Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 9

Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1980. 9 Neitar að gegna herþjónustu í Frakklandi og SÆKIR UM LANDVIST- ARLEYFI k ÍSLANDI „Mér barst fyrir um tveimur vikum beiðni um að íslendingar tækju við landflótta Frakka sem dvelst nú í felum hér i Danmörku. Ég var beðinn um að skrifa umsögn um hann og eftir að hafa rætt við hann sjálfan treysti ég mér ekki til að gefa honum meðmæli,” sagði Einar Ágústsson sendiherra íslands i Dan- mörku í samtali við Dagblaðið í gær. Einar vildi ekki rekja efni umsagn- ar sinnar til dómsmálaráðuneytisins. Hann sagði þó að Frakkinn, Patrick Gervasoni, hefði tjáð sér að hann væri ekki löghlýðinn maður. Danska blaðið Politiken skrifaði á siðasta sunnudag langa grein um Patrick Gervasoni sem síðastliðin tiu ár hefur verið á flótta undan frönsk- um yfirvöldum fyrir að hafa neitað að gegna herþjónustu í heimalandi sínu. Þar sagði að danski þingmaður- inn Bernhard Baunsgaard hefði gengið í lið með Frakkanum og skrifað fyrir hann beiðnina til islenzkra yfirvalda um landvistar- leyfi. Að sögn Politiken er Patrick Gervasoni einna þekktastur þeirra þúsunda Frakka sem neita að gegna herþjónustu. Hann slapp út úr Frakklandi í maí í fyrra án vegabréfs. Hann hefur leitað eftir hæli sem póli- tískur flóttamaður í Hollandi, Belgíu, Danmörku og nú síðast á íslandi. Tvœr ástœður „Það eru tvær ástæður fyrir því að ég vil ekki gegna herþjónustu i Frakklandi,” segir Patrick Gervasoni sem er 29 ára að aldri. ,,! fyrsta lagi er ég friðarsinni og í öðru lagi er ég á móti því að hernum sé beitt gegn fólki í mótmælagöngum og verkföll- um.” Mjög hart er tekiö á þvi ef menn neita að gegna herþjónustu i Frakk- landi. Eina leiðin er að beita fyrir sig trúarlegum ástæðum en þaö varðar við lög að skýra þeim sem hafa fengið kvaðningu frá því. Þeim sem neita er annaðhvort refsað með tveggja ára þegnskylduvinnu við landbúnað eða fangelsisvist. Að refsingunni lokinni er fanginn síðan kvaddur í herinn aftur. Sá sem neitar að gegna herþjón- ustu i Frakklandi missir jafnframt borgaraleg réttindi sín. Að sögn eins þeirra sem Politiken ræddi við hengja yfirvöld upp veggspjald á heimili hans þar sem skýrt er frá því að sá sem þarna býr stundi neðanjarðar- starfsemi gegn franska ríkinu. Rétt er einnig að taka það fram að þeir sem neita að þjóna landi sínu með því að ganga í herinn fá ekki mál sitt tekið upp hjá borgaralegum dómstóli. Það er herinn sem ákærir, ver og dæmir. Patrick Gervasoni á yfir sér þriggja ára fangelsi ef hann kemst undir manna hendur i heimalandi sínu. Þjáningarbróðir hans, Jean Fabre, segir í samtali við Politiken að senni- lega verði sá dómur þó mildaður ef hann næst. Niðurbrotinn maður „Patrick Gervasoni er nú andlega Það kostar mikla baráttu að neita að gegna herþjónustu I Frakklandi. Patrick Gervasoni, sem sótt hefur um hxli á tslandi, hefur fengið að reyna það I rfkum mæli. niðurbrotinn maður,” segir einn danskra vina hans. „Hann átti von á því, er hann slapp frá Frakklandi, að létt verk yrði aö fá hæli sem póli- tískur flóttamaður í einhverju landi sem litur á það sem mannréttindi að vilja ekki gegna herþjónustu.” Flestir þeirra sem neita að ganga í franska herinn geta leitað eftir hæli í löndum Efnahagsbandalags Evrópu — ef þeir hafa vegabréf. Patrick Gervasoni hefur hins vegar aldrei fengið neitt slíkt. Hann ólst upp á stofnunum þar eð móöir hans var ófær um að ala hann upp. Sautján ára gamall flúði hann og hefur verið á flótta síðan. Þetta ástand hefur gert hann að þvi sem Politiken nefnir and- þjóðfélagslega þenkjandi og hann vill ekki undir neinum kringumstæðum —kveðstvera ólöghlýðinn, segirEinar Ágústsson sendiherra gerast hermaður. , Árið 1971 hlaut Gervasoni sinn fyrsta dóm hjá herdómstóli fyrir að neita að gegna herþjónustu. Sama ár hóf hann að taka virkan þátt í ýmsum pólitiskum hópum, meðal annars hreyfingu þeirra sem neita að gerast 'hermenn. Á þjóðhátíðardag Frakka 1974 varð hann landsfrægur. Þá „hertók” hann kirkjutum í Perpign- an þar sem hann krafðist þess að honum og öðrum i sömu aðstöðu yrði veitt sakaruppgjöf. Lögreglan svældi hann út meö táragasi