Dagblaðið - 19.06.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980.
9
Ríkisstjórnin ræðir vanda frystiiðnaðarins:
Gengissig og ný
fiskimálastefna
„Svona kollsteypur hafa alltaf leitt
til gengissigs og ég sé ekki að annað
verði uppi á teningnum núna,” sagði
Steingrímur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra í samtali við DB um
erfiðleika frystiiðnaðarins, en þeir
eru til umræðu á fundi ríkisstjórnar-
innar i dag.
Steingrímur kvað vanda frysti-
iðnaðarins tvíþættan. Annars vegar
erfiðleika sem orsakast af hækkun
fiskverðs, og hins vegar erfiðleika
sem stafa af of mikilli veiði og
vinnslu á skömmum tíma, og aukast
nú erfiðleikarnir vegna sölutregðu á
aði, sem stafaði annars vegar af því
að fiskneyzla hefði ekki aukizt í land-
inu og hins vegar færi samkeppni
Kanadamanna stórvaxandi og undir-
byðu þeir nú islenzku fiskflökin.
„Það er meiri óskhyggja, en vissa, að
úr þessu ástandi muni rætast á næst-
unni,” sagði Steingrimur.
Þá sagði Steingrímur að athuganir
væru nú i gangi á að afla nýrra mark-
aða erlendis, breyta framleiðslu i
fiskiðjuverum og kannaðir væru
ntöguleikar á að flylja freðfisk með
flugvélum utan.
-<;m
mörkuðum erlendis. Síðari vandann
kvað Steingrímur ekki verða leystan
með gengisfellingu krónunnar. Þar
yrði að koma til breytt fiskimála-
stefna. Verið væri að undirbúa til-
lögur er lúta að þvi að tryggja betur
samspil veiða, vinnslu og sölu, en ef
til vill þyrfti í þeim efnum að koma til
einhverra lagabreytinga,
Steingrímur Hermannsson sagðist
hafa heimsótt sölufyrirtæki og verk-
smiðjur íslenzku hraðfrystihúsanna i
Bandaríkjunum og kynnst sér starf-
semi þeirra. Þar væru menn áhyggju-
fullir vegna samdráttar á fiskmark-
Grindvíkingar eru
ánægðir með
nýja minnisvarðann
Minnisvarðinn Vonin eftir Ragnar
Kjartansson var afhjúpaður i Grinda-
vík á sjómannadaginn. Vonin er til
minningar um menn sem hafa
drukknað og stendur á auðu s'væði
fyrir ofan sjómannastofuna Vör.
Mikið var um dýrðir i Grindavík á
sjómannadaginn eins og annars staðar
á landinu og fjöldi fólks safnaðist
saman einmitt við Vonina þar sem
hátíðahöld Grindvíkinga hófust.
Það hefur lengi staðið til að koma
þarna upp minnisvarða og ríkir ainienn
ánægja i Grindavík að það sknli loks
hafa tekizt. Það stendur einnig til að
kringum minnisvarðann verði skrúð-
garður Grindvík inga.
- KVI / Ól. Rúnar, Grindavík.
Hnggmyndin Vonin eftir Ragnar Kjart-
ansson er til minningar um menn sem
hafa drukknað. Hún er mjög táknræn.
Móðir með börn sín, sem horfir úl á
hafirt.
l)B-mynd Ólafur Rúnar.
- sagði Kristján Eldjárn er hann veitti við.
töku heiðursmerki MA
„Ég les ekkert nema vinsemd og meira og minna siðan 1920, þegar
elskusemi út úr svip uglunnar, þessa hann kom þangað fyrst sem nem-
gullvæga fugls,” sagði dr. Kristján andi. Harin. kenndi lengi i skólamim
Eldjárn er hann veilti víðtöku og meðal nemenda hans voru forseti
heiðursmerki Menntaskólans Akut- íslands, menntamálaráðherra og nú-
eyri’ i háliðarveizlu í tilelni lOOára verandi skólameistari.
aliuælis skóians. Forsetinn er fyrstur Þá veitti Hulda Stefánsdóitir, elzli
manna til þess að hljóta þetta merki, núlifandi kennari, heiðursmerkinu,
uglu úr guili, en uglan hefur alla tíð uglunni, viðtðku og færði skólanum
verið merki MA. um leiðaðgjöf háiiðarmerki hans frá
árinu I900og 1920.
