Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980.
(i
Útvarp
ÚRVERÖLD
KVENNA —útvarp
íkvöldkl. 22,35:
Heiman-
fylgja og
kvánar-
mundur
„Það má segja að þetta erindi mitt sé
að vissu leyti framhald af erindi sem ég
flutti i útvarpinu í vor og nefndi
Ákvörðunarréttur um hjúskap á gull-
öld íslendinga,” sagði Anna Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður Kvennasögu-
safns íslands, í samtali við Dagblaðið.
í kvöld flytur Anna erindi í út-
varpinu er hún nefnir Heimanfylgja og
kvánarmundur. „Þegar fólk gifti sig á
söguöldinni þurfti fjölskylda konunnar
að leggja fram heimanfylgju og karl-
maðurinn þurfti að leggja fram kvánar-
mund. Þetta átti að vega nokkuð jafnt
hvort upp á móti öðru,” sagði Anna.
'J : *JLLÆi2&í KL
Anna Sigurðardóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns tslands.
Erindið i kvöld mun fyrst og fremst
fjalla um rétt kvenna i hjúskapnum.
Að sögn önnu var hann ekki mikill og
konur urðu til dæmis að sætta sig við
að fá litlu ráðið um makaval. Því réðu
feður þeirra og bræður fyrst og fremst.
Anna mun bæði lesa úr sögum og
fomum lögum til að sýna hvernig þess-
um málum var háttað.
-GAJ
i
Siguröur Karlsson stýrir báöum leik-
ritunum.
Útvarpsleikritin eru af ýmsum talin
það skemmtilegasta sem boðið er upp
á í útvarpinu. I kvöld er boðið upp á
tvö leikrit í stað eins, svo sem venja er
á fimmtudagskvöldum, og geta því
leikritaunnendur vel við unað.
Fyrra leikritið heitir Hjónaband i
smiðum og er eftir Alfred Sutro.
Leikritið gerist í blómaskála á
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 21,15
og 21,35:
ÁDEILA Á SKRIF-
STOFUBÁKN®
Grosvenor Square i Lundúnum.
Harrison Crockstead, vellauðugur
maður, hyggst biðja sér konu. Sú út-
valda, lafði Aline, gengst ekkert upp
við auð hans og er með alls konar
undanbrögð. Höfundurinn, Alfred
SiMro, var brezkur leikritahöfundur
og mjög i tízku á sinum tima en hann
lézt árið 1933, sjötugur að aldri.
I.eikritið Hjónaband í smíðum var
frumsýnt i Haymarket-leikhúsinu
árið 1902. Þetta er gamansamt verk
og tekur tæpar 20 mínútur í flutningi.
Seinna leikritið sem flutt verður á
fimmtudagskvöld heitir Fávitinn og
er eftir Muza Pavlovna. Þetta leikrit
er ádeila á skrifstofubáknið, sem svo
viða tröllriður þjóðfélaginu. Maður
kemur á skrifstofu til að fá vottorð
um að liann sé ekki fáviti þvi hann
ætlar að ganga í hjónaband. F.n það
kemur brátt í ljós að slikt vottorð
liggur ekki á lausu. Nafn leikritsinser
að þvi leyti táknrænt að mann grunar
að sá sem er fyrir innan borðið hafi
ekki síður þörf fyrir að láta skoða á
sér kollinn en umsækjandinn.
Þýðandi Fávitans er Torfey Steins-
dóttir. Leikstjóri beggja leikritanna
er Sigurður Karlsson. Hlutverkin i
hvoru leikritinu eru tvö, þau leika
Þráinn Karlsson og Edda Þórarins-
dóttir.
-GAJ
I
GÆRKVÖLDI
UTVARPK) HELDUR SKÁRRA
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna var ekki
beint burðug í gærkvöldi. Þó var út-
varpið heldur skárra og má þakka
það tveimur þáttum, Misræmum og
Milli himinsogjarðar. Misræmureru
á góðri leið með að verða einhver al-
bezti tónlstiarþáttur útvarps og i gær-
kvöldi tóku þeir félagar Þorvarður
Árnason og Ástráður Haraldsson
fyrir hljómsveitina Tangerine Dream.
Tangerine Dream var hér um árið eitt
af stóru nöfnunum í þýzkri rokktón-
list, og ásamt hljómsveitum á borð
við Can, Amon Dúul, Faust og
Kraftwerk, naut hún mikillar
virðingar i Bretlandi og víðar. En
ekki vissi ég að hljómsveitin starfaði
enn, hélt satt að segja að hún hefði
lagt upp laupana fyrir nokkru.
Fróðlegur þótti mér þáttur Hávars
Sigurjónssonar um fugla, einkanlega
fannst mér eftirtektarvert hve lágar
sektir liggja við brotum á reglugerð-
inni um friðun fugla. Að greiða 250
til 25.000 krónur í sekt er ekki neitt
borið saman við þau spjöll sem hinir
brotlegu oft valda. Ég man þegar ég
var í sveit, að kvöld nokkurt sá ég
snæuglu, þegar ég var að ná í kýrnar.
Er heim á bæinn kom, sagði ég frá
uglunni. Þá greip einn heimilismanna
byssu og æddi út, þeirra erinda að
skjóta ugluna. Hann fann hana ekki,
svo uglan hélt lífi í það sinnið, en
þetta dæmi sýnir að sumir hika ekki
við að drepa sjaldgæfar fuglateg-
undir til að fá eintak sem hægt er að
stoppa upp.
Að loknum fuglaþættinum var
slökkt á útvarpinu, og slíkt hið sama
var gert við sjónvarpið, er sást hvað
þar var boðið upp á. Kristur nam
staðar i Eboli er ekki einn af mínum
uppáhalds framhaldsþáttum.
