Dagblaðið - 18.07.1980, Side 11

Dagblaðið - 18.07.1980, Side 11
neðanvert Húanghe-fljót fellur um, sérstaklega þar, sem nú heitir Sjan- dong- og Henan-fylki, þar sem kín- verska þjóðin reis fyrst á legg. En á 400 árum frá lokum Austur-Han- ættarinnar (25—220) til öndverðrar stjórnartíðar Súí-ættarinnar (581 — 618) var Húanghe-lægðin að stað- aldri hrjáð af stríðum. Þetta leiddi til þess, að þungamiðja kínversks efna- hagslífs fluttist smám saman suður á bóginn, og hófst sú breyting á valda- tíma Súl-ættarinnar. Síðar, þegar baðmullarrækt breiddist út í Norður- Kína, dróst silkiframleiðslan saman í Húanghe-lægðinni, og atvinnuvegur- inn blómgaðist að nýju sunnar, um miðbik og neðri hluta Tsangjíang- fljóts. Mestan hlutann af stjórnartíð Qing-ættarinnar (1644—1911) var höfnin í Gúangzhú sú eina, sem opin var útlendingum og útflutningur silkis sem framleitt var kringum Tæhú-vatnið minnkaði stórlega. Þetta varð til þess að örva silkifram- leiðsluna í óshólmum Zhújíang- (Perlu-) fljóts í Suður-Kina, sem með tímanum varð eitt af helztu silki- ræktarsvæðum Kína. Silkiormurinn er viðkvæmt búdýr, sem hrjáð er mörgum alvarlegum sjúkdómum, svo að það er ekki auðvelt að rækta hann. Þar að auki þarf sifellt að vera að fóðra hann á ókjörum af mórberjalaufi og hirða vandlega um hann. Silkiframleiðsla er vinnufrekt starf og krefst mikillar aðgæzlu og kunnáttu í ræktun og eldi, hespun og vefnaði. Til þessa dags kalla ræktendur í suðurhér- uðunum silkiorminn „Ijúflinginn dýra”. En kínverskum bændum lærðist að ná tökum á hinum margvíslegu erfið- leikum af völdum náttúrunnar, sem hrjáðu atvinnuveginn, og um skeið var Kína fremst allra landa i list silki- ormaræktarinnar. Þetta fór að breyt- ast fyrir um það bil tveim öldum. Duglausir, lénskir stjórnendur, sjálf- umglatt ihald samfará ránsskap heimsvaidasinna ollu geigvænlegri hnignun silkiatvinnuvegarins. Hann staðnaði og dróst aftur úr. Jafnvel nýjar uppfinningar, sem hefðu getað stöðvað hnignunina, voru að engu hafðar eða ekki var hægt að hagnýta þær. Til dæmis voru kynbætur upp- götvaðar i Kina um miðja 16. öld, eins og sjá má af bók Song Jingxings Hagnýting verka náttúrunnar, seift rituð var 1587. í þessari bók lýsir hann ráðum til að fá fram sterkari og betri silkiorma, en það var ekki fyrr en 1922, að Kínverjar lærðu að nýju af Japönum að rækta kynblönduð egg- Eftir ópíumstríðið 1840 hnignaði Kína stig af stigi, og það varð hálf- lénskt land og hálfnýlenda. Kringum 1910 fór Japan fram úr Kína, fyrst um framleiðslumagn á hrásilki og síðan púpuhúsum. Á næstu 40 árum sundruðu heimsvalda- sinnar, herkóngar og Kúómingang ríkinu, fóru um landið báli og brandi og ónýttu stór svæði vaxin mórberja- lundum. Árið 1949 var púpuhúsa- framleiðsla Kina aðeins 30.000 lestir, minna en sjöundi hluti þess, sem var 1931. Silkiormarækt endurreist Þegar eftir 1949 gerði ríkisstjórnin geysiöflugt átak í að reisa við og þróa silkiatvinnuveginn. Á gömlum silki- rætkarsvæðum voru menn hvattir til að bæta framleiðslutæknina og stækka mórberjagarðana, og ný svæði voru byggð upp. Silkiorma- ræktin var aukin, tinslukerfið líka. Innkaupsverð á púpuhúsum var hækkað og framleiðendur voru verð- launaðir með bónus og fjárhagslegri aðstoð. Teknar voru upp nútimalegar undirbúningsaðferðir, menn voru hvattir til að afla sér aukinnar þekk- ingar á silkiormarækt, sett voru upp nútímaleg rannsóknartæki og nám- skeið haldin til að kenna að rækta og ala heilbrigða orma. Ríkið setti á stofn kerfi af stöðvum til að fram- leiða egg handa ræktendum. Þessum ráðstöfunum, sem hófust fyrir nærri 30 árum, hefur verið haldið áfram síðan, og þær eru farnar að bera árangur. 