Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 26
26
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980.
(. VMI A BIO "
Rlmi 11475
Loðni sak-
sóknarinn
f/r^v v ./ .
WALT DlfNEV
PfiOOUCTIOH*
theSHA6€V
IXA.
Ný, sprcnghlægilcg og viö-
buröarík bandarisk gaman-
mynd.
Dean Joncs
Suzanne Pleshette
Tlm Conway
Sýnd kl. 5,7 og 9.
&
Sími18936.
Þrœlasalan
E£E^3|
Spennandi ný amcrisk stór-
mynd i litum og Cinema
Scope, gerö eftir sögu Alberto
Wasquez Figureroa um
nútimaþrælasölu.
Leikstjóri:
Richard Fleischer.
Aöalhlutverk:
Michael Caine,
Peter Ustinov,
Rex Harrison
William Holden
Beverly Johnson,
Omar Sharif,
Kabir Bedi.
Sýnd kl. 5, 7,30 og 10.
íslenzkur texti
Hækkaö verð.
VUGARAS
Sim.37075
Jötunninn
ógurlegi
Ný mjög spennandi bandarisk
mynd um visindamanninn
sem varö fyrir geislun og varö
að Jötninum ógurlega. Sjáiö
„Myndasögur Moggans”. ísl..
texti.
Aöalhlutverk:
Bill Bixby
og Lou Ferrigno.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
Bönnuö innan 12 ára.
TÓNABÍÓ
_ Siin. 31182 j
Sagan um O
(The Story of O)
O finnur hina fullkomnu full
nægingu i algjörri auðmýkt.
Hún er barin til hlýöni ogásta.
Leikstjóri:
Just Jaeckin
Aðalhlutverk:
Corinne Clery
Udo Kier
Anthony Steel
Bönnuð börnum
innan 16ára.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Óskarsverðlaunamyndin
Norma Rae
"ATRIUMPH”
J
Frábær ný bandarísk kvik-
mynd er alls staðar hefun
hlotið lof gagnrýnenda. í
april sl. hlaut Sally Fields
óskarsverfllaunin, sem bezta
leikkona ársins, fyrir túlkun
sína á hlutverki Normu Rae.
Leikstjóri: Martin Ritt.
Aðalhlutvcrk: Sally Fleld,
Beau Bridges og Ron Leib-
man (sá sami er leikur Kaz i
sjónvarpsþættinum Sýkn eða
sekur?)
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
AUSTURBÆJARRÍfi
Frumsýnum fræga og vinsæla
gamanmynd:
FriscoKid
Bráðskemmtileg og mjög vel
gerö og leikin, ný, bandarísk
úrvals gamanmynd i litum.
Mynd sem fengið hefur fram-
úrskarandi aösókn og um-
mæli.
Aöalhlutverk:
Gene Wilder,
Harrison Ford.
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5,7.15 og 9.30.
HISKOUÍIOÍ
Jarðýtan
BWD SPENCER
DE KALDTE HAM
BULLDOZER
Hressileg ný slagsmálamynd
með jarðýtunni Bud Spencer í
aöalhlutvcrki.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
-43*16-444
Undrin í
Amityville
Dulmögnuð og æsispennandi
ný bandarísk litmynd, byggö
á sönnum furðuviðburðum
sem gerðust fyrir nokkrum
árum. — Myndin hefur
fengiö frábæra dóma og er nú
sýnd viöa um heim við gífur-
‘lega aösókn.
Aðalhlutverk:
James Brolin,
Margot Kidder,
Rod Steiger.
Leikstjóri:
Stuart Rosenberg.
íslenzkur texti,
Bönnufl innan 16 ára.
Sýnd kl. 5,9og 11.15.
Hækkafl verfl.
EGNBOGII
TJ 1« OOO
- Mluri
FRUMSÝNING:
SϜlfarnir
Ensk-bandarisk stórmynd,
æsispennandi og viðburða-
hröð, um djarflega hættuför’
á ófriðartímum, með Gregory
Peck, Roger Moore, David
Niven.
Leikstjóri:
Andrew V. McLaglen
íslenzkur texti
Bönnufl bömum
Sýnd kl.3,6,9og 11.15
- aaiur
B
Foxy Brown
Hörkuspennandi og lífleg,
með Pam Gríer
íslenzkur texti
Bönnufl innan 16 ára.
