Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 13

Dagblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980. v 13 LAUGALÆK 6 SÍMI 34SSS Sigurður Þórir Sigurðsson — Frá Sundahöfn, 1978—80. (DB-myndir Bj.Bj.). lag og mannabyggö í Danmörku og Hollandi, eru markaðar skýrum dráttum, en smáatriði látin liggja milli hluta. Fátt er fullyrt en ýmisiegt gefið í skyn. Sven Havsteen- Mikkelsen er einnig með hugann við land og fólk, en á Græniandi, ísiandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Suður Slésvik. Hann iðkar hins vegar hreint steinprent, er kraftmikill en samt næmur teiknari með til- finningu fyrir blæbrigðum og litaval hans er aðlaðandi. Þó finnst mér hann kannski helst til hlutlaus gagnvart því sem hann vinnur úr hverju sinni og sumar grafíkmynda hans hafa á sér einkenni teikninga, fremur en að hinir sérstöku kostir steinprentsins séu nýttir. -AI. í ÞESSARI GLÆSILEGU ÍSBÚÐ GETURÐU FENGIÐ KAFFI, KAKÓ, KÖKUR, SAMLOKUR, PIZZUR, HAMBORGARA, PVLSUR, PÆ MEÐ ÍS, BANANABÁTA, ÍS-MELBA OG ALLA OKKAR SÍVINSÆLU ÍSRÉTTI. Lftið inn í ísbúðina að Laugalækór og fáið ykkur kaffi og hressingu/ takið félagana með. Mynd úr fókus Sumarsýning Norræna hússins og grafík Heltofts og Havsteens-Mikkelsens Það er oftast góðra gjalda vert þegar ýmsar stofnanir taka sig til við að gera íslenskri menningu gott, t.d. með þvi að kynna hana fyrir þeim út- lendingum sem flykkjast til landsins yfir sumartímann. Hins vegar er alls ekki vist aö landinn sætti sig alltaf við þá mynd sem þessar stofnanir bregða upp fyrir hina erlendu gesti, sérílagi ef um hinar „fögru listir” er að ræða. Það mundi óneitanlega gefa alranga mynd af íslenskum bók- menntum i dag ef Halldóri Laxness væri alveg sleppt í almennri bók- menntakynningu. Sömuleiðis væri ankannalegt að kynna hann einan af svipuðu tilefni. Það er eins og venju- lega, — systurnar víðsýni og þekking þurfa að vera til staðar þegar gengið er frá menningarviðburðum af fæssu tagi. Á skjön Ég verð að játa að ég hef ekki alltaf verið sáttur við þá mynd sem Sumar- sýningum Norræna hússins er ætlað að gefa útlendingum af islenskri myndlist i dag, — eins og húsið hefur unnið gott starf við að kynna okkur norræna myndlist. Hræddur er ég um að hafi einhver útlendingur reitt sig á þá mynd eina, hljóti hann að álíta íslenska myndlist tröllriðna af fjálglegri náttúrurómantík og af- strakti frá París enn þann dag í dag. Sem er alls ekki sannleikanum sam- kvæmt, eins og hver maður getur gengið úr skugga um með skjótri yfir- reið um sýningarstaði bæjarins. Sú sýning sem nú fer fram í kjöll- urum hússins, útlendingum til upp- lýsingar og yndisauka, er í stórum dráttum með sama marki brennd og fyrri sýningar nema hvað gesturinn hlýtur að verða var við enn eitt ein- kenni á islenskri myndlist í dag, nefnilega klaufaskap. Frá sjónarhóli atvinnuveganna Nú má vera að verk Sigurðar Þóris Sigurðssonar, sem er yngsti lista- maðurinn sem sýnt hefur á þessum sumarsýningum, séu athyglisverð frá sjónarhóli sjávarútveganna, en sem marktæk myndlist ganga þau varla upp. Sigurður Þórir færist mikið í fang, að fanga atvinnuvegina á striga eða pappír, af ítrasta raunsæi. En