Dagblaðið - 20.11.1980, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
Jeppagæjarnir gátu ekki á sér setið þegar snjórinn kom. Afleiðingin er veru-
lega skemmdar umferðareyiar við Kringlumjrarbraut.
SPJÖLL UNNINÁ GRASEYJUM
KRINGLUMÝRARBRAUT AR
— Ökumenn fjórhjóladrifinna ökutækja sýndu
mátt tækja sima í hálkunni
Allmiklar skemmdir voru unnar á
graseyjum og grasköntum við
Kringlumýrarbraut á þriðjudaginn.
Gerðist þetta með því móti, að þegar
fjöldi bíla stöðvaðist i brekkunni frá
Kópavogi að Miklubraut tóku öku-
menn sem voru á bílum með drifi á
öllum hjólum sig út úr biðröðum er
mynduðust, þar sem bílar vanbúnir
til vetraraksturs komust ekki leiðar
sinnar. Spóluðu þessir ökumenn upp
á eyjarnar og grasi lagða kanta utan
brautarinnar og spældu þá upp.
Mikii brögð voru að þvi að umferð
tepptist vegna hálkunnar. Má vera að
skemmdir hafi víðar verið unnar en á
Kringlumýrarbrautinni, þegar þeim
sem voru á fjórhjóladrifnum bílum
datt í hug að sýna mátt bíla sinna. En
talsvert varð um slíkar skemmdir við
Kringlumýrarbrautina. Þar tók það
þolinmóða ökumenn um 40 mínútur
að komast upp brekkuna vegna ann-
arra kyrrstæðra bíla sem margir
hverjir iágu þversum á götunni og var
vart hægt að hreyfa.
Eyjur og kantar hafa þarna verið
ræktaðir upp, við ærna fyrirhöfn og
kostnað, borgarbúum tii yndisauka.
Þótti því mörgum sárt að sjá hve
böðulslega ökumenn vel búinna bíla
fóru þarna um. Ættu borgarbúar að
minnast þess að akstur sem slíkum
spjöllum veldur er refsiverður og ber
að láta lögreglu vita af slíku.
-A.St.
HREINLÆTIS-
TÆKI í
MIKLU ÚRVALI
B909ÍngAVÖruv0r%lao
[byggingauörurJ Hnnnessonnr
SlDUMÚLA 37-SlMAR 83290-83360
POUTISKUM VIDRÆÐUM
Asmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ASÍ, á rabbfundinum i gær.
DB-mynd GunnarOrn.
Ásmundur Stefánsson á rabbf undi með ungliðum Framsóknarf lokksins:
STEND EKKI í FL0KKS-
—vegna Alþýðusambandsþings
„Ég hef ekki staðið í flokkspólitísk-
um viðræðum vegna Alþýðusambands-
þings þrátt fyrir að ég dragi enga dul á
aðild mína að ákveðnum flokki. Á
okkur Karvel er ótvíræður munur að
því leyti. Nauðsynlegt er að forseti ASÍ
sé í óháðri stöðu gagnvart flokkun-
um,” sagði Ásmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri ASf og frambjóð-
andi til forsetakjörs i ASÍ, á ópinberum
rabbfundi á vegum Sambands ungra
framsóknarmanna í gær. SUF-menn
buðu Ásmundi að ræða verkalýðsmál,
en áður höfðu þeir haft Þorstein Páls-
son framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambandsins á hádegisfundi.
Ásm'undur fékk nokkrar spurningar
um forsetakjörið og ASl-þingið í
næstu viku. Hann kvaðst treysta á
stuðning Alþýðubandalagsmanna i
verkalýðshreyfingunni, „þó eflaust séu
deildar meiningar I þeim hópi,” en
bjóst ekki við miklum viösjám á þing-
inu vegna forsetakjörsins. Fremur
mætti búast við einhverjum átökum
um kjör miðstjórnar. Spurningu um
það hvort hann hygðist halda áfram
framkvæmdastjórn í ASf ef svo færi að
Karvel Pálmason sigraði í forsetakosn-
ingunum svaraði Ásmundur aðeins:
„Ég mun hugsa málið.”
