Dagblaðið - 07.05.1980, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGÚR 7. MAÍ 1980.
Veðrið
Spáfl er norflanátt um allt land og
frostl. Éljagangur á norðanverðu
landinu. Úrfcomulaustá Sufluriandi.
Kkikkan sex I morgun voru -3 stig
og skýjafl í Reykjavfc, -3 stig og
skýjafl í Gufuskáium, snjóál og —4
stig Gaharvlti, Akureyrl —4 stig og
skýjafl, Raufartiöfn —5 stig og snjóál,
Dalatangi snjóál á slflustu klukku
stund og —4 stíg, Höfn f Homarfiröi
—3 stig og hálfskýjafl, Stórhöffli (
Vestmannaeyjum —2 stig og snjó-
koma.
Þórshöfn í Faareyjum alskýjafl og
vlfl frostmark, Kaupmannahöfn hálf-
skýjafl og 7 stig, OskJ 8 stig og
skýjafl, Stokkhólmur 7 stig og heifl-
skfrt, London alskýjafl og 7 stig,
Parfs þoka og 6 stig, Madrid hálf-
skýjafl og 9 stig, Lissabon skúr og 15
stig, Naw Yorfc 14 stig og skýjafl.
'-I
AncStát
ÁJ/ust Guðmundsson sem lézt hinn 26.
lapril sl. var fæddur 26. ágúst 1913 í
Vestmannaeyjum. Foreldrar hans vbru
hjónin Guðmundur Helgason sjó-*
maður og Guðrún Kristjánsdóttir.
Ágúst hóf prentnám í Eyjum og iauk
þvi síðar í Reykjavík. Eftir það starfaði
hann sem prentari, lengst í Alþýðu-
prentsmiðjunni í Reykjavík. Ágúst
kvæntist þann 14. nóvember 1942
Hönnu Hannesdóttur og eignuðust þau
einn son. Eina dóttur eignaðist Ágúst
fyrir hjónaband sitt.
Sigurður Hóseasson andaðist þann 2.
maí. Jarðarförin fer fram þriðjudaginn'
I3.maíkl. 1.30 frá Fossvogskirkju.
Pálina Guðmundsdóttir lézt þann 24.
apríl. Jarðarförin hefur farið fram íi
kyrrþey. ,
Guðbjörg Hallgrímsdóltir sem
andaðist 1. maí verður jarðsungin á
morgun, fimmtudag, kl. 15 frá
Fossvogskirkju.
Snorri Lárusson frá Seyðisfirði lézt 6.
mai.
Maria Sigríður Óskarsdótlir, Gnoðar-
vogi 16, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju á föstudaginn kl. 13.30.
Útivistarferðir
Miðvikudagur 7. mai kl. 20:
Álftancs, fyrsta kvöldganga vorsins. Vcrö 2000 kr..
fritt fyrir börn i fylgd mcð fullorðnum. Fariö frá BSÍ.
bensinsölu
SpiSakvöld
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Félagsvist vcrður spiluð i félagsheimilinu i kvöld.
þriðjudaginn 6. mai. kl. 21 til styrktar byggingu Hall
grimskirkju. Spilað verður annan hvcrn þriðjudag út,
maímánuð.
Garöeigendur ath.
Tek að mér flest venjuleg garðyrkju- og
sumarstörf. svo sem slátt á lóðum.
málun á girðingum. kantskurð og
hreinsun á trjábeðum. útvega einnig og
dreifi húsdýra og tilbúnum áburði. Geri
lilboð ef óskað er. Sanngjarnt verð.
Guðmundur. simi 37047. Geymið
auglýsinguna.
Málningarvinna
Getum bætt við okkur málningarvinnu
úti sem inni. Jón og Leiknir. málara
meistarar. símar 74803 og 51978.
Dyrasimaþjónusta.
Önnumst uppsetningar og viðgerðir á
dyrasímum og innanhússsimkerfum. sér
hæfðir menn. Uppl. i sima 10560.
IL'aviógeröir-Sprunguviðgerðir.
Wttum'sprungur í steyptum veggjum og
svölum. steypum þakrennur og berum i
þær þéttiefni. Einnig þak og glugga
viðgerðir. glerísetningar o. fl. Uppl. í
sima 81081.
Glerlsetningar sf.
Tökum að okkur glerísetningar.
