira. Auk þess höfðu
til allrar hamingju skákmenn yngri en
21 árs með 2350 stig eða meira þátt-
tökurétt. Við Margeir Pétursson drif-
um okkur því á mótið, enda til mikils
að vinna.
Alls mættu 43 skákmenn til leiks,
þar af 23 stórmeistarar. Meðalstig
keppenda voru 2460 sem var hærra
en á nokkru öðru opnu skákmóti sem
haldið hefur verið. Sennilega verður
það met ekki slegið fyrr en á næsta
Lone Pine móti.
Í upphafi tefldi Sovétmeistarinn
Geller skínandi vel og hafði örugga
forustu eftir 5 umferðir, 4 1/2 vinn-
ing.Eftir það fór að halla undan fæti,
enda var hann ákaflega óheppinn
með andstæðinga og þá sérstaklega
liti það sem eftir var mótsins. í 4 síð-
ustu umferðunum fékk hann svart i 3
skákum, gegn Gheorghiu, Larsen og
Miles, en hvitt hafði hann aðeins
gegn landa sínum Balashov og þar
var auðvitað fljótlega samið urn jafn-
tefli. Sumir vildu halda því fram að
skákstjórinn hafi átt hér mestan hlut
að máli og gárungarnir fullyrtu að
hann hefði einungis verið að hlíta
fyrirmælum frá Carter forseta . . .
Óvæntur sigurvegari mótsins varð
Roman Dzindzichashvili, fyrrum
Sovét-stórmeistari frá Ísrael, sem býr
nú í Bandarikjunum. Dzind beitti
hinu fræga Monrad-bragði í upphafi
mótsins, þ.e. missti niður nokkra
vinninga svo hann fengi léttari and-
stæðinga í seinni hlutanum. í I. um-
ferð gerði hann jafntefli við Grefe frá
Bandarikjunum, sem hafnaði að lok-
um i neðsta sæti, i 2. umferð tapaði
hann fyrir 17 ára Bandarikjamanni,
Root að nafni og í þeirri 3. gerði
hann jafntefli við Zaltsman frá
Bandarikjunum, sem ásamt fjórum
öðrum hafnaði í næstneðsta sæti.
Síðan vann hann 6 skákir i röð og
jafnframt 15.000 $, þvi engum
öðrum tókst að krækja sér i 7 vinn-
inga. Svona á að fara að þessu!
Úrslitaskák mótsins var tefld i sið-
ustu umferð, milli Dzind og Alburt,
sem einnig er landflótta Sovét-stór-
meistari. Höfðu menn orð á þvi, að
það jaðraði við hneyksli að úrslita-
skákin á svo sterku skákmóti skyldi
vera jafnvitlaus og raun bar vitni. Al-
burt náði heillavænlegri stöðu úr
byrjuninni og jók síðan smátt og
smátt yfirburði sína. Dzind lenti auk
þess i bullandi timahraki. Það
bjargaði honum hins vegar, að
Alburt virtist ekki sjá út úr augum sér
fyrir seðlum og lék herfilega af sér i
fyrsta leik eftir að timamörkunum
var náð. Skyndilega var Stafrófshvili
kominn með unnið tafl og við lékum
biðleik. Honum varð síðan ekki
skotaskuld úr þvi að vinna taflið eftir
bið.
Dzind er þekktur fjárhættuspiiari
og var m.a. i felum i Hollandi um
tíma af þeim sökum. Á milli umferða
telldi hann upp á.peninga við hvern
sem var, með 1 minútu á móti 3
minútum andstæðingsins. Fregnir
hcrma, að kvöldið fyrir úrslitaskák-
ina liafi hann teflt til kl. 5 um morg-
uninn!
