Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980 - 212. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. I Samiö um launaflokkarööun hjá löjufélögunum, vörubílstjórum og verzlunarmömun: „FULL ALVARA AÐ BAKI WFALLSHEMLDfNNT formaöur löju, um verkfallsheinwU sem félag hans afíaöi sér í gserkvöldi 500 irilljarða fjárlagafnnwarp ,,Á félagsfundi í gær var borin upp tillaga um að veita trúnaðarmanna- ráði okkar heimild til verkfalls- boðunar. Tillagan var samþykkt samhljóða,” sagði Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, félags verksmiðju- fólks í Reykjavík, i samtali við Dag- blaðið í morgun. Landssamband iðnverkafólks samdi i gær við Vinnuveitendasam- bandið um röðun starfsheita í launa- flokka, en sams konar samkomulag hafði tekizt við Verkamannasam- bandiðá mánudaginn. „Þessi samningur í gær var stór áfangi á löngum tíma,” sagði Bjarni Jakobsson. „Samningum var sagt upp 1. des. 1979 og þeir voru lausir frá sl. ára- mótum. Róðurinn hefur verið bæði langur og erfiður. Ótal margt er eftir að semja um ennþá. Verkfallsheim- ildin sem við höfum aflað okkur er ekki til að sýnast, heldur býr full al- vara að baki.” Fundir stóðu yfir hjá ríkissátta- semjara til klukkan hálftvö i nótt. Náðist einnig samkomulag um röðun starfsheita í launaflokka hjá Lands- sambandi vörubifreiðastjóra og Vinnuveitendasambandinu. og einn- ig hjá Landssambandi isl. verzlunar- manna og Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur annars vegar og VSÍ hins vegar. Sáttafundur var boðaður kl. tíu í morgun. Verður reynt að semja um launaflokkaröðun hjá starfsfólki í veitingahúsum, Málm- og skipa- smiðasambandinu og Sambandi byggingamanna í dag. Þá voru í gær haldnir undirnefnda- fundir í kjaradeilu bókagerðarmanna og prentiðnaðarins og í deilu Flug- leiða við Félag ísl. atvinnuflugmanna og Félag Loftlei Jaflugmanna. - ARH Steingrlmur Hermannsson samgönguráðherra og cmbœttismannanefndin hitti Flugleiðatoppana á flugvellinum l morgun. Frá vinstri eru Birgir Guðjónsson og Þorsteinn Ingólfsson, þá Steingrímur Hermannsson ráðherra og Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri og síðan Flugleiðamennirnir Björn Theódórsson, Sigurður Helgason og Örn Ó. Johnson. DB-mynd: Sigurður Þorri. Luxemborgarviðræðumar hef jast kl. 14 í dag: — Flugleiðatoppamir í „einkaerindum” með sömu vél og hin opinbera sendinefhd til Luxemborgar Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra hélt I morgun til Luxemborgar til viðræðna við þarlend stjórnvöld \um erfiðleika Flugleiða. Viðræðurnar hefjast kl. 14 í dag og verður þar kannað á hvern hátt rikis- stjórnir landanna geti stutt við bak félagsins svo Atlantshafsflug fétagsins haldi áfram svo sem verið hefur. Með I föruneyti ráðherrans eru Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri og Birgir Guðjónsson frá samgönguráðuneytinu, en frá utanríkisráðuneyti Þorsteinn Ingólfsson og Henrik Sv. Björnsson. Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, örn Ó. Johnson, stjórnarfor- maður og Björn Theódórsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins, héldu einnig til Luxemborgar í morgun. Þeir eru ekki í hinni eiginlegu sendinefnd og sagðir í einkaerindum. Þess er þó að vænta að náið samstarf verði milli hinnar opinberu sendinefnd- ar og forystumanna Flugleiða. Sendi- nefndin og forystumenn félagsins hitt- ust í morgun i flugstöðinni í Keflavík og ræddu málin yfir kaffibolla í kaffi- teríu stöðvarinnar. Steingrímur Hermannssón sam- gönguráðherra lagði fram á ríkis- stjórnarfundi í gær sameiginlegar tillögur ráðherranefndar um aðstoð af opinberri hálfu. Rikisstjórnin samþykkti einróma tillögurnar og telur rétt að stuðla að því að Atlantshafs- flugið verði áfram með svipuðum hætti og verið hefur. í samþykktinni segir m.a. að Ijóst sé að sú ákvórðun Flugleiða hf. að draga mjög úr eða fella niður Atlantshafs- flugið muni hafa afar víðtæk áhrif i ýmsum þjónustugreinum og skapa óvissu um atvinnu fjölda manna, auk þess sem umtalsverðar tekjur rikis- sjóðs af flugi þessu falli niður. Tillögur ríkisstjórnarinnar fela i sér bak- tryggingu fyrir rekstrinum og að eign- araðild ríkisins verði aukin. Þá verði á- hættuflug og grundvallarflug aðskilið og samkomulag stjórnenda og starfs- fólks Flugleiða bætt. Gert er ráð fyrir því að viðræðununl í Luxemborg ljúki á hádegi á föstudag og er sendinefndin þá væntanleg heim. -JH. Stríðandi fylkingar sættar í kamhúsinu ~~ WB v® á samningafundi - sjá bls. 5 Heimiliskötturínn lenti / þvottavél — og slapp llfandi en úfinn og ringlaður — sjá bls. 9 Vaxandi andúð á efnahagsstefnu Thatchers — sjá erlent yfirlit á bls. 8 Rangers viija ðlmir fá 17 ára Blika-pilt í sínar raðir ___ — sjá íþróttir í opnu 'IMISRUIBIB Lesendur Dagblaðsins eru beðnir velvirðingar á því hve seint blaðið kemur út í dag. Það stafar af bilun í prentsmiðju blaðsins í morgun. SIGURÐUR, ÖRN 0G BJÖRN Á HÆLA SAMGÖNGURÁÐHERRA v

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.