Alþýðublaðið - 07.05.1969, Side 5
yr*mkYiBtBflRrtJ6rtl
t>órlr Síemunilsson
HitslJ6m:
Krlrtj&n Berri OltflHB (ibt)
Benedllct GrOnd&I
F/fttaBtjórí:
Blgurjón íóhannssoa
Auiljrtngastjórlt
Slgurjón Arl Slgurjónssoa
Clgefundi:
Hý}a útí&fufólagifí
frentsmisja AU>)SBblaflrtnr(
De Gaulle og
Efnah agsband al agi ð
Miklar bollaleggingar eig'a sér nú stað með-
al stjórnmálamanna í V.-Evrópu um það,
'hvort afsögn De Gaulle muni leiða til skjót-
ari aðildar Bretlands að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu. Það var fyrst og fremst De
Gaulle sjálfur, sem tvívegis hindraði upp-
töku Bretlands í Efnahagsbandalagið og
því hefur oft yerið spáð, að þegar hershöfð-
inginn léti af völdum í FraMdandi, kynni
afstaða Frakklands í þessu efni að breytast.
Alþýðúblaðið birti í -gær viðtal við Hal-
vardLange, fyrrverandi utanríkisráðherra
Noregs um 20 ára afmæli Evrópuráðsins,
en í því viðtali ræddi Lange einnig hugsan-
lega aðild Bretlands að Efnahagsbandalag-
inu. Virðist Lange þar bjartsýnn á það, að
afsögn De Gaulle geti flýtt verulega fyrir
aðild Bretlands að Efnahagsbandalaginu og
nefndi Lange, að ef til vill muni nú ekki
líða nema 2—3 ár, þar til Bretar fái aðild
að EBE.
Telja má fullvíst, að Bretar muni eiga
greiðari aðgang að Efnahagsbandalaginu
eftir að De Gaulle er farinn frá völdum.
Hins vegar má ekki búast við neinum stökk
breytingum í afstöðu Frakka til Breta í
þessu efni. Áhrifa De Gaulle mun gæta
lengi í Frakklandi, enda þótt hann sé far-
inn úr forsetaembættinu. Hins vegar má
t. d. geta þess, að Pompidou, sem er líkleg-
asti eftirmaður De Gaulle, er mun hlynnt-
ari aðild Breta að Efnahagsbandalaginu en
De Gaulle var.
Flestir hafa ávallt reiknað með því, að
einhvern tímann í framtiíðinni mundu Bret-
ar ganga í EBE. Nú er ljóst, að þetta getur
orðið mjög fljótlega. En hvaða áhrif mun
aðild Bretlands að Eífnáhagsbandalaginu
hafa? Hún mun hafa gífurleg ahrif. Flest
ríki Fríverzlimarbandalagsins múhu senni-
lega sigla í kjölfar Breta, svo sem Dan-
mörk, Noregur, Austurríki og Sviþjóð, það
síðast nefnda a. m. k. í formi aukaaðilidar.
Alþýðublaðið 7. maí 1969 5
Fari svo, mun Fríverzlun arbándalag ið
sennilega leysast upp. En hvaða áhrif
mundi aðild Breta að Efnahagsbandalaginui
hafa á viðskiptahagsmuni íslands? Ljóst ers
að þau áhrif yrðu mjög mikil. Bretland og
V.-Þýzkaland eru stærstu viðskiptalönd
okkar í V.-Evrópu. ísland getur ekki staðið
algerlega utan við bandalag, sem þessi
bæði lönd eiga aðild að. Hins vegar getur
ísland ekki gerzt fullgildur aðili að Efna-
hagsbandalaginu. Það sem kæmi til greina
af íslands hálfu, væri aukaaðild, fríverzl-
unaraðild eða sérstakur samningur um við-
skipti samfara tollaívilnunum. íslanid getur
ekki gengizt undir ákvæði ítómarsáttmál"
ans um frjálsan flutning fjármagns og
vinnuafls milli aðildarríkjanna. En ei að
síður getur komið til þess, að Ísland þurfí
að tryggja viðskiptahagsmuni sína á mark-
aði EBE.
Viðræður íslands við EFTA standa enn
yfir. Fái ísland aðild að EFTA með við-
unandi kjörum, mun það auðvelda,okkur
að ná tengslum við EBE, fari Bretar þar
inn. Hins Vegar leggur aðild okkar að EFTA
okkur engar skyldur á herðar varðandi það
að ganga í EBE síðar.
