Dagblaðið - 20.11.1980, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
£
Sþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
SNLLDARMARKVARZLA
ÞORLÁKS BJARGAÐIVAL
— Í22 skipti stöðvaði hann skot FH-inga í gær—þar af þrívegis víti—og Valur vann
Þorlákur Kjartansson var hetja Vals-
manna gegn FH i gærkvöld og
varði eins og berserkur. Sýndi lands-
liðstakta.
QPR keypti
miðherja
Oldham
- sem síðan keypti Roger
Palmerfrá Man.City
QPR keypti í gær miðherja
Oldham, Simon Strainrod — áður
Sheffield United — fyrir 300 þúsund
sterlingspund. Oldham notaði strax
nokkuð af peningunum til að ná sér í
annan miðherja. Keypti blökku-
manninn Roger Palmer frá Man. City
fyrir 70 þúsund sterlingspund.
Grótta malaði
Reynismenn
Einn leikur fór fram í 3. deildinni í
handknattleik um sl. helgi. Reynir og
Grótta mættust þá i Sandgerði og
sigraði Grótta með 34 mörkum gegn
15. Hólmþór Morgan skoraði flest
mörk Reynis eða 4, en Heimir
Morthens 3. Ekki höfum við uppl. um
markaskorara Gróttu, en þær eru
þegnar með þökkum i framtíðarleikj-
um þeirra Nesbúa.
ÍBKogValur
leika íkvöld
í kvöld fer fram leikur á milli 1.
deildarliðs ÍBK i körfunni og KR-inga,
sem eins og allir vita leika i Úrvals-
deildinni. Hefst hann kl. 19.30 í nýja
húsinu í Keflavík. ÍBK lék fyrir
skömmu við íslandsmeistara Vals og
tapaði naumt.
Ef ekki hefði komið til snilldar-
markvarzla Þorláks Kjartanssonar i
marki Valsmanna gegn FH i 1.
deiidlnni i handknattleik f Hafnarfirði í
gærkvöld er ég efins um að leikur
liðanna hefði lifað f minningunni nema
sem ein allsherjar mistök á báða bóga.
Þorlákur varði hvorki fleiri né færri en
22 skot í leiknum — þar af öll vítaköst
FH, þrjú að tölu. Að lokum fór svo að
Valur hafði með sér bæði stigin, en það
var ekki fyrir þeirra eigin snilld. Loka-
tölur urðu 22—21 Val í vil eftir að FH
hafði leitt 11—8 f hálfleik. Enn einu
sinni mátti FH sjá af báðum stigunum
eftir að hafa haft mun betur f fyrri hálf-
leik. En eins og liðið lék átti það ekki
sigurinn skilinn og reyndar ekki Valur
heldur. Jafntefli hefði verið
sanngjarnast.
Það er óþarfi að vera langorður um
þessa viðureign. FH tók forystuna
strax í upphafi og leiddi 5—2 eftir 10
mín. leik og hafði hinn stórskemmtilegi
línumaður þeirra, Þorgils Óttar
Mathiesen skorað þrjú markanna.
Munurinn var lengst af 2—3 mörk í
fyrri hálfleiknum og aðeins stórleikur
Þorláks í markinu svo og frískur
sóknarleikur Bjarna Guðmundssonar
héldu Val á floti. Valsliðið með allar
sínar skyttur skoraði aðeins eitt mark í
f.h. utan af velli.
Eftir átta mínútna leik eftir hlé
hafði Valur náðað jafna metin 13—13.
Vörn FH var tekin að hripleka vinstra
megin og Valsmenn óðu þar inn og út
rétt eins og þeir væru inni í stofu. Ef
ekki varð mark úr varnarmistökum FH
fiskuðu leikmenn Vals vítaköst, sem
Stefán Halldórsson skoraði jafnharðan
úr — alls 8 talsins. Þó voru þau öll í
sama hornið.