Fræsum í gamla glugga fyrir verk
smiðjugler og skiptum um opnanlega
glugga og pósta. Gerum tilboð i vinnu
og verksmiðjugler yður að kostnaðar-
lausu. Notum aðeins bezta ísetningar
efni. Vanir menn, fljót og góð þjónusta.
Pantið tímanlega fyrir sumarið. Símar)
53106 á daginn og 54227 á kvöldin.
MinningarspjöSd
Minningarkort
Styrktarfélags vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félagsins.
Laugavegi II, Bókabúð Braga Brynjólfssonar.
Lækjargötu 2. Bókaverzlun Snæbjarnar. Hafnarstræti
4 og 9 og í Bókaverzlun Olivers Steins. Strandgötu 31.
Hafnarfirði.
Vakin er alhygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið
er á móti minningargjöfum í sima skrifstofunnar
15941, en minningarkortin siðan innheimt hjá send
anda með giróseðli. Mánuöina april — ágúst verður
skrifstofan opin frá kl. 9—16. opiö í hádeginu.
liiilliii
Síðustu tónleikar Tónskóla
Sigursveins í vetur
I kvöld, miðvikudaginn 7. mai, heldur Tónskóli Sigur
sveins D. Kristinssonar siðustu tónleika sína á þessum
vetri í Norræna húsinu. Á þessum tónleikum koma
aöeins fram nemendur á efri námsstigum og flytja fjöl
breytt og vandað efni að venju.
Meðal höfunda á efnisskrá má nefna Bach, Haydn.
Beethoven, Mozart, Lobos, Abbot og Berio.
Tónleikar sem þessir hafa verið fastur liöur i starf
semi Tónskólans nú i nokkur ár og notiö sivaxandi
vinsælda. Þeir hafa lika verið góður mælikvarði á þær
framfarir sem orðið hafa i skólanum og þær stöðugt
hækkandi kröfur sem Tónskólinn gerir til nemenda
sinna.
Tónleikarnir í kvöld verða eins og áður sagöi í
Norræna húsinu og hcfjast kl. 20.30. Eru foreldrar,
styrktarfélagar, nemendur. kennarar og aðrir velunn
arar tónskólans velkomnir meðan húsrúm leyfir.
iþróttir
Reykjavíkurmótið
í knattspyrnu
VlKINGSVÖI.I.UR
Vlkingur — Lriknir, 1.11. kl. 20.
KR VÖI.I.UR
KR-Fylkir, l.fl. Akl. 18.45.
KR — Fylklr.2. n. A kl. 20.
Kvikmyndir
Frá MIR-salnum,
Lindargötu 48
Á dagskránni i MlR salnum næstu daga:
Laugardagur 10. mai kl. 15: Kvikmyndasýning i
tilefni þess að 35 ár eru liöin frá lokum siðari heims
styrjaldarinnar. Sýnd verður kvikmyndin „Fanga
eyjan”. Enskurskýringartexti.
Mánudagur 12. mai kl. 19.30: Rússneskunámskeiði
félagsins veturinn 1979/80 slitið. Kvikmyndasýning.
Miðvikudagur 14. mai kl. 20.30: Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri rikisins segir frá ferð til Sovét
rikjanna i fyrra og sýnir litskyggnur.
Aðgangur að MÍR salnum. Lindargötu 48, 2. hæð. er
ókeypis og öllum hcimill meðan húsrúm leyfir.
MlR.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Sumarfundur félagsins verður nk. fimmtudag,. 8. mai
kl. 20.30 í félagsheimilinu. Frú Elisabet Waagesyngur
einsöng. frú Hulda Stefánsdóttir flytur frásöguþátt og
að lokum flytur séra Karl Sigurbjörnsson sumarhug
vekju. Kaffiveitingar veröa. Fjölmennið og takið með
ykkurgestir.
Valskonur
Siðasti fundur vetrarins veröur haldinn að Hliðarenda
miðvikudaginn 7. mai kl. 20.30. Spiluð verður félags
vist. Stelpur. takið ciginmennina eða aðra gesti með.
Seltjarnarkonur
á skemmtifund
í Breiðholti
Konum úr kvenfélaginu Seltjörn hefur verið boðið
á skemmtifund hjá kvenfélagi Breiðholts aðSeljabraui
54 miðvikudaginn 7. mai kl. 20.30. Mætiö hjá félags-
heimili Seltjarnarness kl. 20.00. Nánari up^lýsingar
gefa stjórnarkonur.
