Dagblaðið - 18.07.1980, Qupperneq 28
Á bak við tjöldin í kjarasamningunum:
Vinnuveitendur hreyfa
sig í átt til hækkunar
Makkað hefur verið bak við tjöldin
í kjarasamningum Alþýðusambands-
fólks síðustu daga. Vinnuveitendur
hafa í einkaviðræðum látið að því
liggja, að þeir gætu samþykkt
nokkrar kauphækkanir. >að gildir
einkum um fulltrúa Vinr.umálasam-
bands samvinnufélaganna.
Fulltrúar launþega líta svo á, að
Vinnumálasambandið gæti sætt sig
við allt að 5 prósent grunnkaups-
hækkun eins og ASI krefst. En sá
mikli þröskuldur er á veginum, að
Vinnumálasambandið er mjög nei-
kvætt gagnvart þeirri tilfærslu á
flokkaskipun, sem ASÍ og vinnuveit-
endur hafa rætt. Ástæðan er, að hjá
Vinnumálasambandinu vinnur mikið
af lðjufólki. Tilfærsla á flokka-
skipun mundi veita því viðbótar-
kauphækkun, þannig að alls gæti
kauphækkun þessa fólks orðið9—11
prósent. Vísitöluspurningin er óleyst
bæði í viðræðum ASÍ-manna og
samvinnumanna og ASÍ og Vinnu-
veitendasambandsins.
Fulltrúar Vinnuveitendasambands-
ins hafa einnig gefið í skyn, að þeir
gætu samþykkt einhverjar jgrunn-
kaupshækkanir og þá kannski 10
þúsund króna hækkun á mánuði
„yfir línuna”. Þetta er í samræmi við
afstöðu' ríkisstjórnarinnar í við-
ræðum við Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja.
í vísitölumálinu ríkir klofningur
hjá ASÍ-mönnum. Sumir vilja hlut-
fallslegar verðbætur, aðrir hafa
,,gólf”, þannig að láglaunafólk fái í
krónum sömu verðbætur og fólk með
hærri laun.
Þótt nokkuð hafi miðað bak við
tjöldin, er alveg óvíst, að nokkur
opinber tilboð komi fram á fundi
aðila með sáttanefnd í dag.
- HH
Þótti nóg um
tilfærslurnar
Heinrich Axel skipstjóri á Nordsee.
,,Við lentum ekki í verulegum hrakn-
ingum á leiðinni fyrr en við komum inn
í Reykjavíkurhöfn,” sagði Heinrich
Axel Gruhardt skipstjóri á þýzku skút-
unni Nordsee, sem kom til Reykjavíkur
í fyrrinótt. Um borð er 14 manna
áhöfn, þar af ein kona. Skútan kemur
frá Glíicksburg og var 10 daga á leið-
inni.
Hrakningarnir sem skipstjórinntalar
um í Reykjavíkurhöfn geta vart talizt
stórkostlegir, þvi rjómalogn var. Hins
vegar voru skipverjar látnir færa skút-
una tvisvar eða þrisvar sinnum inni í
höfninni og kunnu þeir því ekkert sér-
staklega vel.
Skipverjarnir á Nordsee eru félagar í
Hanseatische Yachtschule, sem er
stærsti siglingaklúbbur í Vestur-Þýzka-
landi. Félagar þar eru um átján þúsund
talsins. Undirbúningur fyrir íslands-
ferðina stóð í tvö ár.
Það kom fram í spjallinu við skip-
stjórann i gær, að skútan getur haft
uppi í einu segl, sem ná yfír 550 fer-
metra. Svo rausnarlegt er það þó venju-
lega ekki á siglingu. Þá eru segl uppi,
sem þekja 165 fermetra.
-RG/JH
— DB-myndir Rúnar Gunnarsson.
Skipverjarnir á Nordsee binda skútu
sina i þriðja sinn i höfninni i Reykja-
vík.
— skútuskipstjórinn
taldi hrakningana
fyrst byrja í
Reykjavíkurhöfn
30 metra hár gos-
strókur í Gjástykki
í hrinum:
Ferðamenn
tefla á tvær
hættur
„Strókurinn fer um 30 m i loft
upp þegar mest gcngur á en annars
liggur gosið oft niðri um hríð og gýs
siðan upp aftur,’’ sagði Birgir
Kristjánsson, bifreiðarstjóri í
Reynihlið, í samtali við DB í morgun.
Fer hann með hópa af ferðamönnum
tvisvar á dag frá Hótel Reynihlið að
eldstöövunum i Gjástykki. Kvaö
hann ferðamenn við eldana alls ekki
sýna nægjanlega aðgæzlu við nýja
hrauniö, fólk færi mikið út á hiná ný-
storknuðu þunnu skorpu, sem gæti
brostið undan því þegar minnst
varði.
Einungis gýs í nyrzta hluta gos-
stöðvanna og virðist mönnum jafnvel
að gosið sé að færast enn norðar en
veriðhefur. -BH.
