Dagblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980.
5
Heilbrigðiseftirlit ríkisins óskar að ráða
skrifstofumann
til starfa frá og með 1. ágúst 1980.
Laun skv. kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1980. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist Heilbrigðiseftirliti ríkisins, Síðumúla 13,
105 Reykjavík.
Umdæmistæknifrædingur
Laus til umsóknar er staða umdæmistæknifræð-
ings í Reykjanesumdæmi. Laun samkv. launa-
kerfi ríkisins. Nánari upplýsingar gefur forstjóri
FMR í síma 84211.
Staðan veitist frá 1. ágúst nk. eða eftir nánara
samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
Fasteignamat ríkisins.
KOSNINGA-
SKRIFSTOFUR
STUÐNINGS
MANNA
PÉTURSJ. THORSTEiNSSONAR
Reykjavík.
VESTURGATA 17:
Kosningastjórn: Símar 28170 og 28518.
Kjörskrá og
utankjörstaðakosning: Símar 28171 og 29873.
Sigtún v/Suðurlandsbraut
Opiö hús — Lítið inn — Veitingar.
Upplýsingar og kjörskrá símar: 39923,39924,39925
Bílaafgreiðsla símar: 39920,39921,39922.
Hverfaskrifstofur og bílaafgreiðslur:
- Sími
Nes- og Melahverfi Vesturgata 3 29872
Vestur- og Miðbæjarhverfi, Vesturgata 3 28630
Austurbæjar- og Norðurmýri. Vesturgata 3 28630
Hlíða- og Holtahverfi, Grensásvegi 11 37378
Laugarneshverfi Grensásvegi 11 39823
Langholtshverfi, Grensásvegi 11 36944
Háaleitishverfi, Grensásvegi 11 39821
Bústaða- og Smáíbúða- og Fossvogshv. Grensásvegi 11 39822
Árbæjar og Seláshverfi, Grensásvegi 11 37379
Bakka- og Stekkjahverfi, Fremristekk 1 77000
Fella- og Hólahverfi, Fremristekk 1 77000
Skóga- og Seljahverfi, Fremristekk 1 77000
Reykjanes — kosningaskrifstofur
Kópavogur: Rauðahjalla 1 45644 43829
Garðabær: Lyngháls 12 54084
Hafnarfjörður: Keflavík, Njarðvík, Sjónarhóli Reykjavíkurv. 22 52311
Grindavík, Sandgerði. Grundarvegi 23
Gerðar, Vogar, og Vatnsleysuströnd Njarðvík 92-2144
Seltjarnarnes: Vesturgata 17 R. 29873
Bakarar auglýsa einhliða hækkun á brauðum:
„Neyddir til að baka
undir kostnaðarverði"
— segir f ramkvæmdastjóri Landsambands bakarameistara
„Jú við vitum að það er ólöglegt að
hækka brauðin í trássi við verðlagsyfir-
völd, en spurningin er hvort þau geta
neytt okkur til að framleiða brauð
undir kostnaðarverði," sagði fram-
kvæmdastjóri Landssambands bakara-
meistara, Hannes Guðmundsson, í
samtali við DB i gær. Landssambandið
hefur auglýst hækkun á
vísitölubrauðum um 20—39% frá 30.
júní nk. í stað 9,5—14% hækkunar
sem verðlagsyfirvöld hafa leyft.
Hannes sagði að fundur hefði verið
með verðlagsstjóra og formanni
verðlagsráðs á fimmtudag þar sem
málin hefðu verið rædd vítt og breitt
og hefðu málin skýrzt.
,,f Ijósi nýrra upplýsinga verður
kallaður saman fundur á sunnudags-
kvöld hjá Landssambandi bakara-
meistara og mun þar verða tekin
endanleg afstaða til málsins,” sagði
Hannes.
-EVI.
Bætur vegna
fatlaðra:
„Ferðaskrif-
stof ur og
hótel þora
ekki lengur
að skipta
við fatlað
fólk’"
„Við höfum ekki orðið varir
við þetta ennþá á íslandi,
kannski af þvi að ekki eru farnar
neinar sérstakar hópferðir með
fatlaða,” sagði Theodór A.
.Jónsson formaður Sjálfsbjargar
— landssambands fatiaðra.
