Dagblaðið - 28.06.1980, Síða 10

Dagblaðið - 28.06.1980, Síða 10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980. WBUUnB Irfálst, óháð dagblað Útgefandi: DagbiaAið hf. Frwnkvaemdasgóri: Svoinn R. Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson. Ritst|ómaifuCtrúc Haukur Holgason. Fróttastjórí: ómar Valdimarsson. Skrífstofusgórí ritstjómar: Jóhannes Reykdal. btáttir Hattur Simonarson. Menning: Aðalstoinn Ingólfsson. Aðstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Adi Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Slgurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elin Albertsdóttir, Erna V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Ótafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. Ijósmyndir: Ámi PáM Jóhannsson, Bjarnlorfur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveóui Pormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorierfsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórr Már EJM. HaUdórsson. Ritst|óm Sáðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 línur). Setnáng og umbrot: Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun Árvakur hfSkeifunni 10. Áskriftarverð á mánuði kr. 5.000. Verð i lausasölu kr. 250 eintakið. Notum réttinn Kosningabaráttunni vegna forseta- kosninganna er að ljúka. Á morgun gefst þeim, sem kosningarétt hafa, tækifæri til að ákvarða niðurstöður. Gild ástæða er til að hvetja fólk til að nota rétt sinn. Síðasta skoðanakönnun Dagblaðsins gaf til kynna, að mikill fjöldi ætti erfitt með að gera upp við sig hvern kjósa skyldi. Samkvæmt könnuninni voru yfir tuttugu og tveir af hverju hundraði enn óákveðnir um miðja vikuna. Auk þess vildu tæplega sjö af hundraði ekki svara þeirri spurningu, hvaða frambjóðanda þeir styddu. Þar sem svo margir reyndust óákveðnir, þegar könn- unin var gerð, skal engum getum leitt að úrslitum kosn- inganna. Enginn er enn öruggur og enginn vonlaus. Valið stendur milli fjögurra frambjóðenda, sem allir eru vel hæfír til starfsins. Vafalaust er það þess vegna, sem mörgum kjósand- anum gengur svo seint að gera upp við sig, hvern kjósa skal. En það skyldu menn nú gera. íslendingar hafa jafn- an getað stært sig af mikilli þátttöku í kosningum. í því er fólginn styrkur lýðræðisins. Gleymum því ekki, að í miklum hluta heims fær al- þýða manna engu ráðið um, hverjir fara með æðstu völd. Þeir, sem tök hafa á, skyldu ganga að kjörborðinu á morgun og lýsa skoðun sinni. Stefna ber að því, að kjörsókn verði sem allra mest. Kosningabaráttan hefur að mestu leyti farið vel fram. Sumum stuðningsmönnum forsetaframbjóðenda er þó eðlilega heitt í hamsi, þegar þeir beita sér fyrir kjöri síns fulltrúa. Þegar talningu lýkur og ljóst verður, hver sigrað hefur, verða landsmenn að slíðra sverðin og sameinast um þann, sem kjöri hefur náð, eins og verið hefur eftir forsetakosningar í allri sögu lýðveldisins. Eftir það verður að skapast eining um forsetann. Slík eining hefur sannarlega ríkt í tíð núverandi for- seta, dr. Kristjáns Eldjárns. Reynslan hefur einnig orðið sú, að forsetar hafa eftir kosningar setið í fleiri en eitt kjörtímabil. Slíkur friður hefur ríkt um stöðu þeirra, að engir hafa boðið sig fram gegn þeim. Dagblaðið hefur leitazt við að vera símstöð, þar sem stuðningsmenn frambjóðenda hafa átt kost á að lýsa því, hvers vegna þeir mæla með ákveðnum frambjóð- anda. Þannig hafa birzt greinar og bréf frá lesendum í ríkum mæli, jafnframt því sem blaðið hefur sagt ítar- lega frá kosningabaráttu frambjóðenda. í þessu tilliti hefur Dagblaðið skapað jafnræði milli frambjóðenda, þannig að enginn hefur hlotið meira en aðrir af rúmi blaðsins. Dagblaðið hefur einnig leitazt við að draga úr þeim óhreinindum, sem stöku sinnum hefur gætt í barátt- unni, með því að bægja frá sér skrifum, sem hafa inni- haldið árásir á þá frambjóðendur, sem höfundar hafa ekki stutt. Þessi meðferð blaðsins verður vonandi til þess, að auðveldara verður fyrir landsmenn að sameinast um þann, sem kjörinn verður. Að leikslokúm ber mönnum að sættast fullum sátt- um. Frakkland: Mikil áherzla lögðáal- mennan orku spamað —atburðirnir f rá árinu 1974 í fy rstu orkukreppunni eiga ekki að þurfa að endurtaka sig Frakkar eru ákveðnir i að