Dagblaðið - 25.10.1980, Síða 2

Dagblaðið - 25.10.1980, Síða 2
ÁKVÖRÐUNARRÉTT ÖLÓÐRA MANNA ÞARF AÐ ÞRENGJA — sömu lög viröast ekki gilda um eiginmann og eiginkonu Kona I Breiðholti skrifar: Hver er mtinurinn á geðbiluðum manni í æðiskasti og ölóðum? Þess- ari spurningu beini ég til löggjafar- valdsins. Til að fyrirbyggja misskilning þá tek ég fram að þegar ég segi manni þá á ég við konu jafnt sem karl. Ég hef verið svo lánsöm um dagana að þurfa mjög lítið að leita lögregluaðstoðar, þar til nýlega. Því miður fannst mér sú aðstoð ekki nógu góð. Ég stóð allt í einu frammi fyrir því sem margir kvarta undan og tala um, að ölóðum manni sé gefinn allt of mikill sjálfsákvörðunarréttur. Þegar um brjálaðan mann er að ræða sem hætta getur stafað af, sé hann frjáls, þáer ekki talað um sjálfsákvörðunar- rétt. Geðbilaði maðurinn er einfald- lega tekinn í gæzlu og honum þar með forðað frá því að vinna óhæfuverk. Þetta telja allir rétt. En hvað gerist svo ef um ölóðan mann er að ræða? Oft stafar engu minni hætta af honum. En þegar fólk leitar hjálpar og verndar lögreglu þá horfir málið öðruvísi við. Nú þarf að athuga hvað má gera og hvað má ekki gera. Sé um húsráðendur að ræða virðast sömu lögin ekki ganga yfir bæði hjónin. Ef það er eiginkonan sem er hinn ógæfusami aðili þá er lítið gert Sé það hins vegar eiginmaðurinn sem biður um að konan sé tekin í geymslu með lögregluvaldi, jafnvel þó ekki stafi af henni veruleg hætta, þá gildir vilji eiginmannsins. Hversu hátt er metinn vilji einstaklingsins í slíku tilfelli? En snúum okkur að eigin- manninum. Hvað gerist ef eigin- konan biður um vernd og hjálp vegna ölæðis hans? Það virðist ekki vera hægt að taka eiginmanninn af hans eigin heimili nema með hans samþykki hafi hann ekki framið augljóst óhappaverk. Þarna er sjálfsákvörðunarréttin- Áróður og rangfærslur ífréttum útvarpsins — útvarpsráð grípi í taumana Útvarpshlustandi skrifar: Áróður og rangfærslur í frétta- flutningi úlvarps er nokkuð sem landsiýðut hefut þurft að búa við um langan aldur. En nú að undan- ■förnu hefur heldur keyrt um þver- bak. Svo virðist sem fréttir útvarps séu orðnar helzta málgagn alræðis- og niðurrifsaflanna í þjóðfélaginu í dag. Keppzt er við að velja og túlka fréttir þannig að hinn „rétti” málstaður fari ekki halloka. Minna þessi vinnubrögð óneitanlega á vinnubrögð útvarpsstöövanna í ..draumaríkjunum” fyrir austan tjald. Nærtækasta dæmið úr þjóðmálunum í dag eru hinar dæma- lausu rangtúlkanir frétta af Flugleiðamálinu svokallaða. Þegar forráðamenn Flugleiða gáfu úl yfir lýsingu varðandi hlutabréfakaup starfsmanna, þegar samgöngumála- ráðherra hafði mælzt til að þeim yrðu lánaðar 200 milljónir króna, til þeirra kaupa, var hún svo skrumskæld i meðförum frétta- manna útvarps að ekki komst til skila það sem stóð í yfirlýsingunni. For- ráðamenn Flugleiða sendu nú leið- réttingu til útvarpsins en ekki gat hún komist rétt til skila eftir handleiðslu fréttamannanna. Þetta er það sem í daglegu tali kallast rangfærslur og blekkingarstarfsemi. Miklu fleiri dæmi mætti nefna, en í stað þess að vera með upptalningar miklar ætla ég einungis að óska eftir því við útvarpsráðsmenn lýðræðis- flokkanna þriggja að þeir gripi í taumana sem fyrst, því eigi er ráð nemaítímasétekið. um ekki gleymt og jafnvel þó fleiri heimili séu í hættu má ekki hefta ferðir hans nema eftir einhverjum fáránlegum serimóníum. Það er gömul og ný saga að í slík- um tilvikum er eins og ekkert sé hægt eða megi gera fyrr en einhver óhamingja hefur hlotizt af þessum vesalings mönnum. Háa löggjafarvald! Breytið þessum lögum! Þrengið ákvörðunar- rétt ölóðramanna! Bréfritari telur að erfitt sé að hefta gerðir ölóðs eiginmanns á eigin heimili. DB-mynd: Jim Smart. HOTTINTOTTAR r r IIÞROTTUM VISIS? — þar úir og grúir allt