Dagblaðið - 20.11.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
—VEIAVERKSTÆÐI—
Egils Vilhjálmssonar H/F
_____SMIOJUVEGI9 A - KÓP. - SÍMI44445_
• Endurbyggjum vélar
• Borum blokkir
• Plönum blokkir og head
• Málmfyllum sveifarása, tjakköxla
og aðra slitfleti m/ryðfriu harðstáli
• Rennum ventla og ventilsæti.
• Slípum sveifarása.
SIMI
44445
FULLKOMIÐ MÓTOR OG RENNIVERKSTÆÐI
H.í.
n
LYFTIGETA:
8 tonn—2 metra
5 tonn—3 metra
2 tonn—7 metra
1 tonn—10 metra
SlMI
52371
Staðsetturí Hafnarfirði
Stálborðbúnaður, 24 stk.
ÚR-VAL
Kr. 15.790.-
Nýkr. 167,90
Póstsendum
Magnús Guðlaugsson
Strandgötu 19 Hafnarfirði - Simi 50590
Opið hús
á 75 ára afmœli
Verzlunarskóla Islands
Fimmtudagur 20. nóvember 1980
Dagskrá:
I. kl. 16.00
Safnazt saman í liátíðarsal skólans og þegnar veitingar.
2. Sigurður Gunnarsson, formaður skólanefndar. býður
gesti velkomna.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri. fer nokkrum orðum um
skólastarfið.
Hans Kristján Guðmundsson, forseti NFVÍ. lýsir
félagslífi nemenda.
Gestum gefst tækifæri til að færa skólanum árnaðar
óskir.
3. Skólakórinn flytur nokkur lög undir stjórn Jóns Cortes.
4. Húsnæði skólans og búnaður skoðað. Kennarar. nem-
endur og skólastjórn verða til viðtals fyrir gesti í
kennslustofum skólans.
Stofa l íslenzkukennarar
— 2 Esnkukennarar
— 3 Þýzkukennarar
— 4 Dönskukennarar
— 6 Stærðfræðikennararog raungreina
— 7 Tölvukennarar
— 8 Latínu-ogfrönskukennarar
— 9 Bókfærslu-oghagfræðikennarar
— 10 Verzlunarréttar . sögu-og vörufræðikenn-
arar.
Hellusundshús — vélritunarkennarar
Skrifstofa — starfslið skrifstofu
Hátíðarsalur — skólastjóri, skólanefnd
5. kl. 19.00
Formaður skólanefndar, Sigurður Gunnarsson, kveður
gesti.
<!
Erlent
Erlent
Erlent
D
Nýtt olíuhneyksli
á Ítalíu
Yfirmaður skattalögreglunnar
meöal hinna handteknu
„Á Ítalíu ætti að þjóðnýta
brauðvörur, mjólk og bensín. Holdið
er veikt og allt of margar freistingar
eru fyrir hendi.” Hér talar Silvio
Brunello af eigin reynslu, því hann er
einn af 90 mönnum úr ítalska
olíuiðnaðinum, sem handteknir voru
fyrir skömmu fyrir að hafa snuðað
ítalska ríkiskassann um upphæð sem
á núverandi gengi samsvarar u.þ.b.
1500 milljörðum ísl. króna. Þetta er
eitt mesta fjármálahneyksli sem
komið hefur upp á Italíu eftir stríð.
Maður þarf að eiga vini á æðstu
stöðum til að geta svikið svona
hrikalegar upphæðir undan skatti og
almenningur varð dolfallinn þegar
Raffaele Giudice hershöfðingi var
tekinn höndum, en á árunum 1974—
78 var hann yfirmaður Guardia di
Finanza, hinnar ævagömlu ítölsku
skattalögreglu. Giudice hershöfðingi
situr nú i fangelsi í Torínó og hefur
verið ákærður fyrir smygl, skjalafals,
spillingu og þátttöku í glæpasam-
tökum.
í sjóðum stjórn-
málaflokka
Meðan hann var við völd í skatta-
lögreglunni var ekki greiddur skattur
af u.þ.b. 25% af þeim olíuafurðum,
sem notaðar voru á Ítalíu. Einhver
hlýtur að hafa tekið eftir þessu fyrr
og rannsóknardómarar þeir sem hafa
með málið að gera eru margir
sannfærðir um að eitthvað af þeim
peningum sem þarna komu við sögu
hafi lent í sjóðum stjórnmála-
flokkanna.
