Dagblaðið - 19.07.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980.
Politiken Cup í Kaupmannahöfn:
Lárus hélt uppi
heiðri landsins
JÓN L. ÁRNASON
SKRIFAR UM SKÁK
Áður hefur verið minnst lítillega á
Opna skákmótið í Kaupmannahöfn,
sem dagblaðið Politiken stóð fyrir.
Mót þetta er nefnt var „Politiken
Cup” var sterkasta Opna mót sem
haldið hefur verið í Höfn. Fjórir stór-
meistarar, þeir Smyslov og Mikhal-
tjisjín frá Sovétríkjunum, Ungverj-
inn Csom og Plachetka ffá Tékkó-
slóvakíu, tóku þátt í mótinu og 11 al-
þjóðlegir meistarar að auki, en alls
voru keppendur i úrvalsflokki 50 tals-
ins.
Fyrrum heimsmeistari, Vassilí
Smyslov, sem kom beint frá sigri á
mótinu í San Miguel í Argentínu, var
forustumaðurinn lengi framan af, en
landi hans Mikhaitjísjín komst upp
að hlið hans á endasprettinum og
deildu þeir með sér efsta sætinu með
7 1 /2 v. af 10 mögulegum.
Fjórir íslendingar tóku þátt i mót-
inu og tefldu tveir þeirra í úrvals-
flokki — Haukur Angantýsson og
Gunnar Finnlaugsson. Báðum voru
þeim eitthvað mislagðar hendur og
náðu ekki að sýna sitt besta. Gunnar
hlaut 3 1/2 v., en Haukur 5 1/2, sem
er í sjálfu sér viðunandi, þótt hærri
kröfur séu venjulega gerðar til
íslenskra skákmanna.
Það fór þó aldrei svo, að enginn
þeirra gerði rósir. I flokki fyrir skák-
menn undir 1900 Eló-stigum tefldu
tveir ungir og efnilegir skákmenn,
Lárus Jóhannesson og Páll Þórhalls-
son, sem voru styrktir til ferðarinnar
af Skáksambandi Islands og Tafl-
félagi Reykjavíkur. Lárus gerði sér
lítið fyrir og varð efstur ásamt tveim
ónefndum dönskum skákmönnum,
með 6 1/2 v. af 8 mögulegum, en Páll
hlaut 5 v.
Islenskum skákmönnum, sem tefla
í þessum styrkleikaflokki á erlendri
grund, fer nú fjölgandi og er skammt
stórra högga á milli. Ekki var mótinu
i Kaupmannahöfn fyrr lokið en
World Open skákmótið mikla í Fílá-
delfíu hófst og þar hreppti Árni
Ármann Árnason 2. verðlaun i þess-
um flokki. Vonandi er þetta aðeins
forsmekkurinn að því sem koma
skal.
Lárus var vel að sigrinum kominn.
Andstæðingur hans í síðustu umferð
var þá einn efstur, en Lárus og fleiri
fylgdu fast á eftir með hálfum vinn-
ingi minna. Var því um hreina úr-
slitaskák að ræða og mikil spenna í
lofti. Lárus hafði svörtu mennina, en
náði engu að síður frumkvæðinu og
gaf andstæðingnum aldrei færi á að
rétta úr kútnum.
Hvítt: Preben Höi (Danmörk)
Svart: I.árus Jóhannesson
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5
5. a3 Bxc3 + 6. bxc3 Re7 7. Rf3 Rbc6
8. Be2 Da5 9. Bd2 10. a4c4!
Þessi staða var eitt sinn grunnstaða
Winawer afbrigðisins, eða þar til
Kortsnoj hristi fram úr erminni leik-
inn 10. — f6l? sem stolið hefur sen-
ujini síðan. Textaleikurinn er því
ágæt tilbreyting, því gömlu leikirnir
eru oft góðir, þótt gleymdir séu.
ll.RgS
Og það sýnir sig að andstæðingur-
inn er ekki með á nótunum. Algeng-
ara er að hróka og þá getur svartur
valið milli þess að ráðast strax á mið-
borðið með 11. — f6, eða að hróka á
lengri veginn. Fischer lék eitt sinn 11.
h4?! gegn Padevsky og þurfti á allri
sinni snilli að haldatil að ná jöfnu.
11. — h6 12. Rh3 0-0-0 13.0-0?
Hugmyndin með 11. leik hvíts er
að koma riddaranum til h5 og freista
þess að gera svörtum erfitt fyrir að
sprengja upp með — f6. Því er 13.
Rf4 rétti leikurinn og ef 13. — g6, þá
14. h4 með flóknu tafli.
13. — f5! 14. f4?!
Þannig lék Stejn í frægri skák gegn
Uhlmann ' á millisvæð.amótinu í
Stokkhólmi 1962 og nú vita aliir að
þetta er slæmur leikur. Uhlmann lék
nú 14. — Kb8! og Rc8-b6xa4 og varð
ekki meint af. í þessari skák velur
svartur aðra áætlun, sem einnig
virðist vænleg. i
14. — Hdg8 15. Hf3?
Hér er sjálfsagt að blása lífi i svart-
reita biskupinn með 15. Del Rd8 16.
Bcl Rf7 17. Ba3.
15. — Rd8 16. Dcl RH 17. Da3 Rc6
18. Dcl
Úrræðaleysi hvits er algjört.
18. — Dd8 19. Hf2
19. Hg3 hindrar ekki 19. — g5,
heldur tefur einungis fyrir. Svartur
leikur 19. — g6 og tvöfaldar á g-línu.