Góðkunningi vor, Miles frá E^ng-
landi, tefldi vel gegn Geller í siðustu
umferð og færði sigurinn honum 6
1/2 vinning og 2. sætið. Hann hafði
orð á því við verðlaunaafhending-
una, að hann hefði getað gert enn
betur ef honum hefði ekki orðið illa á
i messunni áður en hann lagði af
stað. Eftir Reykjavíkurskákmóti
tefldi hann fjöltefli víðs vegar um
landið og i Keflavík var honum fært
skákmerki að gjöf, sem var haldið
þeirri náttúru að handhafi þess átti
að vinna sinar skákir. Hann gleymdi
þessu nterki hins vegar i Englandi, en
lét þess þó getið að þrátt fyrir alla
þessa fjarlægð hefði það haft sin
áhrif.
Næstir i röðinni komu eftirtaldir:
3.—7. Larsen, Geller, Alburt, Balas-
hov og Gheorghiu með 6 v.
8. —12. Fedorowicz, Ermenkov,
Peters, Panno og Gligoric með 5 1/2
v.
13. —17. Quinteros, Ivanovic, White-
head, Wilder og Margeir Pétursson
með 5 v.
18,—26. Kaufman, Jón L. Árnason,
Kaplan, Root, Henley, Reshevsky,
Raicevic, Torre og Cristiansen með 4
I /2 v. o.s.frv.
Skákmönnum með jafnmarga
vinninga er raðað eftir styrkleika
andstæðinganna, eins og gert er i
mótsblaðinu.
Þá er það sigurskák Miles við
Geller, sem færði honum 10.000 $.
Til samanburðar má geta þess, að 1.
verðlaun á Reykjavíkurskákmótinu
voru 2.500$!
Hvilt: Miles
Svart: Geller
Vængtafl.
1. c4 e6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4. Rf3
Be7 5. b3 0-0 6. Bb2 c5 7. 0-0 Re6 8.
e3 d4 9. exd4cxd4
Upp er komin nokkurs konar
Benónivörn, með skiptum litum.
Ekki þarf að minna á hvilikar hrak-
farir sú byrjun fór á siðastaReykja-
víkurskákmóti, en nú er öldin önnur.
10. Hel He8 11. a3 a5 12. d3 Bc5 13.
Rbd2 e5 14. Rg5 Bg4?!
Hvítur nær nú tökum á hvítu reit-
unum á miðborðinu. Betra ér 14. —
Ðc7, ásamt — b6 og — Bb7 og
svartur má vel við una.
15. Bf3 Bxf3 16. Dxf3 h6 17. Rge4
Rxe4 18. Rxe4 Bf8 19. Bcl He6 20.
h4 Be7 21. h5 Df8 22. Df5 Hb8 23. g4
b5 24. Kh2 bxc4 25. bxc4 Hb3 26.
Hgl Bxa3?
Svartur virðist hafa skapað sér dá-
góð færi á drottningarvæng, en
hvítur er einfaldlega fyrri lil á kóngs-
væng! Þetta peðsrán reynist dýrkeypt
og eftir á er auðvelt að mæla með
öðrum leikjum, sem breyta þó ekki
þeirri staðreynd að svanur á i erfið-
leikum.
27. Hxa3 Hxa3 28. Bxa3 Dxa3 29. g5!
I)f8
Eða 29, — De7 30, Rf6+ K f8 31.
Dh7 og vinnur.
30. Rf6+! gxf6 31. gxh6+ Kh8 32.
Hg7 Dxg7 33. hxg7 + Kxg7 34.
Dg3 + Kh7 35. h6!
Rúsinan i pylsuendanum. Drottn-
ingin kemst nú að baki viglínunnar
með úrslitaafleiðingum.
35. — Kxh6 36. Dg8 He7 37. Dc8!
He6 38. Dh8 + og svartur gafst upp.
Eftir 38. — Kg6 39. Dg8+ Kg6
(eða 39. — Kf5 40. Kg3! e4 4i. Dg4 +
Ke5 42. Dl'4 mát) 40. Dxf7 er stórfelll
liðstap fyrirsjáanlegt.
í hverri umferð voru veitt tvenn
verðlaun fyrir athyglisverðustu skák-
irnar. Margeir varð þeirrar ánægju
aðnjótandi að hljóta verðlaun fyrir
skák sina úr 4. umferð og það er þvi
ekki úr vegi að renna yfir hana.
