Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIK' ffEMBER 1980. Bretland: VAXANDIANDUÐ Á EFNAHAGSSTEFNU THATCHERSTJÓRNAR V Leiðtogar atvinnulífsins hefja nú upp raust sína í gagnrýniskórnum með leiðtogum Verkamannaflokksins og launþega James Callaghan fyrrum forsætisráðherra Bretlands Margaretar Thatcher hugmyndafræði brjálæðisins. og forjngi Verkamannaflokksins kallar efnahagsstefnu stjórnar James Callaghan fyrrum forsætis- ráðherra Bretlands hefur kallað það hugmyndafræði brjálæðisins. Aðrir nefna það punkarastefnu í peninga- málum og fordæma hana fyrir gróf- leika sem byggður sé á fáfræði og einföldun ástaðreyndum. Hugmyndafræðin sem veldur svo mikilli fordæmingu ýmissa aðila er stefna í peningamálum, sem hinn þekkti bandaríski hagfræðingur Milton Friedman er helzti talsmaður lyrir. -Ríkisstjórn íhaldsflokksins í Bret- landi undir forsæti Margaretar- Thatcher hefur fylgt stefnu Fried- mans út i æsar. Telur Thatcher að með því megi koma í veg fyrir hina miklu verðbólgu í landinu og komast á þann veg sem leiði til eðlilegs efna-' hagsvaxtar. Þar með hefur heiminum gefizt tækifæri til að verða vitni að tilraun sem er mjög áhugaverð. Heimsþekkt- ir hagfræðingar eins og John Kenneth Galbraith hafa sagt að tilraunir með kenningar Friedmans í þessu efni í hinu gamla iðnveldi, Bretlandi, sé mjög heppileg frá fræðilegu sjónarmiði. í Bretlandi sjálfu verða deilurnar um hvort rétt sé að staðið sífellt heit- ari og heitari. Stefna Friedmans er að vísu engin ný sannindi. í grófum dráttum byggir hún á þvi að með því að stjórna peningamagni í umferð, meðal annars með vöxtum, þá megi hafa full tök á verðbólgunni. Atvinnuvegir á Bretlandi eru nú svo illa staddir að sífellt fleiri starfs- mönnum er sagt upp vinnu og tala at- vinnulausra er nú komin töluvert upp fyrir tvær milljónir. Síðustu mánuðina hafa blöð i Bretlandi stöðugt flutt greinar um málið, bæði ritstjórnargreinar og aðrar eftir blaðamenn, hagfræðinga, og menn úr viðskiptalífinu. Thatcher forsætisráðherra hefur góðan meirihluta í neðri deild brezka þingsins og hefur hingað til getað staðið föst á stefnu sinni, svo mikill var sigur hennar í maíkosningunum á fyrra ári. En eftir þær tók hún við forsætisráðherratigninni fyrst kvennaá Vesturlöndum. Thatcher hefur því hingað til get- að haldið sér við þá stefnu í peninga- málum að strangt eftirlit sé með peningamagni í umferð. En eins og áður sagði þá er það kenning þeirra sem aðhyllast stefnuna um eftirlit með peningamagni í umferð að ef magnið verði of mikið þá aukist verðbólgan. Ráðið við þessu sé því að halda magninu í skefjum eða jafnvel að draga úr því og þá dragi úr verðbólgunni. Ríkisstjórn Thatcher verður nú fyrir stöðugt vaxandi gagnrýni. Hún kemur ekki eingöngu frá Verka- mannaflokknum og leiðtogum laun- þega heldur einnig frá kaupsýslu- mönnum og atvinnurekendum. Hinir síðarnefndu eru ekki sizt andvígir þeirri hávaxtastefnu sem nú er fylgt í Bretlandi. Er henni ætlað að gera lánsfé dýrara en ella og draga úr áðurnefndum vexti peninga í umferð. Hafa margir áhrifamiklir iðnrek- endur í Bretlandi krafizt þess að grunnvextir í Bretlandi, sem nú eru 16%, verði lækkaðir mjög. Grunn- vextir Englandsbanka eru nú hærri en í öðrum helztu iðnríkjum heims. Kvartað er mjög yfir því að hinir háu vextir valdi því að brezka pundið sé mjög hátt á alþjóðagjald- eyrismörkuðum og valdi þvi að brezkar vörur á alþjóðamörkuðum standist samkeppni verr en ella. Iðnrekendurnir segja líka að sam- dráttur i lánum sé að sliga brezka at- vinnuvegi sem sárlega skorti Iánsfé um þessar mundir til að komast af á erfiðleikatímum. Margaret