Nýja Galleríið,
Laugavegi 12
Alltaf er eitthvað nýtt að sjá. Nú stendur yfir sýning á
málverkum frá Vik i Mýrdal, Mýrdalnum. Kirkju
bæjarklaustri, Snæfellsnesi, Borgarfirði, Dýrafirði.
Þingvöllum, Þórsmörk og viðar. Málvefkin fást með
afborgunarskilmálum. »
Leiklist
Tvœr sýningar eftir
á Sumargestum
Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á rómaðri sýningu
Þjóöleikhússins á Sumargestum cftir Maxim Gorkj i
leikstjórn Stefáns Baldurssonar og leikmynd Þórunnar
Sigriðar Þorgrimsdóttur.
Sumargestir er annað leikritið eftir Gorkí sem Þjóö
lcikhúsið tekur til sýninga. Hitt verkið var Náttbóliö
sem sýnt var árið 1976. Sumargestir gefur okkur
mynd af firrtu menntafólki sem hefur gleymt uppruna
sinum og glataö hæfileikanum til að finna til með
öörum. Og þó svo verkið sé saman sett á fyrstu árum
þessarar aldar þá könnumst við mætavel viö mann
gerðirnar og þær tilfinningar sem þar er lýst.
Með hlutverk fara Erlingur Gislason. Guðrún
Gisladóttir, Þórunn Sigurðardóttir. Sigurður Sigur
jónsson, Helgi Skúlason, Anna Kristin Arngrims
dóttir. Gunnar Eyjólfsson. Kristbjörg Kjeld, Þor
steinn Gunnarsson. Arnar Jónsson. Bríet Héðins
dóttir, Róbert Arnfinnsson, Sigurður Skúlason.
Baldvin Halldórsson. Jón S. Gunnarsson og Guðrún
Þ. Stephensen.
Næstsiðasta sýning er föstudaginn 9. mai og síðasta
sýningin er á uppstigningardag. fimmtudaginn I5.
mai.
í öruggri borg —
Síðasta leiksviðsverk Jökuls
Jakobssonar frumsýnt
Fimmtudaginn 8. mai frumsýnir Þjóðleikhúsið siöasta
leiksviðsverk Jökuls Jakobssonar, I öruggri borg, á
Litla sviðinu. Nú eru tæp tuttugu ár siöan fyrsta leik
rit Jökuls, Pókók, var frúmsýnt i Iðnó og allar götur
siðan hafa verk hans verið flutt bæði af atvinnuleik
húsunum öllum sem og af áhugafólki víða um land.
I öruggri borg telst til kammerverka Jökulsoggerist
atburðarásin á heimili i Reykjavik. Æskuvinur hús
bóndans kemur i heimsókn eftir langdvöl I þriðja
heiminum við mikilvæg ráðgjafastörf. Á heimilinu
rikir. frómt frá sagt. undarlegt ástand sem orsakast af
þvi að heimurinn er á heljarþröm og kominn er loksins
limi athafna i stað orða. „Það þarf að gera eitlhvað
raunhæfi". segir j verkinu og þau orð hljóma reyndar
kunnuglega. Þetta höfum við öll sagt. hugsað eða
þótzt hugsa. En viljum við raunhæfar aðgerðir þó svo
allt sé í kaldakoli? Gesturinn, æskuvinurinn. stendur
óvænt frammi fyrir þessari spurningu i leiknum og
þessi spurning krefst svars og kallar á athafnir.
Ekki er gott að rekja hér atburðarásina frekar án
þess að cyðileggja ánægju væntanlegra áhorfenda því
verkiðer fullt af óvæntum atvikum. *
Leikstjóri þessarar sýningar cr Sveinn Einarsson-
Lcikmyndin er eftir Baltasar en Dóra Einarsdóttir
gerir búningana. Lýsingu annast Kristinn DaníelssonA
Þorstein Gunnarsson leikur vininn er kominii i
heimsókn. Helga Bachmann leikur húsmóðurina á^
heimilinu, Bríet Héðinsdóttir og Bessi Bjarnason leika
hjón og heimilisvini og Erlingur Gislason leikur hús
bóndann.
Frumsýningin er sem fyrr segir fimmtudaginn 8.
maí en önnur sýning er sunnudaginn 11. mai.
