Dagblaðið - 24.09.1980, Síða 4
4
DAGBLAÐID. MIDVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980.
Lilum hara á hurðina: Fær-
anleg fyrir hægri eða vinstri
opnun, frauðfyllt og níðsterk — og i stað
fastra hillna og hólfa, brothættra stoöa og
loka eru færanlegar fernu og flöskuhillur úr
málmi og laus box fyrir smjör, ost, egg, álegg
og afganga, sem bera má beint á borð.
w
Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorði
dönsku neytendastofnunarinnar DVN um
rúmmál, einangrunargildi, kælisvið, frysti
gctu, orkunotkun og aðra ciginlcika.
jFOmx
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Nýkomnir
KÚPLINGSDISKAR
í japanska bíla frá Japan
GJvarahlutir
Armúla 24. Reykjavlk. Slmi 36510
BÖRN — UNGLINGAR — FULLORÐNIR
Kenndir allir almennir dansar, svo sem:
BARNADANSAR — SAMKVÆMISDANSAR —
DISCODANSAR — GÖMLU DANSARNIR O. FL.
BRONS-SILFUR og GULLKERFI DSÍ
KENNSLUSTAÐIR:
Reykjavík: Þróttheimar, ný og glæsileg
æskulýðsmiðstöð v/Sæviðarsund
Kópavogur: Félagsh. Kóp. (Kópavogsbíó).
örstutt frá skiptistöð SVK.
Ath. Barnakennsla laugard. íKópavogi
Innritun og allar nánari upplýsingar
daglega kl. 10.00—19.00 í síma 41557
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ
Vísnavinir hefja sitt árletta vetrarstarf i kvöld á Hótel Bort> »|> verða vísnakvöldin inánaðarle|>a i vetur.
DB-mynd Bjarnleilur.
Vísnavinir hittast á Borginni í kvöld:
HYGGJAST GEFA ÚT SÖNGBÓK
— auk margs annars á fjölbreyttu vetrarstarfi
Visnavinir eru að hefja sitt árlega
vetrarstarf að nýju og verður fyrsta
vísnakvöldið á Hótel Borg i kvöld kl.
20.30. Meðal þeirra sem fram koma
eru hljómsveitin Þjóðleg tónlist í Kína
og ísberg ásamt Bergþóru Árnadóttur.
Vísnakvöldin verða með sama sniði
og í fyrra einu sinni í mánuði. Fólki er
velkomið að mæta með eigið efni. Þá
hafa vísnavinir ráðgert að hafa sérstök
kvöld fyrir félagsmenn að Fríkirkju-
vegi 11 í kjallara. Að sögn Gísla Helga-
sonar er ætlunin að menn hittist þar og
rabbi saman og syngi hver fyrir annan.
Þá er einnig fyrirhuguð útgáfa söng-
bókar.
Visnavinir tóku þátt í norrænu tón-
listarmóti í Gautaborg í sumar og var
ákveðið að næsta mót yrði haldið hér á
landi eftir tvö ár.
-EI.A.
Siguröar
Hákonarsonar
DANSSK0LI
TIL SÖLU
Mercedes Benz
508 D sendibíll
lengri gerð árg. 74, í góðu lagi. Uppl. í Bílakaup,
sími 86010 og í síma 71138 á kvöldin.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Gervasonis:
„ÁUTSHNEKKIR
FYRIR ÍSLAND”
— ef Frakkinn verður sendur nauðugur úr landi
„Ég hef óskað eftir því að dóms-
málaráðherrann endurskoði afstöðu
sina, enda verður ísland fyrir veru-
legum álitshnekki í heiminum ef þessi
afgreiðsla dómsmálaráðuneytisins
nær fram að ganga,” sagði Ragnar
Aðalsteinsson lögmaður franska
flóttamannsins Gervasonis við Dag-
blaðið í gær.
„Rök ráðuneytisins fyrir ákvörðun
sinni eru fyrst og fremst þau að
Gervasoni hafi gerzt sekur um form-
brot. Það er, hann gaf sig ekki fram
við landamærin á Seyðisfirði og
baðst hér hælis, heldur kom inn i
landiðá fölskum forsendum.
Hins vegar gaf hann sig fram strax
og til Reykjavíkur var komið og ég
fékk þá mál hans til meðferðar. Ég er
mjög óánægður með afgreiðslu yfir-
valda á málinu og tel hana ranga.