>Sd :
ÞJÓÐIN
Frnmhald af 4. síðu.
og vísLndamenn benda á. Eilífar
tilvitnanir í „haetti annarra þjóða“
munu sennilega hvergi vera jafn-
tíðar, sem hér á landi. Þegar svo
er komið, að stórir lagabálkar eru
beinlínis þýddir af erlendum tung-
um, þá fara menn, ef til vill, að
efast um tilverurétt þjóðarinnar og
trúna á fólkið í landinu.
Þegar rætt er um almenna mennt-
un get ég ekki látið hjá líða, að
drepa á þá kennsluhætti, sem. tiðk-
azt hafa við kennslu í íslenzkri
tungu og hókmenntum. Um ís-
lenzka menningarsögu er vart að
ræða. Þetta mál hefur þegar verið
flutt skörulega af ýmsum, og er
þess því að vænta, að skilningur
manna vakni um nauðsyn á gagn-
gerum breytingum á kennslu í ís-
lenzku og fslenzkum fræðum al-
mennt.
Ég er þess fullviss, að þjóðin hef-
ur ekki gert sér grein fyrir hinu
raunverulega gildi starfsgreina-
náms í nútímaþjóðfélagi. Þessum
málum er stjórnað á grundvelli
hugsjóna og hátta, sem hæfðu á
fyrrihluta þessarar aldar. I dag
stöndum við andspænis vandamál-
um, sern þá voru óþekkt. Þessi
vandamál þarfnast úrlausna í sam-
ræmi við þá þekkingu, sem nútíma
tækni og vísindi gefa tilefni til.
Éfnahagsmálin standa því í beinum
tetigsluni við þróun fræðslumála
þjóðarinnar. Ef fræSslumáHn eru
vanrækt munu afleiðingarnar koma
fram í efnahagslífi þjóðarinnar.
IV.
Þjóðmálaþróun lýðræðisríkja
hyggist fyrst og fremst á virkri þátt-
töku almennings. Ef alþýðan miss-
ir áhugann I á þjóðmálum glatar
lnín um leið þeim rétti, sem lýð-
ræðisþjóðfélagið grundvallast á.
Sjálfstæðisbaráttan á síðari liluta
19. aldar og fram á þessa öld hafði
vekjandi áhrif á alþýðu manna, um
afskipti af þjóðmálum. Að visst}
leyti má segja, að altncnnur áhugi
þjóðarinnar á þjóðfélagsmálum hafi
dofnað, að fengnu fullu sjálfstæði.
Afskipti manna hafa greinilega
breytzt frá persónulegum áhuga á
einstökum málefnum í ópersónu-
legan stuðning við ákveðinn stjórn-
málaflokk. Fulltrúar stjórnmála-
flokkanna hafa þannig orðið að
persónugervingum hugsjónakerfa,
eða ópersónulegum tannhjólum í
hinni stóru millu stjórnmálaflokks-
ins.
Almennur og persónulegur áhugi
manna á skólamálum liefur senni-
lega aldrei vcrið meiri en í dag.
Þannig má segja, að skólamálið hafi
valdið straumhvörfum í hugsunar-
hætti manna gagnvart þjóðmálum
almennt. Umræður um stjórnmála-
flokkana og embættismannakerfið
benda einnig til þess, að ahnenn-
ingur óski nú eftir virkari og mál-
efnalegri þátttöku í þjóðmálabar-
áttunni, en verið hcfur, á síðustu
áratugum. Stjórnmálakerfið og ýms-
ir stjór.narfarslegir hættir hafa ver-
ið gagnrýndir og bendir margt til
þess. að hér sé um að ræða al-
menna stefnubrcytingu um stjórn-
arhætti, vaidið og almenn tnann-
, réttindi. Lýðræðisskipulag það,.;Sem
við búuin við er nátengt þeim
hugsjónum, sern virða almenn mann
réttindi. En réttur einstaklingsins
er ekki lokatakmark lýðræðisins.