Endursýnd kl.
3.05,5.05,7.05,9.05 ogll.05
-salur I
Sólarlanda-
ferðin
Hin frábæra sænska gaman-
mynd, ódýrasta Kanarieyja-
ferð sem völerá.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10,9.10
og 11.10.
-Mlur |
Mannrœninginn
Spennandi og vel gerö banda-
rísk litmynd með Linda Blair
— Martin Sheen.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 3.15, 5.15,7.15, 9.15
og 11.15.
B«OÍC|!
Flóttinn frá
Folsom fangels-
inu
(Jorico Mile)
'vJllÍ
Ný amerisk geysispennandi
mynd um líf forhertra glæpa-
manna í hinu illræmda
Folsom fangelsi i Kaliforníu
og það samfélag sem þeir
mynda innan múranna.
Byrjað var að sýna myndina
viðs vegar um heim eftir Can
kvikmyndahátíöina nú í
sumar og hefur hún alls
staðar hlotið geysiaösókn.
Leikarar:
Peter Strauss (úr „Soldier
Blue” + „Gæfa eða gjörvi-
leiki”)
Richard Lawson
Roger E. Mosley
Leikstjóri:
Michael MSnn
Sýnd kl. 5, 7.10, 9.20 og
11.30.
íslenzkur texti
Bönnufl bömum
innan 16ára.
Munið miðnætursýningu kl.
1:30 á laugardagskvöld.
ÆÆJARBIÓ*
— Sim^50J_841
Með djöfulinn
á hælunum
Ofsa spennandi amerisk kvik-
mynd.
Aðalhlutverk:
Peler Fonda
Warren Oales
Bönnufl börnum.
Sýnd kl. 9.
Síflasta sinn.
frjálst, dagblað
Daablaö
án ríkisstyrks
<s
Útvarp
Vinur Murphys, Stiles, er myrtur af klfku fanga f Folsom-fangelsinu.
Þegar múramir hrynja
Kvikmynd: Flóttinn frá Folsom-fangelsinu (Tho
Jericho Mile)
Leikstjóri: Michael Mann
Handrit: Patrick J. Nolan og Michael Mann
(byggt á sögu Patríck J. Noian)
Myndataka: Rexford Matz
Tónlist: Jimmy Haskell
MaöaÍ laikenda: Patar Strauss, Richard
Lawson, Roger E. Mosiay, Brian Dennehy,
Billy Greon Bush.
Sýningarstaður Borgarhfóifl
Flóttinn frá Folsom-fangelsinu
segir frá Rain Murphy, sem situr inni
vegna morðs. Hann einangrar sig frá
félögum sínum, er fáskiptinn jafnt
um eigin hagi sem annarra, og
blandar aðeins geði við vin sinn
Stiles, sem er negri. Tímanum eyðir
hann hlaupandi hring eftir hring í
Kvik
myndir
fangelsisgarðinum. Félagsráðgjafi
við fangelsið uppgötvar, að Murphy
hleypur miluna á undraskömmum
tíma, og að hann geti átt góða von
um að verða skærasta hlaupastjarna
Bandaríkjamanna á næstu Ólympíu-
leikum. Stjórn fangelsisins eygir auk
þess möguleika á því að Murphy geti
orðið öðrum föngum gott fordæmi,
og þykir ekki veita af.
En Murphy bregst hinn versti við,
og það er ekki fyrr en vinur hans
hefur verið myrtur af klíku fanga, að
hann fellst á að taka þátt í þjálfun-
inni og hlaupakeppnunum sem fram-
undan eru. Og árangurinn lætur ekki
á sér standa: hann hleypur hraðar en
Pcter Strauss leikur fangann Rain Murphy. Hann er islenskum sjónvarpsáhorf-
endum að góðu kunnur fyrir ieik sinn i hlutverki hins valdasjúka Rudy Jordache i
Gæfa cða gjörvileiki og titilhlutverki kvikmyndarinnar „Soidier Blue”.
helstu keppinautar hans, og aðeins
virðist eftir að bregða upp nokkrum
sigurmyndum af Ólympíuleikum og
Murphy á verðlaunastalli, og þá er
goðsögnin um úrhrak samfélagsins,
fangann, sem varð hetja, fullfrágeng-
in. Eða hvað?
