Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980. 11 Enn stækkar fiskiskipafloti landsmanna. Hér siglir nýjasti skuttogarinn, Hólmanes SU-220, inn til Eskifjarðar nýlega. DB-mynd: Emil Thorarensen. Næsta stórverkefni f endurnýjun fiskveiðiflotans: MINNIBÁTARNIR ÚR- ELTIR OG ENDURNÝJUN ÞEIRRA NAUDSYNLEG — stefnt að samstarfi við raðsmíði íslenzkra fiskiskipa Það mun samdóma álit þeirra sem gerst þekkja að vertiðarbátar, rækju- bátar og fleiri bátar al stærðinni 20— 250 brúttórúmlestir komist senn á jafn úrelt tæknistig og gömlu síðutogararnir. í byrjun ársins voru 255 skip íslenzka fiskiskipaflotans 20 ára og eldri og eftir 2—3 ár verða þau orðin meira en 400. Langflest skipin eru af áðurnefndri stærð. Þennan hluta skipaflotans þarf því að endurnýja á næstu árum og kemur þá væntanlega verulega til kasta íslenzks skipaiðnaðar. Það kom fram á fundi Félags dráttarbrauta og skipa- smiðja í gær, að félagið telur nauðsyn- legt að fljótt verði við brugðið i þessum efnum og því hafi félagið hrundið af stað sérstöku þróunarverkefni í sam- ráði við sjávarútvegs- og iðnaðarráðu- ráðuneytið. Því verkefni er ætlað að búa íslenzka skipaiðnað undir að leggja sinn skerf til að hafa áhrif á þessa þróun. Hér sé að skapast tækifæri til veru- legs átaks í íslenzkri skipasmíði. Verði ekkert að gert muni það leiða til gífur- legrar innflutningsbylgju líkt og þegar skuttogarainnflutningurinn var sem mestur. Samstillt átak skipasmíða- stöðvanna í samvinnu við opinberra aðila gæti aftur á móti komið í veg fyrir slíkan innflutning. Samstarfsverkefnið er fólgið í hönnun og raðsmiði fiskiskipa og er það nú þegar komið nokkuð á veg. Verkefnið er fólgið í því að sýna fram á 'eftirfarandi megin markmið: í fyrsta lagi endurnýjunarþörf bátaflotans. Þá að hanna í samráði við utKerðaraðila og þátttökulyrirtækin þrjár til fjórar gerðir alhliða fiskiskipa með mestu lengd milli 20 og 39 metra. Vinna hönnunarvinnu verði unnin sem mest á samstarfsgrundvelli til þess að lækka kostnað. Þá þarf að gera samræmdar og ítar- legar tilraunir með líkön af þeim skipum sem hönnuð verða, til að tryggja sjó- og mótstöðuhæfni þeirra. Einnig þarf að koma af istað og samræma raðsmíði þeirra skipa sem ákveðið verður að smíða hjá íslenzkum skipasmiðastöðvum eftir ofangreind- um teikningum og ná með þeim hætti fram sem skemmstum smíðatíma og lægstu söluverði. Að lokum þarf að skapa með þessu samstarfsverkefni grundvöll fyrir því að stjóruvöld og fjármögnunaraðilar samþykki að umrædd raðsmíði fiskiskipa fari fram án þess að kaupsamningar hafi verið gerðir fyrirfram. Hjörleifur Guttormsson iðanaðar- ráðherra hefur lagt fram i ríkisstjórn- inni tillögu um raðsmíði 10 skipa af þessari stærð, þ.e. 200—300 tonna skip á 5 næstu árum. Þá verði einnig efldir sjóðir til þess að kaupa gömul skip. í tillögunni er gert ráð fyrir því að leyfð verði smiði átveimurskipum án þess að fyrir hendi sé kaupsamningur. Fram hafa komið fjórar tillögur um hin nýju skip, sem yrðu 21, 23,6,26 og 38,9 metrar að lengd. Bátarnir þurfa að vera stæf.1 og betri en þeir sem nú eru í uotkun og verður á næstunni rætt við útgerðarmenn um tillögur að hönnun bátanna. -JH. Samkomulag milli fóstra og fjármálaráðuneytisins: FÓSTRUNEMAR AFTUR HL VERKLEGS NÁMS — samkomulagið háð samþykki félagsfundar í kvöld Samkomulag náðist í gær milli Fóstrufélagsins og fjármálaráðu- neytisins um verklegt nám fóstru- nema. 48 nemar á þriðja ári Fóstru- skóla íslands voru sendir heim af dagvistunarheimilum á höfuðborgar- svæðinu í fyrradag. Fóstrur á heimilunum neituðu að taka við nemunum vegna kjaradeilu um þóknun fyrir kennslu