Nýlega voru konu í Frankfurt
am Main í Þýzkalandi dæmdar
bætur frá hendi ferðaskrif-
stofunnar Neckermann fyrir það
að í Grikklandsferð hafði henni
verið komið fyrir á hóteli þar sem
dvaldi einnig hópur sænskra
unglinga í hjólastólum. Konunni
var dæmt háJfvirði ferðarinnar til
baka á þeim forsendum meðal
annars að „ekki væri hægt að
loka augunum fyrir því að hópur
fatlaðs fólks geti eyðilagt sumar-
leyfisánægjuna hjá viðkvæmum
sálum” eins og segir í dómsorði.
Þetta er annað dómstigið af þrem
í Þýzkalandi sem dæmir í þessu
máli.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra,
hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu um málið þar sem
meðal annars kemur fram óttinn
við það að ferðaskrifstofur og
hótel þori ekki lengur að eiga
viðskipti við fatlaða eftir að þessi
úrskurður var felldur.
„í Svíþjóð og Danmörku, þá
alveg sérstaklega Svíþjóð, hefur
þetta verið opið og töluvert um
hópferðir fatlaðra. Nú hefur hins
vegar komið afturkast frá
hótelum á Ítalíu og i Grikklandi
og ótti við að taka á móti sliku
fólki,” sagði Theodór.
20. þing Sjálfsbjargar fór fram
á það við ríkisstjórn íslands, að
hún mótmælti þessu við þýzku
ríkisstjórnina þar eð þetta væri
brot á mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Ekkert
svar hefur enn borizt við þeirri
beiðni að sögn Theodórs.
-DS.
TORFÆRUKEPPNI — TORFÆRUKEPPNl - TORFÆRUKEPPNI
BÍLAKLÚBBUR AKUREYRAR
TORFÆRUKEPPNI VERÐUR HALDIN í
MALARNÁMI BÆJARINS SUNNUD. 6. JÚLÍ
KL. 14.00.
1. VERÐLAUN 300.000
2. VERÐLAUN 200.000
3. VERÐLAUN 100.000
UPPLÝSINGAR.OG SKRÁNING í
VERZLUNINNI SKART, SÍMI 96-24840.
SKRÁNINGU LÝKUR 12 TÍMUM FYRIR KEPPNI
.BÍLAKLÚBBUR AKUREYRARL
Grundarfjörður:
Rauðgullinn brunahani
Þessi dáfallegi brunahani í Grundarfirði tók á sig rauðgullna mynd
þegar þær stöllur Sólrún ogJóhanna höfðu farið um hann höndum.
Hann var heldur fölur áður en er nú rauður og sterkgulur þannig að
ekki á að fara á milli mála hvar hann er niðurkominn. Sólrún og
Jóhanna gera raunarfleira en að mála brunahana. Þærfara víða um
plássið og mála það sem mála þarf t.d. staura og leiktækin á barna-
leikvellinum.
-DB-mynd JH.
Valfrelsi:
Kosið um þjóðaratkvæði
jafnhliða forsetakosningum
„Nei, enn höfum við ekki fengið
svar frá ríkisstjórninni,” sagði Hilmar
Guðjónsson, einn i framkvæmdanefnd
hugsjónahreyfingarinnar Valfrelsis, er
DB spurði hann um afdrif bréfs sem
samtökin sendu ríkisstjórninni 17. júní
sl.
í bréfinu, sem er undirritað af
Sverri Runólfssyni fh. Valfrelsis, er
vísað í fyrra bréf Sverris til rikis-
stjórnarinnar frá 18. október sl. þar
sem óskað var eftir því að kosið yrði
um almenna þjóðaratkvæðagreiðslu-
löggjöf samtímis því sem kosið yrði til
Alþingis í desember.
„Þar sem Valfrelsi hefur ekki fengið
svar við beiðni sinni ítrekar fram-
kvæmdanefndin þá ósk hér nteð og fer
fram á að kosið verði um áðurnefnda
löggjöf sem fyrst. Auðvelt væri að láta
fara fram atkvæðagreiðslu um lög-
gjöfina um leið og kosið er til forseta
29. júní næstkomandi. Valfrelsi býður
sig hér fram til að sjá um framkvæmd
atkvæðagreiðslunnar,” segir i bréfi
Sverris.
-ÓV.
EggertGunnarsson
en ekki Gunnar
Eggertsson
Eggert Gunnarsson dýralæknir var i
blaðinu á miðvikudag sagður heita
Gunnar Eggertsson. Var það í viðtali
við Sigríði Ásgeirsdóttur um Dýra-
spítalann. Eggert er beðinn velvirðing-
ar á þessum ruglingi.
-DS.