Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980. „Sjáið hvað tönnin mfn fer vel 1 munninum á mömmu,” segir Trude Haugen og bendir á jaxlinn sem var græddur i móður hennar, Sissel, fyrir þremur árum. FÓLK Leikfang ársins í Playboy var myrt af manni sínum Lesendur bandariska tímaritsins Playboy kusu Dorothy Strattens Playmate of the Year (leikfang ársins). Sá titill varð henni að aldur- tila. 1 botnlausu afbrýðisemiskasti myrti eiginmaður hennar hana í Los Angeles í síöustu viku. T61f stúlkur, sem allar hafa fengið mynd af sér í miðopnu Playboy, eru í kjöri sem leikfang ársins. Að dómi lesendanna bar Dorothy af þeim öll- um. Hún hlaut óskipta athygli fyrir vikið og þaö þoldi maður hennar ekki. í hvert skipti sem hún skýröi honum frá vaxandi velgengni sinni varð hann afbrýðisamari og afbrýði- samari. Skömmu eftir aö henni bauðst hlutverk í kvikmyndinni They All Laughed (með Audrey Hepburn í einu aðalhlutverkanna) skildu þau hjónin. Dorothy Stratten lét lífið vegna afbrýðisemi manns sins. Þau héldu þó áfram aö hittast öðru hvoru og síðast á föstudagsmorgun- inn var. Þau fundust á heimili hennar. Bæði nakin og bæði látin. Lögreglan í Los Angeles var ekki í nokkrum vafa að lokinni frumrann- sókn: Paul Sneider haföi skotiö höf- uðið af konu sinni með tvíhleyptri haglabyssu. Að moröinu loknu hlóð hann tvíhleypuna á ný og skaut sjálfan sig. — Það voru nágrannar Dorothy Strattens sem kvöddu til lögreglu. Bandaríkin: Kojak og sextíu þúsund leikarar aðrir í verkfalli Fyrsta vel heppnaða tannígræðslan: Móðirin fékk jaxl úr dóttur sinni „Sjáið bara hvaö tönnin mín fer vel í munninum á mömmu,” segir Trude Haugen frá Hjellestad sem er skammt fyrir utan Bergen i Noregi. Fyrir þremur árum var græddur jaxl úr Trude í móður hennar, Sissel. 1 dag eru tannlæknirinn, dr. Kjell Sveen, og aðstoðarmaður hans, Hallvard Vinde- nes, við Haukeland sjúkrahúsið í skýj- unum. Fyrsta vel heppnaöa tann- ígræðslan er orðin staðreynd, sú fyrsta í öllum heiminum sem vitaö er til að hafi heppnazt. „Fram að þessu höfum við ekki viljað fullyröa neitt um árangurinn af þessari tannigræðslu. Það hefur nefni- lega oft hent að tönn sem hefur veriö grædd í hefur losnað aftur eftir eitt eða tvö ár. Sissel Haugen getur hins vegar veriö þess fullviss aö tönnin losnar ekki. Jaxlinn, sem hún fékk frá dóttur sinni, hefur lagað sig vel að nýjum að- stæðum og hefur vaxið alveg eðlilega,” segir dr. Kjell Sveen í samtali viö norska Dagbladet. Tannígræðsla þessi hefur vakið mikla athygli þvi eins og áður segir er ekki vitaö til aö slik aðgerð hafi áður heppnazt. Trude Haugen hafði einum jaxli of mikiö en móður hennar vantaði einn jaxl. Þess vegna var tannígræðslan reynd. Norsku tannlæknarnir segja að enn sem komið er séu aögerðir sem þessar á algjöru tilraunastigi en geti i framtíðinni fengið hagnýta þýðingu, til dæmis í þeim tilfellum sem ekki er um eðlilega tannmyndun að ræða. Heston og múmíurnar Leikararnir I Hollywood eiga sér hin ólikustu áhugamál. Sennilega er stórslysaleikar- inn Charlton Heston einn sárafárra sem hafa órjúfanlega ást á múmium. Áhuga sinn fékk Heston þegar