Dagblaðið - 19.06.1980, Page 24

Dagblaðið - 19.06.1980, Page 24
Guölaugur heimsótti nokkra vinnustaði á Akure.vri og í iönaðardeild Sambandsins mátaði hann þessa forláta pevsu. Með honum á myndinni er Hjörtur F.iriksson verk- smiðjustjóri. A kosningafundi Guðlaugs á Akureyri: „Kjósum við Guðlaug þá kjósum við rétt” þá kjósum við hæfasta manninn Frá Atla Rúnari Haildórssyni, frétta- manni DB á Akureyri: Nú forsetakjöriðer fólkinu létt þvi færa má heim um það sanninn að kjósum við Guðlaug þá kjósum við rélt þá kjósum við hæfasta manninn. Með þessari visu lauk Knútur Otterstedt rafveitustjóri kosningafundi Guðlaugs og Kristínar i íþrótta- skemmunni á Akureyri í gærkvöld. Þar var þéttsetinn fundarsalur, en fundarboðendur töldu að fótbolta- leikur Akureyrarliðanna Þórs og KA á sama tíma hefði orðið tii þess að færri sóttu fundinn en ella. Steindór Steindórsson, fyrrum skólameistari, flutti aðalræðu dagsins og sagði þá „ábyrgð hvíla á okkur að gera það gæfustund þegar við gengjum inn í kjörklefann og veldum okkur for-. seta.” Stemdór sagði Ijóst að „aðalbar- daginn yrði milii Guðlaugs og Vigdisar" og hann spurði fundarmenn hvort væri betri undirbúningur fyrir embætti forseta að starfa sem háskóla- rektor og sáttasemjari rikisins eða stjórna leikhúsi. Aðrir sem ávörpuðu fundinn voru Guðrún Lárusdóttir hús- móðir, séra Pétur Þórarinsson, Jón Baldvin Halldórsson háskólanemi og Gísli Jónsson menntaskólakennari. Guðlaugur Þorvaldsson ávarpaði fundinn síðastur ræðumanna og Elín Sigurvinsdóttir söng við undirleik Ingi- mars Eydal. -SA/ARH, Akureyri. Guðjón Ólafsson: „Höfóum nægan tima." r DB-m ynd:-omm. Guðjón Olafsson flugstjóri: „Þetta er alltaf einhver heppni” — áhorfendur sam- mála um að meistaralega var lent „Það er ekki gott að segja hversu mikið hættuspil slík lending er en þetta er alltaf einhver heppni,” sagði Guðjón Ólafsson flugstjóri eftir hina giftusamlegu lendingu. Guðjón stóð utan við Fokkerinn og var ekki að sjá að honum væri brugðið. Allir sem á lendinguna horfðu voru sammála um, að hún hefði verið meistaralega af hendi leyst. „Við förum eftir ákveðnu vinnuplani i tilvikum sem þessum. Við höfðum nægan tíma og farþegarnir voru alveg rólegir meðan á þessu stóð. Það er ekki gott að segja hversu skemmd vélin er eftir nauðlendinguna. Að því er séð verður eru skemmdirnar ekki miklar, en það þarf að mæla hana upp og sjá hvort hún hefur skekkzt. Skekking er alvarlegasti hluturinn.” Baldur Ingólfsson flugmaður: Fyrir mestu að enginn slasaðist „Farþegamir sýndu mikla still- .ingu, rétt eins og þeir hefðu ekki gert annað en taka þátt i nauð- lendingu,” sagði Baldur Ingólfs- son aðstoðarflugmaður eftir lend- inguna. Baldur sagðist ekki hafa kviðið lendingunni svo mjög, þvi þeir hefðu einmitt verið að æfa slíkar lendingar undanfarna daga. „Lendingin gekk alveg í samræmi við þær æfingar,” sagði Baldur. Vélin héizt á brautinni al'veg þar til hraðinn var oröinn svo m- ill að vængendinn rakst niður og vélin snerist út af brautinni. Þær sekúndur voru lengst að líða. En maður öðlast aukna reynslu við slíkan atburð. Fyrir mestu var að enginn farþeganna skyldi slasast.” emm/JH Bakkjr tngóffsson: „Ritt ains og farpag amif hafðu akfral gart annaó." Elisabat Hikonardóttir: „Engin „panik" umborð". Elísabet Hákonar- dóttir flugfreyja: „Farþegamir tóku þessu vel” — farþegar luku allir lofsorði á flug- freyjuna fyrir frá- bær störf Elísabet Hákonardóttir flug- freyja sinnti farþegum inni í flug- stöðinni í Keflavík, enda voru sumir enn