Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980. hverjir öðrum gagnkvæma tillits- semi, m.a. með því að gefa stefnu- merki í tíma áður en við beygjum — hinir þurfa að veita því athygli og gefa örlítið eftir af svokölluðum rétti sínum, jafnvel þótt þeir séu á stórum drekum og lítil púta ætli að beygja. En það er þetta með réttinn. í mínum huga á þetta réttarkjaftæði fjölmargra aðila mikinn þátt í því umferðarvandamáli sem hér ríkir. Umferðarlög gera ekki ráð fyrir ótvíræðum rétti eins og á kostnað annars, þvert á móti er ætlast til í þeim að aðgæsla og sæmilega skýr hugsun ráði ferðinni. Reyndin er aftur á móti sú að hér vill það verða hugtakið „hérerég / fariðþiðfrá” sem ræður. Svo kippir sér enginn upp við það lengur þótt orðin umferð og vandamál séu orðin að einu orði, og það þykir sjálfsagt mál, að hér séu umferðarvandamál á dagskrá allan ársins hring. Mér hefur stundum dottið í hug hvort ýmislegt í fari íslenskra vegfar- enda megi rekja allt til ársins 874 þeg- ar forfeður okkar flúðu áþján og álögur Haralds Noregskonungs og lögðu á flótta hingað til íslands. Ég geri ekki ráð fyrir að hann Flóki hafi verið ánægður með norsk umferðar- lög á sínum tíma á Flókagötunni sinni i Noregi. Það skyldi þó aldrei vera að enn þann dag í dag renni í æðum okkar blóð þessara manna sem ekki sæltu sig við þær reglur sem þeim voru settar. Þvi hlýtur talsvert að þurfa til að aðlaga okkur ströng- um reglum nútima umferðar sem byggjast m.a. á umhyggju, varkárni og tillitssemi. Því miður grunar mig að í um- ferðinni í dag aki fjölmargir sem leggja miklu meira upp úr því að vera á fínum og fallegum bílum heldur en að tileinka sér og fara eftir þeim reglum, sem við eiga í umferðinni. Á meðan þessi hugsunarháttur ríkir hjá stórum hópi manna eru ekki líkur á að vel fari. Það má ekki gleymast að til þess eru umferðarlög sett að farið sé eftir þeim á nákvæmlega sama hátt og eftir öðrum landsins lögum. Drykkjumenn undir stýri Ég geri ekki ráð fyrir að fólki sem hér á landi ekur nær daglega undir á- fengisáhrifum dytti í hug að brjótast inn til nágrannans til þess að stela frá honum. Hitt finnst þeim sjálfsagt að stofna lífi fjölmargra vegfarenda í hættu með áfengisakstri. Nei takk fyrir. Slíkt háttalag eigum við að stöðva og segja til slíkra manna hvar sem þeir eru annars staddir í þjóð- félagsstiganum. Það eru ekki miklar likur á að þeir slasi sjálfa sig i dollaragrínunum sínum, þeir eru til- tölulega vel varðir inni í þeim, ég tala nú ekki um hafi þeir rænu og þrótt til þess að spenna á sig bílbeltin. Það er svo aftur annað mál hvort yfirvöld eiga að halda áfram á tollabraut sem hvetur til innflutnings á litlum og veikbyggðum bílum, sem engan veginn standast nútíma kröfur um öryggi og góða endingu. Meiri hluti bifreiða í eigu landsmanna eru bílar sem framleiðendur beinlínis ætlast til að fari i bílapressur sem ónýtir eftir fárra ára notkun. Hjólbarðar eru mikið öryggisatriði i umferðinni. Þá ætti að gera eins ódýra og hægt er með tilfærslu aðflutningsgjalda. Þá myndu skitblankir tslendingar ekki þurfa að leggjast svo lágt að kaupa innflutta, notaða hjólbarða. Lappafl upp á gömul hrœ Hér á landi er svo verið að lappa upp á algjör hræ árum saman og ekkert er rætt um að það fer að heyra fortíðinni til að bílar hafi verið þannig gerðir í upphafi að þeir séu endurbyggingarverðir. Verðbólgu- sjúkt þjóðfélag okkar kallar á tekjur og aftur tekjur og tollheimtu- mennirnir á Alþingi sjá ekkert athugavert við það að tolla varahluti í bílana okkar svo hátt, að ég fullyrði að það kemur niður á örygginu og þeim kröfum, sem við verðum að gera til bifreiða í dag svo þær valdi ekki hættu í umferðinni. Meira að