Uppljóstrunin hófst árið 1976
með því að Aldo Vitali, yfirmaður
Feneyjadeildar skattalögreglunnar,
hafði sambind við yfirmenn sína í
Róm og tjáði þeim að hann hefði
rekizt á umfangsmikil skattsvik.
Hann hafði einnig orðið var við dul-
arfullt fyrirtæki í Lichtenstein sem
átti hluta af þeim verksmiðjum, sem
hann taldi viðriðin þessi skattsvik og
Vitali bætti því við að það fyrirtæki
væri leppur fyrir „þekktan stjórn-
málamann eða ættingja hans”. En
Vitali tókst hins vegar ekki að hafa
upp á nafni þessa stjórmálamanns.
Þægilegir emb-
ættismenn
Þegar svo Giudice hershöfðingi
fékk skýrslu Vitalis í hendur gerði
hann enga tilraun til að ganga úr
skugga um sannleiksgildi hennar.
Þess í stað lét hann flytja Vitali til
Rómar þar sem hægt var að hafa
auga með honum og Vitali var falin
kennsla við akademíu skattalög-
reglunnar. En í millitíðinni naut
Giudice þess til fulls að vera æðsti
skattheimtumaður þjóðarinnar.
Hann var fastagestur í helztu veizlum
Rómarborgar, og árið 1977 drakk
hann kampavín með ráðherrum í
veizlu sem haldin var til að heiðra
byggingarverktakann Gaetano
Caltagirone, en hann hafði verið
sæmdur riddarakrossi fyrir framlag
sitt til ítalska byggingariðnaðarins.
Nýlega var Caltagirone þessi svo
handtekinn í New York og verður
hann væntanlega framseldur til
heimalands síns fyrir skattsvik að
upphæð u.þ.b. 300 milljarða ísl.
króna.
Svo lengi sem Giudice var við völd
fengu olíuspekúlantarnir í Feneyja-
héraði að athafna sig í friði. í stað
Vitalis kom „þægilegri” emb-
ættismaður, — sem nú er einnig í
fangelsi.
Falskar kvittanir
íboði
Það var ekki fyrr en í september
árið 1978 að tVeir óreyndir
embættismenn í skattalögreglunni
komust að þvi að lítil oliudreifingar-
stöð í smábænum Treviso nálægt
Feneyjum lét viðskiptavinum sinum í
té falskar kvittanir. Þegar embættis-
mennirnir skýrðu yfirmanni sínum
frá þessu, bauð hann þeim þegar í
stað upphæð sem samsvarar 20
milljónum ísl. króna á mann til að
„gleyma öllu því sem þeir hefðu
séð”. Þess í stað fóru þeir fram á
viðtal við rannsóknardómara. I
Treviso, Demenico Labozzetta, og
sögðu honum frá því sem gerzt hafði.
í árslok 1978 höfðu rannsóknir í
Treviso leitt i ljós að þéttriðið net
skattsvikara í olíuiðnaðinum lá frá
Feneyjum þvert yfir iðnaðarhéruð
landsins til Torínó. Leitað er nú 200
manna sem ætlað er að hafi verið
flæktirí málið.
AÐALSTEIN
INGÓLFSSON
Sonur skatt-
heimtumannsins
En dómskerfið hefði átt að vakna
fyrr, því árið 1974 fannst forstjóri
olíuverksmiðju myrtur rétt fyrir utan
verksmiðju sína í Torínó. Lögreglan
hafði þá grun um að hann hefði reynt.
að kúga fé út úr eiganda verk-
smiðjunnar, sem hafði stundað það
að senda tankbíla út um hvippinn og
hvappinn með falsaðar kvittanir í
hverjum bíl. Eigandi verk-
Frá Feneyjum: Svo lengi sem Giudice
var viö völd fengu olíuspekúlantarnir
að athafna sig í friði.
smiðjunnar hvarf af sjónarsviðinu,
en í fjarveru sinni var hann sýknaður
af morði en dæmdur fyrir skattsvik.
