Dagblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980. 5 IÐNAÐARMENN, VELSTJORAR. 50útskrifast úrFjölbrautaskóla Suðumesja: STUDENTAR 0G FLUGMAÐUR \ —og skólinn að sprengjártt&fsfsér húsnæði á þremur stöðum Fjölbrautaskóla Suðurnesja var slitið sl. laugardag í Ytri-Njarðvíkurkirkju og lauk þar með þriðja starfsári skólans. Steinþór Júlíusson bæjarstjóri í Keflavík flutti ávarp af hálfu sveitar- félaganna á Suðurnesjum. Þá var sam-' leikur á fiðlu og voru flytjendur tveir nemendur skólans. Kjartan Már Kjartansson og Unnur Pálsdóttir. Að þessu sinni brautskráðust 50 nemendur, 5 vélstjórar, 3 nemar af verzlunar- og skrifstofubraut, 17 iðnaðarmenn þar af 9 húsasmíða- nemar, tæknibrautarnemi, flugmaður, og 23 stúdentar. Verðlaun fyrir góðan námsárangur hlutu þau, Bjarni Bergmann Þorsteins- son á vélstjórabraut 2 stigs, Ólafur Atli Ólafsson, húsasmíðanemi og Védís Elsa Kristjánsdóttir stúdent af félags- fræðibraut. Aðalkennari á vélstjórabraut, Óskar Jónsson, lætur nú af störfum sem fasta- kennari, en hann hefur verið aðal- kennari á þeirri braut og unnið af miklum dugnaði við að byggja upp og skipuleggja verknámsaðstöðuna þar. Ásgeir Margeirsson nýstúdent flutti ávarp af hálfu nemenda. Jón Böðvarsson skólameistari flutti skólaslitaræðuna og kom fram að nemendur voru á fyrri önn 505 en hinni seinni 486. Kennarar voru 42 á báðum önnum. Skólinn hefur þegar sprengt utan af sér húsnæðið og kennt er á þremur stöðum í Keflavík og Njarðvík. Vonir standa þó til þess að úr rætist með haustinu og keypt verði eða byggtnýtthúsnæði fyrirskólann.emm. SVFÍ með slysavamasýningu á SUMARIÐ ’80 —sem lýkur annað kvöld /> Sextán þúsund gestir hafa að sögn komið á alþjóðlegu vörusýninguna Sumar ’80 i Sýningahöllinni á Artúns- höfða. Sýningunni lýkur kl. 22 annað kvöld en í dag og á morgun verður opið kl. 14—22. f dag verður mikið um dýrðir á sýningunni — Halli, Laddi, og Jörundur skemmta klukkan 14.30 og klukkutíma siðar verðúr Slysavarna- félag íslands með talsvert prógramm. Sýnd verður notkun línubyssu, björgunarstóll verður settur upp á milli hæða, fjallað verður í máli og myndum um lífgunaraðferðir og hættur í sam- bandi við sumarferðalög. Annað kvöld verður tízkusýning og opið í öllum básum eins og raunar í dag líka. -ÓV. Misstu allt sitt í bruna: Safnað fyrir viðlagasjóðshúsi úrEyjum Heimilisfólkið á Brekku í Gufudals- sveit varð fyrir miklu tjóni er íbúðarhús þess brann 11. maí sl. Þar brunnu allar eigur þess í húsmunum og fatnaði ótryggðar. Nú eru uppi áform um að kaupa viðlagasjóðshús frá Vestmannaeyjum til íbúðar fyrir Brekkufólkið. Verulega skordr á að brunatrygging íbúðar- húsnæðisins nægi til endurreisnar heimilisins. Halldór D. Gunnarsson í Samvinnu- bankanum í Króksfjarðarnesi hefur lofað að taka á móti framlögum almennings og sjá um ráðstöfun þeirra til húsakaupanna. Einnig má hafa sam- band við Tómas Guðjónsson, Rauðalæk 61, Reykjavík, simi 34938. Jón Böðvarsson skólamelstari útskrifar stódenta slna á laugardaginn. DB-mynd:-emm Síðustu tónleikar Per Henrik Wallins í Norræna húsinu •« • Sænski jasspianóleikarinn Per Hen- rik Wallin heldur sína síðustu tónleika hér á landi í dag, laugardag. Þeir verða í Norræna húsinu og hefjast klukkan, fjögur. Wallin er í hópi fremstu jassleikara Svía. Hann leikur með eigin tríói í Stokkhólmi með bassaleikaranum Thorbjörn Hultcrantz og Erik Dahl- back trommuleikara. í viðtali við Helgarpósdnn segist Wallin ekki hafa hugmynd um hvað hann leiki á tónleikunum í dag. — Hann er hér á landi á vegum Gallerís Suðurgötu 7 og Sænsk-íslenzka félagsins. BLODIN HÆKKA Áskriftar-, lausasölu- og auglýsinga- verð Dagblaðsins hækkar frá og með 1. júní. Mánaðaráskrift hækkar úr 4800 í 5000 krtfciuj, l^usasöluverð úr 240 i 250 krónur eintakið og grunnverð auglýsinga pr. dálksentimetra úr 2.700 krónum i 2900 krónur. Ein smáauglýs- ing kostar nú 5000 kr. ENGINN NAGLI HELMINGI FLJÓTARA 1. 2. 3. 4. T-byggingarkerfið lækkar byggingarkostnað og styttir leiðina . frá fokheldu að fullbúnu húsi. Veggir ór T-byggingarkerfinu eru helmingi fljótlegri í uppsetningu en hefðbundnir veggir. Innihurðir eru hluti af kerfinu og við það sparast bæði isetningarvinna og gerekti. Grind og veggklæðning eru reistar í sömu aðgerðinni og eru vegggrindur þvi ekki til trafala við uppsetninga. Raflagnir eru til muna fljótlegri i uppsetningu. C Þyngsta eining T-kerfisins vegur aðeins 14 kg og leikur kerfið þvi i hvers manns höndum. "7 Auðveldara er að hljóðeinangra T- * ■ veggi en aðra veggi. 8. 9. 10 T-veggir eru mun stlfari og svigna þvl minna en hefðbundnir veggir. T-veggir eru settir saman án negl- ingar og sparast því vinna við negl- ingar — dókun — spörtlun — og slípun. T-veggi er unnt að taka niður og 'endurnota að mestu annars staðar. BYL / byggingariðnaði BYGGINGARKERFID Framlag íslenzkra hönnuða til f ramleiðniaukningar ■ byggingariðnaði EI\J VENJULEGIR 30% ODYRARA VEGGIR =ININGAR MILLIVEGGIR LOFT \ A FJAÐRAÞIUA Bfjaorastoo [) FJAÐRAKARMUR C S FJAÐRALOK £ | LEiÐARI I I fl 8i i HUÓÐEINANGRANDI VEGGIR \e; ....-71 ■: B:) 1 ; ....., .........=....fXÚ ■ E /Ji B< jT ' - . a : ....-‘ r*4orj' (A) (A) lE) Byggingarkerfið Framleiðandi: Hannes Gunnarsson Selvogsbraut 4 Þorlákshöfn Sími 99-3620 Hönnun og einkaleyfisvernd Ráðgjöf og hönnun s/f

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.