Dagblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980.
ÚTBOÐ
Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í byggingu 1.
áfanga a, nýs grunnskóla í Vestmannaeyjum.
Umrædd bygging er um 1070 m2 á einni hæð og kjallari að
hluta. Verkið nær til jarðvinnu, uppsteypu og frágangs að
utanverðu. Áformað er að verkinu ljúki í ágúst á næsta ári.
0 tboðsgögn verða afhent frá og með 14. þ.m. á bæjarskrif-
stofum Vestmannaeyja og teiknistofunni Arkhönn hf.,
Óðinsgötu 7, Reykjavík gegn 50 þús. króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á bæjarskrifstofunum í Vestmanna-
eyjum, þriðjudaginn 2. september kl. 11.00 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Vestmannaeyjum, 11. ögúst 1980
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum.
—Sýningargluggr----
við Laugaveg
tilleigu.
Uppl. í síma 31413 kl. 17—22 í dag
og á morgun.
Sölumaóur - Söluumboð
Solutnaður fyrir austan fjall, sem hefur bil, nxgan tfma og |>óða aðstöðu,
ðskar eftir söluumboðum eða innheimtum á Suðurlandi. Allt kemur til
greina. Þeir aðilar sem hafa áhuga lirinui I auglýsineaþjónustu Da|>blaðs-
ins I síma 27022 eftir kl. 1 fyrir 25. ágúst.
H—99
Sendill óskast
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða pilt eða stúlku
til sendilsstarfa hálfan daginn, fyrir hádegi. í
skólaleyfum getur verið um fullt starf að ræða.
Upplýsingar í síma 25000, innanhússlína nr. 425.
12. ógúst 1980.
Utanrfkisráðuneytið.
Eigum óráðstafað
Einingasmiður á Blönduósi:
r
„HUSNÆÐISSTJORN
VILL STOPPA MIG”
llús dýralæknis Austur-llúnvetninua. Vióhyugingin er samkvæmt hinni nýju eininnaaðferð.
DB-mynd Kll.
„Af einhverjum ástæðum vill
Húsnæðismálastjórn láta mig hætta
við þetta. En hvers vegna hef ég
aldrei fengið neina skýringu á,”
sagði Sigurjón Ólafsson bygginga-
meistari sem við hittum að máli á
Blönduósi. Sigurjón rekur þar
byggingarfyrirtæki sem í mörg ár
hefur byggt eftir þeim aðferðum, sem
eru hefðbundnar í byggingu húsa. Nú
býður félagið hins vegar upp á
byggingu húsa úr steyptum einingum
og eiga húsin með því móti að verða
mun ódýrari. En eftir því sem Sigur-
jón segir eru ekki allir hrifnir af
þessum sparnaði hans.
,,Ég bauð í fyrrahaust í byggingu
6 ibúða hér á Blönduósi með hinni
nýju aöferð. Ég var með lægsta
tilboöið en fékk ekki verkið. Þarna
Sigurjón Ólafsson byggingameistari.
var um leigusöluíbúðir að ræða og
þurfti Húsnæðismálastjórn að gefa
endanlegt svar. Ég fékk það svar
þaðan að þessi byggingaaðferð væri
vel þekkt en ekki þætti ástæða til að
taka tilboði minu vegna þess að ég
væri ekki tilbúinn með mótin undir
einingarnar. Þegar ég var svo búinn
að fá mótin hálfu ári seinna bauö ég í
leiguíbúðir á Skagaströnd. Aftur var
tilboð mitt byggt á hinni nýju aðferð
og aftur var það lægst. En aftur fékk
ég neikvætt svar og því var þá borið
við að þessi byggingaraðferð væri
með öllu ójsekkt. Hið athyglisverða er
að sami maöur ritaði undir það bréf
og hið fyrra sem ég fékk. Ég fékk
hins vegar verkið á Skagaströnd með
hinni hefðbundnu byggingaraðferð
en það kostar I0 milljónum meira
fyrir þessar 4 íbúðir að byggja þær
eftir gamla laginu en ef ég hefði not-
að einingarnar. Skagastrandarmenn
voru búnir að samþykkja hinar nýju
einingar fyrir sitt leyti en það gerði
tæknideildin hins vegar ekki.”
Mótin að einingum Sigurjóns eru
teiknuð og smíðuð hjá Sindrastáli og
eru að hans sögn mjög svipuð þeim
sem fyrirtæki eins og Byggingar-
þjónustan notar. Er það vel þekkt
aöferð við húsbyggingar. Eining-
arnar eru steyptar saman að innan en
falla saman utanvert með
gúmmílistum. Þeir sem hafa séð þátt-
inn tækni og vísindi fyrir nokkru þar
sem Örnólfur Thorlacius gerði grein
fyrir nýjungum við húsbyggingar
munu kannast vel við hvað við er átt.
I þessum einingaveggjum er
burðarveggurinn innan einangrunar.
Veggurinn er steyptur með einingum
10 sentimetra frá innra rými og 7
sentimetra frá útiloftinu. Með þvi
helzt burðarveggurinn heitur og þurr
og er talið að [ressi aðferð geti sparað
eitthvað bæði í viðhaldi og upphitun.
Sigurjón vinnur nú við
uppsetningu eins húss eftir hinnu
nýju aöferð. Er það viðbygging við
hús dýralæknis þeirra Austur-
Húnvetninga, sem er að Merkjalæk í
Svínavatnshreppi. Upphaflega húsið
'var byggt úr flekamótum en
viðbyggingin er úr einingum. Sigur-
jón sagði að það sem aðallega
hindraði framgang fyrirtækisins væri
aö lítið væri byggt á Blönduósi um
þessar mundir. Bindur hann því vonir
sinar við svæðið i kring um bæinn og
Hvammstanga, Skagaströnd og aðra
nágrannastaði. -I)S.
llnglingar á flauðárkróki í gatnahreinsun ásamt Sigríói Jensdóttur flokkstjóra.
DR-myndir Kll.
Unglingavinna á Sauðárkróki:
Neyðarbrauð í fiskvinnuleysi
,,Við erum að reyna aö snyrta til á Sauðárkróki. Unglingarnir eru 12 til um núna í sumar þar eð lítið hefur.verið
hérna í bænum,” sagði Sigríöur Jens- 15 ára og eru yfirleitt hið mesta dugn- aðgerai frystihúsunum. Unglingavinn-
dóttir flokkstjóri, sem við hittum með aðarfólk að sögn Sigríðar. Vinnuna an er auðvitað t’err launuð en bónus-
hóp unglinga sem vann af kappi á götu þiggja þau meö óvenju miklum þökk- vinna í fiski en samt betur launuð en
• allsekki neitt. . pg