Dagblaðið - 19.07.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 19.07.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980. 5 Biskupskjör á næsta leiti: Er þörf á að breyta lögum um biskupskjör? Þar sem biskups íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, verður sjö- tugur á næsta ári er biskupskjör fyrirsjáanlegt innan tíðar. í Merki- steinum nýútkomins Kirkjurits er vakin athygli á þeim miklu breyting- um sem orðið hafa á starfsháttum kirkjunnar síðan núgildandi lög um biskupskjör voru sett. Samkvæmt „Mín skoðun er sú að aðild leik- manna að biskupskjöri sé sjálfsögð og þá á ég við menn sem eru i beinu kirkjulegu starfi,” sagði séra Jónas Gíslason, dósent við. guðfræðideild Háskóla íslands, í samtali við Dagblaðið. ,,Hins vegar hef ég ekki íhugað nánar hvernig aðild leikmanna yrði þeim lögum eiga atkvæðisrétt ein- ungis starfandi sóknarprestar þjóð- kirkjunnar og prófessorar guðfræði- deildar Háskólans. Bent er á að hópur fólks hafi komið til starfa inn- an kirkjunnar og hafi jafnvel hlotið til þess sérstaka kirkjulega vígslu. Má þar nefna safnaðarsystur, djákna, fólk sem vinnur að málum sjómanna, fyrirkomið,” sagði séra Jónas. Hann nefndi að í Noregi eru ftmm mis- munandi hópar sem kjósa biskup, þ.e. biskupar kennarar guðfræðideildar, prófastar, prestar og fulltrúar safnaða. Séra Jónas minnti einnig á að i Áliti starfshátta- nefndar þjóðkirkjunnar er lagt til að leikmenn fái aðild að biskupskjöri. -GAJ. æskulýðs og heyrnarskertra. Þetta fólk hefur ekki atkvæðisrétt við biskupskjör eins og sóknarprestarnir. „Biskupinn er biskup íslands, biskup lærðra sem leikra innan lútersku þjóðkirkjunnar. Spurningin hlýtur því eðlilega að vakna hverjum beri þau forréttindi að kjósa ,,Mér finnst alveg augljóst að biskup er ekki bara oddviti prestanna heldur er hann biskup allra kirkjunnar. Því tel ég ekkert óeðlilegt að oddvitar safnaðanna aðrir en prestarnir fái líka að kjósa biskup,” sagði séra Ólafur Skúlason dómprófastur. Séra Ólafur Skúlason: Biskup ekki aðeins oddviti prestanna. biskup,” segir i Merkisteinum séra Bernharðs Guðmundssonar ritstjóra Kirkjuritsins. Dagblaðið hafði samband við nokkra presta og leitaði álits þeirra á því, hvort tímabært væri að breyta núgildandi lögum um biskupskjör á þann veg að fleiri fengju að taka þátt í biskupskosningumen nú er. -GAJ Séra Olafur bætti því við að hann væri þeirrar skoðunar að ekki þýddi að setja upp einhverjar allsherjar landskosningar eins og forseta- kosningar en að sóknarnefndirnar tilnefndu kjörmenn. Séra Ólafur minnti á að á kirkjuþingi sitja bæði prestar og leikmenn, einnig í kirkjuráði og á héraðsfundum kirkjunnar væru prestar í algjörum minnihluta. Hann sagði að i Reykja- vík væri nú leikmaður í fyrsta skipti formaður kirkjubyggingasjóðs, jafnan áður hefði dómprófastur gegnt því starfi. Séra Ólafur sagði að stefnan hefði verið í þá átt að fleiri en prestarnir stæðu að ákvörðunum og stefnu- mótun í málefnum kirkjunnar og að finna henni stað í þjóðfélaginu og því hlyti það að vera eðlilegt að leikmenn fengju hlutdeild i biskupskjöri. ,,Ég tel að biskupskjör sé ekkert einkamál prestanna og ég tel eðlilegt að þetta sé rætt opinskátt. Það hlýtur að koma að þvi að fleiri en guðfræðingar hafi hönd í bagga með aö velja biskupinn,” sagði séra Ólafuraðlokum. -GAJ. Séra Halldór Gröndal. „Endur- skoðunin nái til biskups- kjörs” ,,Með hliðsjón af allsherjar endur- skoðun sem átt hefur sér stað á starfsháttum kirkjunnar