Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 4
Forréttindi að búa í eigin konungsríki —segir Bryndís Bjarnadóttir, einn íbúanna Teigagerði fékk viðurkenningu sem fegursta gatan f Reykjavík: „Það eru forréttindi að búa í sínu eigin konungsríki án þess að það sé manni ofviöa peningalega,” verður Bryndísi Bjarnadóttur að orði, þegar við óskum henni til hamingju meðað gatan hennar, Teigagerði í Smá- íbúðahverfi, fékk viöurkenningu um- 'hverfismálaráðs Reykjavikur núna í vikunni. Bryndís tók við viðurkenn- ingarskjali fyrir hönd íbúa götunnar. „Borgaryfirvöld hafa verið afar góðviljuð þegar einhver hefur viljað stækka hús sitt eða breyta,” sagði Bryndís. „Hér er heldur ekkert verið að hnoða hverjum kofanum aftan i annan. Þetta hefur verið mjög smekklega gert. Eitt húsið hérna í götunni, sem við íbúarnir köllum skrautfjöðrina, fékk nýja eigendur fyrir 5 árum. Þvilík breyting. Ekki aðeins húsið hefur tekið algjörum stakkaskiptum heldur er garðurinn, sem ekki gat einu sinni skartað af trjám hvað þá blómum, orðinn hinn fegursti.” Við göngum út i bakgarðinn með Bryndísi, þar sem skeleggar umræður um landsins gagn og nauðsynjar fara fram meðal morgunfrúa götunnar. „Ég kalla nágrannakonur mínar þessu nafni. Það er til komið af því að ég rækta hér mikið af morgun- frúm,” segir Bryndís. Bryndis er frá Húsavik en fluttist í Teigagerðið fyrir 22 árum. „Það er ekkert ólíkt að búa hér og á Húsavík. Allir þekkja alla og nágrannarnir tala mikið saman. Við höfum meira að segja talað um að grilla okkur steik saman.” Til þess virðist aðstaðan hin bezta í götunni. Teigagerði er lokuð breið gata og garðarnir hver öðrum fallegri. „Jú, við erum með alls kyns runna og blóm I garöinum. Meira að segja lika mat- jurtir,” segir Sigurður Ólafsson apótekari sem stendur þarna ásamt konu sinni, Þorbjörgu Jónsdóttur. „ Við byggðum hérna og hér verðum við.” DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980. Og Bryndís heldur áfram að fræða okkur um lífið í götunni. „Það var t.d. fyrir um tveim árum að einn fór að sópa götuna. Áður en varði voru hinir ibúarnir líka komnir með kústa. Sérsvið okkar kvennanna hérna er að halda gangstéttinni hreinni. Við förum út meö skrúfjárn og alls kyns verkfæri til þess að ná grasrótinni Úti á stéttinni hjá Bryndfsi Bjarnadóttur drekka frúrnar i götunni oft morgun- kaffi. Það eru ekki aðeins komin blóm, tré og grjót I garðinn hjá Steinunni heldur skartar hann Ifka gosbrunni. DB-myndir Þorri. Sigtryggur dóttursonur Bryndfsar, sem er önnur frá hægri, ásamt hjónunum Margréti Björnsdóttur og Sigurði Úlfssyni. Það er almenn ánægja rfkjandi I Teigagerðinu vegna þess að gatan var valin fegursta gatan f Reykjavfk f ár. upp, sem vill koma í sprungur á gang- stéttinni og eyðileggja hana. Mér finnst að fleiri íbúar borgarinnar ættu að gera þetta. Hugsið ykkur hvað þetta myndi spara borgaryfir- völdum mikið. Það á ekki alltaf að