1970 var Kína, hið upphaflega heimkynni silkisins og það land sem enn fram- leiðir silki sem er meðal hins bezta og sterkasta í heimi, aftur orðið stærsti framleiðandi púpuhúsa í heiminum. Eitt ráð sem stuðlaði að þvi að ná þessum árangri var að útbreiða bættar ræktunaraðferðir, þar á meðal ræktun á arðmiklum mór- berjatrjám, en á þeim byggist fóður- öflunin handa hinum þurftarmiklu silkiormum. í Zhejiang-fylki, einu af helztu silkiræktarsvæðum Kína, gat í eina tið aðeins Tongxíang-sýsla og nokkrir aðrir staðir framleitt ágrædd mórberjatré, sem gefa mikla upp- skeru af laufi. Nú eru slík tré ágrædd og ræktuð á mörgum stöðum í Kína, og fæst af þeim ríkuleg uppskera af laufi til eflingar framleiðslu á púpu- húsum. Eldisaðferðir hafa líka tekið fram- förum. Á sjötta áratugnum, þegar ræktendur hækkuðu hitastig Iítillega í eldisskálunum til að fá sem mestan vöxt, urðu þeir að fjölga fóðrunar- timum á nótt og degi margfalt, því að við hækkaðan hita þornaði mór- berjalaufið. Það þýddi „færri lauf og oftar”, því að ormarnir snerta ekki visnað lauf. Þá varð að gefa ormun- um aðra hverja klukkustund, en það þýddi stóraukna vinnu fyrir ræktend- urna. Siðan var ásjöunda áratugnum farið að breiða plast yfir eldiskerin og draga þannig úr uppgufun, þornun laufsins og tíðni fóðrunar. Á áttunda áratugnum voru eldisskálarnir hitaðir með rörum í gólfi, sem síðan var úðað með vatni til að halda við æski- legum hita og raka. Á suraum svæðum eru notuð rafmagnstæki, sem gefa betri árangur. Með þessu móti fækkar fóðrunartímum niður i þrjá á dag. Fyrrum þurftu ræktendur að ve: a uppi alla nóttina. Notuð eru betri kyn silkiorma. Þau er auðveldara að ala, og þau gefa meira af sér. Tekizt hefur að mestu leyti að ráða við þá sjúkdóma, sem hrjá silkiorma og mórberjatré. Silkiormar eru ræktaðir hvarvetna á meginlandi Kína nema i Tíbet, á sjálfstjórnarsvæðinu Ningxía Húí og í Qinghæ-fylki. Silkiormarækt er nú stunduð i nærri því helmingnum af hinum 2000 sýslum í Kína. Á sumum svæðum hafa verið teknar upp hug- vitssamlegar aðferðir við að rækta mórberjatré, svo að þau gefi góðan arð. í hinni þéttbýlu Sitsúan-lægð spara ræktendurnir sér land undir korn með því að rækta mórberjatré, hvar sem þeim verður fyrir komið. Það er ekki óalgengt að sjá litlar þyrpingar af mórberjatrjám á stöðum, þar sem þær keppa ekki við korn. Samt er ársuppskera fylkisins af púpuhúsum yfirleitt kringum 70.000 lestir. í Jíaxisn-héraði í Zhejiang-fylki eru aðeins 53.000 hektarar notaðir undir mórberja- lundi, en meðaluppskera á hektara er 0,75 lestir. í óshólmum Zhújíang- fljóts í Suður-Kína hafa hinir hyggnu bændur þar komið sér upp keðju- ræktun: fiskur—mórberjatré—silki- ormur—fiskur. Fiskur er ræktaður i tjörnum með mórberjatrjám í kring, sem ormarnir nærast af, og úrgangs- efni ormanna eru