hann lék I kvikmyndinni The Awakening. Þar fer hann með hlut- verk brjálaðs visindamanns sem lifir og hrærist I múmíum. Ekki tókst verr til en svo að áhugi Hestons vaknaði og það fyrir alvöru. Telly Savalas — jafnvel þekktur undir nafninu Kojak — er nú kominn í verkfall. Á fjóröu viku hafa um sextíu þúsund þekktir jafnt sem óþekktir bandariskir leikarar haft 'það rólegt. Þeir vilja með verkfallinu mótmæla því að bandariskir leikarar fá aöeins einu ■sinni borgað fyrir vinnu sína. Höfundar handrita og ieikstjórar fá aftur á móti greitt fyrir hverja sýningu. Greiðslur fyrir endursýningar eru mikið baráttumál fyrir leikarastéttina. Níutíu prósent meðlima hennar fáekki nema sem svarar fimm hundruð þús- und íslenzkum krónum í mánaðarlaun. Slíkt þykir ákaflega lítið i guðs eigin landi. Tíu prósentin, sem eru í hærri skalanum, fá mörgum sinnum meira kaupá mánuöi. Þrátt fyrir þetta stóra launabil smá- leikara og stórra eru þeir allir ákveðnir í að halda málinu til streitu. Leikara- verkfallið kostar bandaríska kvik- myndaiðnaðinn um tuttugu milljarða króna í hverri viku. Telly „Kojak” Savalas I mótmælagöngu vegna launamisréttis bandariskra leikara. „Heilinn” bak við Rauðu hérdeildina laus Vestur-þýzki lögfræðingurinn Horst Mahler hefur nýlega verið látinn laus úr fangelsi til reynslu, en hann hefur nú afplánaö þriöjung af fjórtán ára fangelsisdómi fyrir m.a. morðsamsæri. Sjö ár eru nú liðin síðan Mahler var dæmdur sem einn af „hugsuðun- um” og aöalforsprökkum vestur- þýzku skæruliðagrúppunnar Rote Arme Fraktion (RAF). Fyrir nokkrum árum varð hugarfarsbreyt-. ing hjá Mahler, sem nú er 44 ára, og hefur hann orðið mestu andstyggð á ofbeldi. Hefur hann siðan margsinnis hvatt fyrrí félaga sina til að láta af striðsaögerðum sínum og verið sam- starfsfús við lögreglu. Britt tekur ekki fleiri ílæri Nýjasta táningastjarnan í Bandaríkjunum er Christopher Atkins, nítján ára piltur. Hann vill greinilega hafa dömurnar, sem hann umgengst, eitthvaö eldri en mótleikkonu sína, Brookie Shields, fimmtán ára. Eftir að hann hitti Britt Ekland í fyrsta skipti varð hann ákaflega skotinn og bauð henni á hjóla- skautaball. Britt afþakkaði þetta boð án umhugsunar. „Ég hef tekið nógu marga unga menn i læri á ævinni,” sagði hún og brosti sínu sætasta. Síðustu dósirnar af Billy- bjór seldar á uppboði Síðustu 463 kassarnir af svokölluðu Billy-öli hafa nú verið seldir á uppboði. Verðið þótti glæpsamlegt fyrir jafn- vont öl, hálfur annar dollar á dós. Ágóði sðlunnar rennur til heimilis fyrir flækingsdýrí Seattleí Bandaríkjunum. „Okkur þótti málefnið passa mjög vel, því að sjálfur er Billy Carter mjög ráövilltur Jvessa dagana, ef marka má fréttir,” sagði sá sem tók að sér að koma bjórglundrinu í verð. — Billy- bjórinn var bruggaöur með leyfi Billy Carters á meðan hann var enn drykk- felldur. SJðan hefur það gerzt að hann var sendur í afvötnun og smakkar ekki ,lengur áfenga drykki. Sagan segir að Billy hafi sjálfur verið aöalkaupandinn að bjórnum, því að almennt keypti fólk sér ekki nema eina dós af þessum þriðja flokks bjór.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.