Það að veita manninum landvistar-
leyfi hefði ekki valdið yfirvöldum
óþægindum en hefði verið í fullu
samræmi við hina mannlegu hlið
málsins. Ef svo fer að Frakkinn
verður sendur úr landi fer hann til
Danmerkur og lendir að öllum líkind-
um í höndum yfirvalda þar sem síðan
framselja hann til Frakklands. Þar
bíður hans veruleg refsing, ef til vill
fangelsi.”
Ragnar sagði að mál Gervasonis og
sovézka flóttamannsins Kovalenkos
væru „fullkomlega sambærileg".
Ekki væri betur séð en flótti
Kovalenkos væri jafn mikið „form-
brot” og flótti Gervasonis ef ætti á
annað borð að hengja sig í forms-
atriði.
-ARH.
Dómsmálaráðuneytið vísar franska flóttamanninum
Patrick Gervasoni úr landi:
Ekki rétta leiðin að
villa á sér heimildir
— segir Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra
„Umsókn mannsins um landvistar-
leyfi í febrúar í vetur var synjað.
Hann kom svo til Íslands 2.
september og villti á sér heimildir
með fölskum persónuskilríkjum. Það
er auðvitað ekki leiðin til að koma
hingað og við sjáum okkur ekki fært
að verða við beiðni hans,” sagði
Friðjón Þórðarson dómsmálaráð-
herra um mál franska flóttamannsins
Patricks Gervasonis. Gervasoni Itefur
verið neitað um landvistarleyfi og var
ákvörðun yfirvalda tilkynnt Ragnari
Aðalsteinssyni lögmanni Frakkans í
bréfi dagsettu 22. september. í
bréfinu segir orðrétt:
„Umbjóðandi yðar telur sig póli-
tískan flóttamann vegna neitunar að
gegna herþjónustu. Hefur hann
hlotið refsidóma í heimalandi sínu
fyrir herdómsstóli fyrir að neita að
sinna herkvaðningu og fyrir liðhlaup.
Að auki hefur hann hlotið refsidóm
fyrir almennum dómstóli vegna þátt-
töku í mótmælaaðgerðum.
Vegna máls þessa skal tekið fram,
að almennt er það ekki talinn grund-
völlur fyrir pólitísku hæli, að
viðkomandi hafi horFið úr landi
vegna afneitunar á herþjónustu, sem
skyldug er að þar lands lögum.’”
Ákveðið var að Frakkinn færi úr
landi síðari hluta dags i gær, en að
beiðni Ragnars Aðalsteinssonar var
þvi frestað til laugardags. Höfðu
margir samband við dómsmála-
forsætisráðherra i
Gervasoni griða.
og
Gervasoni um landvist hér. Var henni
synjað. Hann skrifaði dómsmála-
ráðuneytinu bréf sama efnis 8. maí.
Var erindið til meðferðar hjá yfir-
völdum þegar hann kom til Seyðis-
fjarðar með Smyrli 2. september.
Sagði hann ranglega til nafns, og gaf
sig ekki fram fyrr en í Reykjavik.
Virðist það hafa vegið talsvert þungt í
ákvörðun ráðuneytisins að neita
honum um landvist.
Patrick Gervasoni er fæddur II.
apríl 1951. Hann komst upp á kant
við frönsk stjórnvöld vegna þeirrar
afstöðu sinnar að neita að gegna her-
skyldu í heimalandi sínu. Hlaut hann
refsidóma þess vegna en strauk, var
hundeltur af lögreglu og gat hvergi
um frjálst höfuð strokið. í lok sl. árs
riúði hann til Danmerkur. I
febrúar á þessu ári barst sendiráði
íslands í Kaupmannahöfn beiðni frá
gær og báðu i einkaviðtali Dagblaðsins við
Gervasoni 12. þ.m. sagðist hann vera
,i eðli minu friðarsinni.”
Ennfremur sagði hann:
„Að neita herþjónustu í Frakk-
landi er afbrol. Þið hafið enga her-
mennsku og því engin siik „afbrot”.
ísland er eina vestræna lýðræðisríkið
sem hefur engan her á sinum snærum
og þar af leiðandi enga herskyldu.
Þess vegna var mér bent á að frekast
yrði tekið við mér hér.”
-ARH.