Dagblaðið - 28.06.1980, Page 4

Dagblaðið - 28.06.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. jUNÍ 1980. DB á ne ytendamarkaði FRYSTIKISTURNAR ODUM AÐ TÆM- AST OG DÝRT AÐ FYLLA í ÞÆR Á NÝ Kaf lar úr bréf um f rá öllum landshornum Fjölmörg bréf hafa borizt Neyt- endasiðunni nú síðustu vikur og fara hér á eftir hlutar úr nokkrum þessara bréfa: Bolungarvík „Mér finnst heildarupphæöin fyrir mat og hreinlætisvörur ekki há miðað við að inni í tölunni er ýmis- legt sem keypt er á heildsölu, sem endist þá lengur en mánuðurinn. Að auki er þarna einn kjötskrokkur. þetta urðu 32.757 kr. á mann að meðaltali. í dálkinum „annað”, sem var upp á tæpa milljón, er m.a. olía fyrir 90 þúsund, feröalag sem kostaði okkur rúml. hálfa milljón og bensín fyrir nærri 136 þúsund. >að er um það bil 100 þús. kr. meira en undanfarna mánuði. Það er ekki óeðlilegt því bíll- inn var notaður til ferðalagsins. Svo var víxill upp á 250 þúsund o.m.fl.,” segir í bréfi frá húsmóður í Bolungar- vík. Keflavík „Matur og hreinlætisvörur hafa hækkað talsvert hjá mér sl. mánuð. Skýringin á því er veizla i mánuðin- um og einnig er allt að verða búið úr kistunni. Liðurinn „annað” hefur einnig hækkaö töluvert, en við höfum líka verið að láta lagfæra íbúðina, mála, dúkleggja og svo framvegis,” segir m.a. í bréfi frá Suðurnesjakonu. Hún er með fjögurra manna fjölskyldu og meðaltalið hjá henni er nærri 39 þús- und á mann. í dálkinum annað er upphæðin upp á rúma eina milljón kr. Garður „Ég bý afskekkt og hef þurft að keyra drenginn sem er sjö ára í skól- ann á hverjum degi í vetur. Svo eru nokkrar ferðir til Keflavíkur í viku. Ég hef alltaf tvær heitar máltíðir á dag, en reyni að spara með því að nota fisk sem ég fær frítt,” segir m.a. í bréfi frá húsmóður í Garðinum. Hún er með tæplega 42 þúsund á mann að meðaltali í mat og hrein- lætisvörur en rúmlega 600 þúsund kr. í „annað”. Þar af er bensínkostn- aðurtalsverður. Seyðisfjörður „Þá er það maí. Við vorum ekki heima i viku og þess vegna er matar- reikningurinn svona lágur, eða rúm 29 þúsund á mann. Farið er til Akur- eyrar tvisvar til þrisvar á ári þar sem húsmóðirin er þaðan,” segir m.a. í bréfi frá húsmóður á Seyðisfirði. Liðurinn „annað” er upp á rúml. 1,5 milljónir, en þar af fer rúm milljón i bygginguna. Að öðru leyti eru hæstu útgjöldin í þeim lið gjafit, en þar i eru tvær fermingargjafir og tvær stóraf- mælisgjafir. Vestmannaeyjar „Mai var mjög dýr hjá mér. Rúm- lega 113 þúsund kr. að meðaltali á mann. En þar inni í er fermingar- matur ásamt fæði fyrir þrettán gesti sem ég fékk úr Reykjavík í nokkra daga. Gallabuxur á þrjá stráka og bolir hleypa Öörum kostnaði upp um 65 þúsund kr„” segir m.a. í bréfi frá húsmóður í Vestmannaeyjum. Kópavogur „Maítölurnar eru nokkuð háar þykir mér, en frystikistan var líka galtóm og við keyptum kindaskrokk og eitthvað fleira,” segir m.a. í bréfi frá lesanda í Kópavogi. „Við fórum úr bænum um hverja helgi en þá vill maturinn sem keyptur er, alltaf verða dálítið dýrari.” Meðaltalskostnaður- inn í mat og hreinlætisvörum reyndist vera tæp 47 þúsund kr. á mann. Liðurinn „annað” var upp á rúmlega 644 þúsund kr. Bréfritari segir að sér hafi blöskrað og fór að reikna saman. Þá kom í ljós að þetta voru bara skuldir og skyldur. Þá þurfti einnig að búa barn í sveit og það tók sitt. Reykjavík „í mánuðinum keyptum við tiu kg af smjöri og þrjá væna skrokka, þannig að upphæðin í mat var