Dagblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚNf 1980.
Mikill leiklistaráhugi í Garðinum:
ÍBÚANNA ER í
gróskumikil starfsemi. Hyggjast hafa sérstakt kvöld til
minningar völvu Suðurnesja
Flestir hafa án efa heyrt talað um
Litla leikfélagið í Garðinum. Litla leik-
félagið hefur sýnt fjölda leikrita við
góðan orðstír, nægir að nefna tvö
þeirra, Þið munið hann Jörund og
Spegilmanninn. Það síðarnefnda var
frumsýnt á íslandi í Garðinum. Einn
leikaranna í Litla leikfélaginu þýddi
Spegilmanninn og er það leikrit sagt
vera peningakista fyrir Litla leik-
félagið. Til að forvitnast svolítið meira
um þetta litla leikfélag brugðum við
okkur, ég og Þorri Ijósmyndari, suður
með sjó og litum við hjá Svavari
Óskarssyni gjaldkera félagsins í
Garðinum.
„Við höfum farið með flest okkar
verkefni út á land og það er óhætt að
segja að við höfum fengið feikilega
góðar undirtektir. Við fórum t.d. um
miðjan maí til Húsavíkur og sýndum
Spegilmanninn þar. Húsvíkingar urðu
mjög hrifnir af þessu verki og það
sagði við mig einn maður fyrir norðan
að þó þeirra félag væri miklu eldra en
okkar þá hefðu þeir aldrei fært upp
barnaleikrit,” sagði Svavar. Þess má
geta að Spegilmaðurinn er barnaleikrit,
fært upp á óvenju skemmtilegan og
ódýran hátt. Uppsetning leikritsins
kostaði leikfélagið aðeins 150 þúsund
krónur og mun það vera algjör lág-
markskostnaður við uppsetningu leik-
rits.
„Spegilmaðurinn er dálitið sérstakt
leikrit. Börnin í salnum eru virkir
áhorfendur og taka þátt í öllu sem ger-
ist. Leikritið er ætlað fyrir aldurinn 5, 6
og 7 ára. Við getum þvi endurvakið
sýninguna á þriggja ára fresti þannig að
hér er um framtiðarverkefni að ræða,”
sagði Svavar.
í Litla leikfélaginu eru um 110
manns, en alls búa í Garðinum um 800
manns. „Við höfum verið beðin um að
koma með Spegilmanninn í sjónvarpið.
Bryndís Schram hafði samband við
okkur og sýndi mikinn áhuga. Einnig
höfum við fengið boð frá áhugamanna-
leikhúsi í Svíþjóð þar sem okkur er
boðið að koma í haust og sýna einþátt-
ung. Við höfum ekki ennþá ákveðið
hvort við förum.”
— Er eitthvað í veginum fyrir því að
þið farið?
„Nei, það másegja að það séekkert í
veginum nema þá helzt að við eigum
eftir að finna einþáttung til að sýna,
verk sem við getum notað eftir að við
erum komin heim. Einnig kæmi til
greina aðsýna hluta úr stærra verki.
Næsta vetur höfum við áhuga á að
sýna leikrit sem unglingar geta tekið
þátt í þar sem mikið er af unglingum í
Svavar Óskarsson gjaldkeri Litla leikfélagsins i Garði, Hrafnhildur Jóhannsdóttir og
Magnús Eyjólfsson félagar i leikfélaginu og Snati sem enn hefur ekki fengið inn-
göngu. DB-mynd Þorri.
Frá sýningu Litla leikfélagsins á Spegilmanninum. Það verk hafa þeir sjálfir þýtt og
sett upp. Leikritið er óvenjulegt að þvi leyti að börnin eru virkir þátttakendur i öllu
sem gerist.
leikfélaginu. Þau vilja að sjálfsögðu
einnig fá að starfa. Þá hefur einnig
komið til tals að hafa eitt kvöld hér sem
yrði eingöngu helgað Unu Guðmunds-
dóttur sem betur er þekkt sem valva
Suðurnesja.”
