Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 6

Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1980. MATREIÐSLUMENN Óskum eftir aö ráða matreiðslumann nú þegar. VERSAUR, HAMRABORG 4, KÚP. Uppl. á staðnum í dag og á morgun milli kl. 13 og 17. Einstaklingsíbúd óskast fyrir starfsmann okkar, helzt í austanverðu Fossvogshverfi. Gróðrarstöðin Mörk. — Sími84550' Birtíng vinninga hefst á morgun. Blaksambandið. HEFILBEKKIR Vorum að fá hefilbekki, 212 cm og 130 cm langa. Eigum einnig fyrirliggjandi vandaðar hring- snúrur (úti). LÁRUS JÓNSSON HF. Umbofls- & heildverzlun Laugarnesvegi 59. — Simi 37189. ítalski stálstóllinn Vadina Fjaðurmagnaður Stílhreinn Verð kr. 29.980.- Ypsilon Góð hönnun kemur aftur og aftur. Sjón er sögu ríkari, lítið inn. ABorð-ypsilon Borðplata svartur askur, stálfætur Verð kr. 126.900.- cSfo Nýborg ? O Ármúla 23 Sími 86755 mWétmm 5 Kaupmannahöfn: ALLT í ÓSTANDI ÁN0RDURBRÚ —Ástandið á Nörrebro er langt frá því að vera gott ennþá, sagði Einar Ágústsson sendiherra í Danmörku í simtali við Dagblaðið. — Þeir sem eru á móti nýbyggingum þar standa nú vörð um hverfið og það fer engin umferð um Nörrebro eins og stendur. Nörrebrohverfið, sem oft er nefnt svarti ferhyrningurinn því að það er gamalt og niðurnítt verkamanna- hverfi, var rutt aðfaranótt sunnudagsins undir lögregluvernd. í gær hafðist lögreglan þó ekkert að gegn þeim, sem staðið hafa í stappi við að vernda það í rúma viku. Ástæðan fyrir þessari deilu allri er sú, að til skamms tíma var þarna starfsvöllur fyrir krakka. Yfirvöid Kaupmannahafnar ákváðu að ryðja svæðið og reisa þarna hvérfi sex hæða hárra leirsteinshúsa. Við það vildu margir ekki una og kom því til snarpra átaka, sem nú hafa staðið í rúmlega viku. Vestur-Þýzkaland: Hermaður brennd ist á NATO-hátíð Vestur-þýzkur hermaður var i lífshættu í morgun eftir að mótmælendur kveiktu í fimm Voíkswagen rúgbrauðum í eigu hersins. Voru þeir að mótmæla athöfn þar sem 1200 nýir hermenn sóru landinu hollustu sína í Bremen. Meðal viðstaddra var Karl Carstens forseti V-Þýzkalands. Þúsundir manna, sem komu til að mót- mæla athöfn þessari, börðust lengi við fjölmennt lögreglulið. Auk þess sem athöfn þessi var haldin til að taka nýliðana 1200 í herinn var hún hátíð fyrir 25 ára veru Þjóðverja í Atlantshafsbandalaginu. Talsmaður lögreglunnar í Bremen vildi í morgun ekki gefa upp hversu margir hefðu verið handteknir i nótt. Hann lét þess þó getið að að minnsta kosti fjörutíu lögreglumenn hefðu slasazt og talsverður fjöldi hinna. Hann sagði að mótmælendumir hefðu skotið merkiblysum og flugeldum að þyrlunni er flutti forsetann, Hans Apel vamarmálaráðherra og Hans Koschnick borgarstjóra i Bremen. Hún komst þó klakklaust á fótboltavöllinn, þar sem athöfnin fór fram. Hundruð óeirðalög- regluþjóna, sem kaUaðir voru út vegna mótmælanna, réðust loks gegn mót- mælendunum og tókst smám saman að komaá friði. Snemma í morgun var borgarstjóm Bremen kvödd saman úl að ræða á- standið i gærkvöld. Flokkur Helmuts Schmidts, Sósíaldemókratar, fara með meirihluta í borgarstjórninni. —fjörutíu lögreglumenn slösuðust og fimm bifreiðir brenndar Karl Carstens forseti Vestur-Þýzkalands var viðstaddur 25 ára afmælishátíð V- Þjóðverja I Atlantshafsbandalaginu.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.