Dagblaðið - 24.09.1980, Side 10

Dagblaðið - 24.09.1980, Side 10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980. 10 Vetrardagskrá Hótels Loftleiöa: ÝMISS KONAR UPPÁ- KOIWR í ALLAN VETVR Þjódarvikur, sælkerakvöld, matreiðslukennsla, vefnaðar- og prjónakennsla, víkingamatur og líkamsrækt Starfsmenn Hótels Loftleiða sem koma til með að stytta hótelgestum og borgarbúum stundir á vetri komanda. Frá vinstri Þórarinn Guðlaugsson yfirmatreiðslumaður hótelsins, Emil Guðmundsson hótelstjóri, Elisabet Hilmarsdóttir sem verður gestum til leiðbeiningar, Sigurður Guðmundsson og Soffia Pétursdóttir, bæði iklædd fornmannabúningum, Arndís Petersen, Unnur Arngrímsdóttir, Hermann Ragnar Stefánsson, Þórunn Sigurðardóttir sem ræður rikjum i veitingabúð hótelsins og Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða. DB-mynd Ragnar Th. ,,Við höfum ákveðið að reyna okkar lil að hressa upp á borgarlífið næsta velur með þvi að hafa l'jölbreytta og líflega dagskrá á Hótel Loftleiðum næsta vetur,” sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða er liann bauð blaðamenn og gesti velkomna í Blómasal hótelsins i siðustu viku. Gestum var boðið að smakka á „víkingamat- seðlinum” og dreypt var á „víkinga- blóði” unt leið og þessi nýja starf- semi hótelsins var kynnl. Á undanförnum árum hefur hótelið gengizt fyrir kynningarvikum i samstarfi við ýmsa aðila. Hafa verið kynntar bæði jijóðir, lönd og borgir. Fyrsta kynningarvikan verður l'innsk og hefst með vetrarstarfinu 30. september. Þá kemur sérstök Kanaríeyjavika og loks tékknesk. Sælkcrakvöld hótelsins eru orðin viðfræg. Þeim verður haldið áfram i vctur. Ríður Birgir isl. Gunnarsson á vaðtð 16. október. Gert verður hlé á kynningar- vikunum l'tá miðjum nóvember en jtá verða kynningar á oslunt og léttum vinum. í desem'iv-r verður sérstök dagskrá sem tengd er jólunum: aðventukvöld, Lúsíukvöld, ióla- pakkakvöld og 28. des. verður sér- stakur vikingakvöldverður. Fyrsta jtjóðarvikan eftir áramótin hefst 13. janúar og er sú bandarisk. Þá kemur ungversk vika og siðan búlgörsk. Einnig eru fyrirhugaðar kynningarvikur um Hong Kong og Malasiu. Matreiðslukennsla Hótelið hyggst standa l'yrir mal- reiðslukennslu I Leifsbúð á þriðjudagskvöldum. Fagntenn i mal- reiðslukúnstinni skiplast á unt að kenna gestum. Eldaðir verða nokkrir réttir sem siðan verða á mátseðli kvöldsins i Blóntasalnum. Víkingamatur um helgar Víkingakvöld verða á sunnudags- kvöldum I Blómasal. Stallari og þjónar klæðast I víkingabúninga og borinn verður fram þriréttaður kvöldverður: blandaðir sjávarréttir, lambakjöt, fyllt með fjallagrösum og steikt á langeldi að víkingasið, og víkingapönnukökur í eftirrétt. — Þetta er mjög Ijúffengur matur og ekki sizt pönnukökurnar sem bornar eru fram með rabarbarasultu sem búin er til I hótelinu. — Er það algjört nýmæli hér á landi að búin sé til rabarbarasulta á veitingahúsi, að jtvi er okkur er kunnugt um. Þórunn Sigurðardóttir, sem er yfirmatreiðslumaður veitinga- búðarinnar, sagði okkur að rabar- barasultan þeirra vekti mikla athygli meðal útlendinganna sem snæða i veitingabúðinni. Væru það einkum Frakkar sem væru hrifnir af henni og notuðu hana gjarnan út á allan mat, hvort sem er hádegisverður eða morgunverður. Hún sagðisl hafa