— Hvernig stendur á þessum al-
menna áhuga fyrir leiklist hér i þessu
litla þorpi?
„Ætli það sé ekki vegna þess hve lítið
er um að vera hérna. Við vonum að úr
því verði bætt á næstunni þar sem við
eigum von á iþróttahúsi og sundlaug.
Það er hræðilegt að börn hérna skuli
ekki geta lært að synda og þar sem þau
búa alveg við sjóinn,” sagði Svavar
Óskarsson gjaldkeri Litla leikfélagsins í
Garði.
Þess má geta að Litla leikfélagið er
aðeins 4 ára gamalt og ef það heldur
áfram sem horfir þurfa Suðurnesja-
menn og aðrir landsmenn ekki að kvíða
tilbreytingarleysi.
- ELA
EINN ÁTTUNDIHLUTI
LITLA LEIKFÉLAGINU
GETZ ER ENN SÁ SAMI0G FYRRUM
EYJÓLFUR
MELSTED
Bossa Nova ævintýrið. Víst lenti
Getz i lægð á tímabiii. í slíkum
þrengingum lenda listamenn gjarnan,
en það er aðeins á færi þeirra sem
standa ofar meðalmennskunni að rísa
upp aftur. Kredduhjalið um Bossa-
Nova tel ég ævinlega best afgreitt
með orðum annars góðs jassmeistara
og uppalanda, Gunnars Ormslev:
„Hvað eru menn að þrátta um Bossa-
Nova — þetta er bara jass.”
Ákafir, en agaðir
Og nú var Stan Getz mættur í
Laugardalshöll með fjóra stráklinga
meðsér. Þær fréttir höfðu borist með
erlendum jassmönnum í vetur leið,
að Getz hefði nú fram að tefla góðu
liði, og réttur reyndist sá orðrómur.
Strákarnir hans Getz eru kjarnalið,
hörkuduglegir spilarar, kannski
einum of ákafir i að sýna hvað þeir
virkilega geta í sólóum sínum, en vel
agaðir i samleik. Stefjasmíöar þeirra
Andy Laverne og Chuck Loeb eru
laglegar, i viðteknum stil jassins í dag
skera sig ekki á neinn hátt úr. Lög
Laverne höfðu þó á sér öllu meiri
persónuleg þroskamerki. En nú er
það svo í jassleik, að það er ekki
Makalausir
Kyrr á
stallinum
En hvað þá um Stan Getz sjálfan?
Er hann kannski skugginn af þvi sem
áður var? — Allavega ekki eins og
hann lék í Laugardalshöllinni. Kann-
ski er þeim vangaveltum best svarað
með tilsvari gamals vinar míns og
eins mesta Getzaðdáanda hérlendis,
þegar ég spurði hann hvort goðið
væri nokkuð fallið af stallinum?
„Nei, ég held jafnvel að hann sé fast-
ari þar en nokkru sinni fyrr.” Það
var þakkarverð ráðstöfun Lista-
hátíðarstjórnar að fá Slan Getz
hingað. EM
Schönbergtónleikar
Listahátið f ReykjavBt 1980.
Tónleikar Stan Gatz og kvintetts hans í
LaugardatehöH, 14. júní.
Þegar það fréttist, að Stjórn Lista-
hátíðar í Reykjavík hygðist fá Stan
Getz hingað, brostu sumir í kampinn
og töldu nefndina nú hafa fullkomn-I
að þjónustu sína við söfnunarhneigð-,
ina. Hún teldi sem sé sitt meginhlut-'
verk á sviði jassins, að gefa landan-
um kost á að hlýða á fallnar stjörnur
— gamla meistara, sem væru orðnir
skugginn af sjálfum sér.