Samkeppni um smásögur
fyrir 12—16 ára
Samtök norrænna móðurmálskennara boða til sam
keppni um smásögur ætlaðar lesendum á aldrinum
12—16 ára. Sögurnar skulu vera áður óbirtar.
Hámarkslengd sögunnar skal vera tólf vélritaðar síður
miðað við um það bil tvö þúsund einingar á siðu.
Fyrstu verðlaun eru fimm þúsund norskar krónur
en auk þess verður veitt viðurkenning fyrir niu sögur.
tvö þúsund krónur norskar.
Réttur er áskilinn til útgáfu verðlaunasagnanna á
frummáli og i þýðingum eftir þvi sem þarf. Komi þá
fyrir venjuleg höfundarlaun.
Sögum skal skilað til formanns islenzku dóm
nefndarinnar. Þórðar Helgasonar. Bjarnhólastíg 18 i
Kópavogi. fyrir L september næstkomandi.
Sogurnar skulu vera merktar með dulnefni en rétt
höfundarnafn fylgja í lokuðu umslagi.
Eldri Húnvetningum
boðið í kaffi
Húnvetningafélagið i Reykjavik býður eldri Húnvetn-
ingum til kaffidrykkju i Domus Medica sunnudaginn
11. mai kl. 15. Skemmtun þessi hefur alltaf verið mjög
fjölsótt og er þaö von stjórnarinnar að svo verði einnig
nú.
Kaffiboð hjá Félagi Snæfell-
inga og Hnappdæla
Árið I972 hóf Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavik þá starfsemi að bjóða til sameiginlegrar
kaffidrykkju á vegum félagsins öllum e.dri Snæfell
ingum.
Siðan hel'ur þess’if*veriö haldið áfram við
vaxandi vinsældir þeirra sem hafa getaö notfært sér
boð félagsins. Tilgangurinn með þessu er fyrst og%
fremst að gefa eldra fólkinu kost á að hittast.
Kaffiboðið verður nú haldiö i félagsheimili Bústaða
kirkju sunnud. 11. mai nk. kl. 15. að lokinni guðsþjón
ustu séra Ólafs Skúlasonar. dómprófasts i Bú
staðakirkju. sem hefst kl. I4.
Kl. 18 hefst síðan aðalfundur félagsins sem einnig
verður haldinn i félagsheimilinu að loknu kaffiboðinu.
Þar mun kór Snæfellingafélagsins láta til sin heyra en
honum stjórnar Jón Isleifsson kennari. Kórinn hefurj
æft vel í vetur. I honum eru nú starfandi um fjörutíul
manns.
Þá er á vegum félagsins vcrið að undirbúa sólar-j
landaferð. Farið verður að þessu sinni til Mallorka og!
dvalizt þar i þrjár vikur. Ferðin hefst 3. okt. Búiðj
verður á ibúðahóteli við Magalufströndina. Æskilegtj
er að þeir sem ætla sér að fara i þessa ferð láti sem
fyrst bóka sig i hana.
Sumarfagnaöur Átthaga-
félags Strandamanna
Átthagafélag Strandamanna heldur sumarfagnað i
Domus Medica föstudaginn 9. mai kl. 21. Fjölbreytt
skemmtiatriði.
Samúðarkveöjur
vegna fráfalls Títós
Þeir sem votta vilja þjóðum Júgóslaviu samúð sína
vegna fráfalls Títós Júgóslaviuforseta eiga kost á að
rita nöfn sin i bók sem ræðismannsskrifstofa Júgó
slaviu lætur liggja frammi á Hótel Borg.
Samúöarkveðjubókin liggur frammi dagana 6„ 7.
og 8. mai kl. 10— 15 á Hótel Borg, gengið inn um
suðurdyr.
Fræðslu- og upplýsinga-
fundur um garðrækt
Fegrunar- og náttúruverndarnefnd Seltjarnarness
efnir til fræðslu og kynningarfundar i Félagsheimili
Seltjarnarness i kvöld, miðvikudaginn 7. mai kl.
20.30.
Vandað veröur til fundarefnis og reynt að hafa það
við hæfi allra áhugamanna um garðrækt.
Framsögumenn á fundinum verða:
Björn Jónsson skólastjóri sem ræðir um viðleitni
garðeigenda á vindasömu nesi.
Hákon Bjarnason, fyrrv. skógræktarstjóri. sem ræðir
um trjágróður við hæfi.