Ég tók þó gleði mina aftur er Ari
Trausti Guðmundsson fór að ræða
um stjörnufræði í útvarpi. Einkan-
lega gladdi mig að von er á fleiri
slíkum þáttum, því víst er að á þá
mun ég hlusta.
- SA
23
Sjónvarp
i
Útvarp
Fimmtudagur
21. ágúst
12.20 Fréfllr* J2.45 Veðurfregnir Tilkvnnínjur.
rónleikasyrpa. Uuklassisk tón|i$t, >kuis og
dægurlög og lög leikin á ýmis hljöðfæri.
14.30 Middeuissajian: „Sagan uni ástina og
dauAann" cflir Knul Hauue. Sigurrtur <iunn
arsson lc& þýöingu sina í 17i.
15.00 Popp. Pdll Pákson kynnir.
15.50 Tilkynmngar
16.00 Tréltir. Dagskrá. 16.15 Vcöurfregnir.
16.20 .Síddegistónlcikar. National filharnmniu
svcifin lcikur „Petite Suiie” eftir Alexander
Borodín: Loris Ijeknavorían stj. / Vladinitr
Ashkena/y og Sínföniuhljömsveit I undúna
leíku Píanökonseri nr. 3 í CTlur op. 26 eliír
Sergej Prokoljeff; Andre Prövin stj.
17.20 TónbornÍö.SvemrCiauii Lhegostjörnar.
17.50 Tönlcikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Pagskrá kvöldsnis
1*4.00 Kréttir.Tilkynnmgar.
10.35 Dagkgt mál. IxSrhallur <iuttormsson
flytur þáttinn.
10.40 Sumanaka. a Linscwgur: Linar Markan
Njugur islen/k lóg. |)r I ran/ Mixu leikur á
pianrt. h. Prásögur úr (Hnadal. Lriiugui
Daviösson rithftfundur d Akureyrt les sagnir
skrártar cftir tifeda Jönssyni bimda álmgimyri.
c. „Pclta gamla þj6rtttrlaR’\ Baklur Pálmason
lcs fcrskcytlur cftir Jön S. tíergmann. d.
Minningar frá (irundarfirói. Klisahct Helga
döttir scgir fri; — þrtrtji þáttur.
20.55 i.eikrft: „lljúnaband i smióuni" eflir
Affn*d Sutro. I»>rtandi: Jr'm Thor Haraklsson.
Icikstjön: Sigurrtur KarlsMjn. Pcrsrtnur og
icikendur:
C riKkstcad...............Mmn Kartsson
Alme...................Ldda Þrtrarmsdöttir
21.15 l.eikrit: „Pávili’* eftk Mu/a Pavbona.
l»>rtatKli: Torfe> Svetmdöttir l.eikstjiki:
Sigurrtur Karissmt Pcrsrtnurvrg leikcndur
Sknlarinn...............SigurrturSkulason
Utmtekjandmn............... JönJúbusson
.21.35 Cicstur i út»arpssai: ibrun (iabriel frá
k.etp/ig leikur á piann a. Prelödiu «g túgu i
Pls dút cftir Joiunu Sebastian Bach. h. Srtttotu
i Ddúr op. 53cftír Fran/Schuhert
22 15 Vcðurfrcgnir. Lrólttr. Dagskrá nxwgun
dagsíns
22.35 ('r vcrold kvenna: llciiiianfvigja «j»
kvanarmundur. Anna Sigurrtardöttir flyturer
indi.
23,00 Áfangar. Umsjönarmenn Ásmundur
Jönsson ogCitiftni Rúnar Agnarsson.
23.45 I rCttir Dagskrárlok. *
Föstudagur
22. ágúst
7.00 Verturfregnir. Fréltir. Tönleikar.
7 20 Ba*n. 7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynntr.
8,00 Frétttr.
8.15 Vcrturfregnir. lúsrustugr Jargbl tútdr.i.
Dagskrá Tönlcikar.
8.55 Daglegf mál. Hndurt. þátlur ix'irhalls
(íuttornissonar frá kvöldinu áður.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: ..Kolur og
Kolskcggur” cftir Barböru Slcight Ragnar
ÍHirstemsson þýddi. MargrCt Helga Jrtbanns
döttir lcs |9».
9.20 Tónletkar. 9.30 Tilkynníngari Tónleikar.
10.00 Fréttir 10.10 Verturfregnír.
10 25 ,.M(t eru fornu minnin kar'*. Fínar
Kmtjánsson frá Hcrmundarfelii sör um þátt
inn. Uppicsiur úr þjrtösagnúsafní Braga
Sveinvstmar. Lesari ásjmtl utnsjrtnarmanm er
börhaila Þorstetnsdóttir lcikan.
11,00 Morguntónlcikar. Svjatosiav Kikluer
tcikur Pianösónötu nr. 2 i g moli op. 2 efor
Rohert Schumann / Hans Hotter syngur lóg
efttr Riehurd Struuss; (icolftcv Parstms ietkur
a i>iantV / Alevis Wetssetihcrg og hljóni
svcit 1 öftltsUtrháskölttns i París lcika Tilhrigrti
cftir Fr«hiénc t hopm um stcf úr öperunm
,.Dtm timvanni” cftir Mo/art. Smnisiav
Skmvac/evskí stj.
Utsala!
Útsala!
Útsala
á kvenskóm
ínokkra daga
%
Laus staða
Staða vélritara við embætti ríkisskattstjóra er laus til um-
sóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
skal senda ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57, 105 Reykjavík,
fyrir 20. sept. nk. . , ... .
Rikisskattstjori,
20. ágúst 1980.
Veitinfíar frá kl. 19.
HORNIÐ
HAFNARSTRÆT115