segja hjólbarðar sem eru nokkurs konar hornsteinar öryggis í akstri eru hér svo dýrir að menn aka á sléttslitnum hjólbörðum mánuðum saman og verðleggja sjálfa sig, fjöl- skyldu og aðra samferðamenn svo lágt að matið nær ekki verði nýrra hjólbarða. Má ég biðja um stefnubreytingu stjórnvalda í þessum málum. Stuðl- um að auknum innflutningi sterk- byggðra bíla með tilfærslu aðflutningsgjalda. Gerum hjólbarða og varahluti í öryggisbúnað bifreiða eins ódýra og frekast er kostur. Þá losnum við kannski við þá furðulegu staðreynd að það borgi sig að flytja inn notaöa hjólbarða sem gegnt hafa hlutverki sínu á erlendum ak- brautum og selja þá skítblönkum íslendingum. Hvaða vit er i svona löguðu? Við megum ekki einblína á orkuverð í vali okkar á bílum. Mér l'innst mikið gefandi fyrir aukið um- ferðaröryggi og finnst að það ætti á allan mögulegan hátt að stuðla að því að það séu ekki forréttindi tillölu- lega fárra í þjóðfélaginu að aka á sterkbyggðum bifreiðum. Slysin kosta stórfó Eitt af því sem hefur mikil áhrif á háttalag okkar og venjur í um- ferðinni eru umferðarlegar aðstæður. Mjög mikið vantar á að gatnakerfið i dag fullnægi þeim kröfum, sem nútíma umferð þarf að byggjast á. Góð ráð sem reynt er að gefa vegfar- endum mega sín lítils gegn vanhæfu gatnakerfi, sem þó er reynt að bæta eftir því sem tök eru á. í þessum efnum, sem öðrum skortir fé. En við skulum ekki gleyma því að hvert slys sem rekja má til þeirra ástæðna, sem ég hef verið að benda á kosta þjóð- félagið stórfé og aðstandendur miklu meira í sorg og ástvinamissi. Við hljótum að hafa efni á að bjarga mannslífum. En eftir hverju bíðum við? Er nokkuð sem bendir til þess að i náinni framtíð verðum við betur i stakk búin fjárhagslega til þess að gera róttækar breytingar í tolla- málum, stórauka fyrirbyggjandi aðgerðir í formi umferðarfræðslu eða að byggja umferðarmannvirki sem hæfa nútímaumferð, s.s. göng undir akbrautir og brýr yfir fjölfarin gatnamót? Ég held ekki. Því fyrr sem við hefjumst handa af stórhug því betra. Köstum nú frá okkur skammtímalausnum og látum hendur standa fram úr ermum. Byrjum á því að byggja brú milli stjórnvalda og al- mennings sem þolir mikla umferð djarfhuga ákvarðana — spennum bogann hátt en ekki svo að við gleymum að spenna bílbeltin. ^ Má ég biöja um stefnubreytingu stjórnvalda í þessum máium. Stuðlum aö auknum innflutningi sterkbyggöra bila með til- færslu aðflutningsgjalda. Gerum hjólbarða og varahluti í öryggisútbúnað bifreiða eins ódýra og frekast er kostur. Þá losnum við kannski við þá furöulegu staðreynd að það borgi sig að flytja inn NOTAÐA hjólbarða, sem gegnt hafa hlutverki sínu á erlendum akbrautum og selja þá skítblönkum íslendingum. Hvaða vit er í svonalöguðu ... ?” Ef til vill — og vonandi — kemur það i hlut þess Alþingis sem nú situr að rétta upp hendur til samþykkis stjórnarskrá sem samræmist nútfmanum. höfðu konungkjörnir þingmenn stöðvunarvald í annarri deildinni. Þvi má ef til vill segja að tví- skipting Alþingis hjá okkur sé arfur frá dönskum kóngi á síðustu öld. ÖII helstu mannréttindi voru tryggð í stjórnarskránni, svo sem friðhelgi heimilis og eignarréttar, prent- og fundafrelsi o.s.frv. Stjórnarskráin 1944 Við lýðveldistökuna fengu íslendingar stjórnarskrá, sem þó var í ýmsum veigamiklum tilvikum byggð á stjórnarskránni frá 1874. Þess ber að geta að breytingar á stjórnar- skránni bar nokkrum sinnum á góma á nítjándu öldinni en engar breyting- ar verða á stjórnskipunarlögum fyrr en með heimastjórnarlögunum í byrj- un aldarinnar. Er landið varð sjálf- stætt ríki árið I9I8 var stjórnar- skráin aðlöguð því er tók til utan- rikismála og samskipta ríkisstjórna og konungs. Voru þá