Friðrik Sophusson alþingismaöur:
„Rakið kjaftæði í
ráðherranum”
— ráðherra Ijóst að Olíumalarmálið er ekki hjá fjárveitinganefnd
„Þetta er rakið kjaftæði i ráðherr-
anum, hann veit ekkert hvað hann er
að segja,” sagði Friðrik Sophusson
alþingismaður, sem sæti á í fjárveit-
inganefnd Alþingis. Þessi ummæli
Friðriks koma í framhaldi af fullyrð-
ingu Ragnars Arnalds fjármálaráð-
herra í DB i fyrradag þar sem hann
sagði að Olíumalarmálið væri hjá
fjárveitinganefnd en ekki sér.
„Ráðherranum er algerlega ljóst
að málið er ekki hjá fjárveitinga-
nefnd. Vilji ráðherrann að nefndin
taki málið fyrir, verður að koma
viljayfirlýsing frá honum. En það
verður að liggja fyrir að fjárveitinga-
nefnd er engin rannsóknarnefnd og
það þýðir ekkert fyrir ráðherrann að
skjóta sér bak við ákvörðun okkar.
Það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar
hvað gert verður við Olíumöl hf., en
síðan er það spuming hvort fjárveit-
inganefnd samþykkir að söluskattur-
inn verði felldur niður hjá fyrirtæk-
inu.
Þetta Olíumalarmál er skelfilegt
frá upphafi. Byrjað var á því að gefa
vilyrði fyrir því að söluskatturinn
yrði felldur niður, sem ekki á að eiga
sér stað. Síðan var sú klásúla tekin
inn í fjárlög, en það var skilyrt að
fjárveitinganefnd yrði að samþykkja
þá niðurfellingu.
En það versta sem fyrir fyrirtæki
getur komið, er að fá hvorki að lifa
né deyja eins og er með Oliumöl hf.
núna. Annars eru það óskir lána-
drottna sem ráða því hvort fyrirtækið
er tekið til gjaldþrotaskipta. ” -JH
frfálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
„Kerfið" er
mesti and-
stæðingur
neytenda
„Það er með ólíkindum að mestur
hluti af tíma þeirra manna sem í
Neytendasamtökunum starfa
launalaust skuli fara í það að eiga
árangurslaus viðskipti við opinberar
stofnanir,” sagði Gísli Jónsson
prófessor á blaðamannafundi sem
Neytendasamtökin boðuðu til í gær.
„Við sendum jafnvel ráðherrum
rökstudd bréf, skýrum þeim frá því
hvað á bjátar í kerfinu. En þeir virða
okkur ekki einu sinni svars, hvað þá að
leiðrétting fáist,” sagði prófessor Gísli.
Það kom fram á fundinum að það
eru ráðherrarnir Steingrímur
Hermannsson og Ingvar Gíslason, sem
helzt eiga ósvarað bréfum Neytenda-
samtakanna.
„Hvar sem kerfið er spurt í dag
liggja ekki skýr svör fyrir. Það ástand
er skapað af embættismönnum, til þess
er ekki ætlazt af löggjafanum,” sögðu
þeir á blaðamannafundinum í gær,
Neytendasamtakamenn. Við birtum
skjöl þeirra siðar á neytendasíðu.-A.St.
Mikil fjörumengun
á Akureyri:
90% lagna
á Akureyri
ófullkomin
„Það er von á úrbótum. Það er það
eina sem ég get sagt,” sagði Helgi
Bergs, bæjarstjóri á Akureyri, er DB
innti hann álits á könnun, sem Sigurður
Bjarklind, heilbrigðisfulitrúi gerði
nýlega á skolplögnum innan bæjar-
marka Akureyrar.
Niðurstaða Sigurðar \jar á þá leið, að
skolplagnirnar væru yfirleitt mjög
ófullkomnar og uppfylltu ekki þau
skilyrði sem heilbrigðisreglugerð setur.
í vettvangskönnun Sigurðar kemur
fram, að aðeins tvær af yfir tuttugu
skólplögnum innan bæjarmarkanna
frá Sandgerðisbót og suður að Flug-
vellinum standast kröfur heilbrigðis-
reglugerðar en að ástand allra annarra
lagna er algiörlega óviðunandi og
fjörumengun víða mjög mikil.
-GAJ.
Blíðviðri áfram
sunnanlands
— en þoka og sólar-
laust fyrir norðan
Reykvíkingar og aðrir Sunnlendingar
vöknuðu upp við það í morgun að
komið var hið fegursta veður. Lang-
þráð eftir rigningu og súld í lengri tíma.
Bragi Jónsson veðurfræðingur sagði i
morgun að gera mætti ráð fyrir góðu
helgarveðri suðvestanlands, hægu og
björtu veðri. Þetta veður ætti að ná yfir
allt Suðurlandsundiriendið og að
Breiðafirði. Þó má gera ráð fyrir fjalia-
skúrum og næturþoku.
Á norðan- og austanverðu landinu
verður gola og þokuloft. Búast má við
svartaþoku á annesjum og sólarlítið
verður eða sólarlaust. Þó geta Norð-
lendingar í innsveitum átt von á því að
sólin brjótist fram síðdegis.
- JH
lllRKUDAGAR:
18. JÚLl 3434
Hljómplötur að eigin vali
frá Fálkanum fyrir 10 þúsund.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.