Dagblaðið - 11.04.1980, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980.
Mánudag 14. apríl kl. 20:30.
„Om nyere norsk litteratur, med særlig
henblikk pá kvinnelitteraturen.” Norski
bókmenntafræðingurinn Janneken
0verland heldur fyrirlestur.
Allir velkomnir
Til sölu
Galant Sapparo GSL 2000
árg. 78, sjálfskiptur, vökvastýri, aflheml-
ar og útvarp. Ekinn 18 þúsund km. Stór-
glæsilegur bíll í sérflokki. Verður til sýnis
eftir hádegi í dag og á morgun.
Upplýsingar í síma 30846.
TOYOTASALURINHL
OP'
ki1
-5*
Nýbýlavegi 8 fíportinu).
AUGLÝSIR:
Toyota Cressida station '78,
ekinn 27 þús., verð 5.7 millj.
Toyota Corona Mark // '77,
ekinn65 þús., verð4.l millj.
Toyota Land Cruiser '75,
ekinn 62 þús., verð4.7 millj.
Austin Mini Special 78,
ekinn 20 þús. km, verð 2.9 millj.
Austin Mini 76,
ekinn 38 þús., verð 1.7 millj.
Toyota Ceiica L T sjátfskiptur 74,
ekinn 81 þús., verð 3.5 millj.
Ford Bronco 6 cyl '66,
verð 1.950 þús.
Ath.: Okkur vantar allar gerðir af notuðum Toyota-bíl-
um í sýningarsal.
TOYOTA-SALURINN
fílÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍMI44144.
Volvo 145 station árg. ’74. Rauður, Þessi maður á skilið að eiga bíl. Scout
fallegur og vel með farinn bill. Fasteign II árg. ’76 aðeins ekinn 17 þús. km.
með flautu. Höfum einnig Volvo 245 eins og nýr úr kassanum. 8 cyl bein-
árg.'76, líka með flautu. skiptur með vökvastýri og brcmsum.
Skipti á ódýrari. Þennan bil er hægt að
selja í gegnum síma án þess að roðna.
gl^íííjlíííííííííííííiIiÍHÍíEdiÍÍiÍi^
BJLAKAUjFf
limlinliiiliiil i: J;; lin Irnli ril, i Jinli nli i!i
[■ÚH......iiiinmiimmiiuiiiiiiiiiiiii::i:mii;iiiiiiiii;iiiiii.iniii;iii;!!i!!iiiiiiiiiiiii:iiiilii!i
. SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
Benz 608 árg. ’73. Sendiferðabill i G.M.C. Ventura árg. ’75. 8 cyl 350
góðu standi með kúlutoppi. Lengri cub., sjálfskiptur með aflstýri og
gerðin, þægilegur vinnubill og stöðvar- bremsum. Ný breið dekk. Upphækk-
leyfi fylgir. aður. Ekinn 88 þús. km. Skipti mögu-
leg. Toppbíll.
Jeepsteer árg. ’73 í algjörum sér- VW rúgbrauð árg. '77, aðeins ekinn
flokki. Brúnn og hvitur eins og nýr að 44 þús. km. Tilvalinn fyrir iitil fyrir-
innan og utan. Það hefur fullorðinm tæki eða til innréttingar sem ferðabíll.
maður átt þennan bil og meðferðin er
einstök.
Vonir standa til þess að keppendur i Sjóralli 1980 verði margir og er undirbúningur keppenda hatinn víða um land.
SJÓRALL1980
UNDIRBÚIÐ AF
FULLUMKRAFTI
—keppnin heff st laugardaginn 5. júlí og lýkur sunnudaginn
12. júlí—þnr f lokkar keppnisbáta í sumar
Sigurvegarar I Sjóralli 1978, þeir Hafsteinn Sveinsson og Runólfur Guðjónsson.
Undirbúningur fyrir Sjórall 1980 á
vegum Dagblaðsins og Snarfara
gengur vel og eru menn viða um land
að hugleiða þátttöku og margir þegar
ákveðnir. Sjórallið hefst 5. júli, á
laugardegi, og lýkur sunnudaginn 12.
júli. Rallið er þvi einum degi lengra
en verið hefur tvö undanfarin ár en
þá hefur það staðið frá sunnudegi til
sunnudags.
Bátarnir í Sjóralli 1980 verða
ræstir kl. 14 á laugardeginum í
Reykjavík og samkvæmt venju
verður haldið austur með suður-
ströndinni og hringinn i kringum
land og endað i Reykajvik. Keppnis-
leggirnir eru átta og er lengsti leggur-
inn ntilli Vestmannaeyja og Hafnar i
Homafirði eða 157 mílur.
Staðir þeir sem rallkapparnir munu
gista á leið sinni eru Vestmannaeyjar,
Höfn, Neskaupstaður, Raufarhöfn,
Akureyri, ísafjörður og Ólafsvík. Þá
munu kapparnir og koma ýið i
Grindavik, Grímsey og á Siglufirði.