yfirleitt sam- þykkt lög Alþingis símuð konungi sem svo sendi staðfestingu sina á þeim og þá oft með skeyti. Það fyrir- komulag hélst allt til 1940 með til- komu ríkisstjóra, Sveins Björns- sonar, og yfirtöku konungsvaldsins. Lýðveldisstjórnarskráin er í sjö aðgreindum hlutum og 81 grein alls. Þar er fyrst að telja lýsingu stjórn- skipulags, þá kafli um forsetann, og allt sem tengist embætlinu, valdsviði þess og kjöri í það. Þá koma tvær greinar er lúta að Alþingi, kjör- dæmaskipun og starfsháttum Alþingis. Þá er að geta tveggja greina er lúta að dómstólum, dómsmála- skipan og allri meðferð mála þar að lútandi. Loks er einn kafli um þjóð- kirkjuna. Stjórnarskrá þessi er að meginstofni stjórnarskráin frá 1874 utan þeirra viðauka, sem eru í sambandi við tilkomu lýðveldis 1944. Ójafn kosningaréttur Það mál sem oft verður uppi á teningnum í umfjöllun um stjórnar- skrána er misvægi atkvæða í ein- stökum kjördæmum. Þetta er af- leiðing þeirra byggðaröskunar og tilfærslna á fólki milli kjördæma frá því að siðasta breyting á stjórnar- skránni var gerð árið 1959 er ein- menningskjördæmi voru afnumin og stærri kjördæmi tekin upp. Nú er svo málum komiðaðeitt atkvæði á Vest- fjörðum er á við fimm atkvæði í Reykjaneskjördæmi. Það verður að telja að kosninga- réttur heyri til grundvallar- mannréttinda og þess vegna má nokkurri furðu sæta að enn skuli ekki hafa verið gengið í það að hálfu Alþingis að jafna þennan mikla at- kvæðamun. Að sjálfsögðu kemur endurskoðun stjórnarskrárinnar inn i þetta mál. Hér er ef til vill um einn versta vankant núverandi stjórnar- skrár að ræða og brýnt mann- réttindamál að úr verði bætt. Aðlögun að nútímanum Á það hefur verið bent í umræðum um nýja stjórnarskrá, að nauðsyn beri til að fá stjórnarskrá, sem taki mið af breyttum þjóðfélags- þáttum og lifsmáta, sem orðið hafa á þeim rúmu tuttugu árum, síðan íðasta stjórnarskrárbreyting var erð. Þar sem núverandi stjómarskrá er að stofni til rúmlega aldargömul, hlýtur þetta atriði málsins að vega þungt í sambandi við nauðsyn nýrrar stjórnarskrár. Mannleg samskipti eru að sumu leyti orðin flóknari og marg- þættari en var fyrir tuttugu árum og þjóðfélagið er orðið margbrotnara en þá var. Sambúðarhættir fólks hafa og breyst og yfirleitt viðhorf fólks til þjóðfélagsins á mörgum sviðuin. Allt þetta hlýtur að teljast veigamikill rökstuðningur fyrir hröðun á nútíma- stjórnarskrá. Lokaorö Hér hefur aðeins verið stiklað á mjög stóru í sambandi við endur- skoðun og samningu nýrrar stjórnar- skrár landinu til handa og örugglega hefur mörgu þar verið sleppt, enda hér um ákaflega margbrotið og um- fangsmikið mál að ræða. Aðeins hefur það verið tilgreint sem mér sem leikmanni i þessu máli hefur flogið í hug í fljótu bragði. Þar eru auðvitað aðrir mér margfróðari um þetta mál, eins og Ijóst má vera. Nú hafa verið starfandi stjórnarskrárnefndir hátt í áratug. Hjá þeim tveim stjórnarskrár- nefndum, sem starfandi hafa verið á þessu tímabili hefur sjálfsagt mikið og gott starf verið unnið á þessum tíma. Vonandi ber núverandi stjórnarskrárnefnd gæfu til að ljúka sínu verki sem fyrst við samningu nýrrar stjórnarskrár. Um þá skoðun hljóta allir réttsýnir menn að geta sameinast að rúmlega tíræð stjórnar- skrá verði leyst af hólmi með nýrri og þágjarnafyrr enseinna. SigurðurG. Haraldsson. „ ... Nú er svo málum komið aö eitt at- kvæöi á Vestfjörðum er á við fímm at- kvæði í Reykjaneskjördæmi. Það verður að telja að kosningaréttur heyri til grundvallar- mannréttinda og þess vegna má furðu sæta að enn skuli ekki hafa verið gengið í það af hálfu Alþingis að jafna þennan mikla atkvæða- mun...”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.