Dagblaðið - 19.06.1980, Síða 1
6. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980 — 136. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
til einstakra embættismanna:
Yfirvinnuorósentan er
leyndarmál kerfisins
Fjármálaráðuneytið neitar að
upplýsa DB hvemig háttað sé föstum
yfirvinnugreiðslum tii einstakra for-
stöðumanna ríkisstofnana. í samtali
við DB í morgun sagði Þorsteinn
Geirsson, skrifstofustjóri í fjármála-
ráðuneytinu, að það væri venja að
gefa ekki upplýsingar um launakjör
einstaklinga að öðru leyti en því
hvaða launaflokki þeir eru í.
Þorsteinn Geirsson kvað ákvæði
um yfirvinnugreiðslur samnings-
bundin. Forstöðumenn ríkisstofnana
ættu ekki rétt á yfirvinnugreiðslum
samkvæmt reikningi, og væri því
greidd föst eða ómæld yfirvinna,
sem oftast er 15—25% en getur orðið
hærri. Prósentutölur þessar geta
breytzt milli ára og eftir þvi hvaða
einstaklingar gegna viðkomandi
embættum.
Ákvörðun um tilhögun þessara
yfirvinnugreiðslna er tekin með
tvennum hætti. Annars vegar er um
þær samið i sérsamningi og gildir sú
aðferð um skólastjóra og stöðvar-
stjóra Pósts og sima. Hins vegar
ákveður ráðuneytið, þ.e. fjármála-
ráðherra og samninganefnd ríkisins,
þessar greiðslur einhliða.
Þess má geta að i samninga-
nefndinni sitja háttsettir embættis-
menn i stjórnarráðinu, ráðuneytis-
stjórar og a.m.k. einn for-
stöðumaður ríkisstofnunar. -GM.
Farþegar hlaupa úl um neyðarút/’anp rélarinnar þegar eftir nauðlendinpuna. Slökkri- op sjúkralið er tilhúið.
DB-mynd: ■ emm.
Snilldaríeg nauð-
lending Fokkersins
— Farþegar og
áhöfn sýndu
fulla ró og rétt
viðbrögð
— sjá nánar á baksíðu
Nauðlending Fokker-vélar Flugleiða
á Keflavíkurflugvelli i gærkvöldi tókst
giftusamlega og var samdóma álit
áhorfenda að flugmönnum vélarinnar
hefði tekizt lendingin meistaralega.
Vélin fór frá Reykjavík kl. 18 til Vest-
mannaeyja með 16 farþega og þriggja
manna áhöfn. Er komið var inn til
lendingar I Vestmannaeyjum kom í Ijós
bilun í hjólabúnaði vélarinnar og var
ekki unnt að koma hjólunum vinstra
megin niður þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
Vélinni var snúið aftur til Reykja-
víkur og sveimaði vélin yfir borginni
með annað hjólastellið niðri.
Nauðlending var síðan ákveðin I Kefla-
vik þar sem allar aðstæður eru hinar
beztu. Vélin sveimaði yfir I hálfan
annan tima og eyddi eldsneyti og allt
var undirbúið á jörðu niðri. Flugvallar-
slökk viliðið á Keflavíkurflugvelli
sprautaðu kvoðu á brautina og
almannavarnakerfi var sett I gang.
Rétt um kl. 20 kom vélin inn til
nauðlendingarinar og var aðeins annað
hjólastellið niðri og nefhjólið. Raunar
læstust hjólin sem niðri voru ekki, en
þau héldu engu að síður. Vélin hélt
réttri stefnu á brautinni þar til ferðin
var orðin mjög lítil, en þá hallaðist hún
niður á vinstri vænginn og snerist út af
brautinni og hafnaði alveg utan
brautar. Farþegar og áhöfn komu út
um neyðarútganga og slökkvilið og
sjúkrabílar þeystu aðvélinni. Allt hafði
tekizt vel og voru farþegar þegar fluttir
inn i flugstöðina.
í morgun lá fyrir niðurstaða
tcéknideildar Flugleiða á orsökum
bilunarinnar. Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi sagði að brotnað hefði ró,
sem héldi saman loftsylinder, er setur
hjólin upp og niður. Við þetta fór
þrýstiloftið af kerfinu. Þetta gerðist
hægra megin, þ.e. þeim megin sem
hjólið kom niður að hluta. Liklegt er
að bilunin hafi orðið er hjólin voru sett
niður yfir Vestmannaeyjum.
Vélin hefur nú verið færð í skýli á
Kelavikurflugvelli og er talið að
viðgerð taki 4—6 vikur. Sveinn sagði
að samkvæmt upplýsingum flugvirkja
hefði átt að taka vélina inn á laugardag
til þess að skipta einmitt um það
hjólastell sem bilunin varð í. Hann
sagðist ekki vita til þess að slik bilun
hefði áður orðið í þessum vélum, en
bilunin hefði gert það að verkum, að
ekki var hægt að ná hjólunum niður
meðhandafli.
Fokkervélin bar einkennisstafina
TF—FLO og var keypt fra Suður-
Kóreu í vetur.
-JH.
Þessi myndaröð Magnúsar Gislasonar, fréttamanns DB ú Suðurnesjum, er tekin of sjúlfri nauðlending-
unni ú KeflarikurflugreHi Igœrkvöld. Lengst til vinstri mú sjú vélina snerta flugbrautina og slðan hvernig
hún rennur eftir bruutinni og út af henni ú myndinni lengst til hœgri. Þar mú einnig sjú farþega koma út úr
vélinni eftir giftusamlega lendingu. DB-myndir: - emm.