Ef einstaklingurinn neytir ekkj
þessa réttar er vafasamt að stjórn-
arhættir þjóðarinnar beri mikinn
svip þeirra grundvallarhugsjóna,
sem lýðræðið byggist á. Megin-
styrkur lýðræðisins er fólginn í því
aðhaldi, sem fæst með almennum
kosningum. Fátt mun öruggara
traustu þingræði en fáir, sterkir
stjórnmálaflokkar. Þó er vert að
gera sér grein fyrir því, að stj.órn-
arfarslegt jafnvægi rná einnig fá
með einsflokkskerfi, og munu stjórn-
arhættir Sovéctríkjanna vera nær-
tækasta dæmið, Lýðræðislegir stjórn
arhættir gefa því ekki óyggjandi til-
efni til öruggra stjórnarhátta. Þann-
ig getur einræðisþjóðfélag jafnvel
betur tryggt stjó. narfarslegt jafn-
va’gi heldur en lýðræðisþjóðfélagið.
I.ýðræðishugsjónin í hinu vestræna
þjóðfélagi leggur megináherzlu á
almenn mannréttindi og einstak-
lingsfrelsi, en til þess að fram-
kvæmd þessarar hugsjónar nái tit-
ætluðum árangri byggist hún á
t’ir'kftri þátttö\u cflmcnnings. Þar
sem flokkseinræði ríkir er þáttur
almennings einungis bundinn rétt-
inum til að kjósa. f slíkum þjóð-
félögum verða stjórntnálamennirn-
jr að sjálfstæðri stétt, sem lítið þarf
að sækja til almennings.
Ymsir hafa bent á, að íslenzkir
stjórnmálaflokkar séu, að verulegtí
leyti, sljtnir úr tengslum við fólkið
sjálft. Einnig mætti segja, að fólkið
ha.fi ekki' sýnt mikinn áhuga á, að
starfa in.nan stjótnmálaflokka.nna,
og þar með má ef til viíl segja, að
almenningur geti sjáifuni sér um
kennt. Hvernig, svo sem litið er á
þessi mál, mun flestum Ijóst hvar
skórinn kreppir. Eins og nú hátar
um kosningafyrirkomulag sitja fjöl-
margir frambjóðendur í öruggum
sætum í skjóii mjög takmarkaðrar
útnefningar flokksforystunnar. Það
er greinilegt, að þetta kosninga-
fvrirkomulag er alls ekki í samræmi
við þær megin hugsjónir, sem' vest-
rænt lýðræði. byggist á. Plokksfor-
ysta,' sem ekki telur sér fært að
byggja framboð á lýðræðislegum
prófkosningum innan einstakra kjör
dæma virðist því alls ekki starfa
eftir þeim grundyallarhugsjónum,
sem véstrænt lýðræði byggist á.
Prófkosningar eru nú þekkt fyr-
irbæri í ýmsum löndum. Höfuð-
kostur prófkosninga er tvíþættur.
f fyrsta lagi er skapað heilbrigt og
örvandi aðhald, og í öðru lagi fá
almennir kjósendur tækifæri til að
velja milli framhjóðenda innan við-
komandi flokka. Þetta fyrirkomulag
stuðlar því að aukinni þátttöku al-
mennings, en það er meginforsenda
fvrir Sruggum stjórnarháttum í
lýðræðisþjóðfélagi. Blind flokks-
menrtska er engum til sóma, en
þjóðinni allri til vansæmdar.
V.
f clag stendur þjóðin á mikil-
vægum tímamótum. Enda þótt efna»
hagsástandið sé ekki gott sem stend-
ur, er engin ástæða til að orvænta
um framíðina. Hin þróttmikla æska
þessa lands er reiðubúin til að taka
til starfa. Verkefni næstu ára era
heillandi fyrir þjóð, sem hefur trá
a sjálfa sig og framtíðiná. Almenn-
ingur þarf að taka meiri og virk-
ari þátt í þjóðmálabaráttunni. Þjóð-
in öll þarf að sameinast í þessarí
baráttu og vinna að því, að hin
unga kynslóð fái hvöt hjá sér til
að lifa og starfa í landínu.
EIRRÖR
Kranar,
fittings,
einangrun o.fl. til
hita- og vatnslagna
byggingavöruverzlun
Burstafell
Réttarholtsvegi •
Sími 38840.
VELJUM ÍSLENZKT-/M\
ÍSLENZKAN IÐNAD
MATUB OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
Veitiiigaskálinn, Geithálsi.