Fram að þessu virtist mér myndin
fremur óljós og loðin; og meira að
segja helst til langdregin. En svo
virðist sem framleiðendur myndar-
innar hafi ekki ætlað sér að búa til
einhvers konar klisjukennda mynd á
borð við þá sem hér var nefnd.
Murphy er útilokaður frá keppni, af
því hann er fangi — af því hann er
morðingi föður síns. Úrtökukeppni
fyrir Ólympíuieika er ekki vettvangur
fyrir hann og hans líka — eða hvað? í
lok myndarinnar hleypur Murphy
miluna og grýtir að lokum skeið-
klukkunni frásér og hún mölbrotnar.
Allt er til einskis unnið — eða hefur
Murphy ef til vill brotið niður þá
múra Jeríkós sem umlykja hann í
fleiri en einum skilningi?
Þó myndin svari þessari, og fleiri
spurningum, ekki sérlega skýrt, er þó
litill vandi að sjá, að höfundar þess-
arar myndar stefna á dálítið önnur
mið en títt er um amerískar myndir af
svipuðum toga spunnar, og er það
vel. Það er að visu helst til greinilegt,
að handritshöfundar hafa ekki farið
neitt óskaplega langt frá mörgum
klisjum sem ganga aftur og aftur i
álíka kvikmyndum, og hefði
árangurinn áreiðaniega orðið betri,
hefðu höfundar myndarinnar verið
djarfari í efnistökum og efnismeð-
ferð. Og leikstjórnin hefði að ósekju
mátt vera hnitmiðaðri að mtnu viti;
a.m.k; finnst mér ótrúlegt.að maður,
sem neitar staðfastlega að ræða við
nokkurn mann um morð, sem hann
hefur framið, skuli brotna niður eins
og smástrákur að játa á sig búða-
hnupl frammi fyrir félagsráðgjafa,
bara af þvi ráðgjafinn segist vera
vænsti karl.
En að þessu frátöldu er hér um að
ræða allra þokkalegustu mynd að
minu viti, og ekki þætti mér ótrúlegt,
að hún ætti eftir að falla islenskum
kvikmyndahúsagestum ágætlega í
geð.
NÝJASTA TÆKNI 0G VISINDI - sjónvarp kl. 20,55:
VERDA BIFREIÐAR
NÁNAST ÓÞARFAR?
í sjónvarpsþættinum Nýjasta tækni
og vísindi, sem Örnólfur Thorlacius
rektor sér um, verða að þessu sinni
sýndar tvær bandarískar myndir.
Fyrri myndin fjallar um skóga og
nýtingu þeirra. Vakin er athygli á því
að skógarnir eru i raun óþrjótandi
náttúruauðlind ef rétt er haldið ái
málum, þ.e.a.s. skógarnir eiga að geta
endurnýjað sig sjálfir.
Lýst er stofnun sem til er í Banda-
rikjunum og fjallar um skóga og nýt-
ingu á jjeim. Þar eru framkvæmdar
margs konar rannsóknir varðandi
skógana. Talað er um að skógana megi
nýta langtum betur en nú er gert.
Nýtingin er sögð hafa verið afskaplega
léleg og eftir verði jafnan 30—50% af
greinum og ýmsu öðru, sem nýta mætti
í spónaplötur og því um líkt ef rétt væri
haldið á málum. Umrædd stofnun
vinnur nú að því að auka þessa
nýtingu.
Síðari myndin fjallar um borgar-
skipulag og nýjungar í þeim efnum.
Hér er um að ræða mjög brennandi
vandamál á límum orkukreppu og
skortsá landrými.
Bent hefur verið á að ýmsar stór-
borga Bandaríkjanna hafa þróazt gjör-
samlega án nokkurs skipulags og
áætlana. Sagt er frá tilraunum starfs-
hópa til að bæta úr þessu. Miða þær
ekki sízt að því að hvert borgarhverfi
geti verið sjálfu sér nógt og að bifreiðar
verði að mestu óþarfar. -GAJ.