af vitieysum Nýjasta Flugleiðaþotan, Boeing 727—200. Hún er lengri en fyrri tvær Boeing- þoturnar en þessi þota hefur ekki sérstakar fragtd.vr eins og hinar. Frímann glæri hringdi: Eru íþróttafréttamenn Vísis algjörir hottintottar? Ég gat ekki varizt því að spyrja sjálfan mig þess- arar spurningar eftir að hafa lesið íþróttafréttir Vísis miðvikudaginn 22. október. Þar úir og grúir allt af alls kyns 106 þúsund íbarnapössun: ÞORLÁKSHÖFN NIÐURGREIÐIR EKKIKRÓNU Aöalheiður Ingvadóttir, Þorláks-, höfn, hringdi: Ég er einstæð móðir. Ég þarf að greiða samtals 106 þús. krónur fyrir að Iáta passa barnið mitt. Barnið er hálfan dag hjá dagmömmu og hálfan dag í leikskóla. Af þessum 106 þúsundum fara 81 í dag- mömmuna. Þorlákshafnarhreppur greiðir ekkert niður eins og tíðkast i borginni og allflestum kaupstöðum og kauptúnum. Ég stend varla undir því að greiða slíkan rosalegan kostnað sem fylgir barnapössun. Það á að vera sjálfsagt að sveitarfélagið greiði slíka þjónustu niður. vitleysum, margar hverjar hlægileg- ar. Talað er um „10 landsleikja- klúbbinn” þegar menn hafa leikið 100 landsleiki í handknattleik, UMFS er sagt eiga að leika aukaleik við Fram um I. deildarsæti í blaki (það er UMSE sem á að leika við Fram) og sagt er að ÍS og Þróttur hafi unnið Völsung í Reykjavíkurmótinu. Vita íþróttafréttamenn Vísis það ekki að Völsungur er lið frá Húsavík og getur því ekki leikið í Reykja- víkurmóti? Það læðist að mér sú hugsun að Vísir ráði hreinlega ekkert við þá stækkun sem varð á blaðinu nýlega, blaðið virðist vera hroðvirknislega unnið, þetta á ekki bara við um íþróttafréttirnar heldur allt blaðið. Ég held að það væri miklu betra að hætta útgáfunni heldur en að prenta slíka endemis vitleysu. Ölfushreppur, en Þorlákshöfn tilheyrir honum, stendur ekki öörum sveitarfélögum jafnfætis hvaö snertir niðurgreiðslur á barnapössun að sögn Aðalheiðar Ingvadóttur. n- ■>;ft- I Úrklippa af íþróttasiðu Vísis sl. miðvikudag. Raddir lesenda Frjálst útvarp — til þess að við getum hlustað á eitthvað annað en þingmenn Einn argur hringdi: Hve lengi á að bjóða þjóðinni upp á að hlusta á helv.. þingmennina rífast heilt kvöld? Og um ekki neitt. Og síðan er handboltalýsing færð aftur til að þessir uxar geti 'romsað yfir þjóðinni. Nei og aftur nei! Það er timi til kominn að þjóðin fái að velja um fleiri útvarpsstöðvar en þá sem þingmennirnir stjórna. Þeir ráða dagskránni og ef þá langar til að tala við þjóðina þá er annarri dagskrá ýtt út. Þjóðin á ekki að láta bjóða sér þetta. Við krefjumst þess að starfræksla útvarpsstöðva verði gefin frjáls eins og útgáfu dagblaða. Hvernig myndi það dagblað líta út ef ríkið hefði einkarétt á dagblaðaútgáfu? Það liti út eins og Alþýðublaðið í Mogga- stærð. Ekkert nema pólitík á 48 siðum. Við ættum að þakka fyrir að hafa enn okkar frjálsu pressu. ■ ■ ■ ■ FRAM EÐA UMFS .. í 1. deildlna í blaki Völsungar, sem áttu aö keppa i l. deild tslandsmótsins i blaki i vetur, hafá tilkynnt, aft þeir muni ekki senda lift til keppn- innar. Er þvi einu sæti óráftstafaft i 1. deildinni i vetur, og hefur verift ákveftift aft Fram, sem varft i 2. sæti 2. deildar i fyrra oe.UMFS sem varft i neftsta sæti 1. deíTcT-" ar, leika um lausa sætift. gk—• i ursiit I í biaki ií kvðld Crslitaleikir Reykjavfkur- 5 mótsins I blaki verfta háftir i ^ iþróttahúsi Hagaskólans i kvöld M og verftur leikift til úrslita bæfti i M karla- og kvennaflokki. M Kvennaleikurinn hefst kl. M 18.30 og mætast þar i hreinni B úrslitaviftureign IS og Þróttur, H en bæfti þessi lift unnu sigur M gegn yölsungn mótinu. ■ KanffMfWnrfffn hefst kl. 20 og ■ þar mætast erkif jendurnir ■ Þróttur og IS. Hvorugt liftift ■ hefur tapaft leik til þessa og er ■ þvi um hreinan úrslitaleik aft ■ ræfta.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.