Dagblaðið - 28.06.1980, Side 7

Dagblaðið - 28.06.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980. 7 Fram og til baka Kef lavík-New York: FLUGFERÐ Á SPOnPRÍS Það verður ekki amalegl að kom- ast með júmbó-elephant-þotu frá Keflavík til New York og til baka fyrir „spottprís”: sama verð og einn leikhúsmiði kostar. Það er nú einmitt það sem við eigum kost á þegar hinar ódýru ferðir hefjast 3. júlí í Gyllta salnum á Hótel Borg kl. 10 á kvöldin og standa þær til boða hvert kvöld allan júlímánuð. Þetta er nú auðvitað pínulitil fantasía því að það sem raunverulega er að gerast er að Brynja Benedikts- dóttir leikstjóri er að fara af stað með Flugkabarett, unninn upp á nýtt úr Flugleiknum, sem sýndur var á veg- um Þjóðleikhússins á vörusýning- unni í fyrra og á Kjarvalsstöðum við góða aðsókn. «c Flugstjórinn, Gísíi Rúnar Jónsson, tekur sig vel út í flugbúningi fram- tíðarinnar. Ekki eru flugfreyjurnar siður augnayndi, þær Saga Jóns- dóttir, Guðlaug Bjarnadóttir, Edda Þórarinsdóttir og Edda Björgvins- dóttir. DB-mynd Bjarnleifur. „Það verður mikið um dýrðir. Búningar flugfólks eru afar skraut- legir, gerðir af Sigurjóni Jóhannssyni yfirleikmyndateiknara Þjóðleikhúss- ins,” sagði Brynja þar sem hún var að æfa leikflokkinn undir berum himni í Hallargarðinum í vikunni. „Vitanlega fá farþegar Loftferða- félagsins Ice-Air í flugvélinni Flóka Vilgerðarsyni hina beztu þjónustu, teppi, kodda, blöð o.s.frv. Þeim á ekki að leiðast í ferðinni því auðvitað koma til alls konar uppákomur og ekki má gleyma unaðslegri músík Karls Sighvatssonar sem kryddar vel.” Gestir Borgarinnar geta byrjað kvöldið snemma, fengið sér matar- bita á undan sýningu og veitingar á meðan á henni stendur en hún tekur 1 klst. Ekkisakarsvoaðstígalétt dans- spor á eftir. Innifalið í flugmiðanum er nefnilega diskótek fyrir og eftir sýningu. Borgin verður opin til 3 á nóttunni. „Við erum að reyna að vekja upp revíuformið, eins og það var og hét,” sagði Brynja. Höfundar leiksins eru hún sjálf, Erlingur Gislason leikari og Þórunn Sigurðardóttir leikari. Tvö hin síðast- nefndu léku aðalhlutverk í Flugleikn- um en aðrir eru í Flugkabarett. Nokkur lokaorð Stuðningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur til forsetakjörs 1980 þakka keppinautum sínum drengilega kosningabaráttu. Sömuleiðis þökkum við samherjum okkar ötult og fórnfúst starf. Við lögðum vonglöð upp í kosningabaráttuna. Nú höfum við komist að raun um, að framboð Vigdísar hefur snert þann streng í brjósti þjóðarinnar sem íslenskastur er. Þúsundum saman hafa landsmenn komið til liðs við Vigdísi í kosningabaráttunni. Nú hillir undir að björtustu vonir okkar rætist. Kjör Vigdísar Finnbogadóttur í for- setaembætti er sögulegur stórviðburður, - stærri en svo að hann verði metinn til fulls nú. Þannig gefst okkur nú tækifæri til þess að móta söguna. Það gerum við hvert og eitt, - og öll saman í kjörklefanum sunnudaginn 29. júní. STUÐNINGSMENN VIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR Lokahátíd w / Laugardai Lokahátíð íþrótta- hátíðarinnar hefst k/. 19.30 á morgun, sunnudag, á Laugar- dalsvelli og iýkur í Laugardalshöllinni - ■ kl. 2 e.m. með f/ug- eldasýningu. KL. 19.30 Hornaflokkur Kópavogs undir stjórn Björns Guð- jónssonar. KL. 19.50 Hestaíþróttir: íslenzki hesturinn sýnir listir sínar eins og honum einum er lagið. KL. 20.10 Brimkló í öllu sínu veldi ásamt Björgvin og Pálma leikur nokkur lög. KL. 20.35 Fimleikasýning. KL. 20.55 Fóstbræður syngja nokkur lög af sinni alkunnu snilld. KL. 21.15 Vélhjólakeppni. Ungir vélhjólakappar leiða saman hesta sína. KL. 21.30 Knattspyrna atvinnumanna. Meðal keppenda eru leik- arar og alþingismenn. Liðið skipa: Leikarar: Bessi Bjarnason, Randver Þorláksson, Gísli Rúnar, Gisli Alfreðsson, Sigurður Skúlason, Guð- mundur Pálsson, Gísli Halldórsson, Þórhallur Sigurðsson. Alþingismenn: Ellert B. Schram, Friðrik Sophus- son, Árni Gunnarsson, Karvel Pálmason, Finnur • Torfi Stefánsson, Sig- urður Magnússon, Baldur Óskarsson og Jóhann Ein- varösson. Hvort liðið sýnir betri leik? KL. 22.00 Hátíðarslit KL. 22.00 Lokadansleikur. Hljóm- sveitin Brimkló og Björgvin Halldórsson ásamt Pálma Gunnars- syni. Kosningasjónvarp. Sjónvarpað verður á þrem- ur stöðum í Höllinni frá úrslitum forsetakosninga. KL. 02.00 Flugeldasýning. Tökum öllþáttí í- þróttahátíðinni. Góð íþrótt — gulli betri.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.