þá tel ég sjálfsagt að þessi endurskoðun nái einnig til biskupskjörs,” sagði séra Halldór S. Gröndal, sóknarprestur í Grensásprestakalli. Séra Halldór sagðist á þessu stigi ekki reiðubúinn að ræða þetta mál frekar. - GAJ Séra Jónas Gfslason: I áliti starfsháttanefndar er lagt til aó leikmenn fái aðild aó biskupskjöri. „Tel aðild leik- manna sjálfsagða” — segir séra Jónas Gíslason dósent „Ekkert einka- mál prestanna” — segir séra Ólafur Skúlason dómprófastur „BISKUP VERÐIKOSINN TIL ÁKVEÐINS TÍMA” — segir séra Þorvaldur Karl Helgason sóknarprestur í Njarðvíkum „Sem fyrrverandi æskulýðs- fulltrúi þjóðkirkjunnar finnst mér furðulegt að æskulýðsfulltrúinn skuli ekki hafa kosningarétt. Sömu sögu er að segja t.d. af biskupsritara. Af hverju hefur ekki framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar kosningarétt?” sagði séra Þorvaldur Karl Helgason sóknarprestur í Njarðvikum. „Það hefur orðið feikileg breyting á starfsháttum kirkjunnar frá því að þessi lög voru sett. Það eru svo margir aðilar komnir til starfa hjá þjóðkirkjunni. En þegar talað er um kosningarétt þessara aðila í biskups- kosningum þá held ég að við getum ekki miðað við aðra en þá sem komnir eru til starfa á biskupsstofu eða í tengslum við hana. Það er fólk sem starfar fyrir alla þjóðkirkjuna en ekki ákveðna söfnuði. Biskup er yfir- maður þessa fólks á skrifstofpnni og því er eðlilegt að það fái að kjósa hann.” Séra Þorvaldur sagði það sína skoðun að ekki væri siður þörf á að ræða um hversu lengi biskup ætti að sitja í embætti. „Ég tel ekki hollt, hvorki fyrir biskup né aðra embættis- menn að sitja of lengi. Það má minna á að bæði Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir hafa talað um 8—12 ár sem æskilegt tímabil fyrir forseta. Sá munur er þarna á að forsetinn er kosinn á fjögurra ára fresti en Séra Þorvaldur Karl Helgason: l'uróu- legt aó sumir emlnettismenn kirkjunn- ar hafi ekki kosningarétl. biskep er kosinn til sjötugs. Ég teldi farsælt að biskup yrði kosinn til ákveðins tíma og það sama tel ég að eigi að eiga við um presta og aðra cmbættismenn,” sagði séra Þor- valdur Karl. Hann sagði alls ekkiþörf á að miða við að mjög fullorðinn maður gegndi biskupsembættinu. „Með breytingu á þessum lögum teldi ég opnast tækifæri til að kjósa mann i blóma lífsins, kannski til 7— 10 ára. Siðan gæti hann átt eftir góðan kafla i ekki eins erilsömu starfi,” sagði séra Þorvaldur Karl. -GAJ. Þrjá erlenda skiptinema vantar heimili í Reykjavík Þrir erlendir skiptinemar, tveir strákar frá Þýzkalandi og ein stelpa frá Finnlandi á aldrinum 16 til 21 árs, eru nú í vandræðum vegna þess að þá vantar húsnæði á einkaheimili í Reykjavík í tvo mánuði, ágúst og september. Að sögn Hinriks Hilmarssonat framkvæmdastjóra Kristilegra alþjóða ungmennaskipta koma 17 skiptinemar á aldrinum 16—22 ára hingað til lands á morgun og dvelja i eitt ár. Verða þeir tvo fyrstu mánuðina á einkaheimilum í Reykjavík en síðan munu þeir dvelja úti á landi. Þessir nemendur eru frá Evrópu og Bandaríkjunum, flestir frá Þýzkalandi eða 5. Þrjá þessara skipti nema vantar enn húsnæði og hefur DB verið beðið að koma þeirri ósk á fram- færi að þeir sem treysta sér til að taka einn þessara nemenda inn á heimili sitt hafi samband við Kristileg alþjóða ungmennaskípti sem aðsetur hafa í Hallgrímskirkju. Þar er opið daglega frákl. 13—16 og síminn er 24617. -GM. M Hinrik Hilmarsson. DB-mynd RagnarTh.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.