Dagblaðið - 31.05.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. MAl 1980.
Hún naut s61ar og heita vatnsins i læknum i Nauthólsvfkinni í gær. Þar verður væntaniega margt um manninn á morgun,
þegar hátiðahöld sjómannadagsins fara fram i vikunni.
Gnúpverjahreppur:
BORAÐ EFTIR HEITU VATNI
1 Gnúpverjahreppi hafa staðið yfir
boranir eftir heitu vatni á vegum
hreppsins. Hafa nú þegar verið boraðar
fjórar grunnar holur, ein rétt við
félagsheimilið Árnes og þrjár í ná-
grenni Þjórsárholts. í einni þeirra
verður borað dýpra. Er hún rétt við
bæinn Þjórsárholt og er áætlað að
bora allt niður í 600 metra komi ekki
heitt vatn fyrr. Myndina tók frétta-
ritari DB í Gnúpverjahreppi, Haraldur
Teitsson, er verið var að vinna við
borunina.
-ELA.
Aðalfundur
Blaðamanna-
félagsins
ídag
Aðalfundur Blaðamanna-
félags íslands verður haldinn í
dag kl. 14 í húsnæði félagsins að
Síðumúla 23. Dagskrá verður
samkvæmt félagslögum, laga-
breytingar. Félagar eru hvattir til
að fjölmenna.
DB
Dagblað
án ríkisstyrks
Að gefnu tilefni
vill byggingarfulltrúinn í Reykjavík
benda á eftirfarandí.
Skv. lögum nr. 54/1978 og byggingar-
reglugerð nr. 298/1979, eru allar
breytingar á ytra útliti húsa, t.d.
klæðning steinhúsa og gluggabreyting-
ar óheimilar, nema að fengnu leyfi
byggingarnefndar. ítrekað er að við
endurbyggingu eða viðhald húsa skal
leitast við að halda sem upprunalegust-
um stíl hússins, einkum hvað varðar
gluggagerð og ytra útlit.
Byggingarfuiltrúinn í Reykjavík.
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
vegna forsetakosninga 29. júní 1980 hefst í
Hafnarfirði, Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi og í
Kjósarsýslu, sunnudaginn 1. júní 1980 og
verður kosið á eftirtöldum stöðum:
Haf narfjörður og Garðakaupstaður:
Á bæjarfógetaskrifstofunni, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, kl. 9.00—18.00. Á laugardögum,
sunnudögumog 17. júníkl. 14.00—18.00.
Seltjarnarnes:
Á skrifstofu bæjarfógeta í gamla Mýrarhúsa-
skóla kl. 13.00—18.00. Á laugardögum, sunnu-
dögumog 17. júní kl. 17.00—19.00.
Kjósarsýsla:
Kosið verður hjá hreppstjórum, Sveini Erlends-
syni, Bessastaðahreppi, Sigsteini Pálssyni, Mos-
fellshreppi, Páli Ólafssyni, Kjalarneshreppi og
Gísla Andréssyni, Kjósarhreppi.
Bæjarfógetinn í Haf narfirði
Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu,
Bæjarf ógetinn í Haf narf irði
29. mai 1980.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njóísgötu 49 — Simi; 15105
í dag og á morgun, við helstu verslunarstaði og á götum borgarinnar
Nýir og sérstæðir flugdrekar í fuglslíki
LIONS KLÚBBURINN