„Þetta er bara
jass"
Álit þetta munu viðkomandi hafa
byggt á lægð þeirri, sem meistarinn
lenti í eftir að vinur hans, snillingur-
inn Oscar Pettiford var allur, og
síðan dómi kreddutrúarmanna um
Líklega hefur það fælt marga frá
því að sækja Schönbergtónleikana í
Þjóðleikhúsinu að ekki skyldi auglýst
sérstaklega að um verk hans fyrir
tólftónasiðaskiptin yrðu leikin. Það
er nefnilega enn til margt fólk, sem
annars er iðið við að sækja tónleika,
sem ekki er ginnkeypt fyrir tólftóna-
músik, svo saklaus sem hún nú ann-
arser.
Ætíð stendur Schönberg, með
sinum vönduðu vinnubrögðum fyrir
sinu, að ekki sé minnst á þegar flutn-
ingur allur er jafn frábær og í Þjóð-
leikhúsinu umrætt kvöld.
Frábœr söngur
Strengjakvartettinn hljómaði að
vísu dálítið þurr og mattur. Ekki var
leiknum um að kenna, heldur húsinu.
öll þessi tjöld og klæöi, sem nauð-
J
Rut L. Magnússon
meðferð”.
„makalaus
hefur þótt óþarfi að halda upp á
spjöldin eftir aö hljómsveitin fór í
harmónikkuhúsið vestur á Melum. —
En vel léku þau kvartettinn og frábær
var söngur Sigrúnar Gestsdóttur i
erfiðu hlutverki. Röddin stórkostleg
‘—--ArorA afhurðagóö.
Rut var
stórkostleg
í Pierrot lunaire skyggði stórkost-
leg frammistaða Rutar Magnússon á
flest annað. Meðferð hennar á efninu
var svo makalaus, að ekki gerði hið
minnsta til þótt framburður væri í
vissum tilvikum óskýr. Samvinna
hljóðfæraleikaranna var einnig firna
góð, og leikur þeirra snjall.
Þegar kom að visunni í kvæðinu,
sem Þorsteinn Gylfason nefnir i
ágætri þýðingu sinni, „Kvöld-
lokkur”, stóð málverkið úr sal
Norræna hússins manni ijóslifandi
fyrir hugskotssjónum, eða eins og
það hljóðar í þýðingu Þorsteins:
Með fáránlegum fimbulboga
á fiðlu sína urgar Pétur.
Á einum fæti eins og storkur
krafsar fingri i fiðlustrengi.
fyrir. Einu sinni var til þilveggur, sem
slegið var utan um Sinfóníuna,
meðan hún lék í húsinu, en líklega
Býsna brothætt
Píanólögin litlu sex eru varla
Hreint makalausir tónleikar.
- EM
Lhtahátfð I Reykjavit 1980.
TónUst Amolds Schönberg I Þjóðleikhúsinu.
Stjórnandi: Paul Zukofsky.
Flytjendur: Rut Megnússon, rödd; Slgrún
Gestsdóttir, sópran; Rut IngóHsdóttir, fiöla og
lágfiðla; Helga Hauksdóttir, fiöla; Staphen
King, lágfiðla; Carmel Rus.il, knáflðla; Pátur
ÞorvakJsson, knáfiðla; Bemard WHklnson/
flauta; Gunnar Egllsson, klarínetta; Anna
MáHriður Sigurðardóttir, píanó.
Efnteskrá: Strengjakvartett nr. 2 op. 10; Sex
Iftil pianólög op. 19; Pátur í tungNnu op. 21.
endilega stefið sjálft sem skiptir öllu
máli, heldur meðferðin og úrvinnslan
og síðast, en ekki síst, sveiflan. í
þeim efnum var ekki undan neinu að
kvarta, þar bar allt merki reynslu,
lærdóms og frábærrar smekkvisi
meistara Getz.
byrjuð þegar þau eru búin og manni
finnst eins og pianóleikarinn sé allan
tlmann að hugsa um að missa ekki
fingurna niður á milli nótnanna á
borðinu. Anna Málfriður lék þau af
nákvæmni og öryggi og gerði þau
með leik sínum eins brothætt og
hugsast getur.
)