Jafnt var síðan á öllum tölum upp i
18—18 en síðan komust Valsmenn í
20—18, og svo 21 —19. Skammt til
leiksloka og flestir bjuggust við að
öruggur sigur væri í höfn. En Vals-
liðið var engu síður breyskt en Hafn-
firðingarnir. Brynjar Harðarson gerði
hver mistökin á fætur öðrum og FH
náði að jafna. Hann skoraði hins vegar
lokamark leiksins er 32 sek. voru til
leiksloka á afar fallegan hátt. Brauzt
inn af línunni og skoraði af miklu
harðfylgi. Lokasekúndurnar var
stiginn mikill darraðardans. Tveimur
Valsmönnum vikið af leikvelli á síðustu
14 sekúndunum en FH tókst ekki að
jafna. Minnstu munaði þó er
knettinum var blakað yfir Þorlák í
markinu í netið sekúndubroti eftir að
flautan gall. FH-ingar mótmæltu
harkalega en fengu engu breytt. Sigur
Vals í höfn.
Það er fljótgert að tína til þá menn í
liðunum er einhver tilþrif sýndu.
Þorlákur bar af hjá Val og Bjarni átti
góðan fyrri hálfleik en lék furðanlega
lítið með i þeim síðari. Gunnar
Lúðvíksson tók sig saman í s.h. og
Stefán sýndi mikið öryggi í vítunum en
puðraði mikið utan af velli. Lítið kom
út úr „skyttum” Valsmanna.
Hjá FH varði Gunnlaugur lengst af
mjög vel — alls 16 skot. Geir byrjaði
vel en dalaði illa er á leikinn leið. Þor-
gils Óttar var sá eini er eitthvað kvað að
og mikið má vera ef þar er ekki fram-
tíðarstjarna á ferðinni. Menn á borð
við Kristján Arason voru ólíkir sjálfum
sér en þó náði liðið að leika nettan
bolta í fyrri hálfleik. Síðari hálfleiks-
draugurinn mætti síðan að venju og
eyðilagði allt.
Mörk Vals: Stefán Halldórsson 8/8,
Þorbjörn Jensson 3, Þorbjörn
HANDKNATTLEIKSDÚMARAR
REYKJAVlK
Aðalfundur Handknattleiksdómarafélags Reykjavíkur
verður haldinn í kvöld, 20. nóv., kl. 21.30 að Hótel Esju,
annarri hæð.
Fundarefni: 1. Stjórnarkjör.
2. Dómaramál.
3. Önnur mál.
Héraðsdómarar er ætla að starfa mæti með mynd vegna
endurnýjunar skírteina. HKRR — HKDR
Guðmundsson 2, Gunnar Lúðvíksson
2, Steindór Gunnarsson 2, Bjarni
Guðmundsson 2, Gísli Blöndal, Björn
Björns. og Brynjar Harðars. 1 hver.
MörkFH:
Þorgils Óttar Mathiesen 5, Kristján
Arason 4, Sæmundur Stefánsson 3,
Hans Guðmundsson 3, Guðmundur
Árni Stefánsson 3, Valgarður
Valgarðsson 2, Geir Hallsteinsson 1.
Dómarar voru þeir Björn Kristjáns-
son og Karl Jóhannsson. Valur fékk 8
víti — nýtti öll. FH fékk 3 — Þorlákur
varði öll. Tveimur FH-ingum,
Sæmundi og Valgarði, vikið af velli í 2
min. Þremur úr Val, Brynjari, Þorbirni
J. og Steindóri.
-SSv.
Hrubesch reyndist
Frökkunum erfiður
Það stendur fátt i vegi fyrir
Evrópumeisturum V-Þjóðverja þessa
dagana. í gærkvöld léku þeir vináttu-
landsleik við Frakka og sigruðu örugg-
lega, 4—1 að viðstöddum 60.400 áhorf-
endum i Hannover. Ekki voru liðnar
nema sex minútur af leiknum er
Manfred Kaltz kom V-Þjóðverjum yfir
Léku með auglýsingar á búningum:
Helsingör fékk
reisupassann
Hver minnist ekki hneykslisins er
varð hér heima fyrir 2 árum er Vikingi
var vísað úr Evrópukeppni fyrir
rúðubrot að kvöldi til i Ystad? Þótti
öllum framkoma IHF (Alþjóða hand-
knattleikssambandsins) til háborinnar
skammar i því máli og lúaleg, sem frek-
ast mátti teljast.
