Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 27
*
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
77
rit vikunnar, sem flutt verður í kvöld
kl. 21.10. Nefnist það Morgunn á
Brooklynbrú eftir Jón Laxdal
Halldórsson. Leikstjórn annast Helgi
Skúlason, en með hlutverkin fara
Sigurður Skúlason, Rúrik Haralds-
son, Valdemar Helgason og Hákon
Waage. Leikritið tekur um klukku-
stund í flutningi. Tæknimaður er
Hörður Jónsson.
Jón Laxdal Halldórsson stundaði
nám í nemendaskóla Þjóðleikhúss-
ins, en haslaði sér fljótlega völl á leik-
sviði erlendis, þar sem hann hefur
verið búsettur um tveggja áratuga
skeið. Hann hefur þó komið heim
nokkrum sinnum og farið með hlut-
verk, m.a. í Otelló og Dómínó. Auk
þess hefur hann leikið í kvikmynd-
um, sem teknar hafa verið hér á
landi eftir sögum Halldórs Laxness
undir stjórn Rolfs Hádrichs, eins og
kunnugt er.
Jón hefur lengstum starfað í
ZUrich í Sviss. Þar var leikritið
Morgunn á Brooklynbrú frumflutt
og síðar var það einnig flutt I Köln.
Jón mun hafa skrifað fleiri leikrit, en
þetta er fyrsta verk hans sem íslenzka
útvarpið flytur.
MORGUNN Á BROOKLYNBRÚ - útvarp í kvðld kl. 21,10:
Ungur maður í sjálf s
morðshugleiðingum
Ungur maður stendur uppi á stólpa
efst á Brooklynbrú i New York, stað-
ráðinn í að fyrirfara sér. Prestur
nokkur klifrar upp til hans og reynir
að fá hann ofan af slíkum áformum.
Það kemur á daginn að þeir hafa
báðir orðið fyrir þungri reynslu, hvor
á sinn hátt. Þannig hefst útvarpsleik-
Höfundur útvarpsleikrits kvöldsins,
Jón Laxdal Halldórsson, er öllu
þekktari fyrir leik sinn en samningu
leikrita. Hann hefur komið hingað til
lands nokkrum sinnum að leika i
myndum gerðum eftir sögum Hall-
dórs Laxness. Við eitt slfkt tækifærí
er þessi mynd af honum tekin. Með
honum cr Rolf Hadrích sem leikstýrt
hefur myndunum.
Dallas:
Vinsælasti
framhalds-
myndaflokk-
urinn á Vestur-
löndum
—250 milljónir utan USA horfa á hann
Fyrir nokkru birtist bréf á lesenda-
síðu DB þar sem íslenzka sjónvarpið
var beðið að sýna framhaldsflokkinn
Dallas. Væri það flokkur fyrir alla fjöl-
skylduna sem vel væri þess virði að
sjá.Anzi margir virðast vera á máli
bréfritara þvi flokkurinn fer nú sigur-
för um hinn vestræna heim.
Eins og sjá má af nafninu eru þætt-
irnir upprunnir í Bandaríkjunum og
draga nafn af borginni Dallas í Texas.
En þaðan hefur flokkurinn síðan borizt
til Bretlands, Ástralíu, Hong Kong, og
Suður-Afríku og er nú talið að um 250
milljónir manna fylgist reglulega með
honum, fyrir utan þá sem horfa á hann
Eiginkona J. R. er ein af þeim sem
sterklega er grunuð um að hafa skotið
hann. Hún trúir því jafnvel sjálf þvi
svo oft hefur hana langað til þess.
I Bandaríkjunum. Sem dæmi um
vinsældir flokksins má nefna að þegar
brezka sjónvarpsstöðin ITV hafði sýnt
tvær þáttasyrpur linnti ekki sim-
hringingum og bréfum til stöðvarinnar
aðbiðjaummeira.
í nýlegu hefti af Newsweek er gerð
úttekt á stöðunni eins og hún var þá í
þáttunum. Ein aðalsöguhetjan hafði
orðið fyrir skoti og lá alvarlega særð
Bókstaflega allir aðrir sem við sögu
komu eru hins vegar grunaðir um
morðið.
Þetta atriði úr Dallas er ekki hið eina
sem líkt er söguþræði í Lörðinu sem
við sjáum nú vikulega. Þó Dallas sé
nýrri þáttur en Löður eru þættirnir
greinilega gerðir í þeimdúr seml.öður
gerir hvað mest grín að.
Eins og Löðrið er Dallas fiölskyldu-
saga, það eru reyndar flestar hinna
bandarísku sápuópera. Aðalsöguhetj-
ann J. R. Ewing (sá sem var skotinn) er
illa liðinn af öllum enda hinn mesti
harðstjóri. Hanp rekur fyrirtæki með
bróður sínum og græðist þeim vel fé.
En J. R. vill gjarnan losna við bróður
sinn til þess að sitja einn að gróðanum.
J. R. er giftur drykkfelldri konu sem
hann heldur fram hjá, m.a. meðsystur
hennar. Hann kúgar systurdóttur sína
sem býr hjá honum ásamt foreldrum
hans. Reyndar eru víst allir sem við
sögu koma dauðleiðir á J.R. Skotið á
hann á því eftir að duga I marga þætti
enn.
-DS.
Larry Hagman leikur hinn óskaplega
J.R. Ewing sem allir hata. Munið þið
eftir honum I framhaldsmyndaflokkn-
um um Dfsu I fiöskunni?
KVIKMYNDIR
8 fnm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu i mjög miklu úr-
vali í Stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með
hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla,
m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Wah Disuey, Bleiki
Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep,
Grease', Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og
skq>ta. Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla
KvHcmyndamarkaðurinn i-7.
.Sími 38521.
Möguleikar í kæli-
skápum, frysti
AFBORGUNARSKILMÁLAR WV Sl<ápUm "■JjjJ
^DÖNSK GÆÐI Vare- TRAUST pjpNUSTA
VAREFAKTA ,akt8' V0tt0rðÍ dÖnSkU
Vneytendastofnunarinnar
DVN um orkunotkun i
aðra eiginleika.
jFönix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420