Jón H. Björnsson garðarkitekt sem ræðir um runna
og skjól.
Einar E. Sæmundsen, landslagsarkitekt. sem ræðir um
skjól ogskipulag.
Ennfremur verður kynnt fyrirhuguð ráðgjafa
þjónusta nefndarinnar við garðeigendur. sem hafin
verður i maímánuði.
24 rithöfundar
fá viðurkenningu
Stjórn Rithöfunilasjóðs lslands ákvað á fundi sinum
23. april sl. að úthluta 24 rithöfundum í viðurkenn
ingarskyni úr Rithöfundasjóði árið 1980. hverjum um
sigeinni milljón króna. Ritöfundarnireru:
Árni Larsson. Baldur Ragnarsson, Birgir
Sigurðsson, Bjarni Bernharður, Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli. Guðjón Sveinsson, Guölaugur
Arason. Guðmundur G. Hagalin, Halldór Laxness.
Hannes Sigfússon. Heiðrekur Guðmundsson. Jóhann
Hjálmarsson. Magnea J. Matthíasdóttir, Sigurður
Guðjónsson. Sigurður Pálsson. Snorri Hjartarson.
Stefán Hörður Grímsson. Steinunn Sigurðardóttir.
Tómas Guðmundsson, Tryggvi Emilsson. Valdis
Oskarsdóttir. Þórarinn Eldjárn, Þorsteinn Antonsson.
Þráinn Bertelsson.
Stjórn Rithöfundasjóðs íslands skipa nú þessir
menn: Njörður P. Njarðvik, Þorvarður Helgason og
Árni Gunnarson.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING
Nr. 83 — S. mai 1980.
Ferflamanna
gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 444,00 445,10 489,61
1 Sterlingspund 1006,75 100936* 1110,18*
1 Kanadadollar 372,30 373,30* 410,63*
100 Danskar krónur 782535 784535* 8639,78*
100 Norskar krónur 8972,40 8994,60* 9894,06*
100 Sœnskar krónur 10444,00 1046930* 1151639*
100 Finnsk mörk 1191635 11945,75* 1314032*
100 Franskir frankar 10456,30 1048230* 11530,42*
100 Belg. frankar 151935 1623,05* 187536*
100 Svissn. frankar 26436,40 26601,90* 29152,09*
100 Gyllini 22190,00 22265,00* 2446930*
100 V-þýzk mörk 24496,55 2455735* 27012,98*
100 Llrur 52,32 52,44* 57,68*
100 Austurr. Sch. 3441,80 3450,40* 3795,44*
100 Escudos 903,20 905,40* 995,94*
100 Posotar 625,00 626,60* 68936*
100 Yen 186,12 186,59* 20535*
1 Sérstök dráttarréttindi 57331 574,62*
* Broyting frá sfðustu skróningu. Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190.
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllll
Dyrasimaþjónusta.
Önnumst uppsetningar á dyrasimum og
kallkerfum. Gerum föst tilboð i
nýlagnir. Sjáum einnig um viðgerðir á
dyrasimum. Uppl. i sima 39118.
Byggingameistari.
Get bætt við mig verkum. svo sem
breytingum og nýsmiði. Tilboð ef óskað
er. Eyjólfur Gunnarsson. Uppl. i síma
35643.
Til leigu traktorsgrata.
Tökum að okkur stærri og smærri verk
mcð nýl egri Intemational 3500
traktorsgröfu. Uppl. i sima 74800.
Tökum að okkur
alla málningarvinnu úti og inni. einnig
sprunguviðgerðir. Gerum föst tilboð ef
óskað er. aðeins fagmenn vinna verkin.
Uppl. i síma 84924.
Húsdýraáburður.
Bjóðum yður húsdýraáburð á hagstæðu
verði og önnumst dreifingu hans ef
óskaðer. Garðaprýði.sinti 7I386.
Garðeigendur ath.
Húsdýraáburður til sölu. með eða án
dreifingar. Góð og fljót þjónusta. Uppl. í
sima 38872.
Bólstrun Grétars.
Tökum að okkur að klæða og gera við
gömul húsgögn, kem og geri föst verðtil-
boð ef óskað er yður að kostnaðarlausu.
Úrval áklæða. Uppl. i síma 24211.
kvöldsími 13261.
Athugið.
Er einhver hlutur bilaður hjá þér?
Athugaðu hvort við getum lagað hann.
