Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980.
Verksmiðjustörf
Hampiðjan hf. óskar eftir að ráða fólk til
verksmiðjustarfa. Unnið er á tvískiptum
vöktum fimm daga vikunnar, aðra vik-
una frá kl. 7.30 til 15.30, hina frá kl.
15.30 til 23.30. Einnig möguleiki á
næturvakt eingöngu. Mötuneyti á
staðnum. Vinsamlegast hafið samband-
við verksmiðjustjóra Hektor Sigurðsson
. eða Davíð Helgason milli kl. 10 og 12
næstu morgna. Ekki í síma.
Finnski píanóleikarinn
Pekka Vapaavuori
heldur tónleika í Norræna húsinu fimmtudaginn
18. september 1980 kl. 20.30 og leikur verk eftiri
Bach, Beethoven, Debussy, Kullervo Karja-.
lainen og Einojuhani Rautavaara.
Aðgöngumiðar í kaffistofu hússins og við iiin-
ganginn. Verð kr. 2.000.
Allir velkomnir
RENNIBEKKUR
Óskum eftir rennibekk fyrir járniðnað.
LISTSMIÐJAN HF.
Skemmuvegi 16. Sími 75502.
BODDl-HLUTIR
Eigum fyrirliggjandi bretti i eftirtaldar,
bifreiöar:
VW1300
Mini
Audi '80
Passat
Fiat 127-132
Datsun 120 Y
Renautt 4 og 5
Peugeot 504
Volvo '69-'78
Saab 96 og 99
Opel R. '72 *77
Lada1200
M. Banz
Sbnca 1100 og 1307
ogfleiri.
Varahlutir - Ármúla 24 - Sími 36510.
ANTIK
Dragkista frá Viktoríu-tímabil-
inu til sölu. Staðgreiðsla. Uppl.
í síma 19227 kl. 19—21 í dag
og næstu daga.
K0LSÝRU- 0G ARG0N
SUÐU’
VÉLAR
Eigum örfáum 160
amp. og 250 amp.
vélum óráðstafað úr
nýrri sendingu.
Verð ótrúlega hag-
stætt.
Greiðsluskilmálar.
Ö. ENGILBERTS-
S0N HfF.
Auöbrekku 51.
Sími45640
BNOC-olíuverðið er ennþá leyndarmál:
„Sennilega töpum
við á þessu núna”
— segir Tómas Ámason um samningana við brezka
ríkisolíufyrirtækið BNOC en „það er hein tilviljun”
„Sennilega eru horfur á að við töp-
um á þessu níina. Það er hrein
tilviljun,” sagði Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra á blaðamanna-
fundi í gær aðspuröur um þá samn-
inga um oiíukaup sem fsiendingar
hafa gert við brezka ríkisolíufélagið
BNOC.
Aðspurður kvaðst Tómas ekki
vilja gefa upp verðið á gasolíunni,
sem samið hefur verið um kaup á frá
BNOC. Dagblaðið hefur hins vegar
heimildir fyrir því að verðið á fyrsta
farminum af fjórum, um 20 þúsund
tonnum af gasolíu, sé um 320 doll-
arar tonnið, sem er um 40—50
dollurum hærra en Rotterdamverð.
Tómas sagðist ekki vilja gefa
verðið upp vegna þess að allt annað
verð væri þarna lagt til grundvallar
Tómas Árnason viðskiptaráöherra og Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri:
llæpió aó dreifa oliuvióskiptunum vióa. DB-nivnd: Sitt. Þorri.
en varðandi Rotterdam-verðið. Hjá
BNOC væri um að ræða svokallað
,,main stream” verð sem er meðal-
verð á mörkuðum Vesturlanda.
Olían frá Sovétríkjunum væri hins
vegar á Rotterdam-verði þar sem
verðsveiflur væru mjög miklar.
Tómas viðurkenndi að eins og er
væri BNOC-verðið hærra en Rotter-
dam-verðið. Hann sagði, að eins og
er væri ekki raunhæft að bera þetta
saman. „Við erum með fast verð
fram í janúar en á þeim tíma gæti
Rotterdam verðið breytzt mjög,”
sagði Tómas og bætti því viðk, að því
væri ekki ljóst fyrr en í janúar
hvernig dæmið kæmi út. Því vildi
hann engar tölur nefna nú þar sem
þær mætti túlka á ýmsa vegu.
Tómas sagði ástæðuna fyrir því að
ráðizt hefði verið í þessi kaup einkum
vera þá, að olíukreppan hefði haft
þau áhrif að Rotterdam-verðið hefði
sveiflazt mjög upp. „Við vildum
meiri stöðugleika,” sagði ráðherr-
ann. „Það sem við þurfum að leggja
áherzlu á í sambandi við olíuviðskipt-
in er öryggið. Það er eðlilegt að við
reynum að dreifa -okkar viðskiptum
en það er erfitt vegna þess að við
erum svo smáir. Ég tel mjög hæpið
að dreifa þessu á fleiri en þrjá
staði,” sagði Tómas. -GAJ.
