Dagblaðið - 20.11.1980, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
Spurning
dagsins
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Mér datt í hug að senda Fram-.
sóknarflokknum fáein kveðjuorð.
Mér finnst eftirfarandi eiga vel við
hann:
»Kýlt í
eina
LAUGARDALNUM
SSv. skrifar:
Vissulega hafði maður heyrt
brandara um manninn sem synti 200
metrana í efnalaug í misgripum, en
að ég ætti eftir að upplifa þetta
sjálfur datt mér aldrei í hug. Ég hef
að undanförnu brugðið mér í þennan
dásamlega forarpytt i Laugardaln-
um, sem gengur undir nafninu
Laugardalslaug, og þvílík og önnur
eins reynsla.
Efnalaug eða su'ndlaug? Ja, það er
ekki á færi hvers sem er að greina þar
á milli. Klórmagnið í lauginni er slíkt
að það er ekki fyrir augu venjulegs
fólks að svamla þarna í skitugu
vatninu, sem þar að auki er eins og í
gufupotti. Eftir 400 metra sund i
lauginni eru augu manns öll orðin
rauð og bólgin. Varla yrðu þau verri
eftir sundsprett í hreinsilegi í efna-
laug.
Mér er spurn. Hversu oft er skipt
um vatn í lauginni á ári? Er ekkert
eftirlit með klórmagninu, sem í hana
fer? Er hitastigið ekki mun hærra en
eðlilegt þykir í sundlaug? Erlendis
þekkist ekki slik gufubaðskynding
nema þar sem hún á við. í guðanna
bænum reynið að laga þetta áður en
fólk kemur staurblint upp úr laug-
inni.
F.P. hringdi
í kvikmyndagagnrýni Helgarpósts-
ins 14. nóvember sl. talar ÞB um að
til að fíla myndina í svælu og reyk
sem sýnd er í Háskólabíói þurfi
áhorfendur helzt að hafa „kýlt í eina
pípu eðasvo”.
Mér finnst svona kvikmyndagagn-
rýni ekki eiga við, að hvetja fólk til
að koma með hass í bíó.
Sjúkrahús Akraness.
ALLIR VILDU LIUU
KVEDIÐ HAFA
HORIZON
HORIZON
HORIZON
HORIZON
HORIZON
HORIZON
HORIZON
var kosinn bill ársins í Evrópu 1978—1979. Siðan hafa aðrir bílaframleiðendur
tekið hann sem fyrirmynd.
er framhjóladrifinn, en þó léttur í stýri.
er með þverstæða vél.
hefur minni beygjuradíus en eldri gerðir af framhjóldrifsbilum.
er mjög rúmgóður miðað við aðra bíla í sama siærðarflokki.
hefur stangafjöðrun á framhjólum, og hún bilar ekki. auk þess sem stangar-
fjöðrunin gefur möguleika á að hækka bílinn eða lækka eftir óskum eigenda og
gefur bílnum óvenjugóða aksturseiginleika jafnvel á íslen/.kum sveitavegum.
er mjög sparneytinn en þó kraftmikill.
Ég held að niðurtalningarleiðin
þeirra sé i þessa átt.
pípu
eða
svo”
Kona við Miklubraut hringdi:
Nýlega lá ég á Sjúkrahúsi Akra-
ness. Ég held að mér sé óhætt að
segja að öll umönnun þar hafi verið í
einu orði sagt frábær. Læknar,
hjúkrunarfólk og annað starfslið
gerði allt sem það gat til að láta
manni líða vel. Aðrir sjúklingar sem
ég talaði við voru mér sammála. Á
Sjúkrahúsi Akraness er mjög gott að
vera. Þökk sé starfsfólkinu.
Datt í sundur framsókn frú,
fúinn reyndist kviðurinn.
Hatast þar í heitri trú
háls og rófuliðurinn.
KRISTJÁN MÁR
UNNARSSON
„Klórmagnið i lauginni er slikt að það er ekki fyrir augu venjulegs fólks að svamla þarna i skitugu vatninu sem þar að auki er
eins og i gufupotti,” segir bréfritari um Laugardalslaugina.
— DB-mvnd: R.Th.
EFNALAUGINI
Góð um
önnun
Til hvers er
snjórinn?
Hlynur Björnsson, 4 ára: Til að renna
sér.
Kristln Edda Guðmundsdóttlr, 4 ára:
Til að renna sér og búa til snjóbolta.
Guðrún Gunnarsdóttlr, 4 ára: Til að
leika sér og renna sér og búa til
snjókarla.
Sigurður Rafn Arnbjörnsson, 5 ára: Til
þess að renna sér og búa til snjókarla.
Lika til þess að búa til snjóhús.
Haraldur Guðnason, 3 ára: Til að
fólk detti á hausinn og til að renna sér.
Helga Elisabet Guðlaugsdóttir, 5 ára:
Til þess að renna sér og búa til snjókarl
og til þess að detta á hausinn.