nemanna. Kristín Kvaran, formaður Fóstru- félags íslands, sagði í gær, að sam- komulag það sem náðst hefði þýddi að fóstrurnar fengju greidda 6 yfir- vinnutíma fyrir kennsluna fram að áramótum, en 8 tima eftir áramót. þ.e. fyrir hvern mánuð. Þetta byggist á sameiginlegri niðurstöðu sem áður hafði náðst milli menntamálaráðu- neytis og Fóstrufélagsins. Samkvæmt áður gildandi samningum voru greiddir I3 yfirvinnutímar fyrir þessa kennslu fóstranna. Samkomulag þetta er háð sam- þykki félagsfundar, en hann verður haldinn i kvöld kl. 20.30. Kristín sagði það vera rangtúlkun, sem fram kom í Þjóðviljanum í gær, að fjár- málaráðuneytið hefði hafnað tilboði fóstranna um 6 og 8 tima. Ekkert tilboð hefði verið lagt fram af þeirra hálfu, en hin sameiginlega niðurstaða félagsins og menntamálaráðu- neytisins hefði verið lögð fyrir fjár- málaráðuneytið i gær og það hefði samþykkt niðurstöðuna. Fóstrunemarnir studdu kröfur og aðgerðir fóstranna fyrir þessari þóknunm og töldu hið verklega ná ómissandi lið. -JH: Varðskip til móts við nýju þyrluna — „Mjög vandaður gripur” segir Pétur Sigurðsson Tveir flugmenn og flugvirki eru nú í Bandarikjunum við þjálfun á nýju þyrlu Landhelgisgæzlunnar, TF-RÁN. Að sögn Péturs Sigurðssonar, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, mun varðskip sigla á móti þyrlunni og er ætlunin að þau mætist við Nýfundnaland upp úr næstu helgi. Pétur sagði þyrluna mjög hentuga til allra gæzlustarfa, bæði við flutninea og björgunarstörf. Hún er óvenju hraðfleyg af þyrlu að vera, getur náð 370 km hraða á klst. en hagkvæmasti flughraðinn er um 260 km/klst. Þyrlan er einnig mjög langfleyg, hún ætti auðveldlega að geta fiogið í kringum landið meðfram ströndinni án þess að taka eldsneyti. Með því að setja í hana auka eldneytistanka mætti auka flug- þolið enn meira og gæti þyrlan þá sótt sjúklinga langt suður í Atlantshaf. Þyrlan getur lent á fjórum varðskip- anna, Ægi, Týr, Óðni og Þór. Þyrlan kostaði um 850 milljónir. -KMU. Juvena, snyrtinámskeið Fyrir konur á öllum aldri. Kennum umhirðu húðarinnar, handsnyrtingu, dagsnyrtingu og make up. — Allar uppl. og innritun i síma 76685 frá kl. I—5 næstu daga. Maria Kristmanns Brynhildur Þorsteins snyrtifræAingar VITAVÖRÐUR HORNBJARGSVITA óskar að ráða konu sem aðstoðarvitavörð. Uppl. á Vitamálaskrifstofu, Seljavegi 32, sími 27733. IÐNAÐARHÚSNÆÐI ÖSKAST Ca 100 m2 iðnaðarhúsnæði óskast til leigu í Reykjavík eða Kópavogi. Upplýsingar í síma 75475 á kvöldin. Starf skrifstofumanns við Almannavarnir ríkisins er laust til umsóknar og veitist frá og með 1. nóv. nk. Uppl. um starfið veitir framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins og skulu umsóknir berast honum fyrir 23. sept. nk. Almannavarnir rikisins. TO YOTA-SALURINN —"Já Nýbyíavegi 8 fí portinu) Opið Jaugardagá auglýsibj Árg. kl. 1-5. Ekinn Verð Toyota Cressida hardtop, sjálf- skiptur 78 46 þús. 6,3 Toyota Cressida station 78 52 - 5,8 Toyota Cressida station 78 84 - 5,7 Toyota Cressida sjálfsk. 4ra dyra 77 58 - 6,0 Toyota Cressida 4ra dyra, 5gira 78 46 - 5,4 Toyota Carina 4ra dyra 76 65 - 3,8 , Toyota Carina 4ra dyra 77 78 - 4,5 Toyota Corona Mark II 4ra dyra 77 60 - 4,5 Toyota Land Cruiser, disil 77 92 - 62 Toyota High Ace sendibill 74 116 - 2.9 Toyota Starlet ■80 6 - 5.7 Toyota Starlet SDL 79 10 - 4,8 TOYOTASALURINN NÝBÝLAVEGl8, KÓP. SÍM!44144. Höfum til afgreiðslu strax Suzuki TS 50 og GT50. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. • SUZUKIUMBOÐID Ólafur Kr Sigurðsson hf. Tranavogi 1, Reykjavík. Símar 83484 og 83499. SUZUK11980 1980

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.