Flokkaskipting
og stigagjöf
I sjórallinu i suntar verður keppt i
þremur flokkum. í A-flokki verða
bátar með vél að 175 hestöflum og
18—25 fet að lengd. í B-flokki verða
bátar nteð vél frá 176 hö. til 400 hö.
og 18—25 fet að lengd og í C-flokki
verða bátar með vél yfir 401 hestafli
og 18 fet ogstærri.
Bátunum verða gefin stig í hverri
höfn og fær sá bátur flest stig sem
fyrstur er milli hafna og siðan koll af
kolli. Hvað varðar flokkaskiptingu
bátanna þá hefur keppnissljórn rélt
til þess að aðlaga einstaka báta að
flokkum ef þeir reynast einir fyrir
utan.
Kostnaður og
uppihald
Keppendur leggja sjálfir frani báta
sína og standa sjálfir straum af
kostnaði við bátana og útbunað
þeirra, Dagblaðið greiðir uppihald
umhverfis landið, þ.e. gistingu, mál-
tiðir og nestispakka á sjó.
Keppendur greiða sjálfir eldsneyti
á báta sina. Safnað verður auglýsing-
Skálað I kampavini eftir sigurinn í Sjó-
ralli 1979: Ólafur Skagvik og Bjarni
Sveinsson.
um á keppnisbátana og rennur and-
virði þeirra til greiðslu á eldsneyti.
Vitað er nú þegar um mörg fyrirtæki
sem vilja auglýsa og nokkur sem ætla
að gera út keppnisbáta fyrir eigin
reikning, likt og Morgunblaðið gerði
við keppnisbátinn Ingu í Sjóralli
1979. Þá verður leitað fleiri lekju-
linda fyrir eldsneytissjóð, m.a. i
formi veðbanka.
Þjónusta við
keppendur
Félag farstöðvaeigenda ntun ríða
net talstöðvamanna umhverfis
landið. Farstöðvaeigendur hafa veitt
þessa þjónustu i fyrri sjóröllum og
hefur það gefizt ákaflega vel og verið
mikið öryggisatriði. Reynslan hefur
sýnt að keppnisbátar verða aldrei
sambandslausir við land vegna þjón-
ustu farstöðvaeigenda.
Bilar keppnisstjórnar fara land-
leiðina hringinn og munu taka vara-
hluti fyrir keppendur eftir því sem
tök eru á. Þá er hugmyndin að sér-
stakur björgunarbátur sigli hringinn i
fylgd keppnisbálanna og verði þvi
ávallt i næsta nágrenni ef aðstoðar er
þörf.
öryggisreglur
Um öryggisreglur keppnisbáta í
sjóralli er visað til gildandi regluerða
um öryggisbúnað báta. Trúnaðar-
ntenn keppnisstjórnar munu taka út
alla keppnisbáta hálfum mánuði fyrir
upphaf keppninnar og ganga úr
skugga um haffæri þeirra.
Að lokum má geta þess að Ásgeir
Long kvikmyndagerðarmaður mun
gera kvikmynd um Sjórall 1980 og
verður myndin sýnd bæði hér á landi
og erlendis til kynningar á sjóröllum
framtíðar. -JH
KEPPNISLEIÐIN
í SJÓRALU1980
1. Laugardagur 5. júlí:
Brottför frá Reykjavik kl„
14.00. Komið til Grindavíkur
kl. 17.00. Skyldustanz 1 tinti.
Farið frá Grindavík kl. 18.00.
Komið til Vestinannaeyja kl.
22.00.'
2. Sunnudagur 6. júli:
Brottför frá Vestmannaeyjum
kl. 10.00. Komið til Hafnar i
Hornafirði kl. 20.00.
3. Mánudagur 7. júli:
Brottför frá Höfn kl. 10.00.
Komið til Neskaupstaðar kl.
15.00.
4. ÞriðjudagurS. júli:
Brottför frá Ncskaupstað kl.
10.00. Komið til Raufarhafnar
kl. 17.00.
5.. Miðvikudagur 9. júlí:
Brottför frá Raufarhöfn kl.
10.00. Komið til Grimseyjar kl.
14.00. Skyldústanz 2 timar.
Farið frá Grimsey kl. 16.00.
Komið til Akureyrar kl. 20.00.
Dvalið þar fimmtudag.
6. Föstudagur 10. júlí:
Brottför frá Akureyri kl. 10.00.
Komið til Siglufjarðar kl. 13.00.
Skyldustanz I timi. Farið frá
Siglufirði kl. 14.00. Komið til
ísafjarðar kl. 22.00.
7. I.augardagur 11. júli:
Brottför frá ísafirði kl. 12.00.
Komið til Ólafsvikur kl. 18.00.
8. Sunnudagur 12. júli:
Brottför kl. 13.00. Komið til
Reykjavikur kl. 19.00
Athuga ber að gert er ráð fyrir 15
milna meðalhraða við útreikning á
keppnisleiðunum.