Hvílt: Margeir Pétursson
Svarl: Grefe (Bandarikin)
Fornindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rc3 Rhd7 4.
e4 e5 5. Rf3 Be7 6. Be2 0-0 7. 0-0 c6
8. Hel He8 9. Hbl Bf8 10. Bfl a6 11.
b4 Dc7 12. a3 exd4 13. Rxd4 b5 14.
cxb5 axb5?!
Reglan segir að drepa beri inn á
miðborðið. en hér hefði svartur mátt
drepa aftur með c-peðinu og leika
síðan Bb7 með u.þ.b. jöfnum mögu-
leikum.
15. Bg5h6
Svartur féll auðvitað ekki í gildr-
una 15. — Hxa3? 16. Rxb5! og
vinnur.
16. Bh4 Db6 17. a4 bxa4 18. b5!? c5
19. Rc6a3?
Mun sterkara er 19. — Bb7, því
eftir 20. Rxa4 Dc7 er e4-peðið i upp-
námi og auk þess hótar svartur 21. —
g5 22. Bg3 og drepa tvívegis á c6.
20. I)b3 g5
21. Bc4!?gxh4 22. Bxf7+ Kh8(?)
Eftir hinn eðlilega leik 22. — Kg7,
hafði Margeir i huga gullfallegt fram-
hald: 23. Bxe8 Rxe8 24. Rd5 Db7 25.
Rd8! Da7 26. Re7!! Bxe7 27. Df7 +
Kh8 28. Rc6! Db6 29. Rxe7 og gegn
máthótunum á g8 og g6 á svartur
ekkert svar. Hins vegar gat svartur
leikið 22. — Kg7 23. Bxe8 c4! og
hefur þá fengið c5-reitinn til umráða
fyrir drottninguna. Staðan er þá flók-
in og tvísýn.
23. Bxe8 c4 24. Dxc4 Bxe8 25. Df7
Ref6 26. e5 dxe5 27. Rxe5 Bg7 28.
Rg6 + Kh7 29. He7 Rh5 30. Rf4!
Hvitur hefur nú vinningsstöðu.
30. — a2 (?) 31. Rxa2 Re5 32. DxhS
Df6 33. Rd5 Dd6 34. Rac3 Rg4 35.
Dxh4 Bf5 36. Hbel Hf8 37. b6 Kg6
38. Hxg7+ Kxg7 39. De7 +, og
svarturgafst upp.
Svæðismót
Austurlands 1980
Svæðismót Austurlands 1980 var
haldið á Eskifirði 14. —15. marz. I
eldri flokki voru keppendur 6, frá
Eskifirði.Stöðvarfirði, Egilsstöðum
og Fáskrúðsfirði.
Sigurvegari varð Hákon Sófusson,
Eskifirði, en hann hlaut 4 I/2 vinning
af 5 og þar með nafnbótina svæðis-
meistari Austurlands 1980. Sigur í
þessu móti veitir jafnframt rétt til
þátttöku i áskorendafjokki á Skák-
þingi íslands um páskana.
1. Hákon Sófusson, Kskifirfli 4 1/2 vinn.
2. Auóbergur Jónsson, KskifirAi 3 1/2 —
3. Viflar Jónsson, Slöflvarfirói 2 1/2 —
4. Þór Jónsson, Kskifirfli 2 —
5. Kinar M. Sigurflsson, Fáskrúflsf. 11/2 —
6. (iuAmundur InK'i, Kgilsstöflum 1 —
Í yngri flokki voru 22 keppendur;
frá Eskifirði, Neskaupstað, Egils-
stöðum, Stöðvarftrði, Eiðum og
Djúpavogi.
Keppni var mjög jöfn og spenn-
andi. Þrir urðu efstir og jafnir, þeir
Grétar Guðmundsson og Þorvaldur
Logason, Neskaupstað, og Magnús
Steinþórsson, Egilsstöðum, allir rneð
5 1/2 vinning af 7 mögulegum.
Grétar Guðmundsson varð sigur-
vegari þar sem hann var hæstur á
stigum.
Röð efstu manna:
1. (irclar Guflmundsson, Neskaupslafl 5 l/2vinn.
