Dagblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980.
5
LIT
HÖFÐABAKKA 9
SÍMI 85411
Að loknum fyrsta degí Ljóma-rallýs ’80:
KALDIDALURINN
REYNDIST SUM-
UM ERFIÐUR
„Kaldidalurinn er án efa erfiðasti
hluti alls ralisins, svo að það er ekki að
furða þó einhverjum hafi gengið erfið-
lega að komast yfir hann,” sagði Birgir
Þór Bragason, keppnisstjóri Ljóma-
rallýs ’80, er DB leit við í stjórnstöð
rallsins í gær.
ítaiinn Cecare Giraudo fékk til
dæmis 27.45 mínútur í refsistig á
Kaldadal. Einu skýringarnar, sem
fengust á þessum töfum hans, voru þær
að hann hefði lent í hrakningum. Þá
gekk Erni Reykdal ingóifssyni fremur
illa að komast yfir Kaldadal á Trabant
sínum.
Um hálfsex leytið I gær var Norð-
maðurinn John Haugland í fyrsta sæti
með aðeins rúma mínútu í refsistig.
Hafsteinn Hauksson var í öðru sæti,
Ómar Ragnarsson i þriðja, Þórhallur
Kristjánsson í fjórða og Finn Ryhl
Anderson frá Noregi í fimmta sæti.
ítölsku keppendunum vegnaði illa, þvi
að þeir voru í fjórtánda og sextánda
sæti. — Alls taka sautján bilar þátt i
rallinu.
John Haugland er atvinnumaður i
rallakstri. Hann kom hingað til lands i
fyrrasumar og fylgdist með Vísisrall-
inu. Haugland ætti þvi að vera sæmi-
lega kunnugt um ástand íslenzku veg-
anna. Þeir, sem gerst þekkja til, spá
honum sigri. Þó geta Ómar Ragnars-
son, Hafsteinn Hauksson, nafni hans
Aðalsteinsson og Halldór Úlfarsson
ógnað veldi hans nokkuð. Að sjálf-
sögðu koma aðrir keppendur einnig til
greina, því að allt getur gerzt í ralli.
Engan er hægt að bóka sem sigurveg-
ara fyrr en allir eru komnir i mark.
í tengslum við Ljóma-rallý ’80 er
starfrækt stjórn- og upplýsingamiðstöð
i Austurbæjarskólanum. Þangað getur
fólk komið og kynnt sér hvernig staðan
er hverju sinni. Tölva sér um að staða
bílanna er jafnan kunn eftir hverja sér-
og ferjuleið.
- ÁT
Stjórnstöð Ljóma-rallsins. Þar verða
Birgir Þór Bragason, formaður Bifreiða-
iþróttaklúbbs Reykjavikur, og
Maríanna Friðjónsdóttir, blaðafulltrúi
rallsins, á vakt allan timann sem keppnin
stendur yftr.
Bflbeltin
hafa bjargað
||U^IFERÐAR
og okkar þekktu
handunnu matar-
og kaffiste/f
á sórstöku
kynningarverði
•
Hafið samband
við
GUT-básinn
W
J/Bs_
Danskir verkamenn komu með tfvoliinu til Islands og vinna þarna við uppsetn-
ingu einnar hringekjunnar. DB-mynd: Sig. Þorri.
Tívolí fyrir vörusýningargesti:
Inngangurínn
kostar 3 þús.
Tívolíið sem verið er að setja upp
við Laugardalshöllina hefur vakið
mikið umtal og tilhlökkun, sérlega
hjá yngri kynslóðinni. Tívolíið er
hluti af vörusýningunni Heimilið ’80
sem opnuð verður almenningi kl. 18 á
morgun. Aðgangur verður ókeypis
að því fyrir þá sem á sýninguna koma
en á sýninguna í heild kostar 3 þús-
und krónur fyrir fullorðna og citt
þúsund fyrir börn svo framarlega
sem þau eru í fylgd með fullorðnum.
Selt verður í tæki tivolí ans eins og
tiðkast erlendis en ekki var í gær
alveg komið á hreint hvað kosta
myndi í hveri tækjanna. Bjarni
Ólafsson framkvæmdastjóri Kaup-
stefnunnar, sem fyrir sýningunni
stendur, sagði að miðað væri við að
hafa verðið sent lægst en þó þannig
að tívolíið bæri sig.
-I)S
60 tonna bátur
Hér sést leiðin, scm rallbílarnir þurfa að aka. Í nótt var gist á Sauðárkróki. í nótt
verða bilarnir í Reykjavik og tvær næstu nætur á Laugarvatni. Alls er Ljóma-rallý ’80
hátt á þriðja þúsund kilómetrar að lengd.
eyðilagðist í eldi
Eldur varð laus i mb. Svani SH III Hart var fram gengið við slökkvi-
á þriðjudag þar sem hann lá í höfn í starf en það reyndist erfitt að komast
Stykkishólmi. Voru menn, sem unnu fyrir eldinn. Er báturinn mikið
við bátinn, nýfarnir frá borði um há- skemmdur, jafnvel talinn ónýtur.
degisbilið, er eldsins varð vart. Menn Báturinn er 60 tonna eikarbálur og
þessir höfðu m.a. notað logsuðutæki átti að fara á skelfiskveiðar.
við viðgerðarstarf sitt. . A.St.
KYNNINGARVERÐ
á sýningunni
HEIMILIÐ 80
SEM HEFST Á MORGUN
ILAUGARDALSHÚLL
FURUHÚSGÖGNIN