Nú hefur orðið annað hneyksli.
Dönsku bikarmeisturunum Helsingör
IF, sem Ingimar Haraldsson, fyrrum
Haukamaður, mun leika með innan
skamms, var um helgina vísað úr
Evrópukeppni bikarhafa fyrir að leika
með auglýsingar á búningum sínum í
síðustu umferð gegn belgísku bikar-
meisturunum. Helsingör dróst gegn
Baia Mara frá Rúmeníu í næstu
umferð, en af leikjunum verður ekki.
Forráðamenn HIF (Helsingör) eru
æfir út í formann danska sambandsins,
Gunnar Knudsen, því eftir að hafa
ráðfært sig við hann ákváðu þeir að
leika í búningum sínum með aug-
lýsingunum á. Dómarar leiksins sem
voru Finnar, bentu forráðamönnum
HIF á þetta en þeir töldu sér borgið
eftir að hafa talað við formann DHF.
„Afstöðu IHF verður ekki breytt,”
sagði einn forráðamanna Helsingör
,,en það sárgrætilegasta við þetta er að
Arhus KFUM lék einnig með aug-
lýsingu á sínum búningum i keppni
meistaraliða, en þeir sleppa á-
tölulaust.” Sannkallaðir snillingar
þessi IHF-klíka, finnst ykkur ekki?
-ASv.
með marki úr vítaspyrnu. Á 37. minútu
bætti Hans Peter Bricgel við öðru
marki eftir mikið einstaklingsframtak,
en Frakkar náðu að laga stöðuna fyrir
hlé með marki Larios úr vitaspyrnu á
40.mínútu.
í síðari hálfleiknum var það Horst
Hrubesch, miðherjinn sterki hjá Ham-
burger, sem reyndist Frökkunum
hvað óþægastur Ijár í þúfu. Hann
skoraði með þrumuskalla á 63. mínútu
eftir aukaspyrnu Kaltz og á loka-
mínútunni náði hann knettinum af ein-
um varnarmanni Frakka og sendi til
Allofs, sem skoraði örugglega. Þetta
var 22. landsleikur V-Þjóðverja í röð
án taps og þeir eru nú sem óðast að
vinna sér aftur sess sem bezta landslið
Evrópu.
En það voru fleiri vináttulandsleikir
í gærkvöld. A-Þjóðverjar sigruðu Ung-
verja 2—0 í Halle að viðstöddum
14.000 áhorfendum. Það voru þeir
Trocha og Joachim Streich, sem
skoruðu mörkin — bæði i fyrri hálf-
leik.
Pólverjar gersigruðu Alsírbúa 5—1,
en þeir síðarnefndu hafa vafalítið enn
verið skjálfandi eftir jarðskjálftann
mikla í haust. Iwan skoraði 2
markanna, Kupcewich. Ciosek og
Dziuba eitt hver. Staðan var 3—0 í
háfleik og 7.000 manns sáu leikinn,
sem fram fór í Varsjá. Þá gerðu B-
landslið Pólverja og A-Þjóðverja 1 — 1
jafntefli í Raciborz.
Leikaðferð Walesbúa
kom Tékkunum á évart
—Wales með örugga forystu í 3. riðli—ísland í 3. sæti
England er kóngur I Wales. í gær-
kvöld vann Wales sinn þriðja leik i 3.
riðli heimsmeistarakeppninnar undir
stjórn Mike England. Sigraði Tékkó-
slóvakíu 1-0 I Cardiff. Verðskuldaður
sigur og Tékkum kom mjög á óvart
uppstilling welska liðsins — 3-4-3 — og
áttu reyndar aldrei svar við henni.
Wales aðeins með þrjá varnarmenn,
auk markvarðar, fjóra framverði og
þrjá framherja.