2. Maj>nús Sleinþórsson, Kgilsslöflum 5 1/2 —
3. Þorvaldur I.ogason, Neskapslafl 5 1/2 —
4. Oskar Bjarnason, Neskaupslafl 5 —
5. (tuflmundur Hjartarson, Djúpavogi 5 —
6. Oufljón Anloníusson, Kiflum/Vopnaf. 4 1/2 —
7. —9. Hlynur Áskelsson, Kskifirfli 4 —
7.—9. Guflný Jónsdótlir, Kskifirfli 4 —
7.-9. Hermann Hlöflversson, Kskifirfli 4
Skólaskákmót
Suður-Múlasýslu
Skólaskákmót S-Múlasýslu 1980
var haldið á Eskifirði 15. marz sl.
Keppt var í eldri flokki, 7.—9. bekk,
og yngri flokki, 1.—6. bekk. I eldri
flokki voru keppendur 10 frá 7 skól-
um i sýslunni.
Skólaskákmeistari varð Þorvaldur
Logason, Neskaupstað, sigraði alla
andstæðinga sina 9 að tölu.
Röð efstu manna:
1. Þorvaldur Logason, Neskaupslafl 9 vinn.
2. Magnús Sleinþórsson, KgilsstöAum 8 —
3. Óskar Bjarnason, Neskaupslafl 6 —
4. (íufljón Anloníusson, F.iflum 6 —
í yngri flokki voru keppendur 9 frá
5 skólum. Hermann Hlöðversson,
Eskifirði, varð skólaskákmeistari,
sigraði alla andstæðinga sina.
Röð efstu manna:
1. Hermann Hlöflversson, Kskifirfli 8 vinn.
2. Hlynur Áskelsson, Kskifirfli 5 —
3. Hclgi Hansson, Neskaupslafl 5 —
4. Slefán (íufljónsson, Slöflvarfirfli 5 —
Tveir efstu menn i hvorum flokki
halda áfram i kjördæmismót sem
haldið verður i apríl. Þar verða einnig
meðal keppenda 2 úr A-Skaftafells-
sýslu og 2 úr N-Múlasýslu. Sigurveg-
ari i kjördæmismóti vinnur sér rétt til
þátttöku i landsmóti þar sem keppt
verður um titilinn skólaskákmeistari
íslands.
SJÓMANNA-
DAGSRÁÐ
VESTMANNAEYJA
óskar eftir tilboðum frá hljómsveitum til að leika
fyrir dansi í Samkomuhúsi Vestmannaeyja um
sjómannadagshelgina, þ.e. bæði laugardag og
sunnudag. Ennfremur vantar tilboð í diskótek í
litla sal.
Tilboðum sé skilað fyrir 25. apríl til Sjómanna-
dagsráðs Vestmannaeyja, pósthólf 500, Vest-
mannaeyjum.
Auglýsing
frá Menntamálaráði Islands
um styrkveitingar árið 1980.
Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum verða á árinu veittir
eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði íslands:
Útgáfa tónverka
Til útgáfu íslenSkra tónverka verður veittur
styrkur að upphæð kr. 1.000.000. Umsóknum
skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau sem
áformað er að gefa út.
Dvalarstyrkir listamanna
Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 500.000
hver. Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem
hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja
mánaða skeið og vinna þar að listgrein sinni.
Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar upp-
lýsingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir sem ekki hafa
fengið sams konar styrk frá Menntamálaráði síð-
astliðin 5 ár ganga að öðru jöfnu fyrir við úthlut-
un.
Styrkir til fræðimanna
Styrkir þessir eru til stuðnings þeim sem stunda
fræðistörf og náttúrufræðirannsóknir. Umsókn-
um skulu fylgja upplýsingar um þau fræðiverk-
efni sem unnið er að.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa
borist Menntamálaráði, Skálholtsstíg 7 í Reykja-
vík, fyrir 28. apríl næstkomandi. Nauðsynlegt er
að nafnnúmer umsækjanda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Menningarsjóðs að Skálholtsstíg 7 í Reykjavík.
JÓN L. ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK