Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 15
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980. íþróttir Sheffield Utd. skoraði f jögur Sheffield Uniled vann góðan sigur, 4—2, á Blackpool er liðin mætlusl i 3. deildinni í gærkvöldi. Önnur úrslit i Englandi urðu þessi: 3. deild Burnley-Hull 2—0 Carlisle-Millwall 2—1 Colchester-Chesterfield 1—1 Gillingham-Huddersfield 0—0 Portsmouth-Charlton 1—0 Sheffield Utd.-Blackpool 4—2 Swindon-Oxford 1—0 Walsall-Rotherham 0—2 4. deild Bournemouth-Harllepool 1—0 Bury-Crewe 1—3 Darlington-Schunthorpe 0—1 Halifax-Wigan 0—1 T orquay-Doncaster 2—3 York-Tranmere var aflvsl eflir 48 mínúlur vegna mikils vatnselgs á vellinum, en staðan var þá 3—0 York í vil. Ragnar Ólafsson vann ÍSAL-mótið Ragnar Ólafsson sigraði i ÍSAL-keppninni í golfi sem haldin var i Grafarholti um helgina. Lék Ragnar holurnar 36 á 144 höggum samtals og jafnaði vallar- melið er hann lék 18 holur á 71 höggi. í öðru sæti varð Hannes Eyvindsson sem lék á 153 höggum. íi ■neislaraflokki kvenna sigraði Lóa Sigurbjörnsdóttir en hún lék á 147 höggum nettó. Guðrún Eiríksdóttir lék einnig á 147 höggum en hafði lakara skor en Lóa og hafnaði því i öðru sæti. , Legia Varsjá tapaði í Sofiu Búlgörsku bikarmeistaramir Slavia Sofia komu allmjög á óvart i gærkvöldi er þeir sigruðu pólska liðið l.egia Varsjá 3-1 i fyrri leik liðanna í Evrópu- keppni bikarmeistara i Búlgariu i gærkvöldi. Staðan ■ hálfleik var 0-1 fyrir Legia, en í síðari hálfleik skoruðu Búlgararnir þrivegis og tryggðu sér sigur. Önnur úrslit í Evrópukeppnunum þremur í gær- kvöldi urðu þessi: Evrópukeppni meistaraliða Linfield — Nantes 0-1 Leikurinn var leikinn i Haarlem, þar sem Linfield er í heimaleikjabanni vegna óspekta áhorfenda sinna. Evrópukeppni bikarmeistara Slavia Sofia — Legia Varsjá 3-1 Spora Luxentborg — Sparta Prag 0-6 Newport County — Crusaders 4-0 UEFA-keppnin Sliema Wanderes — Barcelona 0-2 UjpestDozsa — RealSociedad 1-1 Hilaire dæmdur í leikbann og sekt Crystal Palace leikmaðurinn Vince Hilaire var i gær sektaður um 500 sterlingspund (jafnvirði rúm- lega hálfrar milljónar isl. króna) og dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að hrinda dómaranum í lcik Crystal Palace og Tottenham 19. ágúst sl. Hilaire var vikið af leikvelli f leiknum fyrir brot sitt, en leikurinn endaði 4-3 fyrir Tottenham. Ritari enska knattspyrnusambandsins, Ted Croker, sagði að brot Hilaires væri sennilega hið versta í knatt- spyrnu. ,,Sumir leikmenn leika allan sinn feril án þess að sýna dómara nokkurn tima óvirðingu, og framkvæmdastjórar félaganna ættu að krefjast þess að aðrir lcikmenn tækju hina sér til fyrirmyndar i þeim efnum,” sagði Croker. Valur vann KR Valsmenn sigruðu KR-inga 65-60 i úrslitaleik Coca Cola mótsins i körfu- knattleik, sem lauk i íþróttahúsi Haga- skólans á mánudagskvöld. í leiknum um 3. sætið i mótinu sigraði ÍR Fram 46-45 með vítaskoti Jóns Indriðasonar rétt fyrir leikslok. Framarar léku án Bandaríkjamanns i mótinu en þóttu koma mjög vel frá þvi og verða vafa- litið sterkir i 1. deildinni i vetur. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir DB-mynd Sig. Þorri. Bjarni svffur hér á eftir knettinum og ver glæsilegan þrumufleyg Miillers á 11. minútu. SLYSAMARK KOM K0LN A BRAGÐIÐ GEGN ÍA! — Skagamenn héldu jöfnu við Þjéðverjana í fyrri hálfleik og lékuþá vel en sorglegt mark í byrjun seinni hálfleiks gerði drauminn að engu. Köln vann 4-0 Eftir að Akurnesingar höfðu staðið í hinum fræeu andstæðingum sínum í IFC Köln allan fyrri hálfleikinn, haldið 0-0 í hálfleik og leikið stórvel, var það sorglegt hvernig gæfan snerist i höndum þeirra. Siðari hálfleikurinn var ekki nema þriggja mínútna gamall er vinstri bakvörðurinn Kroth reyndi skot af um 25 metra færi á ská við markið. Bjarni virtist hafa knöttinn, hafði hendur á honum en missti hann yfir sig í markið. Álengdar virtist þetta klaufalegt, ekki hvað sizt vegna þess að Bjarni hafði sýnt markvörzlu á heims- mælikvarða einum þrisvar sinnum í fyrri hálfleiknum. „Boltinn var háll og égætlaði að gripa hann en tókst ekki betur til,” sagði Bjami eftir leikinn. Tiu mínútum síðar fengu Skagamenn á sig' annað mark sitt sem rekja má beint til mistaka Sigurðar Halldórssonar, sem var að gaufa með knöttinn og lét hirða hann af sér. Eftir það var aldrei nein spurning um sigurvegara i leiknum og Þjóðverjarnir léku sér að Skagamönn- um eins og köttur að mús þrátt fyrir þá staðreynd að fjóra fastamenn vantaði í liðið. Lokatölur urðu 4-0 og hefðu hugsanlega getað orðið stærri. Kölnararnir hófu leikinn í gær af miklum krafti og strax á 1. mínútunni munaði ekki nema hársbreidd að þeim tækist að skora en Muller hitd ekki bolt- ann í góðu færi eftir hornspyrnu. Bæði liðin virtust nokkuð taugaóstyrk og einkum voru Kölnararnir ragir við að fara fram. Þeir höfðu þrjá fasta sóknarmenn og létu þá að mestu sjá um að sækja en veittu þeim litinn stuðning nema þegar Skagamennirnir voru fá- mennir til varnar. Greinilegt var á varnarleik liðsins að þar átti ekki að taka snefil af áhættu. Varnarmönnun- um var heldur ekki gert ýkja erfitt fyrir því eiginlegir sóknarmenn Skagamanna voru aðeins tveir talsins og hægri vængurinn var lengst af illa eða ónýttur. Vera má að það hafi verið fyrirfram ákveðið en hvað um það. Á 11. mínútu varði Bjarni hreint út sagt meistaralega frá Múller af víta- teigslínu eftir að vörn Skagamanna hafði verið splundrað. Tony Wood- cock, bezti maður Kölnarliðsins, lék þá á Guðjón Þórðarson og gaf fyrir markið. Knötturinn virtist fara í hönd eins sóknarmanna Kölnar og þaðan út til Múllers, sem skaut viðstöðulausu bylmingsskoti alveg upp undir þverslá. Bjarni sveif á eftir tuðrunni og varði snilldarlega. Sýndi þar sannkölluð meistaratilþrif. Bjarni varði ekki síður glæsilega frá Engels á 18. mínútu eftir að hann hafði snúið á vörnina í miðjum vitateignum. Fóru þar tveir varnar- menn í hann — ekki í eina skiptið sem það gerðist — og varð hált á því. Bjarni bjargaði hins vegar andlitinu fyrir þá. Á 25. mínútu varð Bjarni enn að grípa fram sparihanzkana og tókst þá naum- lega að verja skot Múller. Woodcock átti þá sendingu upp kantinn til Engels, sem gaf fyrir markið. Múller sneri á varnarmennina, sem fóru tveir gegn honum likt og gegn Engels áður, en Bjarni varði af snilld. Á 26. mínútu munaði ekki nema hársbreidd að Skagamenn, sem sífellt komu meira inn í leikinn er á hann leið, skoruðu mark. Guðjón Þórðarson tók þá langt innkast og sendi beint á koll- inn á Sigurði Halldórssyni, sem skall- aði aftur fyrir sig inn í markteiginn. Þar spyrnti Sigþór Ómarsson af alefU á markið en Schuhmacher sá við honum. Kom höndum fyrir knöttinn um leið og hann skaut. Bjargaði í horn en var greinilega þjáður í annarri höndinni, enda skotið firnafast. Eftir þessa sókn var greinilegt að Akurnesingarnir gerðu sér grein fyrir að þeir gætu staðið í and- stæðingunum með skynsömu spili og því beittu þeir út hálfleikinn. Köln fékk ekki eitt einasta færi síðari hluta fyrri hálfleiksins en ekki munaði nema hárs- breidd aftur að Sigþór skoraði á 43. mínútu er hann fékk sendingu inn fyrir vörnina, sem greinilega taldi að hann væri rangstæður. Aðþrengdur af varnarmanni náði hann að spyrna fast að marki en rétt framhjá. Hinir 3500 áhorfendur klöppuðu Skagastrákunum eðlilega lof í lófa er þeir gengu af velli í leikhléi enda höfðu þeir staðið sig mjög vel. Þeir léku án Sigurðar Lárussonar en ekki má heldur gleyma því að í lið Kölnar vantaði enn fleiri leikmenn. Rainer Bonhof varð að fara af leikvelli á 38. mínútu og kom Cullmann í hans stað. Síðari hálfleikurinn var mun tíðinda- snauðari en sá fyrri en ef þessi tvö ódýru mörk í byrjun hans hefðu ekki komið er ekki gott að segja til um hvernig leikurinn hefði getað farið. Kjarkur og þrek leikmanna fór dvín- andi eftir því sem á leið og yfirburðir Kölnar urðu æ meira áberandi. Á 5 mín. kafla gerði Köln mjög harða hríð að marki Skagamanna og skoraði þá tvivegis. Fyrst reyndar skaut Wood- cock yfir í góðu færi en hann var maðurinn á bak við þriðja markið á 78. mín. Stal þá knettinum af Kristjáni Ol- geirssyni og sendi upp kantinn til Litt- barski. Hann sendi strax fyrir markið á Múller, sem skoraði örugglega með skalla. Þar hefði Bjarni e.t.v. átt að hremma fyrirgjöfina því hún kom á stöngina nær. Fjórða markið kom aðeins tveimur mínútum síðar og sýndi bezt hvernig staðan í leiknum var orðin. Skagmenn búnir að missa áhug- ann. Múller sendi þá fyrir markið og þar misstu Bjarni og einir þrír varnar- menn af knettinum, sem barst til Strack, sem gat vart annað en skorað af markteig, 4-0. Liðin: Köln: Schumacher, Prestin, Korth, Strack, Gerber, Bonhof, Litt- barski, Botteron, Múller, Woodcock, Engels, varamaður: Bonhof; Akranes: Bjarni Sigurðsson, Guðjón Þórðarson, Jón Áskelsson, Júlíus P. Ingólfsson, Sigurður Halldórsson, Jón Gunnlaugs- son, Kristján Olgeirsson, Björn H. Björnsson, Sigþór Ómarsson, Guð- björn Tryggvason (Ástvaldur Jóhann- esson), Árni Sveinsson. Dómari leiksins var að mati undirrit- aös slakur. - SSv. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980. Iþróttir Iþróttir Bþróttir Iþróttir I Ný stórstjama í uppsiglingu í knattspyrnu?: RANGERS VIUA OLMIR FA17 ÁRA BUKA TIL UÐS VID SIG — hafa boðið Trausta Ómarssyni að koma og æfa hjá sér fyrir 80 sterlingspund á viku með atvinnusamning fyrir augum.Willy Reinke hafði einnig samband við hann áður en hann hélt skyndilega af landi brott í gærmorgun Eftir heimildum sem DB hefur aflað sér mun Trausla Ómarssyni, 17 ára gömlum leikmanni í Breiðabliki, hafa verið boðið að koma til skozka stórliðs- ins Glasgow Rangers nú í haust og leika þar með unglinga- og varaliði félagsins fyrst um sinn fyrir 80 sterlingspund á viku. Rangers hafði mikinn hug á að ná i strák með það fyrir augum að ná samningi við hann siðar meir. DB reyndi í gær að ná sambandi við hann en tókst ekki. En það eru fleiri en Rangers á eftir Trausta því v-þýzki umboðsmaðurinn Willy Reinke, sem hefur dvalið hér að undanförnu en fór skyndilega af landi brott i gærmorgun, hefur haft sam- band við hann og vill koma honum í at- vinnumennsku. Skozka liðið kom auga á Trausta er hann var á keppnisferða- lagi með félögum sínum i 2. flokki Breiðabliks og hreifst þegar af