Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980.
29
Dustin Hoffman
leikur eigið líf
—eða að minnsta kosti líkt líf
Myndin Kramer gegn Kramer hel'ur
svo sannarlega slegið í gegn vestur i
Bandarikjunum. Í myndinni segir frá
hjónum sem eru að skilja og vilja bæði
fá forræði sonar sins og endar deila
jieirra með málaferlum. Föðurinn
leikur Dustin Hoffman og Þykir leikur
hans svo frábær að hann hefur verið
orðaður við óskarsverðlaun.
Móðurina leikur Meryl Streep en
soninn sent er sex ára leikur Justin
Henry sem einnig hefur verið orðaður
við óskarinn, fyrir beztan leik i auka-
hlutverki.
Dustin Hoffman leikur mann sem er
léttur og skemmtilegur og mikið fyrir
að láta á sér bera. Og þeir eiga margt
sameiginlegt sá leikni og sá sem leik-
ur. Sögupersónan er metnaðarfullur
maður i auglýsingabransanum sem á
konu sem tekur upp á þeim ósköpum
að vilja lika komast áfram í lífinu. Hún
yfirgefur því karl og krakka og heldur
út í heim. Eftir situr faðirinn með son
sem hann þekkir varla. Dustin sjálfur
hefur upplifað svipaðar aðstæður.
Hann og kona hans, Anne Byrne, eru
að skilja vegna þess að konan óskaði
eftir þvi að fá sjálf að leika og dansa
opinberlega. Hennar störf og hans fóru
ekki saman og þvi gáfust þau upp á
sambandinu. Dustin kærir sig ekki um
aðra konu sem lætur sinn frama sitja í
fyrirrúmi fyrir hans. Því býr konan
hans fyrrverandi ein í New York með
börn sin en Dustin býr einn i
Hollywood.
Samt vill Dustin ekki alls kostar
viðurkenna að lif hans sé eins og lif
Kramers þess sem hann leikur. ,,Ég
leik ekki Kramer af þvi að ég sé einhver
náungi á götunni sem passar inn í hlut-
verkið. Þegar ég var þritugur lék ég
tvitugan strák i Graduate.” Með þessu
á hann við að hann geti leikið nærri því
hvað sem er. Og tilfellið er vist að þetta
er rétt hjá honum. En það er þó ekki
án átaka við samstarfsmenn sina og
leikstjóra. Dustin hefur fengið orð fyrir
að vera erfiður í umgengni og sagt er að
hann Ieyft sér næstum hvað sem er.
Gamlir vinir hans eru i hópum hættir
að tala við hann eftir að hann varð
frægur, svo óþolandi finnst þeim hann
orðinn.
En samskipti Dustins við Meryl
Streep og Justin Henry við leikinn í
Kramer myndinni voru þó hin ánægju-
legustu. Sérlega kom þeim vel saman
Justin og honum. Dustin sagði Justin
til um ýmislegt og að myndinni lokinni
voru þeir orðnir óaðskiljanlegir.
Töku myndarinnar lauk í desember
1978. Síðan hefur Dustin unnið við sex
kvikmyndir án þess að vera fastráðinn
hjá neinu kvikmyndafélaganna. Hann
hefur uppi áætlanir um að flytjast til
New York strax og húsið sent hann er
að kaupa þar er tilbúið. Þar langar
hann til þess að byrja aftur að leika á
sviði, helzt á Broadway, þar sem hann
vannsiðast árið 1975.
Dustin Hnffman ug Justin Henr.v urðu
úaóskiljanlegir vinir við töku mynd-
arinnar Kramer gegn Kramer.
Justin Henr.v og hundurinn hans, Chipper. Þeirbúa í New York.
Justin Henry:
Dustin Hoff-
man valdi hann
semson
Justin Henry, átta ára gamall
gutti sem leikur son Dustin Hoffman
i myndinni Kramer gegn Kramer, er
strákur, sem ’ veit hvað hann vill.
Aðspurður um hvort hann yrði
ánægður ef Hoffman fengi óskarinn
svarar hann ákveðinn: „Nei.”
Er þá Hoffman ekki bezti leikari í
heimi? „Alls ekki,” svarar strákur.
En hver er það þá? ,,Ég, Justin
Henry.”
í myndinni leikur Justin strákinn
Billy sem verður fyrir þeirri reynslu
að móðir hans yfirgefur hann án þess
að hann viti ástæðuna. ,,Ég var
óþekkur, var það ekki?” spyr hann
föður sinn í myndinni. ,, Var það ekki
þess vegna sem mamma fór?”
Justin hefur hlotið mikið lof fyrir
góðan leik og vill leikstjórinn meina
að það eigi hann Dustin að þakka.
Strákur hefur jafnvel verið orðaður
við óskarinn en ekki er þó talið liklegt
að hann hreppi hann að þessu sinni.
Hann segist líka hafa haft svo gaman
af þvi að leika i ntyndinni að slik
verðlaun skipti engu máli.
Justin var valinn úr hópi 750
barna frá New York. Þar af var
300 boðið i kvikmyndaverið og valið
úr þeim þar. Úr þeim hópi voru
valdir 7 í reynslutöku og Justin þótti
þeirra beztur. Dustin Hoffman hafði
mest um það val að segja.
Kvikmyndunin sjálf var nokkuð
þreytandi fyrir Justin. Hann var
kallaður inn eldsnemma á morgnana
en þurfti svo ef til vill að bíða
liðlangan daginn eftir að að honum
kæmi. Að visu fékk hann til eigin
afnota á meðan ibúð af finustu gerð
og einkakennara, en honum hálf-
leiddist samt. Nú er hann kontinn
aftur heim til pabba og mömmu og
systur sinnar, Tabbatha.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Smáauglýsingar
WBIABSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld