Dagblaðið - 19.07.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980.
7
Klórgas-
notkun í
frystihúsum
— baneitrað klórgas geymt og
notað í fjölmörgum frystihúsum
landsins
í mörgum frystihúsum landsins
er notað klórgas sem blandað er
vatni við hreinsun á fiski. Svo sem
fram hefur komiö i Dagblaðinu i
gœr og i fyrradag hafa menn
áhyggjur af þessari notkun, enda er
klórgasið baneitrað leki það úr
geymum.
DB greindi frá þvi i fyrradag að
klórgasgeymar hafa staðið ónotaðir
og óvarðir í Álverinú i Straumsvik
um áraraðir. Öryggismálastjóri
mun gera ráðstafanir i framhaldi af
DB-fréttinni til þess að geymar þeir
verði fjarlægðir.
En i viðtali við Eyjólf Sæmunds-
son öryggismálastjóra i gær kom
fram -afr' hann hefði cnn meiri
áhyggjur af notkun klórgass í
frystihúsum landsins þar sem klór-
gasgeymar eru þar í þéttri byggð.
Vegna þessa hafði DB samband
við þrjú frystihús, eitt í Reykjavik,
eitt i Hafnarfirði og eitt á Akureyri,
til þess að kanna hvernig málum
væri skipað þar. Þessi viðtöl fara
héráeftir.
-JH
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar:
SLYS HEFUR ORÐK)
VEGNA KLÓRGASSINS
— gasið geymt i sérstökum klefa sem aðeins vélstjórar
hafa aðgang að
,,Við notum klórgaskúta hér í
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar,” sagði
Bergur Sigurðsson vélstjóri. „Þessir
kútar eru svipaðir útlits og súrkútar
sem hafðir eru með gashylkjum.
Hylkin eru geymd í sérstökum klefa
sem vélstjórar einir hafa aðgang að,
enda er klórgasið stórhættulegt.
Klórgasið er notað í frystihúsum
blandað út I vatnið til þess að drepa
sýkla. Einnig er hægt að nota 10%
klórupplausn í þessu skyni en klór-
gasið er mun drýgra. Við förum með
3—4 kúta af klórgasi árlega í stað
u.þ.b. 100 ef notuð væri klórupp-
Iausnin. En klórupplausnin er mikið
hættuminni.
Hjá okkur hefur einu sinni orðið
slys vegna klórgassins. Starfsmaður
hér andaði gasinu að sér og brann
nokkuð innvortis þannig að hann
þurfti að liggja á sjúkrahúsi. Það er
ékki gott að finna leka í klórkútum.
Til þess verður að nota ammoníaks-
upplausn sem breytist í reyk. Þessu
stórhættulega gasi halda engar venju-
legargrímur.
I Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefur
ekki verið alvarlega rætt um að
skipta frá klórgasi yfir í klórupp-
lausn,” sagði Bergur Sigurðsson.
- JH
Bæjarútgerð Reykjavíkur:
Klórgas ekki notað
heldur klórupplausn
„Við notum klórdælur og klór í
tunnum þannig að við erum alls ekki
með klórgas í Bæjarútgerð Reykja-
víkur,” sagði Einar Sveinsson fram-
kvæmdastjóri.
,,Það hefur ekki verið á dagskrá
hjá okkur að taka upp notkun klór-
gass. Til þess þarf mjög góða aðstöðu
og pláss og við höfum ekki séð
ástæðu til þess að fara út í notkun
gassins.”
- JH
r
Utgerðarfélag Akureyrar:
Klórgasið umgangast
menn af mikilli varúð
— enda nægði ein gasflaska líklega til að bana
flestum bæjarbúum
„Því er ekki að leyna að við notum
klórgas til að klóra vatnið,” sagði
Guðjón Björnsson vélstjóri hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa hf. „Við
fáum klórgaskútana, sem innihalda
90 kg hver, frá Danmörku. Þeir eru
sakleysislegir í útliti en innihaldið því
hættulegra.
Strangar reglur eru um meðferð
klórgaskútanna og eftir þeim reglum
er farið.Á staðnum eru alltaf tveir
kútar. Annar er í notkun en hinn til-
búinn og þegar klárast af einum er
annar fenginn frá Reykjavík.