honum. Þá hefur DB það fyrir satt að Albert Guðmundsson muni halda til móts við Reinke er landsliðið kemur heim frá Tyrklandi. Albert hefur ætlað sér til Edmonton í Kanada í allt sumar og hefur fengið tilboð þar um en nú gæti hæglega farið svo að hann skipti um skoðun ef gott tilboð fæst. Reinke ætlaði sér að sjá leik ÍBV og Banik Ostrava á Kópavogsvellinum á s 14 ára og leikur með Blackpool Þeir verða sífellt yngri og yngri knattspyrnumennirnir hjá ensku deild- arfélögunum. Sá yngsti, heitir Eamon Collins og lék sinn fyrsta leik með Blackpool í 3. deild á dögunum. Collins er aðeins 14 ára og 323 daga gamall og hann er langyngstur allra sem leikið hafa með ensku deildarliði. Það var Alan Ball, framkvæmdastjóri Blackpool, sem uppgötvaði pilt þegar hann lék með írsku félagi og Ball hefur augsýnilega talið Collins mikið efni. morgun og styrkir það grun manna að hann hafi ætlað sér að fylgjast með Sigurlási Þorleifssyni, miðherja Eyja- manna. Sigurlás fór sem kunnugt er út til Beigíu i ágúst en gekk ekki sem skyldi og kom heim aftur eftir mis- heppnaða ferð að flestu leyti. Þá stóð það til að Reinke hefði aftur samband við Ragnar Margeirsson í gær en af því varð eðlilega ekki.þar sem hann hvarf svo skyndilega héðan. Öruggt er að Ragnar leikur ekki með ÍBK næsta sumar. Aðrir leikmenn sem pB veit að eru í spilinu eru Sigurður IGrétarsson og Lárus Guðmundsson. i - SSv. ALLIR G0MLU FH-INGARNIR AFTUR A KAPLAKRIKA - líkur á að fjórir fyrrverandi leikmenn með FH gangi aftur til liðs við félagið Margt þykir nú benda til þess að FH- ingar endurheimti fjóra af fyrrverandi leikmönnum sinum áður en næsta keppnistímabil hefst i knattspyrnunni. Eru það þeir Ólafur Danivalsson og Dýri Guðmundsson hjá Val, Framar- inn Gunnar Bjarnason svo og Janus Guðlaugsson, sem nú leikur með v- þýzka 2. deildarliðinu Fortuna Köln. Eamon Collins er aðeins 14 ára og 323 daga gamall, en hann hefur þegar leikið sinn fyrsta leik með 3. deildarliði Blackpool. FH-ingar náðu að halda sæti sínu í 1. deildinni á elleftu stundu og víst er að endurkoma þessara leikmanna yrði liðinu gífurlegur styrkur. Þyrfti þá vart að gera því skóna á hvorum enda deildarinnar FH kæmi til með að berj- ast. Hvorki Gunnar Bjarnason né Ólafur Danivalsson hafa náð að festa sig i sessi hjá sínum félögum og vitað er til þess að Ólafur hefur ekki verið ánægður með gang sinna mála hjá FH. Hann vildi ekkert láta hafa eftir sér varðandi hugsanleg félagaskipti er DB hafði samband við hann í gær. Gunnar Bjarnason er nú i Danmörku með meistaraflokki Fram, sem leikur annað kvöld við danska liðið Hvidovre i •Evrópukeppni bikarmeistara. Þar af leiðandi tókst ekki að ná í hann. Dýra Guðmundsson náðist heldur ekki i en Við vorum óheppnir að skora ekki „Við fengum á okkur tvö ódýr mörk á fyrstu 15 mínútum síðari hálf- leiksins og þá var það búið,” sagði Hörður Helgason í spjalli við DB eftir leikinn. „Við vorum óheppnir að skora ekki, og ég er ánægður með leikinn ef undan eru skilin þrjú fyrstu mörkin. Köln lék á fullu allan tímann, og slakaði ekkert á í lokin. Auðvitað höfum við ekki jafnmikið úthald og þrautþjálfaðir atvinnumenn, en mér fannst sigur þeirra í leiknum of stór. Við töpum ekki með meiri mun úti,” sagði Hörður Helgason. Hættulegasta txkifæri Skagamanna i lciknum. Sigþór Ómarsson sendir knöttinn framhjá marki Kölnar en SchuhmacbefPR áhyggjufullur á svip. DB-mynd Einar Ólason. hann