Thatcher getur bent á að nokkur árangur hafi náðst í bar- áttunni gegn verðbólgunni á undan- förnum mánuðum. Hefur nokkuð dregið úr henni og fjármálasér- fræðingar telja að enn muni draga úr henni á næsta ári. Talið er að verð- bólgan muni verða á 16,25% hraða það sem eftir er ársins. Þess eru sögð nokkur merki í Bretlandi að ýmis samtök launþega séu nú reiðubúin til að sætta sig við nokkru lægri launahækkanir en áður hefur verið krafizt vegna þess slæma ástands sem framundan virðist vera. Líkur eru á aukinni lokun fyrirtækja og auknu atvinnuleysi. Fregnir eru af því að verkamenn hjá Vauxhall verksmiðjunum í Luton hafi samþykkt að taka við 8% launa- hækkun og verkamenn við Lucas raf- eindaverksmiðjurnar hafa samþykkt 10% launahækkun. Þykja þessar tiltölulega hófsömu aðgerðir verka- manna bera vitni um að tekið sé mið af slæmum atvinnuhorfum í náinni framtíð. Leiðtogar tveggja milljóna fag- lærðra verkamanna í vélsmiðjum hafa hafnað tilboði um 6,2% launa- hækkun. Hefur frekari viðræðum verið frestað þar til hinn 13. október. Terry Duffy, einn leiðtogi vél- smiðjanna sagði nýlega við frétta- menn að þeir væru ekki i neinu styrjaldarskapi og sæktust engan veginn eftir því að í odda skærist milli deiluaðila. Margir fylgismenn Thatcher for- sætisráðherra hafa hrósað henni mjög fyrir að standa fast á stefnu sinni og taka ekki i mál neinar breytingar á stefnu stjórnar sinnar i peningamálum. Þjóðin verður sjálf að standa undir framfærslu sinni og ,,ég mun ekki standa fyrir því að peningar verði prentaðir og settir í umferð aðeins til þess að verðbólgan aukist.” Thatcher er mjög ákveðin í að dregið verði úr opinberri eyðslu og náð verði tökunt á verðbólgunni. „Þannig er hægt,” segir hún ,,að gefa atvinnu- vegunum færi á að ná sér rækilega upp úr öldudalnum.” Gagnrýnendum Margaretar Thatcher hefur samt sem áður fjölgað mjög að undanförnu. Þeir eru til sem halda því fram að minni verðbólga í Bretlandi undanfarna mánuði sé aðeins merki samdráttar i efnahagslífinu en alls ekki að þakka neinni sérstakri stefnu í peninga- málum. Einnig er því haldið fram af mörgum hagfræðingum að verðbólg- an í Bretlandi sé enn allt of mikil þrátt fyrir harðar kárínur sem sam- dráttur i atvinnulífi eigi sök á ásamt verulegum samdrætti í opinberri eyðslu. í The London Evening Standard dregur brezki hagfræðingurinn Gavyn Davies í efa að lögmálið um takmörkun á peningamagni í umferð geti gilt í Bretlandi. Þar sé bæði um að ræða einokun á sviði vinnu- markaðarins og atvinnulífs eða einokun hinna stóru verkalýðssam- taka og fyrirtækjasamtaka. Harðar aðgerðir i peningamálum í slíku þjóðfélagi þurfi til dæmis alls ekki að leiða til þess að gengið verði til hóf- samlegra launasamninga. Bendir hagfræðingurinn á að meðaltals- launahækkanir, sem samið hafi verið um á liðnu ári, nemi 21%. Þessar miklu launahækkanir hafa verið i samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar um að peningamagn i umferð aukist ekki um meira en 7 til 11% og gengi pundsins fari hækkandi. Auk þess hafi þessu fylgt 9% samdráttur í framleiðslu brezkra iðnfyrirtækja og tala atvinnulausra hafi farið upp fyrir tvær milljónir. (Reuter) Hagfræðingurinn Milton Friedman er einn helzti talsmaður þeirrar stefnu f peningamálum sem rfkisstjóm Margaretar Thatcher f Bretlandi fylgir nú af mikilli trúmennsku. Þrátt fyrir harða gagnrýni á árangursleysi efnahagsstefnu sinnar getur Thatcher forsætisráðherra Breta bent á að nokkuð hafi dregið úr verðbólgunni f landinu á sfðustu mánuðum, þó ekki séu allir sammála um orsakir þess.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.