séð þá nota rabarbarann út i kornflögur ogskyr! Kalt borð og tízkusýningar Kalda borðið, sem hefur verið á boðstólum á hverjum degi frá opnun hótelsins 1966, verður nú endurbætt. Boðið verður upp á ferskt grænmeti og ýmsa nýja rétti og hinn vinsæli salat-bar verður á hverju kvöldi. Fyrsta föstudag hvers mánaðar verða lizkusýningar i umsjá Unnar Arngrimsdóttur, haldnar í samvinnu við íslenzkan heimilisiðnað og Rammagerðina. Sigurður Guð- mundsson leikur á orgel og píanó í Blómasal frá fimmtudegi til sunnudags. 1. október verður kynntur nýr sjávarréttamatseðill. „Sálusorgari" hótelgesta Eitt af nýmælunum sem tekið verður upp á Hótel Loftleiðum i vetur er að ung stúlka, Elisabet Hilmarsdóttir, leiðbeinir hótelgestum um hvað hægt er að gera sér til dægrastyttingar bæði á hótelinu og einnig um það sem er að gerast almennt í borgarlifinu. Má segja að hún verði eins konar „sálusorgari” hótelgestanna. Þá verður hótelgestum gefinn kostur á vefnaðar- og spunakennslu á vegum íslenzks heimilisiðnaðar og prjónakennslu á vegum Kamma- gerðarinnar fyrir hádegi á laugar- dögum. Ekki aöeins hugsað um magann „Það er ekki aðeins að við hugsum um að fólk fái eitthvð gott í magann og geti skemmt sér vel heldur viljum við einnig hugsa um líkams- heill gesta okkar,” sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi. Sundlaug hótelsins verður opin til afnota fyr- ir hótelgesti og þar verða kennd- ar slökunaræfingar kl. 17.00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Leiðbeinandi verður Zophonías Pétursson. Þá verður morgunleikfimi þriðjudaga, fimnttu- daga og sunnudaga. Leiðbeinandi .lóhann Ingi Gunnarsson. -A.Bj. Fjölskylduhátíðir á sunnudögum — Hótel Loftleiðir gleymirekki yngstu kynslóðinni Eitl af því sem er á vetrardagskrá Flólel Loflleiða í velur er sérslök fjölskyldudagskrá á sunnudögum. — Hermann Ragnar Stefánsson stjórnar þessum dagskránt, sem ællaðar eru fyrir l oreldra og börn. Bœði utan dyra og innan „Lögð verður sérstök áherzla á að krakkarnir leggi sjálfir fram „skemmtiatriði”, auk þess sem ýmis félagasamtök unglinga og skólarnir kynna starfsemi sína,” sagði Hermann Ragnar. Veizlustjórinn verður enginn annar en sjálfur „Gosi” sem hefur I rá mörgu að segja. Fjölskylduháliðirnar hefjast um ellefuleytið á sunnudagsmorgnum með ýmiss konar skemmtilegheitum utandyra. Ætlunin er að fá lúðra- sveitir til að leika létt og skemmtileg lög, brunaliðið sýnir brunavarnir, flugbjörgunarsveitin kynnir starf- semi sína, flugvélar verða lil sýnis og ýmislegt fleira verður til fróðleiks og skemmtunar. Malur verður Iramreiddur i veilingabúðinni. Hermgnn Ragnar lagð sérslakaáherzlu á að þar vrði á boðstólum venjulegur maltir, ekki aðeins hamborgarar og pvlsiir. þóll að sjálfsögðu verði einnig hægl að fá slika rétti. Þá verður efnl lil kynningar á ýmsum þeim vörum, sem börn og unglingar þurfa á að halda, eins og leikföngum, húsgögnum og ýntiss konar fatnaði. -A.Bj. Yfirmatsveinn Hótels Loftleiða, Þórarinn Guðlaugsson, ásamt þeim hjónum Unni Arngrímsdóttur, sem scr um tízkusýningar fyrir Hólel Loftleiðir, og Hermanni Ragnari Stefánssyni, sem stjórnar barna- og fjölskylduhátíóunum sem verða á sunnudögum í vetur. -DB-mynd RagnarTh.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.