Dagblaðið - 20.11.1980, Side 9
!
mh oiaA.)ao/'f
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
FÓLK
Audrev Hepburn i hinu fræga hlutverki sinu i My Fair Ladv.
Audrey Hepbum
nær sér í nýjan
Hin heimsþekkta leikkona Audrey Hepburn sem i mörp ár hefur lifaó róleg-
heitallfi I Róm ásamt manni sinum, tannlœkninum Andrea Dotti, hefur á ný
komizt i sviðsljósiö. Það hefur nefniiega lekið út að hún sé búin að krefjast
skilnaðarfrá slnum huggulega eiginmanni. Ástœðan er sögð sú að huggulegheit
eiginmannsins hafi ekki verið of áberandi, a.m.k. ekkigagn vart henni sjálfri.
Kunningjar Audrey Hepburn segja að hún hafi I mörg ár reynt að lappa upp á
hjónabandið en illa gengið. Sérstaklega hafi reynzt erfitt að fá eiginmanninn til
að sllta kunningsskap hans við aðrar konur. En nú hefur hin 51 árs gamla
Audrey náð sér í nýjan félaga, leikarann Rob Wolders sem er 44 ára. Er fullyrt
að þau muni ganga I hjónaband um leið og gengið hefur verið frá skilnaðinum.
Glœsilegt úrval
af vönduðum fatnaði
og skóm
takhú/id
Skóhöllin
Reykjavíkurvegi 50
ATH.
Tízkusýning okkar verður
endurtekin á laugardag kl 4.
Borgarstjórinn sannfærðlst um mis-
tök sin þegar hann sá bara tvo hjól-
reiðamenn nota brautirnar þegar
hann fór í sunnudagsbíltúrinn sinn.
New York:
Sérstakar
hjólreiöa-
brautir
lagöar
niöur
Ungfrú Alheimur afsalaði sér titlinum:
Var sökuö um aö hafa
leikiö í klámmynd
Hin átján ára gamal Gabrielle
Brum frá Vestur-Þýzkalandi var
heimsins fegursta stúlka í fjórtán
klukkustundir. Þá afsalaði hún sér
titiinum. Henni mislíkaði þegar brezk
blöð báru hana þeim sökum að liafa
leikið i klámmyndum. 52 ára gamall
„vinur” fegurðardrottningarinnar
ungu, Benno Bellembaum, andmælti
þessum áburði og sagði, að hún hefði
að því er hann bezt vissi aldrei leikið í
klámmynd. „Hún hefur ekki komið
nakin fram fyrir nokkurn mann
nema mig,” sagði Bellembaum, sem
hafði boðið dagblöðum nektar-
myndir af vinkonu sinni strax og úr-
slitin í alheimsfegurðarsamkeppninni
voru Ijós.
Eftir að Gabrielle Brum hafði af-
saiað sér titlinum var Ijóst að hann
kænii í hlut hinnar 19 ára gömlu
Kimberley Santos frá Guam. Hún
yfirtekur þvi öll þau verðlaun sem
titlinum fylgja, þar á meðal ferð um-
hverfis jörðina.
Meira um ástamál kóngafólksins:
Andrew Bretaprins
setti í nýja snót
— sú heitir Gemma, en gamla viöhaldið situr
heima og er afbrýðisöm
— borgarstjórinn
fékk hugmyndina
í Kína, en það
notaði bara eng-
inn brautirnar
,,Það getur verið að við höfum
gert mistök með því að prófa þetta,”
sagði borgarstjóri New York-borgar.
Mistökin sem hann talar um eru
hjólreiðabrautir sem settar voru á
nokkrar breiðgötur á Manhattan.
Það var borgarstjórinn, Edward
Koch, sem fékk þá hugmynd að láta
gera þessar sérstöku hjólreiðabrautir,
eftir að hann hafði verið í heimsókn í
Kína.
Þessi hugmynd fékk byr undir
báða vængi í verkföllunum í vor, en
þá gripu um 60 þúsund íbúar New
York til þess ráðs að hjóla í vinnuna
þegar almenningsfarartækin hættu
að ganga. Síðan héldu margir áfram
að hjóla, en talið er að sú tala sé
komin niður í tíu þúsund.
Vandamálið með hjólreiða-
brautirnar er það að það notaði bara
enginn þær. Það sem að siðustu
fullvissaði Koch borgarstjóra um að
þetta væru mistök var það að um
siðustu helgi sá hann bara tvo menn
nota brautirnar, og þar að auki
annanþeirra vitlaust.
Hjólreiðamennirnir hafa kvartað
yfir því að fótgangandi vegfarendur
noti brautirnar og einnig að rusli sé
dengt á þær. Bilstjórar eru argir út af
því að pláss sé tekið frá þeim í
brautirnar og kaupmennirnir yfir þvi
að erfiðara sé að afhlaða vörur til
verzlana eftir að brautirnar komu.
Það mun hafa kostað borgaryfir-
völd 150 milljónir króna að útbúa
brautirnar og sagt er að það kosti
nær fimmtíu miiljónir að leggja þær
niður.
Gabrielle Brum og Kimberley Santos, sem hafnaói í 2. sæti i keppninni en tekur •
nú yfir titilinn þegar Brum hefur afsalað sér honum.
Brezki prinsinn Andrew vill ekki
vera minni en stóri bróðir Karl
krónprins og hefur því náð sér í nýja
kærustu. Sú lukkulega heitir Gemma
Currey og er 22 ára gömul ljósmynda-
fyrirsæta að þvi er brezka blaðið Daily
Mirror upplýsir.
Andrew kallinn hitti Gemmu sína
þegár hann sótti flugtíma hjá föður
Gemmu. Pabbinn var áður hátt settur í
konunglega brezka flughernum. Leikar
fóru þó þannig að prinsinn hreifst
meira af dótturinni en pabba gamla og
flugtímunum.
En allar hugljúfar ástarsögur eiga
sér bakhlið. Bakhliðin í þessu ævintýri
um prinsinn er gamla kærastan hans,
Carolina Seaward. Hún situr nú heima
og er afbrýðisöm. ,,Ég geng frá hon-
um þegar ég hitti hann næst,” er haft
eftir ungfrú Carolinu. Téð Carolina er
þó varla of ljót fyrir prinsinn unga, því
hún státar af titlinum ungfrú Stóra-
Bretland. En ástin lætur ekki að sér
hæða.