Simi 50400 til kl. 20.
Múrbrot — Fleygun — Borverk.
Tökum að okkur alla loftpressuvinnu.
Gerum föst vérðtilboð. Góð tæki. vanir
menn. Uppl. i símum 52754 Hafnarfirði
og 92-3987 Njarðvík.
Hreingerníngar
Hreingerningastöðin
Hólmbræður. Önnumst hvers konar
hreingerningar. stórar og smáar. i
Reykjavík og nágrenni. Einnig i skipum.
Höfum nýja. frábæra teppahreinsunar-
vél. Símar 19017 og 28058. Ólafur
Hólm.
Hreingerningafélagið Hólmbrxður. *
Unnið á öllu Stór-Reykjavíkursvæðin
fyrir sama verð. Margra ára örugg
þjónusta. Einnig teppa og húsgagna
hreinsun með nýjum vélum. Simar
0774 og 5I372.
Hreingerningar.
Tökum að okkur hreingerningar i
heimahúsum og stofnunum, vanir og
vandvirkir menn. Simi 21941.
Tökum að okkur
hreingerningar á íbúðum, stiga-
göngum. opinberum skrifstofum. o.fl.
Einnig gluggahreinsun, gólfhreinsun og
gólfbón hreinsun. Tökum lika
hreingerningar utanbæjar. Þorsteinn..
símar 31597 og 20498.
Gólfteppahreinsun.
Hreinsum teppi og húsgögn með
háþrýstitækni og sogkrafti. Erum einnig
með þurrhreinsun á ullarteppi ef þarf.
Þaðer fátt. sent stenzt tækin okkar. Nú,
,eins og alltaf áður. tryggjum við fljóta
og vandaða vinnu. Ath. 50 kr. afsláttur
á fermetra á tómu húsnæði. Erna og
Þorsteinn. sími 20888.
Teppa- og húsgagnahreinsun.
Hreinsum teppi og húsgögn með
fullkomnum tækjum og stöðluðum
hreinsiefnum sem losa óhreindindin úr
hverjum þræði án þess að skadda þá.
Leggjum áherzlu á vandaða vinnu.
Nánari uppl. í síma 50678.
Önnumst hreingerningar á
íbúðum, stofnunum og stigagöng (
um.Vant og vandvirkt fólk. Uppl. í
simum 7l484og840l7.Gunnar.
Þrif; hreingerningar, teppahreinsun.
Tökum að okkur hreingerningar á íbúð
um, stigagöngum og stofnunum, einnig
teppahreinsun með nýrri djúphreinsivél,
sem hreinsar með mjög góðum árangri.
Vanir menn. Uppl. í síma 33049 og
85086. Haukur og Guðmundur.
0
Ökukennsla
Kenni á Volvo.
Pantið tímanlega fyrir sumarið.
SNORRI BJARNASON, simi 74975.
Ökukennsla, æfingartimar, bifhjólapróf.
Kenni á nýjan Audi, nemendur greiði
aðeins tekna tima, engir lágmarkstimar.
nemendur geta byrjað strax. Ökuskóli
og öll prófgögn ef óskað er. Magnús
Helgason, sími 66660.
Ökukennsla-aTingartimar.
Kenni á Galant árg. '79. ökuskóli og
prófgögn ef þess er óskað. Nemandi
greiði aöeins tekna tima. Jóhanna
Guðmundsdóttir. simi 77704.
Ökukennsla — æfingatímar.
Lærið að aka bifreið á skjótan og
ör.uggan hátt. Engir jágmarkstímar.
Kenni á Mazda 323. Sigurður Þormar
ökukennari, Sunnuflöt 13, sími 45122.
Ökukennsla-æfingatímar.
Kenni á Volvo '80. Nýir nemendur geta
byrjað strax. Engir skyldutimar.
nemendur greiði aðeins tekna tíma.
Uppl. í síma 40694. Gunnar Jónasson.
Okukennsla — æfmgatímar.
Kenni á Mazda 626 '80. ökuskóli og
prófgögn ef óskað er. nýir nentendur
geta byrjað strax. Geir Jón Ásgeirsson.
simi 53783.
Ökukennsla — æfingatimar.
Get nú aftur bætt við nokkrum nem
endum. Kenni á Mazda 626 hardtopp
'79. Ökuskóli og prófgögn sé þess óskað.
Hallfriður Stefánsdóttir. simi 81349.