Dagblaðið - 18.07.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
7
Kvartandi fyrírtæki
byggir 1700 milljóna hús
- arkitektúrinn
3040% dýrari
en í venjulegu
skrifstofu-
húsnæði
Milli Ármúla og Suðurlandsbrautar
er nú verið að Ijúka við grunn að fimm
hæða skrifstofubyggingu fyrir Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Grunnurinn
var boðinn út og tekið vár tilboði
Vörðufells hf. sem hljóðaði upp á 35—
36 milljónir króna. Ekki þykir kenna
auraleysis hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur við þessa byggingu, þó sama
stofnun kveini og kvarti í sambandi við
rafmagnsverð.
Húsbyggingin var boðin út, þ.e.
fimm hæðir ásamt álmu til vesturs sem
á að rúma mötuneyti fyrir starfsfólk í
hinu nýja húsi og því sem Rafmagns-
veitan átti fyrir í Ármúlanum.
Kostnaðaráætlun sem tæknideild RR
gerði um byggingarkostnað hússins
áður en útboð voru auglýst hljóðaði
upp á 1745 miiljónir.
Fjögur tilboð bárust í að reisa bygg-
inguna. Lægst var tilboð frá Böðvari S.
Bjarnasyni sf. upp á 1619 milljónir.
Sigurður og Júlíus í Hafnarfirði buðust
til að reisa húsið fyrir 1689 milljónir.
Tilboð barst frá ístaki upp á 1992
milljónir og frá Njörva hf. sem vildi fá
2229 milljónir fyrir að reisa húsið.
Arkitekt hússins er Guðmundur Kr.
Kristinsson og það voru teikningar
hans sem lágu fyrir til grundvallar til-
boða.
Ekki er að efa að RR skortir hús-
næði og betra er að eiga en leigja. En
þarna er svo í borið að jafnvel þeim
sem bjóðast til að vinna verkið eftir
ákveðnum áætlunum blöskrar,
Teikning hússins er þannig úr garði
gerð að hún er30-40°7o dýrari en venju-
legt skrifstofuhús í sama hverfi að
dómi húsbyggjenda. Þykir þeim með
ólíkindum að „auralaust” fyrirtæki
eins og Rafmagnsveitan segist vera að
minnsta kosti fjórum sinnum á ári, geti
lagt út i slika byggingu á erfiðum
tímum.
Húsið á að sögn Magnúsar Sædal hjá
tæknideild RR að leysa af hólmiþað
húsnæði sem RR hefur í Hafnarhúsinu,
svo og á þangað að flytjast sú starfsemi
sem nú fer fram á vegum RR á
Meistaravölium.
- A.St.
Hvalreki á fjörur jazzunnenda:
ÞRETTÁN BANDA-
RÍSKAR VERÐ-
LAUNAMYNDIR
— þar af fjórar frægar heimilda-
'myndir um jazzista og tvær
óskarsverðlaunamyndir úr flokki
stuttra heimildakvikmynda
,,Þetta eru þrettán bandarískar
heimildakvikmyndir, flestar
verðlaunamyndir, sem verða sýndar í
Regnboganum 26. júlí til 1. ágúst,”
sagði Sigurjón Sighvatsson, kvik-
myndagerðarnemi, í samtali við DB í
gær um kvikmyndahátíð sem haldin
verður i Reykjavík undir mánaða-
mótin. „Fjórar af þessum myndum
eru merkilegar jazz-myndir. Sú
þekktasta heitir The Last of the Blue
Devils og fjallar um Count Basie, Joe
Turner og Jessie Price. Tímaritið
Jazz News hefur m.a. sagt um þessa
mynd, að hún sé sú bezta, sem gerð
hefur verið um þetta efni í
Vesturálfu,” sagði Sigurjón.
„Önnur fjallar um trommarann
Elvin Jones, sem er engum trommara
líkur og hefur verið kosinn bezti jazz-
trommarinn af timaritinu Downbeat
allar götur frá 1963, og sú þriðja
fallar um Les Paul, gítarleikara og
uppfinningamann, sem er þekktur
bæði sem jazzisti og afburða
hljóðfærasmiður. Les Paul-gítararnir
ollu byltingu í jazzi og rokki á síðasta
áratug, auk þess sem hann fann upp
fjölrása upptökutæknina. Fjórða
jazz-myndin heitir On the Road with
■Duke og greinir frá hljómleika-
ferðalagi Duke Ellingtons og félaga
hans. Þetta er mikill hvalreki á
fjörur jazzunnenda og tónlistar-
unnenda almennt,” sagði Sigurjón.
Sigurjón sagði að hinar myndirnar
væru flestar þekktar verðlauna-
myndir og bæri þar hæst óskars-
verðlaunamyndirnar Harlan County,
USA, sem fjallar um frægt kola-
námumannaverkfall er stóð í sex ár,
og The Flight of the Gossamer
Condor, sem hlaut óskarsverðlaun
1979 og fjallar um smíði og flug
fyrstu fótknúnu flugvélarinnar.
Það er Sigurjón Sighvatsson sem
stendur fyrir þessari kvikmyndahátiii
i félagi við Íslenzk-ameríska félagið.
-ÓV.
Verkfall í Sundahöfn:
Deilt um bón-
usgreiðslur
— samningar náðust í gær
Verkamenn Eimskipsí Sundahöfn
lögðu niður vinnu í fyrradag og í
gær. Síðdegis í gær tóku þeir svo upp
vinnu að nýju.
Vinnustöðvunin kom til af því að
deilt var um bónusgreiðslu við skipun
frosins varnings i gáma, Þessum
varningi hafði áður verið skipaði út á
brettum og þá greiddur bónus fyrir.
Nú er hins vegar farið að nota gáma
og átti þá að fella bónusinn niður.
Þetta vildu verkamennekki sætta sig
við.
Eftir samningaviðræður tókst það
samkomulag að tímamæling fer fram
á þessari vinnu og er greiddur bónus
á meðan. Endanlegur bónus verður
síðan reiknaður út frá þessari tíma-'
mælingu.
-DS.
I opinberum byggingum geta arkitektar náð sér á strik. Það á að minnsta kosti við um þann þáttinn sem að buddunni snýr.
Byggjendur telja að hús Rafveitunnar við Ármúla sé 30—40% dýrara en venjulegt skrifstofuhús vegna súlna, horna og
skringilegheita. Telja þeir þó — sumir að minnsta kosti — að hornin, súlurnar og skringilegheitin geri húsið á engan hátt sér-
stætt eða fallegt. Hver hefur sinn smekk i þessu máli og sumum finnst húsið fallegt. Þetta er útlitsteikningin cftir Guðmund
Kr. Kristinsson arkitekt.
LOFTNET
WISI tenglar. WISI coax plugg. WlSlsnúrur. WISI magnarar.
Höfum gerst umboösmenn fyrir hinu heimsþekkta
þýska WISI loftnetsefni.
Ávallt fyrirliggjandi loftnet og fylgihlutir.
Heildsala, smásala.
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
\________SÍÐUMÚLA2, BOX5270, 105 REYKJAVÍK.