biða þangað til þau gera hlutina. Allt sem þau gera borgum við jú, sem skattborgarar, hvort sem er.” Við endum heimsóknina til Bryn- dísar með því að labba okkur yfir i' nokkra garða nágrannanna og ræða aðeins við þá og smella af myndum. - EVI Steinunn Jóhannesdóttir er aðeins búin að búa f Teigagerði, „Skrautfjöðrinni”, f 5 ár. Þá var varla gras I garðinum. Sfðan hefur hún og maður hennar, Theódór, tekið húsið sjálft I gegn og gróðursett alls konar plöntur. Þau halda Ifka mikið upp á alla vega grjót, sem hefur þurft oft að bera langa vegu. Grænmeti er góðmeti Það efast enginn um næringargildi grænmetis. Neytendur ættu þvi að nota tækifærið, þegar það lækkar i verði eins og nú hefur gerzt, og kaupa til lengri tima. Við birtum því hér á síðunni i dag og næstu daga upplýsingar um næringargildi grænmetis, hvernig megi geyma það og nota í uppskriftir. Upplýsingarnar eru teknar úr bæklingi frá Sölufélagi garðyrkju- manna, Grænmeti er góðmeti, en textinn er eftir Þórunni I. Jónatans- dóttur. Næringargildi grænmetis Grænmeti er vítamínauðugt. Fyrst og fremst gefur það C-vítamín en einnig karotín, sem er A-vítamíngjafi og finnst m.a. í gulrótum og tómöt- um, einnig viss B-vítamín, t.d. folin- sýru. Af orkuefnum er langstærsti flokkurinn kolvetni. j grænmeti er talsvert magn af steinefnum, einkum járni og kalki en einnig kalíum. Trefjaefni eru stór þáttur af þurrefni flestra grænmetistegunda. Grænmeti hefur fáar hitaeiningar og sökum allra sinna góðu kosta er það kjörið á hvers manns borð. í eftirfarandi töflu eru gefnar hita- einingar og næringarefni helztu teg- unda grænmetis og er miðað við 100 g grænmetis. Auk þess er ráðlagður dagskammtur af vítamínum og stein- efnum. Stærð skammtanna er breyti- leg, en það fer eftir kyni og aldri neytenda (stærri skammta þarf fyrir barnshafandi konur og mæður með börn á brjósti). - EVI Grænmeti Örkuetni Steinefni Vítamín 1 B-vitamín 1 Hita- . ein- tngar Hvita Fita Kol- vetni Kalk Járn A-vít. Þía- mín Ríbo- flavín Nía- sín C-vít. hc ' g g g mg mg a.e. mg mg mg mg Agúrkur 14 0,8 0,1 2,4 15 0,4 145 0,02 0,02 0,2 8 Blaðlaukur (púrrur) 36 2,0 0,2 6,6 50 1,0 470 0,07 0,10 0,6 30 Blómkál 26 2,0 0,2 4,1 25 0,7 25 0,09 0,10 0,6 75 Graslaukur 37 1,3 ■ 0,6 6,5 120 3 2260 0,11 0,20 0,6 41 Grænkál 51 5,0 0,6 6,3 200 3,0 3400 0,15 0,29 2,8 150 Gulrófur 37 1,2 0,1 7,9 40 0,5 300 0,04 0,04 1,8 45 Gulrætur 42 0,9 0,2 9,2 40 0,7 4400 0,05 0,04 1,0 5 Kál (hvít-,rauð-,toppkál) 27 1,2 0,2 5,2 45 0,6 25 0,05 0,04 0,4 40 Salat 18 1,3 0.2 2,8 25 1,3 1070 0,08 0,10 0,5 15 Seljurót 41 1,2 0,3 8,4 50 0,8 20 0,05 0,14 1,0 11 Spínat 24 2,2 0,3 3,1 100 3,0 2950 0,09 0,24 0,7 55 Steinselja (persille) 4! 3,5 0,5 5,7 200 5,0 4350 0,12 0,30 1,7 190 Tómatar 20 0,9 0,2 3,7 15 0,6 400 0,04 0,03 0,7 20 Ráðlagður dagskammtur 400 6 750 0,2 0,4 5 15 -1200 -18 -2500 -1,5 -1,7 -20 -30

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.