Um efnahagsmálin almennt sagði
Ásmundur að „margt benti til að það
stefndi í mikla verðbólgu á næstunni.”
Mikill galli væri að stjórnmálamenn
einbiíndu á visijölukerfið: „Það ber
alltof mikið á endalausum bráða-
birgðalausnum. Verðlagið er til dæmis
keyrt niður með smjörútsölu rétt á
meðan verið er að reikna út visitöluna.
Stjórnmálamenn sofa en vakna þegar
dregur aö vísitöluhækkunum á kaupi.
Þeir ættu að horfa frá liðandi stund og
setja niður fyrir sér hvaða langtíma að-
gerðir eru nauðsynlegar. Rétta leiðin er
ekki sú aö skerða verðbætur aftur og
aftur.”
í svari við einni fyrirspurn sagði
Ásmundur að stjórnvöld gerðu of lítið
að því að hafa samráð við alþýðusam-
bandsmenn þegar meiri háttar efna-
hagsaðgerðir væru ákveðnar og stefna
mörkuð i ýmsum málum:
„Engum dettur i hug að tala við ASÍ
þegar togarar eru settir á skrapveiðar í
6 vikur þó að vitað sé að það varði at-
vinnumál verkafólks. Þá er látið nægja
að tala við Vinnuveitendasambandið
— Verzlunarskólinn
75 ára
Í dag er Verzlunarskóli íslands 75
ára. Af því tiiefni verður opið hús i
skólanum þar sem haldnar verða
ræður og veitingar boðnar. Skóla-
stjóri Verzlunarskóians, Þorvarður
Eliasson, hefur tekið saman töflu um
framhaldsmenntun forstjóra 100
stærstu fyrirtækja á fslandi. Þar
kemur m.a. fram aö 26 forstjórar eru
verzlunarskólagengnir en 28 Itafa
stundað nám í Menntaskólanum í
Reykjavík, næst kemur Samvinnu-
skólinn með 17, þar af eru 14 hjá
Sambandinu.
Þorvarður Eiiasson tók við starfi
skólastjóra Verzlunarskólans fyrir
ári, af Jóni Gíslasyni. Verzlunarskóli
fslands var stofnaður af vcrzlunar-
mönnum árið 1905 en það var ekki
fyrr en 1943 að hann fékk leyfi lil að
útskrifa stúdenta. Fyrstu stúdentar
sem útskrifuðust úr Verzlunarskól-
anum voru 7 karlmenn og var það
árið 1945. -FJ.A.
Þorvarflur Ellasson, skólasljúri
Verzlunarskóla íslands.
DB-mynd Gunnarörn.
Núerhægtaðhringja
beinttilNorðurlanda:
Munódýraraað
hringja beint
f gærmorgun var tckið í notkun
sjálfvirkt samband við Norðurlönd.
Töluverður mismunur er á verði ef
hringt er i gegnum 09 eða beint.
Simtal til Danmerkur og Færeyja
kostar i gegnum 09 1100 krónur á
minútu, en beint 859 og er þá sölu-
skattur innifalinn i hvoru tveggja.
Sama gjald er til Noregs, Sviþjóðar
og Finnlands, i gegnum 09 1150
krónur minútan en 936 ef hringt er
beint og er þá söluskattur meðtalinn.
Sama gjald er allan sólarhringinn.
-F.LA.
og Sjómannasambandið. Þetta á við
ráðherra yfirleitt, sama hvaða flokki
þeir tilheyra. Alþýðubandalagsráðherr-
ar skipuleggja prógrömm í iðnaðar-
málum undir handarjaðri Davíðs
Schevings og félaga en hafa ekki fyrir
því aðtalaviðokkur.”
-ARH.
Af lOOforstjórum
stærstu
fyrirtækjanna eru:
Alls 26
verzlun-
arskóla-
gengnir