Sigurmarkið var skorað þegar á
níundu mínútu. Mickey Thomas, Man.
Utd., sem var Tékkum mjög erfiður á
vinstri kantinum, lék upp kantinn og á
bakvörðinn. Síðan upp að endamörk-
unum. Gaf fyrir til David Giles, Swan-
sea, sem renndi knettinum í markið af
eins metra færi.
„Frábært hjá Thomas — Giles gat
ekki annað en skorað,” sagði John
Toshack, stjóri Swansea, sem var
meðal fréttamanna BBC á leiknum.
Wales lék mun betur í fyrri hálfleik en í
þeim sfðari komu Tékkar meira inn í
myndina. Frábærlega leiknir — en það
voru þó aðeins mikil mistök Dai
Davies, Wrexham, sem lék sinn 39.
landsleik, sem gáfu Tékkum möguleika
á að jafna. Knötturinn fór klaufalega
yfir Davies til Masny, sem spyrnti
framhjá i dauðafæri. Lið Wales lék
ekki eins vel í siðari hálfleiknum og
þeim fyrri. Giles meiddist og kom Carl
Harris, Leeds, í stað hans.
Þetta var fyrsti leikur Tékka í 3. riðl-
inum — ísland leikur í þeim riðli — og
tap þeirra var óvænt, þrátt fyrir góðan
árangur í fyrstu tveimur leikjunum. 0-4
sigur á Islandi í Reykjavík í júní. David
Giles skoraði þá eitt af mörkum Wales
— fyrsta landsliðsmark hans. f gær
skoraði hanns itt annað landsliðsmark.
Þá sigraði Wales Tyrkland 4-0 í
Cardiff. Áhorfendur í gær voru 20.175
og liðin þannig skipuð: Wales: Davies,
Price, Jerome Charles, Phillips, Kevin
Ratcliffe, Everton, sem lék sinn fyrsta
landsleik, Flynn, Yorath, Nicholas,
Giles(Harris), Walsh, Thomas. Tékkó-
slóvakia: Hruska, Barmos, Vojacek,
Jurkemik, Macela, Radimec, Kozak,
Panenka, Vizek, Masny og Nehoda.
Staðan í 3. riöli:
Wales 3 3 0 0 9-0 6
Sovétríkin 2 2 0 0 7-1 4
fsland 4 1 0 3 4-12 2
Tékkar 10 0 10-1 0
Tyrkland 2 0 0 2 1-7 0
Næsti leikur 2. desember. Tékkó-
slóvakía — Tyrkland.
,,Ef við komumst ekki í úrslit keppn-
innar á Spáni 1982 eftir þessa frábæru
byrjun þá verða það okkar eigin mis-
tök,” sagði Mike England, landsliðs-
einvaldur Wales, eftir leikinn.
-hsim.
Leikmaður rekinn
af velli f blakinu
Sá sjaldgæfi atburður gerðist í leik
ÍS og Vikings í blaki í gærkvöldi að
leikmanni var vikið af leikvelli. Er
þetta í annað sinn sern það gerist í sögu
blaksins á fslandi. Sá leikmaður sem
naut þessa „heiðurs” var Guðjón
Kristjánsson í Víking. Vann hann það
til saka að kalla dómarann ,?helvítis
fífl” og var að sjálfsögðu vikið af leik-
velli fyrir það, en þó aðeins í eina
hrinu. Aðaldómari leiksins Þorvaldur
Sigurðsson sýndi Guðjóni bæði rautt
og gult spjald í einu en það þýðir brott-
vikningu. Áður hafði Guðjón fengið
rautt spjald fyrir að mótmæla dómi.
Sá leikmaður sem fyrstur vár rekinn
af velli i íslenzka blakinu heitir Eiríkur
Stefánsson. Sá atburður gerðist á
Laugarvatni 1975 í leik UMFL og
Þróttar. Eiríkur lék með Þrótti og fékk
að fjúka út af fyrir að rífa kjaft.
UMFL vann þann leik 3—1. -KMU.