Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980.
„Hinn stórkostlega gamanleik” kallaði þessi kona stjórnarskrána sem samþykkt
var I Chile fyrir nokkrum dögum. Samkvæmt henni tryggði Pinochet forseti sér
og herforingjastjórn sinni völdin í næstu sex ár. Veri legrar andstöðu gætti gegn
stjórninni i þessu máli en hún hlaut verulegan meirihluta i almennum kosningum.
El Salvador:
SPRENGJUR í
SENDIRÁÐI
Tvær handsprengjur útbúnar eins
og eldflaugar lentu á byggingu
bandaríska sendiráðsins í San Salva-
dor, höfuðborg Mið-Ameríkuríkisins
El Salvador, í gær. Ollu sprengjurnar
nokkrum skemmdum en enginn af
þeim sem í byggingunni voru særðist
að sögn talsmanns sendiráðsins.
Sprengjurnar lentu á þriðju hæð
byggingarinnar sem stendur í ntið-
borg San Salvador. Var þetta um há-
degisbilið en skömmu áður Itöfðu
fjórar smásprengjur sem innihéldu
áróðursmiða vinstrimanna sprungið i
nágrenni sendiráðsbyggingarinnar.
Ein sprengjanna hr'ggja sem lentu
á sendiráðinu fór í gegnum skothelt
gler i glugga og lenti þar inni á gólfi
einnar skrifstofunnar. Herbergið var
mannlaust þegar þetta varð.
I ögregla og herlið kom þegar á
veltvang og lokaði aðgangi að banda-
riska sendiráðinu. Engin merki munu
hafa fundizt um tilræðismennina. Að
sögn lögreglunnar í San Salvador var
skotið að sendiráðsbyggingunni í
sama mund sem sprengingarnar
urðu. Komu skotin frá bifreið sem ók
framhjá.
Nokkrum sinnum áður hefur
bandaríska sendiráðið í San Salvador
orðið fyrir skotárásum en aldrei
þannig að beitt hafi verið öflugum
sprengjum. Lögregluyftrvöld telja að
hér Itafi hryðjuverkantenn vinstri,
hreyfinga veriðá ferðinni.
Suöur-Kórea:
FOMNGISTJÓRNAR-
ANDSTÖDUNNAR
DÆMDUR TIL DAUDA
Helzti andófsmaðurinn gegn stjórn-
inni í Suður-Kóreu var dæmdur til
dauða fyrir herrétti í morgun. Var hann
fundinn sekur um að styðja kommún-
ista og hafa staðið fyrir ýmiss konar
aðgerðum sem andstæðar væru stjórn
landsins. Kim Dae Jung sem áður var
frambjóðandi til forsetaembættis í
Suður-Kóreu neitaði öllum ásökunum.
Er talið vlst að lögfræðingar hans áfrýr
málinu til æðri herréttar.
Tuttugu og þrír fylgismenn Kim Dae
Jung hlutu einnig dóma fyrir sams
konar starfsemi en þó ekki eins alvar-
legar ákærur. Þar á meðal eru háskóla-
prófessorar, stúdentar, fyrrverandi
þingmenn og kirkjunnar þjónar. Hlutu
þeir frá tveggja til tuttugu ára fangelsi.
Kim Dae Jung hlaut 45% atkvæði í
forsetakosningum árið 1971 en þá var
Park Chung Hee talinn hafa sigrað.
Kim Dae Jung, helzti andstæðingur Park var ráðinn af dögum i fyrra.
stjórnvalda í Suður-Kóreu, sem nú Voru þetta síðustu frjálsu kosningar
hefur verið dæmdur til dauða. sem fram hafa farið í Suður-Kóreu.
Bandaríkin:
Carter kominn
yfir Reagan
— stöðugur áróður Jimmy Carters fyrir því að Ronald
Reagan sé óhæfur í forseta
embættið virðist bera árangur
Skoðanakönnun sem birt var i
Bandaríkjunum í morgun bendir til
þess að fylgi Jimmy Carters sé nú
orðið meira en Ronalds Reagans
keppinautar hans um forsetaem-
bættið í Bandarikjunum. Skoðana-
könnunin er gerð eftir að Carter
Bandaríkjaforseti hefur lokið tveggja
daga fundaherferð um heimaríki sitt
Georgíu, Texas, Suður-Karólínu og
Ohio.