Hér hafa aldrei orðið skakkaföll
vegna notkunar klórgass. Flöskurnar
eru afskaplega vel passaðar og sér
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna um
að stimpla þær og yfirfara. Varðandi
blöndun er algerlega fylgt reglum
öryggismálastjóra.
Klórgasið umgangast menn af
mikilli varúð og t.d. er aðeins úti-
dvrahurð að geymslunni, en ekki inn-
angengt í aðra sali frystihússins.
Klórgasið er þyngra en andrúmsloftið
og gæti þvi farið eftir klóaklögnum
ef leki kæmist að. Því er loftræsti-
búnaður aðeins fet frá gólfi og leiðir
hann upp fyrir þakbrún.
Hægt er að nota 10% klórupp-
lausn í stað klórgassins en það er
meira mas og dýrt. Það gengur þvi
ekki í stóriðju sem hér,” sagði Guð-
jón.
Guðjón bætti því við að hann hafi
heyrt frá fróðum manni um klórgas,
að við viss skilyrði, þ.e. logn, nægði
ein flaska af klórgasi til þess að bana
flestum bæjarbúum. „Þetta efni er
voðalega skaðlegt fyrir öndunarveg-
inn. En ég held að þeir vélstjórar sem
ég þekki geri sér fyllilega grein fyrir
því hvers konar efni þetta er og um-
gangast það með tilliti til þess.”
- JH
VSIHÆTTIR SAMNINGAVIÐRÆÐUM
— eftir að ASÍ fór fram á samningafund með Vinnumálasambandi samvinnufélga
„Við höfum áhuga á heildarlausn,
það er allt og sumt,” sagði llallgrímur
Sigurðsson, forstjóri Samvinnutrygg -
inga og formaður Vinnumálasambands
Samvinnufélaga í samtali við DB. En
Vinnumálasambandið kveðst hafa átt
viðræður undanfarið við ASÍ og hefur
ASÍ nú óskað eftir sáttafundi með
Vinnumálasambandinu á þriðjudaginn
í næstu vlku.
Fulltrúar ASÍ kannast ekki við að
hafa átt þessar viðræður við Vinnu-
málasambandið en vegna óskar ASÍ
um sérsáttafund með Vinnumála-
sambandinu, hefur VSI lýst því yfir að
þeir túlki þessa beiðni ASf sem
ákvörðun um að rjúfa viðræður ASÍ og
VSÍ. Því tekur VSÍ ekki þátt i frekari
viðræðum við ASÍ að svo komnu máli,
beiðnin um sérviðræður ASf og
Guðlaugur Þorvaldsson rikissáttascmjari cr fyrir nokkru kominn aftur til sáttascmjarastarfa og scst hcr á tali við hluta af
samningancfnd ASt, þá Hauk Má Haraldsson, Þóri Daniclsson og Karl Steinar Guðnason, talið frá vinstri.
DB-mynd Bjarnlcifur.
VinnumálasEunbansins hafi „hindrað
frekara sáttastarf milli ASÍ og VSÍ” að
sögn VSÍ-manna.
Eins og DB skýrði frá í gær, hefur
Vinnumálasamband samvinnu-
félaganna léð máls á því við ASÍ að
þeir gætu mögulega sætt sig við meiri
grunnkaupshækkanir en VSf hefur
boðið gegn því að ekki verði farið inn á
þá flokkaskipan sem ASf og VSÍ hafa
rætt sín á milli. Stefna Vinnumála-
sambandsins i vísitölumálum mun vera
sú hin sama og VSf, þ.e. hlutfallslegar
verðbætur á laun, hins vegar yrði þeirri
stefnu væntanlega fórnað til að fá
heildarlausn.
Ef samningar tækjust með Vinnu-
málasambandinu og ASÍ þýddi það
lausn kjaramálanna viða um landið þar
sem kaupfélögin eru oft eini eða lang-
stærsti atvinnurekandinn.
Flestir verkalýðsforingjar landsins
voru í samsæti í Lindarbæ
seinnipartinn í gær að fagna Eðvarð
Sigurðssyni sjötugum, svo erfitt var
um vik að fá þá til að segja álit sitt á
þeirri tilkynningu VSI um að eiga ekki
frekari viðræður við ASÍ að svo komnu
máli.
-BH.