Dagblaðið - 20.11.1980, Síða 2

Dagblaðið - 20.11.1980, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980. 2 f V. Óþverranum spúð yfir Hafnfirðinga. DB-mynd: Sig. Þorri. Sérfargjöld fyrir aldraða og öryrkja Anna Jónsdóttir (0348—4661) skrifar: Mikið heyrist kvartað í okkar þjóðfélagi. Allir virðast hafa það svo erfitt. En það er til fullt af fólki sem hefur úr litlu að spila en ekki heyrist í. Það eru öryrkjar og ellilíf- eyrisþegar. Mig langar til að spyrja þann mann sem hvað mest hefur verið deilt á undanfarna mánuði, Sigurð Helga- son forstjóra Flugleiða, að því hvort ekki sé hægt að láta öryrkja og ellilíf- eyrisþega fá flugfargjöld á sama verði og starfsfólkið þegar sæta- nýting er slæm. Margt af þessu fólki á börnin sin vítt og breitt um landið en kemst miklu minna en það vildi. Það er gaman að stjórna þegar vei gengur. Sá sem stjórnar þegar illa gengur er ekki öfundsverður og þannig eru hlutirnir nú einu sinni. Haltu þinni reisn, Sigurður Helga- son! Ég held með sanni að þú getir það vel. Stokkseyri Simi 3206 Ólyktin íHafnarfirði: Mistök okkar □ Nýjar kjötvörur daglega. □ Verzlið í jólamatinn tímanlega. □ Opið alla daga til kl. 22, laugardaga og sunnudaga líka. □ Þið pantið. — Við sendum heim, eða komið og sannfærizt. Við bjöðum ykkur velkomin. Sjómaður sem ekki er orðinn tvitugur fær ekki að fylgja félögum sínum á skemmtistað. Hann fær heldur ekki að taka með sér vin og bjór inn i landið eftir siglingu. DB-mynd: Á.P. — segja nokkrir starf smenn Lýsis og mjöls Nokkrir starfsmenn Lýsis og mjöls skrifa: Sá ófyrirgefanlegi atburður gerðist hjá Lýsi og mjöli í Hafnarfirði að rafmagnskaplar sem liggja í hreinsi- tæki verksmiðjunnar brunnu svo hleypa varð reyknum út eins og gert er í öllum öðrum verksmiðjum í landinu. Við höfum verið hér á vöktum og brætt loðnu í rúman mánuð og hafa hreinsitækin verið í gangi allan límann. Við efumst um að Sveinn heilbrigðisfulltrúi hafi haft hugmynd um að verksmiðjan væri í gangi. Reyndar erum við ekki vissir um hvort þorri Hafnfirðinga hafi vitað það því starfsmenn verksmiðjunnar hafa oft verið spurðir af hverju verk- smiðjan væri stopp á meðan hún hefur verið í fullum gangi. Það að mjöl skyldi fara upp úr reykháfnum var ekkert annað en mannleg mistök starfsmanna verk- smiðjunnar og erum við mjög leiðir yfir því, vonumst við til að þetta verði eina og síðasta skiptið sem það komi fyrir. Við viljum vekja athygli á þvi að þetta er trúlega eina verksmiðjan í landinu sem komið hefur upp hreinsitækjum sem eitthvert gagn ei i. Sjálft ríkið með sínar verksmiðju hefur ekki svona fullkominn ú: búnað, aðeins reykháfa. Ástæðan er gífurlegur stofn- og rekstrarkostn- aður. Við erum þvi mjög hissa á skilningsleysi heilbrigðisfulltrúans og nokkurra bæjarbúa á þessu. Verk- smiðjan hefur lagt fram tugi milljóna til að losa bæjarbúa við þennan óþverra reyk. Anna Jónsdóttir spyr Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða hvort ekki sé hægt að vcita öryrkjum og öldruðum fargjöld á sama verði og starfsfólkið fær þegar sætanýting er slæm. MA GIFTAST18 ARA — en ekki fara á vínveitingahús G. M. skrifar: Sífellt er verið að tala um jafnrétti í launa- og féiagsmálum og ætla ég hér að fjalla lítillega um raunverulegt Stokkseyringar Árnesingar □ Vandlátir verzla hjá okkur. □ Vorum að taka upp mikið úrval leik- fanga og annarrar gjafavöru á góðu verði. misrétti. Ég tek dæmi um ivo sjó- menn, annan 20 ára en hinn]7 ára. Laun beggja eru jöfn skv. kjara- samningum en sé skipið látið sigla á erlendan markað með aflann kemur i ljós misrétti. Sá tvítugi fær að taka með sér inn í landið tvö karton af vindlingum, tvær flöskur af sterku víni og tvo bjórkassa. Sá yngri fær hins vegar aðeins vindlingana.Vilji hann lika fá vin og bjór verður hann að taka áhættuna og smygla því inn í iandið. Þetta hlýtur að teljast launamis- rétti því að þetta er hluti af kjörum sjómanna. Þó hvorugur maðurinn drekki er mismunurinn samt stað- reynd því lítill vandi er að selja vínið og bjórinn, tollstimplað og löglegt. Ef þessir tveir menn ætla að fara saman út að skemmta sér kemur í ljós að það gengur ekki. Lögin álíta 17 ára menn fullfæra um að skila vinnu við erfið skilyrði úti á hafi en þeir eru ekki taldir hæfir til að skemmta sér á vínveitingahúsum fyrr en 20 ára. Einnig verður sá 17 ára að biðja vin sinn tvítugan að fara fyrir sig i ríkið þvi þar fær hann ekki af- greidda eina einustu flösku, ekki einu sinni af léttvíni. En hann má taka stórákvörðun, þegar hann verður 18 ára að giftast, ákvörðun sem ætti að gilda allt lífið. Þetta er félagslegt óréttlæti sem þyrfti að iag- færa. Ég er ekki að mæla með drykkju ungra manna, það er einfaldlega staðreynd að fólk á aldrinum 17—20 drekkur ekki minna en þeir sem eru komnir yfir tvítugt. Skemmtana- þörfin breytist ekkert við 20 ára af- mæli. Viðkomandi verður argur yfir óréttlætinu, fer niður á Hallæris- pian í von um að hitta fólk, drekkur meira og verður enn argari og hefnir sín með því að brjóta rúðu. Það er kallað æskulýðsvandamál. Lögreglan mætir síðan á staðinn, tekur manninn í sína vörzlu og sektar hann daginn eftir, áður en honum er sleppt. □ Tilboð okkar 1 nóvember er 20% afsláttur af öllum kjötvörum í kæliborði.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.