Dagblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 3
3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
Ný dögun:
„Sameinumst í and-
spymu gegn hvaladrápi”
Jón Thorarensen skrifar:
Nú virðist vera að birta af nýjum
degi yfir íslenzka þjóð, því risin er
upp andúðaralda meðal íslendinga
gegn hinu grimmdarlega hvaladrápi,
sem nú á undanförnum áratugum
hefur varpað skugga og skömm yfir
þjóðina. 1 þessu sambandi skal Dag-
blaðinu þakkaður góður leiðari 14.
júli sl.
íslendingar hafa með réttu verið
stimplaðir um heim allan sem alveg
einstakir sérhagsmunamenn, sem
hvorki skeyta um skömm né heiður,
svo gráðugir, að hvorki sjaldgæfar
skepnur né margt sem kvikt er hafi
frið fyrir þeim.
Sjálfir þykjumst við vera forvígis-
menn i friðunarmálum, sbr. land-
helgina, sem var stór sigur. Guð láti
þann sigur gott á vita, en reyndar á
eftir skera úr, hvernig sá sigur verður
íhöndumokkar.
Nú hefst alþjóðahvalveiðiráðstefn-
an i London á morgun. Margir hafa
áhyggjur af þeirri ráðstefnu, því þar
hefur ísland hvað eftir annað greitt
atkvæði með rányrkju Japana og
Sovétmanna, sem hafa stöðugt barizt
á móti öllum tilraunum til verndunar
á hvalastofnunum.
Hvorki hvaladrápsmenn né vís-
indamenn hér hafa getað gefið svör
við því, hvort hvalastofnar (lang-
reyður, sandreyður og búrhvalur)
þoli svona mikið, gegndarlaust dráp.
Það er af því, að allar
ERU RITARAR EKKI
EIN STARFSSTÉTT?
Uppblásni hvalurinn er tákn þeirra sem friða vilja hvalastofninn.
Ritari, sem biður um jafnrétti
skrifar:
Fagna ber fréttum er birtust í Fé-
lagstíðindum, fréttablaði Starfs-
mannafélags rikisstofnana þ. 2.5. sl.,
um tilfærslu milli launafiokka, en
þar segir: „Með úrskurði kjaranefnd-
ar hækkuðu 49. Af þeim hópum, sem
hækkun fengu á samningstímabiiinu
eru stærstir símaverðir, læknaritarar
og læknafulltrúar”.
Við lestur þessarar fréttar verður
hugsað til annarra ritara er gætu bætt
fyrir framan starfsheiti sitt ,,for-
stjóraritari”, „deildarstjóraritari”,
,.ríkisskattsstjóraritari”, „ráðuneyt-
isstjóraritari” o.s.frv. Hver gefur
gæðastimpil á ritara? Hvers vegna
eru þær síðamefndu mun lægra
flokkaðar en þær fyrrnefndu? Hvers
vegna eru aðeins læknaritarar hækk-
aðir í launaflokki? Hvað er kjara-
dómur og hvernig starfar hann?
Vinsamlegast birtið niðurstöður
ykkar. Eru ritarar ekki ein starfs-
stétt?
Hvernig væri að aðgreina byrjend-
ur frá jieim er starfsreynslu hafa?
Skv. viðtali við hr. Kristján Thor-
lacius, formann bandalags starfs-
manna rikis og bæja í Helgarpóstin-
um þ. 23.11. sl., telur hann eðlilegt
að hann sjálfur hafi tvöföld laun
miðað við þann lægsta, sem kominn
er með 6 ára starfsaldur. Kristján
segir „ég er enginn byrjandi í starfi”.
Ennfremur og hver vill vinna ár eftir
ár án þess að fá umbun fyrir reynslu i
starfi? Þetta var gott hjá hr. Kristjáni
og getum við ritarar hjá ríkisstofnun-
um tekið undir þá spurningu.
rannsóknir hafa verið
vanræktar. Það er einfaldara
að drepa en rannsóknir kosta aftur á
móti peninga. Þar skilur á milli feigs
og ófeigs. Nýlega var ein langreyður
merkt og henni fylgt lengi eftir. Var
það til þess að geta hampað þessu
framan i alþjóðahvalveiðiráðið í
London, sem er að hefja fund og
sýna fram á þessu miklu vísindi frá
DB-mynd S.
íslandi! íslenzka sendinefndin er
einlit. Friðunarmenn þurfa að fá full-
trúa þar, svo að bekkir þar séu ekki
einungis setnir af hvaldráps-
mönnum.
Ég skora á alla. sem lesa þetta að
fylkjast í sveit með hvalafriðunar-
mönnum, sameina krafta sína til and-
spyrnu gegn hvaldrápum, og þeim,
sem ofsækja lifríki íslands.
„Hver vill vinna ár eftir ár án þess að
fá umbun fyrir reynslu sina i starfi,”
hefur bréfritari eftir Kristjáni Thorla-
cius.
Raddir
lesenda
LANDSMALAFELAGIÐ
VÖRÐUR
^ I Reykjavík —
Stokkseyri —
Sögualdarbær —
Hrauneyjafoss —
Sigalda —
Galtalækjarskógur
Reykjavík
Sumarferð Varðar
SUNNUDAGINN 20. JÚLl 1980
Vörður efnir til ferðar að Stokkseyri — Sögualdarbænum — Hrauneyja-
fossvirkjun — Sigöldu — Galtalækjarskógi og til Reykjavíkur sunnu-
daginn 20. júlí nk.
Verð farmiða er kr. 12.000 fyrir fullorðna og kr. 7.500 fyrir börn. Inni-
falið í fargjaldinu er hádegis- og kvöldverður. Lagt verður af stað frá
Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 8 árdegis.
★ Til að auðvelda undirbúning, vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst
í sima 82900.
★ Miðasaia í Valhöll, Háaleitisbraut 1,2. hæð.
★ Einstakt tækifæri til að ferðast um fagurt landslag.
★ Varðarferðir bjóða upp á traustan ferðamáta og góðan félagsskap.
★ Aðalleiðsögumaður verður Einar Guðjohnsen.
★ Allir eru velkomnir I sumarferð Varðar.
Innifalið í fargjaldi er hádegis- og kvöldverður.
Miðasala alla daga frá kl. 9—21, laugardaginn
19. júlí kl. 13-17.
Pantanir teknar í síma 82900.
Ferðanefnd.
-----:—
Spurning
Ferðu of tar í bíó,
þegar sjónvarpið
erífrfi?
Vigdis Runólfsdóttir, saumakona:
Nei, ég fer frekar lítið í bíó.
Bragi Ingason, matreiðslumaður: Já,
óneitanlega gerir maður það.
Guðrún Einarsdóttir, húsmóðir: Já, ég
hef farið heldur meira i bíó.
Sigurður Jónsson, fyrrverundi flug-
maður: Ég fer aldrei í bíó, utan hvað
ég sá Óðal feðranna, þvi það verður að
styrkja íslenzkan kvikmyndaiðnað.
Rut Arnadóttir, húsmóðir: Já.svona
heldur meira.
Runólfur Alfreðsson, bifreiðastjóri:
Nei, ég fer aldrei í bíó, hvort sem
sjónvarpið er i fríi eða ekki.