Dagblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 24
Breytingar á forystuliði sjálfstæðismanna í borgarstjém:
VERDIIR DAVfD NÆSTA
BORGARSTJÓRAEFNI?
Breytingar hafa verið gerðar á
forustuliöi borgarstjómarflokks
Sjálfstæðisflokksins. Davíð Oddsson
hefur verið kjörinn formaður
flokksins í stað Birgis ísleifs
Gunnarssonar og Magnús L.
Sveinsson hefur verið kjörinn vara-
formaður í stað Ölafs B. Thors.
Báðir þeir Birgir ísleifur og Ólafur
óskuðu eftir þvi að þessar breytingar
yrðu gerðar. „Það var full samstaða
um þetta,” sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson í samtali viö DB í gær.
Hann sagði að síðan hann tók
sæti á alþingi hafi sér orðið æ betur
ljóst að dreifa þyrfti kröftum meira í
borgarstjórnarflokknum en gert
hefði verið og þvi hefði hann talið
eðlilegt að stokka upp. Hann yrði þó
eftir sem áður virkur í borgar-
stjórnarflokknum.
í borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna eiga sæti átján fulL
trúar, aðal- og varaborgarfulltrúar
flokksins í Reykjavík. Þeir völdu
einnig í gær þá Birgi ísleif og Albert
Guðmundsson dl að sitja í borgar-
ráði af hálfu flokksins á næsta ári.
Davíð Oddsson og Magnús L. Sveins
son verða varamenn þeirra.
DB spurði Birgi ísleif hvort þessar
breytingar táknuðu að Davíð Odds-
son væri næsta borgarstjóraefni
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Birgir
sagði ekkert ákveðið um það — að
loknu prófkjöri fyrir næstu kosning-
ar myndu frambjóðendur flokksins
veljasitt borgarstjóraefni.
-ÓV.
Davið Oddsson, hinn nýi leiðtogi
sjálfstæðismanna i borgarstjórn.
DB-mynd Hörður.
TOLU KASTAÐ A KRIURNAR
Lifið áTjörninni í Reykjavík verður nú Tjarnarbúarnir eiga sér marga góða með fuglalífi á Tjörninni — eins og önnum kafinn við að telja kríur.
fjölbreytilegra með degi hverjum. vini meðal manna og rækilega er fylgzt þessi á myndinni, en hann var í gær -DB-mynd: Þorri.
USTAHÁTÍÐ SETT Á TORGINU í DAG
— menntamálaráðherra,
Hamrahlíðarkórinn og
Els Comediants
við setningu
hátíðarinnar
Listahátíð i Reykjavík — hin sjötta
í röðinni — verður sett við hátíðlega
athöfn á Lækjartorgi á morgun. Kór
Menntaskóians við Hamrahlíð
syngur, • leikflokkurinn Els Come-
diants frá Barcelona á Spáni bregður
á leik og Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra setur hátíðina.
Listamannahópurínn og aóstandendur Kjarvalsstaða þar á stéttinni nú i vikunni
þegar framlag hússins til Listahátíðar I Reykjavfk var kynnt. DB-mynd: Þorri.
Á morgun verða tvær listsýningar
opnaðar. í Listasafni íslands sýnir
Antonio Saura málverk og grafík-
myndir. Sú sýning verður opnuð al-
menningi klukkan tvö. Á Kjarvals-
stöðum verður opnuð yfirlitssýning á
verkum tveggja látinna listakvenna,
þeirra Kristínar Jónsdóttur og
Gerðar Helgadóttur. Hún hefst
klukkan sjö um kvöldið.
Að Frikirkjuvegi 11 frumsýnir
Leikbrúðuland Sálina hans Jóns míns
og um kvöldið verða tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói. Einleikari meðsveitinni
verður Göran Söllscher og stjórnandi
er Rafael FrObeck de Burgos.
Listahátíð í Reykjavík er haldin á
tveggjaára fresti. Fjárhagslegur bak-
hjarl hennar er Menntamálaráðu-
neytið og Reykjavíkurborg. For-
maður hátíðarnefndar er Njörður P.
Njarðvík.
-ÁT-
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980.
Reykvíkingartakatil
hendinni:
Gróðursetja
30 þúsund
plöntur eftir
hádegi í dag
Reykvíkingar ætla að gróðursetja
hvorki meira né minna en þrjátíu
þúsund trjáplöntur um helgina. Er það
framlag borgarbúa til árs trésins 1980.
Ætlunin er að íbúar hinna ýmsu
borgarhverfa — en Reykjavík hefur
verið skipt í 18 svæði í þessu skyni —
leggi hönd á plóg og gróðursetji tré í
nágrenni sínu. Hafa foreldrar sér-
staklega verið hvattir til þess í bréfum
að taka þátt í skógræktardeginum.
Hvert svæði verður auðkennt sér-
staklega og frá stofnunum borgarinnar
koma leiðbeinendur. Vinnan hefst kl.
13.15 á morgun og eru þátttakendur
hvattir til að taka með sér verkfæri.
Við undirbúning þessa verkefnis
hefur verið lögð áherzla á að
gróðursetja sem mest af þessum þrjátíu
þúsund plöntum í hinum nýrri og barn-
mörgu hverfum borgarinnar. Er þess
vænzt að með því megi auka virðingu
barna og unglinga fyrir trjágróðri og
stuðla að bættri umgengni við hann.
-ÓV.
Pryðum iancfió-ptontum ttjam'
Mývatnssveit:
Skjálftavaktin
komin á staðinn
— landris náði sömu
hæðogígosinu
„Við byrjuðum skjálftavaktina aftur
upp úr síðustu helgi vegna þess að
landrisið hafði náð sömu hæð og þegar
gosið varð við Leirhnúk í
marzmánuði,” sagði Bryndís Brands-
dóttir á jarðskjálftavaktinni í Reynihlíð
í spjalli við DB.
„Það eru nú ekki nein læti, aðeins
örfáir smáskjálftar á dag, sennilega
leifar síðustu umbrota. Það er ekki
hægt að tímasetja með vissu hvenær
vænta má næstu umbrota en líkurnar
aukast eftir því sem lengra líður,”
sagði Bryndís.
-JH.
LUKKUDAGAR:
31. maí 27627
,Vöruúttekt aö eigin vali hjá.
Liverpool.fyrir kr. 10 þúsund.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622. "