notuð til að ala fiskinn, en úrgangsefni hans eru áburður fyrir moldina, sem mór- berjatrén gróa i. Margir vinnuhópar og jafnvel heilar kommúnur „veiða hálfa lest af fiski fyrir hverjar 2,5 lestir af mórberjalaufi”. í fjalllendi í Húangheár-dalnum vaxa mórberja- trén á hryggjunum ofan við stall- skipta akrana. í Kína eru nú einhvers staðar kringum 400.000 hektarar undir mór- berjatrjám að meðtöldum hinum litlu, stöku lundum. Til jafnaðar er uppskeran 0,52 lestir af púpuhúsum á hektara. Með öðrum orðum sagt, það vaxa nú helmingi fleiri mórberja- tré en 1949 og ársuppskeran af púpu- húsum er þreföld. Samt sem áður hefur silkiorma- ræktin ekki þróazt jafnt eða hnökra- laust. Tækni og tæknibúnaöur í framleiðslunni er jafnvel ennþá næsta aftur úr, og garnið sem fæst úr hvejru kílói af púpuhúsum er tiltölu- lega lítið. Tínsla á mórberjalaufi er enn aðallega handunnin svo og fóðrun ormanna. Þess vegna er fram- leiðnin ennþá fremur litil. En það er verið að færa þennan hefðbundna at- vinnuveg í nútíma form, og óhætt er að vænta hraðari framfara i þessari list silkiormaræktarinnar af þeirri þjóð, sem fyrst allra gaf heiminum silkið, það efni sem enn i dag þykir ágætast lil klæða i heiminum. sá harmleikur gerðist þó einkum á norðanverðum Vestfjörðum. Þar með var rofin sú lögmálsskylda þjóðarinnar, sem stendur á gullnum töflum, að byggja allt landið. Víðast annars staðar tókst við illan leik að viðhalda þolanlegu samlífskerfi og fólk sætti sig við minna en sollinn i Babýlon. Afleiðing af umbyltingun- um var skortur á matvælum í land- Föstudags grein inu, skammta varð mjólk hluta úr ári, kjötlaust varð snemmsumars og þurfti að flytja inn kartöflur. Tæknin kom báðum til bjargar, borg og byggð, í líki jeppa og dráttar- vélar. Menn löguðu sig að breyttum aðstæðum, með vélarafii var komið á fót kerfi fámennisbúskapar, hjón með börnum á bæ gátu framleitt meira en full baðstofa af vinnufólki áður. Uppljómun fyrir bóndann, framleiðslan óx og tekjur hans með. Þannig urðu íslenskir bændur heill- aðir af guðspjalli hagvaxtarins og hófst stórfelld framræsla mýra, ný- rækt og sífelld árleg framleiðslu- aukning, sem kom sér líka vel í marga áratugi, því borgarbyggðin óx og fólkið var svo frjósamt, að áður en við var litið hafði íbúatalan tvöfald- ast úr 100 upp í 200 þús. Lika hófst viðnám gegn fólksflótt- anum í sjávarplássunum. Gekk heldur hægara, en vísir að nýjum tíma hófst með byggingu litilla frysti- húsa, síðan fylgdu á eftir lanAþelgis- víkkanir og loks tilkoma ftjtílromnari fiskiskipa, síðast skuttogara. Til að jafna misvægiö í lífskjörum milli borgar og landsbyggðar, hófust framkvæmdir við það, sem var í fyrstu kallað jafnvægi i byggð og síðan byggðastefna, fyrst með raf- væðingu sveitanna, síðan með stór- brotinni vcgagerð, síma á hvern bæ, útvarps- og sjónvarpsmóttöku, skóla og félagsheimilabyggingum, hafnar- gerðum og læknamiðstöðvum. Allt voru þetta dýrar framkvæmdir og höfuðborgarmenn lögðu stóran skerf til þeirra. Bæði sjálfstæðismenn og framsóknarmenn stóðu einhuga um þær. Hér var ekki aðeins verið að borga nokkrum bændum bitlinga úr hnefa, heldur var verið að skapa það framtíðar ísland, sem við og niðjar okkar eiga að lifa á. En einnig var verið að slá varnagla