nokkuð miður sín eftir þessa lífsreynslu, svo sem eðlilegt er. Farþegar luku allir lofsorði á flugfreyjuna, sem undirbjó far- þegana undir nauðlendinguna þannig að engin hræðsla greip um sig meðal þeirra. „Það greip ekki um sig nein „panik” um borð,” sagði Elisa- bet og var hin rólegasta eftir nauðlendinguna. „Það gafst svo góður tími til undirbúnings. Það voru góðir flugmenn sem stjórn- uðu og farþegarnir töku þessu eins vel og hægt er að búast við þegar svona kemur fyrir.” -JH. Brynja Traustadóttir farþegi: „Égtreysti flugmönnunum” — og flugfreyjan stjórnaði öllu mjög vel „Þetta er eins og hvað annaS, sem maður lendir í, ” sagoi Brynja Traustadóttir, farþegi í Fokkervélinni eftir nauðlending- una í gær, en Brynja var með litla dóttur sína, ■ Tinnu Guðmundsdóttur, um borð. „Maður verður að taka þessu. Ég var ekki hrædd því að ég treysti flugmönnunum, en ég átti í nokkrum vandræðum méð barnið þegar þurfti að halda þjri niðri. Við fórum í loftið kl. 6, en þegar við áttum að lenda í Eyjum kom í Ijós, að eitthvað var 'að og fljótlega sáum við að hjólin öðru megin fóru ekki niður. Við undir- bjuggum lendingu og höfðum nægan tíma'. Flugfreyjan var mjög róleg"og stjórnaði öllu mjög vel. Ég treysti mér vel upp í flug- vél aftur og trúi því að maður lendi ekki í svona aftur.” 1 -JH. Brynja Traustadóttir og T'mna: „Eins og hvaó annað sem maður landir i. ” DB-myndir: Ragnar Th. frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980. Þingforsetar funda um launahækkun: Málinu frestað - líklegasta niðurstaða forsetafundarins í dag Hnekkt eða frestað. Þingforsetar taka ákvörðun í dag um hvort ákvörðun þingfararkaupsnefndar um 20% kauphækkun til þingmanna verður látin koma til framkvæmda eða ekki. Ósennilegt má telja að þingforset- arnir Jón Helgason, Sverrir Hermanns- son og Helgi Seljan taki ákvörðun um að hafna ákvörðun nefndarinnar, miklu heldur að afráðið verði að fresta því að ákvörðun nefndarinnar komi til framkvæmda til haustsins þegar þing kemur saman. Verði þá flutt stjórnar- frumvarp um að laun þingmanna verði framvegis ákvörðuð af kjaradómi, líkt og er um laun hluta opinberra starfs- manna. Forsetum þingsins mun þykja hæpið að hafna áliti þingfararkaupsnefndar alfarið, ekki hvað sízt þar sem um einróma ákvörðun nefndarinnar var að ræða. Þýddi það að þeir settu sig upp á móti áliti nefndarinnar án þess að geta vísað málinu beint til alþingismanna allra, en slíkt væri eðlilegast að gera eftir að Alþingi kemur saman. -BH. Fjöldauppsagnir í frystihúsum í Eyjum: Vafi á lög- mæti þeirra Óvissa ríkir um hvort uppsagnir starfsfólks í frystihúsum í Vestmanna- eyjum, sem boðaðar hafa verið 1. júli nk„ séu í samræmi við ákvæði „Ólafs- laga” um tveggja mánaða fyrirvara uppsagna og samdráttar i atvinnufyrir- tækjum. Óskar Hallgrímsson, deildarstjóri vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu- neytisins, sagði i samtali við DB í morg- un að þessi mál væru nú i athugun. Mestur vafi léki á því hvort Ólafslög tækju til starfsfólks með kauptrygg- ingu og mánaðar uppsagnarfrest. Það ætti þóaðskýrast innan fárra daga. Óskar Hallgrímsson kvaðst hafa fregnir um það að frystihúsaeigendur hefðu lýst því yfir að þeir mundu fara að lögum þegar niðurstaða væri fengin i þessu deilumáli. -GM. LUKKUDAGAR: n. júní 3229 Hljómplötur aö eigin vali frá Fálkanum fyrir 10 þúsund. 18. JÚNÍ 14411 Kodak F.ktra 12 myndavél. 19. júni 29856 Tesai ferðaútvarp. Vinningshafar hringi í sima 33622.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.