nokkuð há,” segir í bréfi frá Reykja- Nú er um að gera að notfæra sér hið sérlega lága verð á gúrkunum. Þær kosta núna 700 kr. kg. Hér er uppskrift af sultuðum gúrkum, „asíum” . Þetta er súr/sætt meðlæti sem hentar sérlega vel með öllu kjöti og einnig ofan á kæfubrauð. Uppskriftin er dálítið stór, en asíurnar geymast mjög vel. 15 stk. agúrkur I Iftri edik 1/2 litri vatn 5 stk. laukar (meðalstórir) 1 pakki asfukrydd (má vera meira) 750 g sykur 1 hnefi gróft salt Gúrkumar eru flysjaðar, klofnar og skornar i ca 4—5 cm langa bita. Kjarnarnir eru teknir frá. Gúrkubitarnir eru látnir í fat eða skál og grófa saltinu stráð yfir. Látnar bíða til næsta dags. Þá er lögurinn tilbúinn, edik, vatn, sykur og asiukryddið soðiðsaman. Laukurinn er flysjaður og skorin i báta og látinn út i löginn. Honum er því næst hellt yfir gúrkubitana. Geymist á köldum stað í sjö sólarhringa og hrært í einu sinni á dag með trésleif. víkurhúsmóður sem reyndist vera með rétt rúmlega 63 þúsund á mann. Hún getur væntanlega huggað sig við að meðaltalið verður þá lægra næst, þegar hvorki þarf að kaupa smjör eða lambakjöt. Seðlarnir koma frá öllum landshornum Þetta eru aðeins smáglefsur úr Þá er öllu skellt í pott og hitað vel upp, að suðu en má alls ekki sjóða, látið í tandurhrein glös og lokað strax. Vel má láta rotvarnarefni út í, 1 msk. á litra. bréfum sem okkur bárust með maí- seðlunum. Reyndar varð heilmikið af bréfum útundan í síðasta mánuði. Í framtíðinni ætlum við að reyna að birta bréfin jafnóðum. Við þökkum öll tilskrifin. Margir hafa gaman af þvi að lesa bréfin frá húsmæðrum viðs vegar af landinu, þótt heyrzt hafi að sumum þyki fullmikið um af- sakanir hjá þeim yfir því hve upp- hæðirnareruháar. A Það sem skorið er innan úr gúrkunum, kjarnarnir, má sem bezt nýta í hrásalat, eða út í majones t.d. með harðsoðnum eggjum. -A.Bj. Ígúrkutíðinni: SÚRSÆTAR AGÚRKUR NÝTT F0RM Á HBMIUSBÓKHALDINU Öll útgjöld vikunnar nú sundurliðuð lið fyrir lið TTrímilÍHh/ikbalH vikuna: til Mat- og drykkjarvörur, hreinlætisvörur ogþ.h.: Sunnud Mánud Þridjud Miövikud Fbnmtud Föstud Laugard Saxnt —rr Samt Samt. Samt Samt Sanxt Samt Orniur utgjöLd: Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud Flmmtud Föstud Laugard SamL SamL SamL Samt Samt Samt SamL Á Neytendasiðunni í dag birtum viðnýtt form fyrir heimilisbókhaldið okkar. Eins og lesendur muna eflaust eftir vorum við búin að boða útkomu heimilisdagbókar, sem átti að vera eins konar undirplagg fyrir vegg- spjaldið góða. Vel átti að vanda til dagbókarinnar sem gerði að verkum að útkoma hennar hefur dregizt úr hömlu. Og þangað til bókin kemur ætlum viö að birta formið á laugar- dögum. Þeir sem taka þátt i heimilisbókhaldinu geta klippt það út og fyllt inn á dagleg útgjöld. Þannig fæst betra yfirlit yfir hvað er keypt hverju sinni. Þetta er hluti af því formi sem verður í Heimilisdagbókinni, en þar verður að finna mjög nákvæma sundurliðun á öllum útgjöldum til heimilisins. Innheimta á upplýsingaseðlum hefur verið nokkuð dræm fyrir maímánuð. Okkur vantar enn nokkuð upp á að okkar „föstu” viðskiptavinir hafi allir skilað sér. Við hvetjum þá til þess að senda okkur maí-tölurnar um leið og júní- seðillinn fer í póst til okkar. Nýja formið okkar sem birtist i fyrsta sinn í dag skýrir sig sjálft. Benda má á að hentugast er að skrifa á dagblaðapappír meðkúlupenna. Gangi ykkur vel. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.