og Ólafur héldu í morgun áleiðis til Spánar með félögum sínum í Val i Síberíuvist á Laugardals- velli Þeir þurfa aö hírast í kulda og trekki, sjá varla hvað þeir eru að skrifa á blöð sin vegna rökkurs og langi þá i kaffisopa verða þeir að standa í langri og þreytandi biðröð. Hér er ekki átt við íhúa í námuverkamannabyggö i Síberíu, heldur iþróttafréttaritara, sem leggja það á sig, að fara á leiki á Laug- ardalsvellinum. Hví í ósköpunum er ekki búið að koma upp smáglerbúri efst i stúkunni, likt og er á Kópavogs- vellinum? Núverandi aðstaða er til há- borinnar skammar og sæmir ekki leik- velli sem notaður er undir landsleiki. Þetta er ábyggilega einsdæmi í allri Evrópu og þó víðar væri leitað.Og hvernig er með flóðljósin á Mela- vellinum? Stóð ekki einhvern tima til að flytja þau á Laugardalsvöllinn? Flóðljós eru bráðnauðsynleg á velli sem þessum og ættu að vera komin á Laugardalsvöllinn fyrir langa löngu. sumarfrí eftir erfitt keppnistimabil. Janus Guðlaugsson er nú við nám við íþróttaháskóla í Köln og hefur komið til tals að hann haldi heim á leið á ný í vor eftir tveggja ára dvöl i Þýzka- landi. Fari svo að þessir leikmenn gangi til liðs við félagið allir saman er ekki að efa að það mun lyfta FH upp úr botn- drómanum. Eftir þvi sem við vitum bezt á DB mun Valþór Sigþórsson ætla að leika áfram með FH og það má því búast við liðinu sterku næsta sumar. -SSv. fyrri hálfleikur hjá okkur „Fyrri hálfleikurinn var dæmigerður fyrir þá leiki sem við höfum leikið 1 Búndeslígunni til þessa. Við réðum lögum og lofum en gátúm ekki skorað," sagði aðalþjálfari Köln Karl-Heinz Heddergolt eftir leikinn. í síðari hálfleik fóru síðan hlutirnir að ganga betur en fyrstu tvö mörkin voru mikil heppnismörk. Hins vegar varði markvörður ÍA tvivegis mjög vél i fyrri hálfleik,” sagði Heddergott. TV0 FYRSTU MORKIN VORU AFLEIT „Þetta var góður fyrri hálfleikur en tvö fyrstu mörkin voru afleit. Þar af var annað markið alveg mér að kenna,” sagði Sigurður Halldórsson eftir leikinn. „Kölnarliðið naut sín undir lokin, og það var afdrifaríkt hvað við gáfum þeim mikið eftir miðjuna, þeir fengu of mikinn tíma. Ég bjóst við að þeir væru meira sýningar- lið, mundu spila meira eins og þeir gerðu í fyrri hálfleik. Síðari leikurinn leggst vel i mig,” sagði landsliðsmið- vörðurinn Sigurður Halldórsson. Erfiður leikur „Við verðum að teljast líklegri til að' vinna siðari leikinn eftir þessi úrslit,” sagði enski landsliðsframherjinn Tony Woodcock í spjalli við DB eftir leikinn. „Þetta var erfiður leikur og við vorum heppnir að skora fyrsta markið. Viö söknuðum ekki þeirra Neumanns, Zimmermanns og Schúster i leiknum. í Kölnarliðinu eru margir góðir leikmenn óg það kemur maður í manns stað.” Missti hálan knött- inn aftur fyrir mig „Ég ætlaði að grípa knöttinn en hann var svo háll að ég missti hann aftur fyrir mig,” sagði markvörður ÍA Bjami Sigurðsson um fyrsta markið. „Hin mörkin átti ég ekki möguleika á að verja, skallamarkið var með öllu óverjandi, hann skaliaði boltann á ;versta stað. Hins vegar var leikurinn góður framan af, en ódýru mörkin tvþ í upphafi síðari hálfleiks gerðu útslagið. ,Það voru alveg ósjálfráð viðbrögð hjá mér, þegar ég varði skotið frá Mllller á 11. mínútu, ég sá ekkert hvert boltinn fór. Síðari leikurinn við Köln verður erfiðari, þeir þekkja þar allar aðstæður,” sagði Bjarni Sigurðsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.