Skáldgáfa íslendinga í góðu lagi:
Á ANNAÐ HUNDRAÐ
SMÁSÖGURBÁRUST
— í smásagnasamkeppni Vikunnar
Skáldagyðjan hefur ekki aldeilis
gefið íslendinga upp á bátinn ef marka
má þátttöku i smásagnakeppni, sem
vikubiaðið Vikan gekkst fyrir í sumar.
Ekki færri en 125 sögur báíust á tilsett-
um tíma og síðdegis í gær voru enn að
berast handrit. Skilafrestur rann út 10.
september.
Það er enda til nokkurs að vinna í
smásagnasamkeppni Vikunnar. Fyrstu
verðlauna eru hálf miiljón króna,
önnur verðlaun 300 þúsund krónur og
þriðju verðlaun 150þúsund.
,,Nú fer dómnefndin að lesa sög-
urnar sem bárust og verður væntaniega
„Júgóslavarnir virðast eiga í erfið-
leikum með fjármögnun kaupanna, en
ég lá von á lað frá þessu verði gengið á
fundi annað hvort í London eða
Belgrað á næstunni,” sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða
þegar Dagblaðið spurði um sölu
tveggja eldri Boeing 727-100 véla
fyrirtækisins til Air Adria í Júgóslavíu.
Samningar um sölu vélanna til Júgó-
slavíu hafa legið fyrir um skeið en
kaupendur höfðu ekki tryggt sér nægt
að þvi að minnsa kosti sex næstu vik-
urnar,” sagði Sigurður Hreiðar, rit-
stjóri Vikunnar, í samtali við DB í gær.
„Fyrr en því er lokið verður ekkert
hægt að segja til um hverjir eru meðal
þátttakenda, því allar sögurnar eru
eingöngu merktar dulnefnum. En á
dauða okkar áttum við von frekar en
þessari gífurlegu þátttöku.”
Þess má geta, að reikningsglöggir
menn á ritstjórn Vikunnar hafa reiknað
út, að einn af hverjum 1840 íslend-
ingum hafi tekið þátt í samkeppninni.
fjármagn til kaupanna og því var
dráttur á að ganga endanlega frá sölu
vélanna. Höfðu Júgóslavarnir frest til
15. september, en sá frestur hefur nú
verið framlengdur sem fyrr segir.
Fram kom á fréttamannafundi
stjórnenda Flugleiða 8. september sl.
að fyrirtækið ætlar að taka eina 727-
100 vélá leigu frá 15. marzánæsta ári í
stað þeirra sem seldar verða.
Ung hjón hefja búskap
í Árneshreppi:
Ekki gerst
í áratugi
í Árneshreppi á Ströndum eru
fleiri áratugir síðan börn hafa byggt á
jörð foreldra sinna. En nú hafa ung
hjón, Jón Elias Jónsson og Ingibjörg
Hermannsdóttir, hafið búskap á
jörð foreldra Jóns, Munaðarnesi.
Þau eru að byggja íbúðarhús en í
kjallara þess ætla þau að hafa kyndi-
klefa og geymslu fyrir rekavið sem
þau ætla að nýta til upphitunar en
húsið verður samt sem áður að mestu
hitað upp með rafmagni.
Munaðarnes er mikil rekajörð,
stutt er á sjóinn í sel-, grásleppu- og
handfæraveiðar og grasið er kjarn-
gott.
Vilja ungu hjónin, en þau eiga
fjögur börn, eindregið ráðleggja
fólki aðala upp börn sín í sveit, helzt
á afskekktum stöðum, því Jón segist
þegar vera farinn að sjá mikinn mun
á börnum sínum síðan þau komu frá
ísafirði í vor. Sveitin sé miklu heppi-
legri uppeldisstaður fyrir börn en
kaupstaðurinn þar sem börnin mega
hvergi vera og alls staðar leynast
hætlur-________-ReginaAKMU.
Þrjár hljómsveitir
á SATT-kvöldi
í kvöld
Hljómsveitirnar Start, Demo og
Jazzkvartett Reynis Sigurðssonar
köma fram á tónlistarkvöldi Samtaka
alþýðutónskálda og -tónlistarmanna,
SATT, sem haldið verður á Hótel
Borg í kvöld. Þorgeir Ástvaldsson
verður einnig á s.taðnum. Hann sér
um kynningar og leikur íslenzkar
hljómplötur.
í nýstofnuðum Jazzkvartetti
Reynis Sigurðssonar eru auk hans
Þursaflokksmennirnir Ásgeir Óskars-
son, Þórður Árnason og Tómas
Tómasson. Forvitnilegt verður að
heyra hvað þessir ágætu spilarar hafa
upp á að bjóða.
Upphaflega átti að halda þetta
SATT-kvöld á síðasta miðvikudag.
Því var frestað af óviðráðanlegum
ástæðum.
-ÁT.
Sala tveggja Boeing-véla Flugleiða
til lúgóslavíu:
Fresturinn
framlengdur
— til að ganga frá sölunni
-ARH.