Þeirri rannsókn var ekki haldið til
streitu, jafnvel þótt rannsóknar-
dómarinn í málinu fengi senda
nafnlausa skýrslu þar sem sýnt var
fram á tengsl milli nokkurra
iðjuhölda í oliuiðnaðinum í Torínó
og vafasamra olíuhreinsunarstöðva í
Veneto.
1 Civitavecchia, fyrir norðan
Róm, þóttu rannsóknardóma«a
nokkrum umsvif nálægrar olíu-
hreinsunarstöðvar anzi grunsamleg,
en stöðina átti Giuseppe Giudice,
sonur hins þekkta yfirmanns skatta-,
lögreglunnar. Rannsóknardómarinn í
Civitavecchia komst brátt að því að
lykilmaðurinn í því braski var aðstoð-
aryfirmaður skattstofunnar i Róm.
Sá var tekinn höndum þegar í stað og
fluttur til Treviso fyrir stuttu til að
aðstoða við rannsókn málsins.
Aldo Moro — ritari hans þáði 40
milljarða isl. króna.
Höfuðpaurinn
flýr til
Svisslands
í ljós kom að Giuseppe Giudice
var einnig hluthafi í einni þeirri
olíuhreinsunarstöðva í Veneto sem
lágu undir grun.
Ekki hefur rannsókn málsins verið
neinn dans á rósum fyrir lögregluna
og dómara. Strax í byrjun var
rannsóknardómurum í Treviso hótað
lífláti. Síðan tókst einum
höfuðpaurnum, hinum þekkta olíu-
iðjuhöldi frá Mílanó, Bruno
Musselli, að flýja til Sviss eftir
viðvörun. Hálftima áður en lögreglan
opnaði bankahólf Mussellis hafði
einhver tæmt þau. Samt sem áður
komust rannsóknardómararnir að
því að þrír þekktir lögfræðingar úr
röðum sósíalista höfðu verið i
þjónustu hans, — en tveir þeirra eru
einnig þingmenn og háttsettir i
ráðuneytum. Síðastliðin ár hafði
Musselli einnig greitt ritara hins
fræga píslarvotts kristilegra
demókrata, Aldo Moro, upphæð
sem nemur 40 milijörðum isl. króna.
Stuttu áður en Moro var rænt árið
1978 hafði Musselli boðið honum
skotheldan lúxusbíl til afnota, en
Moro þáði ekki greiðann. Billinn var
síðan gefinn formanni sósíalista,
Bettino Craxi, sem notar hann enn.
Iðnaðarráðherr-
ann ásakaður
Alls konar sögur hafa svo gengið
um hinn „þekkta stjórnmálamann”
sem Vitali nefndi í skýrslu sinni
forðum. Fyrir hálfum mánuði lýsti
einn þingmaður nýfasista, Giorgio
Pisano, því yfir að fulltrúi
olíusvikaranna í Veneto á italska
þinginu væri Antonio Bisagiia,
iðnaðarráðherra og talsmaður
voldugra afla innan flokks kristilegra
demókrata. Sjálfur hefur Bisaglia
þverneitað þessum ásökunum og
hótað málsókn, en saksóknari ítalska
ríkisins hefur samt sem áður hafið
frumrannsókn á fjármálatengslum
hans við aðila í Veneto héraði.
Þótt þetta olíuhneyksli sé nú
orðið að meiri háttar stjórnmála-
kreppu, þá virðast ráðamenn á Ítalíu
vera með afbrigðum fimir í að standa
af sér alla slíka storma. Mikið olíu-
hneyksli kom upp árið 1974, en þá
komst rannsóknardómari í Genúa að
því að oliufélögin höfðu tryggt sér
hagstæða löggjöf með því að múta
stjórnmálamönnum. Rannsókn á því
máli fór fram í þinginu sjálfu og þar
tókst þingnefnd að svæfa það og fá
dregnar til baka ákærur á nokkra
ráðherra og þingmenn. Enginn efast
nú um, að stjórnarflokkarnir munu
endurtaka þennan leik, telji þeir að
sér stafi hætta af þessum nýja
„scandalo del petrolio”.
(Byggt á grein eftir Tana de Zulueta, New States-
tnan7. nóv. sl.).