og hann var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að brjóta upp lás kirkjuturnsins. Að þeirri afplánun lokinni var Patrick Gervasoni afhentur hernum. Hann var fluttur til Marseille og þar færður með valdi í einkennisbúning. Tveim dögum siðar tókst honum að strjúka. Eftir þetta varð Gervasoni enn harðari í baráttunni gegn yfirvöldum. Ári síðar settust hann og 25 aðrir að i kirkju og hófu hungurverkfall til að leggja áherzlu á kröfur sínar um sakaruppgjöf. Eftir fimm daga voru allir dregnir út úr kirkjunni en með slóttugheitum tókst hópnum að sleppa við dóma. Til ársins 1979 dvaldis Gervasoni i felum í París þar til hann slapp úr landi án skilríkja. Og enn þann dag i dag er hann í felum en nú í Dan- mörku. Hafi yfirvöld hendur í hári hans verður hann umsvifalaust sendur til Frakklands þar sem fang- elsisvist og frekari barátta bíður hans. - ÁT „Grátlegur gamanleikur”: Kaupum á Hamravík harðlega mótmælt Hörð mótmæli við frumvarpi rikis- stjórnarinnar um endurinnflutning á 17 ára skipi, Hamravík KE-75, komu fram á aðalfundi Félags dráttar- brauta og skipasmiðja um síðustu helgi. Aðalfundurinn samþykkti mót- mælin einróma og sagði að þetta mál væri hluti af þeim grátlega gamanleik sem um árabil hefði verið leikinn. Þverbrotnar séu reglur um sölu eldra fiskiskips úr landi fyrir hvert nýtt skip erlendis frá. Nú sé ætlunin að þvinga málið í gegn með atbeina Al- þingis. Auk þess sé svo mælt fyrir í lögum að því aðeins sé heimill inn- flutningur skips að það sé ekki eldra en 12ára. Fundarmenn skoruðu á ríkisstjórn- ina að draga frúmvarpið til baka. Varað var við innflutningi gamalla fiskiskipa og þvi beint til stjórnvalda að allri lánafyrirgreiðslu vegna kaupa slíkra skipa verði hætt. Á fundinum var lýst yfir ánægju með ákvörðun Hjörleifs Gutt- ormssonar iðnaðarráðherra að koma á fót sérstökum starfshópi um inn- lendan skipasmíðaiðnað. Fundar- menn fögnuðu meginstefnu sem fram kom í skýrslu starfshópsins í febrúar. Stjórn félagsins var endurkjörin. Hana skipa: Jón Sveinsson formaður, Gunnar Ragnars vara- formaður og meðstjórnendur Þorgeir Jósepsson, Guðmundur Marsellíus- son og Þórarinn Sveinsson. - HH Kynning á keppendum í Sjóralli 1980: Trybo gengur 57-59 mílur —18 feta Flugf iskbátur og keppendur bræðurnir Einar og Finnbogi Ingólf ssynir frá Vestmannaeyjum tankur en fyrir sjórallið verður settur í hann stærri tankur sem tekur á þriðja hundrað lítra. Ef gott er veður og hægt að keyra bátinn á fullri ferð eyðir hann 30—40 lítrum á klukkutíma. Báturinn er nú í Hafnarfirði en fyrir helgina ætla þeir bræður að sigla honum til Vestmannaeyja og má líta á þá siglingu sem reynslusiglingu fyrir sjórallið. Sem kunnugt er er fyrsti leggur Sjóralls 1980 frá Reykjavík til Grindavíkur og Vestmannaeyja. Bræðurnir sögðu að aðstaða fyrir slika báta væri góð i Vestmannaeyjum og skemmtilegt að hafa báta þar. Lílið væri þó hægt að nota Trybo í annað en rall vegna þess hve hann eyddi miklu. Fyrri eigendur Trybo settu þessa vél í hann en geta má þess að þeir hugðu á þátttöku í sjórallinu í fyrra en af því varðekki vegna bilana. - JH „Við erum ákveðnir að taka þátt í sjórallinu í sumar, svo framarlega sem ekkert óvænt kemur upp á,” sögðu þeir bræður Einar Ingólfsson og Finn- bogi Ingólfsson frá Vestmannaeyjum. Strákarnir eru á 18 feta báti frá Flug- fiski en þeir keyptu bátinn i vor, sér- staklega fyrir sjórallið. Báturinn þeirra heitir Trybo. Báturinn var smíðaður 1978 en komst ekki í gagnið fyrr en í fyrra. Hann er sérstaklega styrktur fyrir keppni sem sjórallið. Vélin er af stærri gerðinni, Ford bensínvél, V8 og 351 kúbíktomma. Drifið er Volvo Penta. Vélin varmældhjá Fordumboðinuog er talið að hún sé um 300 hestöfl í sjó. Strákarnir eiga von á nýrri skrúfu frá Sviþjóð og fá hana þegar verkföll leysast þar i landi. Með henni á bátur- inn að ganga 57—59 milur. í bátnum er nú 120 lítra bensin- Kinnbogi og hinar A l rybo. isinar a bátinn. Hann starfar sem kokkur en Finnbogi er bifvélavirkl þannig afl það ætti að fara vel saman i SJóralli 1980. Smáæfing fyrir stóra siaginn tekin í Hafnarfjarðarhöfn. DB-myndir Þorri.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.