gegn alvarlegri hættu, sem yfir vofir, að alltof mikill hlutfallslegur mann- fjöldi safnist í eina kös á höfuð- borgarsvæðinu. Útkoma mannflutn- inganna miklu varð, að um 60% af allri þjóðinni sitja hér á litlum bletti, um 130 þús. manns af 220 þús. Borg- in er orðin svo stór, að hún á í stök- ustu vandræðum með sjálfa sig, vegalengdir að heiman og í vinnuna taka engu tali og eru einhver hrylli- legasta tímasóun og eldsneytiseyðsla sem þekkist á landinu. Kraðakið í miðborginni svo að líkist kvalastað í víti Dantes. Vegna þessarar daglegu geðveiki, væri nú helst þörf fyrir að koma á „jafnvægi í byggð Reykja- víkur” og gera úthverfin fær um að skapa sér sjálfstætt lif. Á meðan var byggðastefnan loks- ins farin að ná verulegum árangri, einkum síðasta áratuginn i sjávar- plássunum með skutttogurunum, vinnu, fjármagni, íbúðabyggingum, almennri velsæld og jafnvel töluverð- um lúxusi allt í kringum land. Það eina sem mátti að þessu finna var, að fiskimennirnir kunnu sér ekkert hóf í fisklöndunum og breyttu samborgur- um sínum og eiginkonum í vinnu- þræla. Og eit't er víst, að ekki tapaði höfuðborgin á þessu. Hún varð nú í fyrsta skipti raunveruleg höfuðborg, í raunverulegu 100 þús. ferkílómetra ríki. Hún varð æ meiri þjónustumið- stöð fyrir allt landið. Viðskiptin margfölduðust og Reykjavík græddi mest allra á gullöldinni úti á lands- byggðinni. Daglega streyma héðan flutningabílar og farmskip út á lands- byggðina, og flugfraktin er venjulega yfirfull. Það er gaman að vera úti á flugvelli á föstudegi, þegar Fokker- vélarnar koma hingað af öllum lands- hornum troðfullar af sællegum sveitamönnum. Þeir koma hingað til að njóta hvers kyns þjónustu og skemmtana og eyða peningunum. Þannig var að myndast heilbrigt sam- félag í öllu landinu, eins og tíðkast i öllum sæmilega siðuðum löndum, þar sem ótal borgir og héruð í ólíkum landshlutum kallast daglega á um viðskipti og þjónustu. Þannig viljum við að Ísland verði, ef við höfum til að bera nokkra heiðarlega land- kennd. En þá gerðist undarlegur atburður i miðju kafi. Skýtur þar ekki upp kol- svörtum tígulgosa í spilinu. Albert Guðmundsson spurði sinnar frægu spurningar: Hvar eru þingmenn Reykvíkinga? Á yfirborðinu voru þetta ávítur og ákúrur þingmanns sem fiytur að jafnaði eitt eða ekkert frumvarp á ári, til elskulegra sam- þingsmanna og samflokksmanna, að þeir væru einskisnýtir, gerðu ekkert gagn. En i raun og veru var þetta ekk- ert annaö en purkunarlaus árás á byggðastefnuna. Fáir atburðir hafa haft afdrifarík- ari og verri áhrif í þjóðmálunum. Hann hefði ekki þurft að hafa það, ef aðrir forustumenn hefðu strax tekið í taumana og leitt menn til rétts vegar. En viðbrögð þeirra voru, eins og þeir væru hræddar hænur eða hvolpar, sem þorðu hvorki að reka upp gagg né gelt. Þannig hefur nú staðið árum saman innan þessa vesæla flokks, að ef einhver spekin hefur fram gengið af munni Alberts, þeyþey, það má ekki meiða Albert. í skjóli þessa pukurs og vanþekkingar á megin- kjarna íslenskrar tilveru hafa svo sprottið á haugnum furðulegustu gorkúlukenningar, sem eru likari reyfara en nokkrum pólitískum rök- ræðum, gaspur um að binda sem fyrst enda á alla byggðastefnu og að miklu svifaminna væri að safna öll- um 220 