slíkt raunsæi krefst mikillar tækni- legrar kunnáttu, bæði í púra teikn- ingu og beitingu litar, — það þarf vart að taka jretta fram. Sigurður Þórir hefur einfaldlega ekki orðið sér úti um þá kunnáttu. Andlit og hendur verða afkáralegar í málverkum hans og þar með er fyrir bí mannvirðing þess fólks sem hann málar. Mynd- bygging er stirðleg og litir bæði hvellir og þurrlegir, — ekki að-lað- andi fyrir augað. Grafík Sigurðar Þóris er stórum betri en obbinn af málverkunum og virðast myndir hans hanga mun betur saman í svart/hvítu. En af hverju er hvergi getið um þá grafíktækni sem hann notar? Myndir eru aðeins merktar „grafik”. Er þetta offset-tækni eða dúkskurður? Atvinnumenn Einnig er leitun á skúlptúr sem segir minna um þá listgrein á íslandi en verk Guðmundar Eliassonar. Á þeim er ekki að sjá að við séum á tuttugustu öldinni, fyrir utan viðvist ómerkilegrar afstrakt fígúru, — og eitt magnað verk af .furðulegu kykvendi sem réttlætir næstum því veru myndhöggvarans á þessari sýn- ingu. Þeir Jóhannes Geir og Benedikt Gunnarsson eru hins vegar at- vinnumenn með háþróaða tækni og hvort sem menn sætta sig við niður- stöður þeirra eða ekki, þá er engin leið að ganga fram hjá þeim til lengd- ar. Vissulega er hægt að gagnrýna báða þessa listmálara á þeim for- sendum sem þeir gefa sér sjálfir. T.d. virðist Benedikt æði oft beita tæknibrögðum sinum yfirborðskennt og nær sjálfkrafa. Ákveðin mótif, landslag eða hús, eru látin ganga í gegnum þróaða kvörn og það liggur stundum við að maður geti gefið sér fyrirfram hvernig hinir ýmsu hlutar þeirra muni líta út á myndfleti málarans. Auk þess verður maður þreyttur á sólroða og fjólubláma eftir stutta skoðunarferð um lendur Bene- dikts. En hann hefur einnig talsvert til síns ágætis: fáguð vinnubrögð, ríkulegt formskyn og innsýn í þau öfl, sem liggja að baki þvi sem við sjáum. Myndlist Hestar í hœgra horni Það mætti líka segja ýmislegt mis- jafnt um málverk Jóhannesar Geirs, ef menn eru þannig skapi farnir. Uppstillingar hans virðast margar Jóhannes Geir — t haganum, 1978. komnar í heldur fastan farveg: hestar vinstra eða hægra megin, vegur fyrir miðju, húskofi einhvers staðar á for- grunni og brött fjallshlíð niður eftir striganum hægra megin. Og stundum virðist manni sem þessi ágæti málari sé sífellt að mála kreppuárin, — gamla vörubíla, fólk með sixpensara o.s.frv. En hins vegar blasa við manni ótalmargir kostir hans: nær óskeikult litaskyn, djúpstæðar tilfinningar án tilfinningasemi og AÐALSTEINN INGÓLFSSON frumleg myndsýn. Að því leyti er Jóhannes Geir einn af fáum, sem halda lífinu í islenskrí landslagshefð. Fyrir þá sem vilja sjá þessa sýningu, er hún opin fram í ágúst. Ýmislegt gef ið í skyn Það hefur dregist úr hömlu að geta um ágæta grafík þeirra Kjelds Heltoft og Svens Havsteen-Mikkel- sen sem hangið hefur í anddyri Norræna hússins í langan tíma. Báðir eru þeir miklir snillingar í því sem þeir taka sér fyrir hendur. Kjeld Heltoft beitir þurrnálartækni, án þess þó að nostra um of. Helstu áherslur myndefnisins, sem er lands- Opiö frá kl. 9-23.30 Allir þekkja ísinn frá Rjómaísgerðinni

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.