Hins vegar er 19. Hfl betra, eins og
síðar kemur í Ijós.
19. — Bc8!
19. — g5 er svarað með 20. Bh5!
20. Khlg5 21.g4
Leiðir til mikilla sviptinga, sem þó
eru svörtum í hag því menn hans
vinna mun betur saman. Besti mögu-
leikinn er 21. Hfl, því ef 21. — g4,
22. Rg I og svartur hefur engan átaks-
punkt á kóngsvængnum.
AKURNESINGAR
Hjón, kennarar við Fjölbrautaskólann,
óska eftir 4ra herbergja íbúð á leigu frá 1.
sept.
Áríðandi. Tilboð sendist Sigrúnu Harðar-
dóttur, Merkurteigi 8, Akranesi.
HREVFILL
Simi 8 55 22
svartur má vel við una eftir 23. —
Dh4.
22. — Dh4! 23. Df 1
Ef 23. fxe6, þá 23. — Rg5! 24.
Rxg5 Dxf2o.s.frv.
23. — Rg5 24. Rxg5 hxg5 25. Hg2
Eða 25. fxe6 Bg6! og hvítreita-
biskupinn skerst t leikinn með úrslita-
afleiðingum.
25. — exf5 26. Bel Dh6 27. Bd2 Rd8!
28. Df2 Re6
Þessi smekklega riddaratilfærsla er
punkturinn yfir i-ið. Hvítur gerir nú
örvæntingarfulla tilraun i tapaðri
stöðu.
29. Bxc4 dxc4 30. d5 Rc7 31. Dc5
Eftir 31. Dxa7 Rxd5! gæti fram-
haldið orðið: 32. Da8+ Kc7 33.
Da5 + Rb6 34. Hbl Bc6! 35. Dxb6 +
Kc8 36. Dgl g4! 37. gefið.
31. — f3 32. Hf2 Db6 33. Dxb6 axb6
34. d6 Re6 35. Hbl g4 og hvítur gafst
upp.
Að lokum skulum við renna yfir
eina fjöruga skák úr efsta flokki. Það
er Smyslov sem lætur Ijós sitt skina
gegn ástralska meistaranum Max
Fuller.
Hvítt: Smyslov
Svart: Fuller
Vængtafl.
1. g3 g6 2. Bg2 c5 3. e4 Bg7 4. Re2
Rc6 5. c3 e5 6. 0-0 Rge7 7. d3 d6 8. a3
Be6 9. b4
Byrjun hvíts er óvenjuleg og kjörin
til þess að taka andstæðinginn út úr
bókunum.
9. — Dd7 10. Be3 b6 11. b5! Rd8 12.
c4 0-0 13. Rbc3 Bh3 14. Bxh3!
Svona leikir enda oft með skelf-
ingu, þ.e. þegar svartur hefur riddara
á f6, sem getur með aðstoð drottn-
ingarinnar gert usla á kóngsvængn-
um. Áætlun hvíts er einföld. Hann
hyggst opna a-línuna með framrás e-
peðsins og þá verður svarta drottn-
ingin fjarri góðu gamni.
14. — Dxh3 15. a4 f5 16. Bg5 f4 17.
f3
Auðvitað ekki 17. Bxe7?? f3 og
mátar.
17. — fxg3 18. hxg3 Bh6! 19. Dd2!
Enn var riddarinn friðhelgur vegna
19. — Be3 + . Svartur virðist hafa
teflt af skynsemi — m.a. tekist að
losna við sinn slæma biskup. En
menn hans standa þröngt og fram-
rásin a4-a5 liggur i loftinu, svo hann
á í erfiðleikum.
19. — Bxg5 20. Dxg5 Hf7 21. a5 Re6
22. Dg4!
Yfirburðir hvíts i endataflinu eru
umtalsverðir.
22. — Dxg4 23. fxg4 Hxfl + 24. Kxf 1
Rc7 25. Kg2 g5 26. Rd5! RcxdS
Besti möguleikinn. Ef 26. —
Rexd5, þá 27. exd5 ásamt Rc3-e4
með yfirburðatafli. T.d. 27. — h6 28.
Rc3 Kf7 29. Re4 Ke7 30. Hhl o.s.frv.
27. exd5 bxaS 28. Hxa5 e4!
28. — Rc8 29. Rc3 h6 30. Re4 KÍ7
31. Ha6 Ke7 32. Hal Kf7 33. Hfl +
og 34. Hf6 er vonlaust.
29. dxe4 Rc8 30. Ha6 Rb6
Lakara er 30. — Kg7 31. Hc6 Kf6
32. Hc7 Ke5 33. Kf3 Rb6 34. Hf7Í
með óverjandi máti. Nú gerir Smys-
lov út um taflið með hárfínni tafl-
mennsku.
31. e5! dxe5 32. Kf3 Rxc4 33. Ke4
Hd8 34. Rc3 Hd7 35. Hc6 Kg7 36.
Hxc5 Rd6+ 37. Kxe5 Kf7 38. Re4
Rxe4 39. Kxe4 He7+ 40. Kf5! og
svartur gafst upp.
21. — gxf4 22. gxf5
Betra er 22. Rxf4 fxg4 23. Rxe6, en
LOFTNET
WISI tenglar.
WISI coax plugg.
WISI snúrur.
—
WISI magnarar.
Höfum gerst umboðsmenn fyrir hinu heimsþekkta
þýska WISI loftnetsefni.
Ávallt fyrirliggjandi loftnet og fylgihlutir.
Heildsala, smásala.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HE
SÍÐUMÚLA 2, BOX5270, 105 REYKJAVÍK.
GMÚ