þús. hræðunum saman á einn stað hér á nesjunum, þar sem hægt sé að fæða og klæða alla á einu færi- bandi. Nokkuð skyldar þessu eru svo hinar góðlátlegu landbúnaðarkenn- ingar. scm rifja upp öll verstu spisslindugheitin hjá Laxness þegar hann var á galgopaskeiðinu, um að hægt væri að framleiða öll matvæli fyrir íslendinga á svo sem einu sósíal- ísku samyrkjubúi austur í Flóa. Nú reikna hálærðir hagfræðingar og matvælafræðingar það út fyrir okkur af mikilli list, að miklu ódýrara sé fyrir okkur að borga bændum fyrir að hætta búskap en að halda stöðugt áfram þessum endalausu niður- greiðslum. Eru síðan dregnar upp glæstar myndir af því, hve einstak- lega fagurt mannlif yrði ef 220 þús. manns söfnuöust saman i eina kös í borginni. Þessi litla viðbót, ein 90 þús., gæti komist fyrir i nýju úthverfi austur í Bláfjöllum og allur skarinn æki á hverjum degi til vinnu sinnar í bönkunum niðri 1 Austurstræti. Nei, gallinn við ykkur, drengir mínir, er, að þið hafið enga land- kennd. Þið skiljið það ekki, að grundvallaratriðið í allri lífstilveru og ævigistingu þessarar þjóðar úti í Atlantshafinu er að byggja hólmann allan, hvorki meira né minna, og gefa öllum þjóðfélagsþegnunum nokkurn veginn sömu aðstæður til að njóta þess, sem hann hefur að bjóða. Hitt er rétt í gagnrýninni, að mikil og dýr mistök hafa orðið í landbún- aðarstefnunni, sem stöfuðu af skammsýnni oftrú á hagfræði og hagvexti, en fléttast einnig saman við einokunarhagsmuni sölusamtak- anna, sem eru slík mafía, að þau verða bændunum myllusteinn um háls. En úr því hagfræðingatjóni þarf aþ.reyna að draga, eins og frekast er unnt, m.a. með því að hægja á og draga úr bruðli sölusamtakanna, að minnsta kosti meðan erfiðleikarnir eru nú hvað mestir, en þeir virðast ekkert lát ætla að gera á. Ef niður- skurður verður framkvæmdur á að gera hann hjá stærstu framleiðslu- toppunum, sem létu hagvaxtarmýrar- Ijósið teygja sig út i mestar ógöngur. Hér verða engir bæir né heilar byggðir lagðar í eyði. Það þarf að vera alveg klárt og höfuðborgin á að vera reiðubúin að leggja sitt af mörk- um til þeirrar landverndar, þó hún þurfi ekki að bera allan skaðann af hagfræðiheimsku Framsóknarklík- unnar. Og hitt þarf líka að vera alveg klárt. Sjálfstæðisflokkurinn verður nú að gera hreint fyrir sínum dyrum. Hvort er hann heill eða hálfur? Þýðir ekki að dussa allt niður. Vill hann stefna að því að byggja og treysta á „allt” landið, eða er draumur hans sami og gárunganna yfir kaffiborði á Hótelborg, að í framtíöinni skuli Reykjavík standa hér eins og höfuð- borg á tunglinu, eða einöngruð veiði- stöð á austurströnd Grænlands, þar sem ferðaskrifstofurnar auglýsi í kröftugri samkeppni einkaframtaks- ins: Skemmtiferð um Skagafjarðar- auðnir. Heimsækið Dauðadal Hér- aðsins. Kynnist dýralífinu á Vest- fjörðum, því þar vilja þeir víst ekki að lifi annað en refur og minkur. Þorsteinn Thorarensen A „Hvort er Sjálfstædisflokkurinn heill eöa hálfur? Þýöir ekki að dussa allt niður. Vill hann stefna aö því aö byggja og treysta á „allt” landið, eöa er draumur hans sami og gárunganna yfír kaffíboröi á Hótelborg, aö í framtíðinni skuli Reykjavík standa hér eins op höfuöborg á tunglinu ...”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.