Dr. Kristján Eidjárn var stúdent úr Aðrir sem fengu heiðursmerki vorn
MAásinumtímaogsiðankennariog Hermann Stefánsson, fyrrum
prófdómari við skólann. „Hver veit iþróttakennari, Margrét Eiríksdóttir,
nema ég verði stundakennari aftur, ekkja Þórarins Björnssonar fyrrum
ef ég verð atvinnulaus bráðum eins skólameistara, Brynjólfur Sveinssott
ogallt bendir til,” sagöi hann i stottn fyrrunt kennari og Árni Friðgeirsson
ávarpi eftir að Tryggvi Gislason gjaldkeriMA.
skólameistari sæmdi hann uglttmerk- Um 400 ntanns sátu veizluna í MA,
inu. fyrirmenn úr bæjar- og þjóðlífi, ný-
Ingvar Gislason menniaitiálaráð- stúdentar og skólamenn o.fl. Veizlan
herra fékk sömuleiðis ttglu úr gulli. slóð í 4 1/2 klst. Ávörp voru flutt,
Hann er líka gamall nemandi MA Ingimar Eydal spilaði „dinner”-
„og fær ekki að gjalda þess að vera músik á pianó og á maiscðlinum var
náinn ættingi minn,” eins og skóla- graflax nteðsinnepssósu, innbakaðar
nteistari komst að orði. Hann og nautalundir með bordelaisesósu og
menntantálaráöherraeru bræður. lerskir ávextir i líkjör. Þessu var
Steindór Steindórsson fyrrum skolað niður nteð akureysku thule-
skólameislari fékk heiðursmerki MA. öle.
Hann hefur verið viðloðandi skólann - ARH / evi
Fógeta- og sýslumannsembættið í
Eyjafjarðarsýslu:
ELÍAS SKIPAÐUR
Elías I. Elíasson, bæjarfógeti á
Siglnfirði, var í gær skipaðtir bæjar-
fógeii á Akureyri og Dalvik og sýslu-
maður i Eyjafjarðarsýslu. Tekur Elias
viöembæltinu 15. ágúst næstkomandi.
Aðrir umsækjendur voru Andrés
Valdintarsson, sýslumaöur i Stykkis-
Itólnti, Freyr Ofeigsson, héraðsdóntari
á Akureyri, Gunnar Sólnes, hrl. á
Akureyri, Jóhannes Árnason, sýslu-
maður á Palreksfirði, Sigurberg Guð-
jónsson, hæjarfógeiafulltrúi i Kópa-
vogi, og Sigurður Gizurarson, fógcii og
sýsluntaður á Húsavik. - ÓV
r VANTAR ÞIG FRAMRÚÐU?
Ath. hvort við getum aðstoðað. ísetningar ú staðnum. BÍLRÚÐAN ZS-.
HÁRSKERASVE/NAR OG HÁRSKERANEMAR óskast nú þegar á nýja hársnyrtistofu á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Góð laun í boði. Uppl. í símum 73676 og 33444.
29. JÚNÍ
PÉTURJ.
THORSTE/NS.
SO/V
Aðalskrifstofa stuðningsfólks Péturs
J. Thorsteinssonar í Reykjavik er á
Vesturgötu 17, símar
28170-28518
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SlMAR: 28171 OG 29873.
★ Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
★ Skráning sjáifboðaliða.
★ Tekið á móti framlögum i kosningasjóð.
★ ★ Nú fylkir fólkið sér um Pétur
Stuðningsfólk Péturs.
Nýtt fyrir dömur
pg herra
Hvítt ledur
Stœröir: 36—46.
Verö kr. 21.850
PÓSTSENDUM
SKOVERZLUN
ÞÓRÐAR
PÉTURSSONAR
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll,
Sími 14181.
Laugavegi 95. Sími 13570.