Könnunin er gerð á vegum CBS
sjónvarpsstöðvarinnar og The New
York Times. Samkvæmt henni er
Carter sagður njóta fylgis 38% kjós-
enda, Reagan 35% og John Ander-
son 14%.
Fyrir cinum mánuði var Reagan
nteð mikla forustu í sams konar
könnun. Hafði hann þá fylgi 43%
kjósenda, Carter 27% og Anderson
13%.
Könnun CBS og Thc New York
Times bendir í sömu átt og aðrar
kannanir sem gerðar hafa verið upp á
síðkastið. Carter forseti hefur mjög
unnið á en Ronald Reagan, fram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins,
tapaðaðsama skapi.
Gerist þetta eftir að Carter var
endurútnefndur sem forsetaefni
Demókrataflokksins. í fundaher-
ferðinni, sem áður var nefnd, iagði
Carter rika áherzlu á það i ræðum
sínum að Ronald Reagan væri alls
ekki hæfur til að gegna embætti for-
seta Bandarikjanna. Var Carter
óspar á að minna kjósendur á ýmis
mistök sem Reagan hefði orðið á i
ræðuflutningi sínum. Má þar nefna
óþægileg ummæli um Kína og
Taiwan og einnig þegar Reagan
sakaði Carter um að hafa slutt Ku-
Klux-Klan hreyfinguna í Georgiu á
sínum tíma.
Carter virðist nú i fyrsta sinn njóta
meira fylgis en keppinautur hans
Reagan eftir að kosninga baráttan
vestra hófst fyrir aivöru.
Jámbrautarmenn
styðja hafnar-
verkamennina
Samtök járnbrautarverkamanna í
Bretlandi hétu þvi í gær að styðja verk-
fall brezkra hafnarverkamanna en það
hefur verið boðað frá og með næsta
mánudegi. Mundi það þá ná til áttatíu
helztu hafna i Bretlandi. Stuðningur
járnbrautarmanna táknar það að þeir
munu ekki taka að sér flutning á vörum
sem ella færi um hafnirnar ef til verk-
lallsins kemur.
Til þess er boðað til að mótmæla
fyrirætlunum um að segja upp 178
verkamönnum við höfnina í Liverpool
en ráðamenn þar segja að ekki séu
lengur verkefni fyrir þá við höfnina.
Hafnarverkamenn í Bretlandi fengu
nokkurs konar tryggingu fyrir þvi að
halda starfi sínu ævilangt eftir verkfall
árið 1972. Hafnaryfirvöld i Liverpool
segja að ekki sé annað hægt en segja
hinum 178 upp vinnu.
Forustumenn verkamanna liafa
ásakað hafnaryfirvöld um að hafa ekki
reynt að útvega mönnunum 178 önnur
störf áður en þeim var sagt upp. Upp-
sagnirnar eiga að taka gildi frá og með
næstu mánaðamótum.
Einn þingmanna stjórnarandstöðu
Verkamannaflokksins, Bob Parry,
hefur tilkynnt að hann ætli að krefjast
þess að brezka þingið verði kallað
saman ef til verkfallsins kemur. „Það
gæti orðið löng og hörð barátta sem
kostaði bæði blóð og svita,” sagði
þingmaðurinn við fréltamenn.
Byggingin á myndinni er í Jerúsalem eöa þeim hluta borgarinnar sem ísraelsmenn hertóku í sex daga stilðinu árið 1967. ÆH-
unin er að byggingin hýsi í framtíðinni ísraelska forsætisráðuneytið. Fyrir forustu ríkisstjórnar Menachem Begins hefur
verið ákveðið að höfuðborg Israelsríkis verði Jerúsalem í framtíðinni. Sagt er að Begin hafi frestað flutningi skrifstofu sinnar
um sinn til borgarinnar en sé cngu að síður ákveðinn í að gera það innan tiðar. Jerúsalemborg er heilög I augum þriggja
trúarbragða: gyðinga, kristinna og múhameðstrúarmanna. Borgin var áður á yfirráðasvæði Jórdanlu. Óttazt er að flutn-
ingur höfuðborgar tsraels þangað geti dregið alvarlegan dilk á eftir sér.