lenda aldrei i þeirri stöðu aftur að verða að margfalda greiðslur sínar fyrir inn- flutta orku um milljarða franka eins og raunin varð árið 1974. Franskir stjórnendur eru almennt sammála um að þetta hafi verið niðurlægjandi fyrir Frakkland auk þess sem allir eru að sjálfsögðu sammála um hve illa þetta fór með efnahag landsins. Árið 1973 komst hlutfal! innfluttr- ar olíu upp í tæplega sjötíu af hundraði af allri orkunotkun Frakk- lands. Hefur það aldrei verið hærra. Þetta hlutfall er nú komið niður í 56%. Franskir iðnaðarforustumenn telja að fyrir lok þessa áratugs verði enn orðin lækkun á þvi og muni þá ekki verða nema tæplega þriðjungur orkuþarfarinnar sem mæta þarf með innfluttri olíu. Þessu marki hyggjast Frakkar ná með tvennum hætti. 1 fyrsta lagi eru nú þegar hafnar miklar aðgerðir til að auka kolanotkun i frönskum iðn- aði. Einnig er ætlunin að leggja sér- staka áherzlu á að auka orkufram- leiðslu með kjarnorku. Á kjarnorkan að vera búin að ná hlutfallslegu mikilvægi oliunnar í dag eigi síðar en árið 1990. Mikil herferð stendur nú á vegum opinberra aðila í Frakklandi og er hvatt til orkusparnaðar. Þar eru iðn- rekendur, flutningafyrirtæki, hús- næðiseigendur og aðrir einstaklingar hvattir til að spara orku eins og hægt er. Reynt er að sjá svo um að sparn- aðurinn komi ekki niður á lífskjörum neinna né á hagvexti almennt. I þessu sambandi var gerð áætlun árið 1974 þar sem komizt var að þeirri niður- stöðu að brúttóþjóðarframleiðsla Frakka mundi aukast um fimmtíu af hundraði á næsta tíu ára timabili. Ekki var þó talin þörf á þvi ef vel væri staðið að málum að orkuþörfin ykist nema um fjórðung ásama tíma. Talið er að árið 1985 muni hálf milljón heimila í Frakklandi verða búin hitunarkerfum, sem annað hvort eru knúin orku frá heitum lind- um eða þá sjálfri sólarorkunni. Einnig verður mikill fjöldi hitakerfa endurnýjaður og með því spöruð veruleg orka. Franska orkusparn- aðarráðið hefur mjög hvatt ibúðaeig- endur til að auka einangrun i húsum sinum. Einnig eru leigusalar hvattir til að láta hvern og einn leigjanda greiða hitakostnað sinn sérstaklega en leggja ekki fram heildarreikninga fyrir hverja byggingu. Er talið að þannig fáist fólk fremur til að spara orku. Franska sjónvarpið hvatti lands- menn mjög til þess á liðnum vetri að láta sér nægja að hafa 18 gráða hita á heimilum sínum. Ef það væri of kalt væri auðveldast og ódýrast að bregða sér í peysu eða slopp. Á veðurkortum sem.franska veðurstofan gefur út eru þau svæði landsins þar sem ástæða er talin til að hita upp hibýli manna merkt sérstaklega. Síðan eru þau svæði Frakklands þar sem ekki er tal- in þörf á sliku einnig merkt. Árangur herferðarinnar í sjónvarp- IHVAÐ B0RGA BÍÓGESHR? Stuttu fyrir þingslit var frumvarp Vilmundar Gylfasonar um S0 króna aukagjald á biómiða tekið til um- fjöllunar í Menntamálanefnd efri deildar Alþingis. Gjald þetta skyldi vera til styrktar kvikmyndagerð í landinu og renna I Kvikmyndasjóð. Það er skemmst frá þvi að segja að nefndarmenn gátu ekki veitt hug- mynd þessari brautargengi og sendu málið á vit ríkisstjórnarinnar. Það má reyndar vel vera að þarna hafi verið skynsamlega að farið. Því meira sem ég hugsa um þetta frum- varp, þvi fleiri annmarka finn ég á því. Stærsti vansinn er að það gengur alls ekki nógu langt. Sá næststærsti er að bíómiðar hafa þegar verið skattlagðir óheyrilega mikið. Þegar búið er að leggja á skemmtanaskatt, menningarsjóðsgjald, sætagjald og söluskatt, þáer spurning hvort pláss sé fyrir eina skattinn sem sjálfsagt væri að leggja á biómiða: skatt til styrktar innlendri kvikmyndagerð. Niðurstaða nefndarinnar varð lika sú að athuga bæri hvort ekki mætti láta hluta söluskatts af biómiðum renna í Kvikmyndasjóð — í stað 50 króna aukagjaldsins. Nú væri gaman að vita hvort nefndarmenn hafa raunverulega trú á því að slik lausn á málinu verði samþykkt. Það er nefnilega fátt erfiðara en að breyta söluskatti í fast- an tekjustofn handa einhverju málefni. Sjálfsagt er að vera bjartsýnn í þessu sem öðru en þó verð ég að viðurkenna að enn virðist mér langt í örugga tekjulind handa Kvik- myndasjóði. Ein leið sýnist mér þó koma sterklega til greina: að endur-

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.